Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 35

Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 35
göngu í ríkissjóð og sjálfvirkan vöxt útgjalda meiri en nokkru sinni fyrr. Þegar aðhalds var þörf dældi rík- isstjórnin fjármagni inn í hagkerfið, þegar aga var þörf þverbraut hún fjárlögin, þegar draga þurfti úr væntingum talaði hún um góðærið og þegar minnka þurfti neyslu og bruðl lækkaði hún skatta eigna- og hátekjufólks. Hún hefur skellt skollaeyrum við ábendingum okkar og annarra og látið Seðlabankann að mestu einan um árarnar í efnahags- stjórninni. Enda kalla þeir verð- bólgu og vexti eins og nú geisa „mjúka lendingu“. Eftir tólf ára stjórnarsetu er fullseint að iðrast korteri fyrir kosningar. Það er ein- faldlega komið nóg af þessari óstjórn. ’Eftir tólf ára stjórn-arsetu er fullseint að iðr- ast korteri fyrir kosn- ingar. ‘ Höfundur er alþingismaður Samfylk- ingar og situr í fjárlaganefnd. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 35 UMRÆÐAN BÆJARLIND 12 / S: 544 4420 / www.egodekor.is Opið mán - fös: 10.00 - 18.00 OPIÐ UM HELGINA lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00 Romantique hnotu borð 190x85 og 6 stólar Verð áður: 120.000,- Allt settið saman verð nú: 67.500,- ÚTSALAN ER Í HÁMARKI 10-60% afsláttur Leðursófasett Luna *Einungis selt saman í setti 3+1+1 Verð áður: 188.000,- Tilboðsverð nú: 159.800,- Tendence eikarborð 190x90 og 6 stólar Verð áður: 128.000,- Verð nú: 97.100,- Madison eikarborð 180x100 og 6 stólar Verð áður: 134.000,- Allt settið nú: 93.800,- Madison sófaborð -30% -30% 135x70 Verð nú: 20.300,- 60X60 Verð nú: 13.860,- Milano leðursófasett *einungis fáanlegt í svörtu leðri 3+2 Verð áður: 197.000,- Tilboðsverð nú: 167.450,- 3+1+1 Verð áður: 207.000,- Tilboðsverð nú: 175.950,- Verð áður: 17.500,- Barstóll DENNIS -25% Verð nú: 13.125,- Stóll LISA Verð áður: 12.500,- -30% Verð nú: 8.750,- SOHO leðurstóll Verð áður: 14.500,- -20% Verð nú: 11.600,- Stóll ARJAN Verð áður: 13.500,- -30% Verð nú: 9.450,- BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í BLAÐINU 18. júlí sl. skrifar Diljá Mist Einarsdóttir, stjórn- armaður Heimdallar, nokkuð harð- orða grein þar sem hún gagnrýnir þá stefnu Hins hússins að veita peningum í verkefnið Skapandi sumarstörf þar sem ungu fólki gefst færi á að vinna í 6–8 vikur við ýmis verkefni tengd listsköpun. Í staðinn fyrir að borga ungu fólki fyrir að stunda ,,áhugamál“ sín telur hún peningunum betur varið í að borga því fyrir að hreinsa rusl úr miðborginni. Hún talar um að það sé verjandi að veita peningum í verkefni eins og Jafningjafræðsluna en virðist líta framhjá þeirri staðreynd að mik- ilvægur liður í forvörnum er að unglingar hafi tækifæri til þess að takast á við eitthvað sem vekur áhuga þeirra og ástríðu. Listir eru þar ómissandi valkostur og ég efast um að ruslhreinsun geri sama gagn. Skapandi sumarvinna Hins hússins er í raun hluti af stærra máli sem er þáttur lista í samfélagi okkar. Það er alltaf skuggalegt fyrir starfandi listamenn að heyra stjórnmálafólk tala um listir sem áhugamál. Hugsanlega finnst Diljá eðlilegt að listamenn séu almennt ólaunaðir fyrir vinnu sína úr því þetta er jú bara „hobby“. En það er hætt við að listviðburðir á ís- landi yrðu ekki upp á marga fiska ef þeir væru allir unnir í