Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 38

Morgunblaðið - 19.08.2006, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sveinbjörn Stef-án Sveinbjörns- son fæddist að Upp- sölum í Seyðisfirði við Ísafjarðardjúp 17. september 1932. Hann lést á heimili sínu hinn 9. ágúst síðastliðinn. For- eldrar hans voru Kristín Hálfdánar- dóttir, f. 22. nóvem- ber 1896 á Hvíta- nesi í Ögurhreppi, d. 2.1. 1951, og Sveinbjörn Rögn- valdsson, f. 15. september 1886 á Svarfhóli í Súðavíkurhreppi, d. 28.3. 1975. Systkini Sveinbjörns eru: Ragnar (látinn), Elísabet (lát- in), Kristján (látinn), Kristín Guð- rún, Rögnvaldur (látinn), Daðey (látin), Hálfdán (látinn), Jónatan Helgi (látinn), Halldóra Þórunn, Einar Jónatan, Jónína Þuríður, ar og Stefán Máni. 2) Hálfdán, f. 9.2. 1955, unnusta hans er Sóley Sævarsdóttir. Börn Hálfdáns af fyrra hjónabandi eru: a) Sigurður Kjartan, f. 23.9. 1980, eiginkona hans er Málfríður Þorvaldsdóttir og þeirra börn eru Bernódus og Guðrún Freyja, b) Kristín, f. 11.9. 1994. 3) Kristín, f. 6.10. 1956, maki Carlos Torcato. Þeirra börn eru: a) Íris Björk, f. 17.6. 1974, maki Jóhannes Jónsson, þeirra börn eru Jón Hjörtur og Sara Lind, b) Sara Cidalia, f. 3.8. 1984. 4) Ragnheiður Ásta, f. 29.7. 1958. 5) Finnbogi, f. 25.2. 1966, maki Linda Jónsdóttir. Þeirra börn eru Jónbjörn, Ísak Atli, Matthías og Stella. 6) Linda, f. 5.2. 1969, maki Einar Bjarnason. Þeirra börn eru Sveinbjörn Stefán og Alma Katrín. Sveinbjörn bjó í Bolungarvík frá árinu 1948. Hann stundaði sjó- mennsku þar til að hann fór í sam- vinnu við Sigurjón bróður sinn, en þeir ráku hellu- og rörasteypustöð og unnu við múrverk um árabil. Á seinni árum hneigðist hugurinn aftur til sjávarins og var Svein- björn með eigin útgerð og harð- fiskverkun. Útför Sveinbjörns verður gerð frá Hólskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Sigurjón (látinn), Marta (látin), Martha Kristín, og sveinbarn andvana fætt. Sveinbjörn giftist eftirlifandi eigin- konu sinni, Stellu Finnbogadóttur, hinn 28. ágúst 1954. Foreldrar hennar voru Finnbogi Bern- ódusson, f. 26.7. 1892, d. 9.11. 1980, og Sesselja Sturlu- dóttir, f. 14.9. 1893, d. 21.1. 1963. Börn Sveinbjörns og Stellu eru: 1) Sess- elja, f. 11.12. 1953, maki Joao Pombeiro. Börn Sesselju af fyrra hjónabandi eru: a) Laufey Sverr- isdóttir, f. 11.11. 1976, hennar son- ur er Alexander Nökkvi Wallis, b) Stella Sverrisdóttir, f. 16.7. 1980, maki Hafsteinn Garðar Hafsteins- son, þeirra synir eru Gabríel Óm- Elsku pabbi, þá ertu búinn að fá hvíldina, sem þú varst farinn að þrá undir það síðasta, en við hin kviðum svo mikið fyrir. Það er búið að vera okkur styrkur að fylgjast með þér þessi þrjú ár, sem þú barðist við þennan illvíga sjúkdóm. Alltaf þessi ótrúlega jákvæðni og lífsgleði, sama á hverju dundi, svo ekki sé talað um æðruleysið allt til loka. En fyrir mestu var að þið mamma fenguð að njóta þessara ára saman. Mamma var búin að biðja um að ekki yrðu skrifaðar neinar lofræður um þig, en ég bara verð að fá að kveðja þig enn og aftur, elsku pabbi minn, þín verður sárt saknað af okk- ur öllum á Bakkavegi 14. Elsku mamma, þú sem stóðst við hlið pabba í gegnum öll þessi ósköp eins og klettur, megi góður Guð styrkja þig áfram. En pabbi, mig langar til að kveðja þig með bæninni sem fjölskyldan á Bakkaveginum kvaddi þig með: Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti signaður Jesú mæti. Bless pabbi. Þinn, Finnbogi og fjölskylda Hnífsdal. Það er mikið lán að eiga góða ná- granna og þegar börnin eru flest á svipuðum aldri verður mikill sam- gangur og oft fjör og hamagangur. Frá því Sveini og Stella byggðu hús- ið sitt að Vitastíg 14, fyrir hart nær hálfri öld, hafa þau verið okkur góðir grannar og um margt fyrirmyndir. Hverju sem þau hafa tekið sér fyrir hendur hafa þau sinnt af mikilli ábyrgð og natni eins og garðurinn þeirra ber með sér. Það var sama hvað Sveini tók að sér, allt vann hann framúrskarandi vel og allt virtist leika í höndum hans. Þegar við börn- in leituðum til hans með vopn okkar og önnur leiktæki var hann fljótur að koma því sem aflaga fór í gott lag og oft var mikil glettni í ráðum hans og tilsvörum og augljóst að mikill strák- ur bjó í honum þó hann væri alltaf eindæma rólegur og prúður maður. Þrátt fyrir erfið veikindi í vetur og vor, voru þau hjón komin til verka í garðinum strax og hlýna tók í veðri, viljinn og áhuginn hinn sami og fyrr en hægar að öllu farið. Þótt kraftar Sveina væru á þrotum vannst honum vel og hann gladdist yfir þrestinum sem alltaf gerir sér hreiður í barr- trjánum í garðinum. Aftur mun vora í þessum fallega garði og vonandi mun þrösturinn halda áfram að vitja hreiðursins, en við kveðjum okkar góða nágranna með söknuði og þökkum samgang og samvistir. Við vottum Stellu, börnunum og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Fjölskyldan Vitastíg 12. SVEINBJÖRN STEFÁN SVEINBJÖRNSSON ✝ Ingiríður Árna-dóttir fæddist að Bakka á Kópaskeri 19. janúar 1918. Hún andaðist á öldr- unardeild Heil- brigðisstofnunar Þingeyinga að morgni 13. ágúst 2006. Foreldrar Ingiríðar voru Árni Ingimundarson frá Brekku, f. 25.10. 1874, d. 3.6. 1951, og Ástfríður Árnadótt- ir frá Holti í Þistil- firði, f. 4.12. 1881, d. 5.7. 1960. Þau voru frumbýlingar á Kópaskeri og reistu þar fyrsta íbúðarhúsið sem kallaðist Bakki. Faðir Ingiríðar var fyrsti starfsmaður Kaupfélags Norður-Þingeyinga og hjá því fyr- irtæki vann hann alla sína starfs- ævi. Ásamt Önnu tvíburasystur sinni var Ingiríður þriðja yngst í 12 systkina hópi hjónanna á Bakka. Systkini Ingiríðar eru: Ing- unn, f. 8.11. 1899; Unnur, f. 15.12. 1900; Jón, f. 9.10. 1902; Hólmfríð- ur, f. 19.9. 1904; Sabína, f. 27.5. 1908; Guðrún, f. 26.9. 1911; Aðal- heiður, f. 23.10. 1913; Árni, f. hennar að Bakka og héldu þar heimili á árunum 1944–1951 er þau fluttu að Sigurðarstöðum á Sléttu. Árið 1955 reistu þau nýbýl- ið Brúnir í landi Sigurðarstaða og bjuggu þar til ársins 1964 er þau fluttu aftur til Kópaskers. Þar tók Ingiríður við stöðu matráðskonu við Núpasveitarskóla og sá einnig um heimavist skólans í 9 ár. Eftir það starfaði hún í rækjuverk- smiðju á Kópaskeri og kjötiðju KNÞ. Börn Ingiríðar og Brynjúlfs eru: 1) Ragnheiður Regína mjólk- urfræðingur, f. 17.12. 1943, gift Jóni M. Óskarssyni rafvélavirkja og sjómanni f. 8.9. 1941. Börn þeirra eru: Inga Bryndís f. 10.2. 1964 og Brynjúlfur f. 14.2. 1965. 2) Hulda Kristín starfsmaður leik- skóla, f. 13.1. 1946 gift Þresti Helgasyni húsgagnasmið og iðn- skólakennara f. 20.9. 1946, d. 25.7. 2004. Börn þeirra eru: Úlfur Ingi f. 29.6. 1969; Drífa Kristín f. 2.6. 1976 og Heiðar Þór f. 10.7. 1979. 3) Sigurður kennari og yfirlögreglu- þjónn, f. 18.7. 1954, kvæntur Önnu Maríu Karlsdóttur bankastarfs- manni, f. 3.10. 