hjáverk- um fólks sem hefði atvinnu sínu af öðrum störfum. Þjóðleikhúsið væri mannað af tannlæknum og í sin- fóníunni væri að finna pípara og bakara sem gripu í hljóðfærin í frí- stundum á kvöldin. Að sama skapi efast ég um að margir hefðu hug á að nýta sér þjónustu tannlækna eða pípara sem stunduðu störf sín aðeins sem áhugamál en ynnu í raun við aðra hluti. Það er stað- reynd að til þess að ná árangri og hæfni í listgreinum sem og öðrum atvinnugreinum er nauðsynlegt að geta helgað sig þeim og veitt þeim ómældan kraft og tíma. Hitt húsið veitti okkur félögun- um á sínum tíma tækifæri til þess að leggja stund á skapandi störf yfir sumarið. Í framhaldi af því sumri var leikhópurinn Zirkús Ziemsen stofnaður sem ferðaðist á næstu árum um land allt og setti upp sýningar af miklum metnaði, fyrir eigið sjálfsaflafé. Í þessum hópi ungra listamanna og fjölmörgum öðrum álíka sem myndast hafa í Hinu húsinu var fólk sem í dag skipar kynslóð ungra, íslenskra listamanna. Það var ómetanlegt þótt ekki væri nema í stuttan tíma sem ung manneskja – að fá tækifæri til þess að starfa við listir og átta sig á því að það væri raunverulegur valkostur í lífinu. Íslendingar stæra sig gjarnan af því hversu blómlegt listalíf er á Ís- landi, sérstaklega miðað við hina frægu höfðatölu en auðvitað er bein fylgni milli þess að hvetja börn til listiðkunar, styðja við bak- ið á ungu listafólki og þess að upp- skera blómstrandi listalíf í landinu. Menningu og listum fylgja út- gjöld sem borgast ekki endilega til baka í beinhörðum peningum í staðinn getur Ísland státað af listamönnum sem eru þegar best lætur á heimsmælikvarða hvort sem litið er til tónlistar, mynd- listar eða leiklistar. Hitt húsið hef- ur frá stofnun unnið ómælt starf í þágu íslenskrar menningar með Skapandi sumarstörfum, föstu- dagstónleikum, aðstöðu fyrir hljómsveitir, afnot af verkstæðum, fjölþjóðlegum menningarverk- efnum o.fl. o.fl. reyndar er líklega erfitt að finna þann íslenska lista- mann undir þrítugu sem ekki hef- ur notið góðs af starfsemi Hins hússins. Það er samfélagi Íslend- inga ómetanlegt að hlúa að ungum tilvonandi listamönnum, efla kjark þeirra og tiltrú á viðkvæmu þroskastigi svo þeir megi dafna og blómstra en vert er líka að hafa í huga að þá skiptir afraksturinn eða útkoman það augnablikið ekki endilega öllu máli, litið skal til lengri tíma og stærra samhengis. Fyrir hönd þeirra sem hafa á undanförnum árum notið góðs af Skapandi sumarstörfum Hins hússins viljum við félagarnir úr Zirkús Ziemsen þakka kærlega fyrir okkur og vonum að í framtíð- inni muni aðrir fá sömu tækifæri og við fengum. Maríanna Clara Lúthersdóttir, leikkona, Ólafur Egill Egilsson, leikari, Esther Talía Casey, leik- kona, Ilmur Kristjánsdóttir, leik- kona, Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona og leikstjóri, Björn Thors, leikari, Gunnlaugur Egilsson, ball- ettdansari við Konunglega sænska ballettinn, Hlynur Páll Pálsson, nemi við LHÍ, Bjarni Massi, myndlistar- og kvikmyndagerð- armaður, Hugrún D. Árnadóttir, fatahönnuður og verslunardama Skapandi sumarstörf Frá nokkrum starfsmönnum Hins hússins: Gunnar Jóhannesson skrifar um trú, vísindi og kenningar Richards Dawkins prófessors. Guðjón Sveinsson: Rík þjóð en fátæk í anda. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.