1954. Börn þeirra eru Herdís Þuríður, f. 7.7. 1976; Brynjúlfur, f. 19.4. 1978 og Karl Hannes, f. 12.9. 1986. Langömmu- börn Ingiríðar eru orðin 10 talsins og eitt langalangömmubarn. Útför Ingiríðar verður gerð frá Snartarstaðakirkju á Kópaskeri í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 15.11. 1915; Anna, f. 19.1. 1918; Sigurður, f. 16.7. 1919; og Ingi- mundur, f. 28.6. 1922. Af systkinahópnum frá Bakka eru 2 eftir á lífi, en það eru Að- alheiður og Ingi- mundur. Ingiríður ólst upp í foreldra- húsum, en þar sem þar var ákaflega gestkvæmt og systk- inahópurinn stór, þá var hún ung send að heiman til sumar- dvalar, m.a. í Blikalóni og hjá hér- aðslækninum að Ási við Kópasker. Ingiríður gekk í barna- og ungl- ingaskóla á Kópaskeri og stundaði auk þess nám einn vetur við Laugaskóla í Reykjadal. Eftir að skólagöngu lauk stundaði hún fiskvinnslustörf á Grenivík og vann við heimilishjálp og þjónustu- störf í Reykjavík. Árið 1943 giftist Ingiríður Brynjúlfi Sigurðssyni frá Starmýri í Álftafirði, f. 31.8. 1915, d. 4.8. 2005, bónda og starfsmanni KN Þ á Kópaskeri. Ingiríður og maður hennar tóku við bernskuheimili Í dag kveðjum við hana ömmu okkar í síðasta sinn. Það var ekki svo sjaldan á síðustu árum, þegar við kvöddum þau afa eftir samveru- stundir í Hófgerðinu eða Roðafellinu og sögðumst hlakka til að sjá þau næst, að amma svaraði glettnislega: „Tja, ef maður tórir nú þangað til,“ eða „Já, já, ef maður verður nú ekki kominn undir græna torfu.“ Svo hló hún og kyssti okkur hlýlega á kinn- ina. Þannig var amma, ekki aldeilis laus við kaldhæðni, en þó jafnframt svo hlý í viðmóti. Alltaf fékk maður nú samt að sjá hana aftur og alltaf var jafnskemmtilegt í návist hennar, en nú hefur hún fengið hvíldina sem hún var farin að óska sér. Heilsunni hrakaði á efri árum og maður getur rétt ímyndað sér hvern- ig var að lifa við stöðug eymsli í skrokknum, en ekki var hún nú mikið að kvarta, hún amma. Og þrátt fyrir að skrokkurinn væri slæmur, var hugsunin alltaf skýr og húmorinn til staðar fram á síðustu stund, hár- beittur, lúmskur og gráglettnislegur, lýsandi fyrir skarpskyggni hennar og greind. Hún vissi lengra en nef hennar náði og sá ýmislegt sem aðrir sáu ekki. Amma hafði frá svo ótal- mörgu skemmtilegu að segja og í æsku hlustuðum við opinmynnt á hana og afa segja mergjaðar drauga- sögur og dulmagnaðar sögur úr sveitinni. Það var ekki síst á kvöld- vökum í fjölskylduferðunum okkar skemmtilegu sem þau afi drógu eitt- hvað slíkt úr handraðanum handa okkur barnabörnunum. Það var líka alltaf gott að koma á Kópasker til þeirra afa og ömmu. Þar var maður alltaf velkominn í kyrrð- ina og frískandi sjávarloftið og manni fannst maður ævinlega vera endur- nærður eftir heimsóknina. Ömmu voru heimahagarnir á Kópaskeri og Melrakkasléttunni kærir og það var sérlega gaman að fara með henni í bíltúr um svæðið. Þá ljómaði hún öll upp og lét móðan mása um fólkið sem bjó hér og drauginn sem hélt til þar, og þekkti hverja þúfu og laut. Við minnumst líka jólanna heima í Hóf- gerðinu þegar afi og amma dvöldu hjá okkur. Amma er ljóslifandi í minningunni þar sem hún situr lúmsk á svip með möndluna úr jólagrautnum falda í munninum og segir: „Afi ykkar er ábyggilega með hana.“ Þegar amma var komin á sjúkra- húsið á Húsavík var það okkur hér fyrir sunnan mikils virði að vita að þar væri vel um hana hugsað bæði af starfsfólki sjúkrahússins og Sigga frænda, Dísu og öllum í þeirri góðu fjölskyldu. Við munum sakna hennar ömmu okkar sárt, en efst í huga okk- ar nú er þakklæti fyrir að hafa átt hana að í þann tíma sem við deildum með henni. Drífa og Heiðar. Jæja amma, þá ertu nú komin á góðan stað og ég er viss um að þú ert hvíldinni fegin, þó að þú hafir nú sagt þegar við hittumst síðast að þú lægir nú bara með tærnar upp í loft og þjónaðir letinni. Maður getur nú ekki annað en brosað út í annað þegar maður hugs- ar til baka um tilsvörin og glettnina sem alltaf var til staðar hjá þér, allt undir það síðasta þó svo að þú værir komin upp á spítala í burt frá „Skerinu“ þar sem þér þótti svo gott að búa. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa átt þig og afa að og að hafa fengið að alast að hluta til upp hjá ykkur, á Kópaskeri. Alltaf leiðbeind- uð þið af hlýju og þolinmæði, strákn- um sem þurfti alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og ég gleymi nú aldrei göngutúrunum okkar upp á Brekku- hól, þar sem þú máttir láta þig hafa það að fara í „bíló“ og láta „rjúka“, eða hvað þú nenntir að spila við mann. Já, góðu minningarnar eru margar og þegar ég hugsa til baka hefur það verið ómetanlegt að vera partur af okkar samrýndu fjölskyldu sem hef- ur gefið sér tíma til ferðalaga og sam- vista, og fyrir okkur krakkana að hlusta á frásagnir og læra af þér og afa. Kópaskerið, þinn fæðingastaður og sveitin í kring hefur verið þitt heimili frá upphafi og sá staður þar sem þú vildir alltaf vera. Þó svo að ég búi nú erlendis og langt frá „Skerinu“, verður mér oft hugsað þangað til þín og afa, þaðan sem við eigum öll svo góðar minningar. Þó er skrítið til þess að hugsa að þú ert ekki lengur þar og Roðafellið nú autt. Ég vil þakka Fríðu, Sigurði lækni og öðrum fyrir alla þá umönnun sem þau veittu þér, það var gott að vita af þér í góðum höndum og félagsskap. Strákurinn segir; „hvíl í friði og blessuð sé minning þín, amma mín.“ Úlfur Ingi. Hjartans amma. Það er komið að kveðjustund og í þetta skiptið er hún endanleg. Þú hefur alla tíð verið stór hluti af mínu lífi. Mínar fallegustu og bestu minningar tengjast þér og afa, bæði í „skólanum“ og svo eftir að þið fluttuð í Roðafellið. Í rauninni má segja að þú hafir ekki verið mikið fyr- ir börn, sagðir alltaf: „Börn eru engin leikföng fyrir fullorðið fólk.“ Fyrir vikið fengum við barnabörnin þín ömmu, sem talaði við okkur á jafn- ingjagrundvelli. Við vissum að innsæi þínu og visku gætum við treyst, enda sást þú meira en gengur og gerist án þess að hafa um það mörg orð. Það sem einkum einkenndi þig sem manneskju, var þessi fallega stó- íska ró og mig grunar að þínar bestu stundir hafi verið þegar þú varst ein með sjálfri þér. Auðvitað sast þú aldrei aðgerðarlaus, þjónaðir ekki letinni. Þínar ær og kýr voru hann- yrðir hverskonar og þú varst jafnvíg á prjóna, heklunál og útsaumsnálar af ýmsum gerðum og stærðum. Já, þegar um fallegt handverk var að ræða, varst þú þar fremst meðal jafningja. Um það vitna heimili allra fjölskyldumeðlima okkar, þar sem listaverk eftir þig eru stolt og prýði. Fyrir það og svo margt annað erum við þér óendanlega þakklát. Þú varst mikið náttúrubarn og Kópasker var þér kærara en nokkur annar staður á klakanum okkar kalda. Það eru mikil forréttindi að fá að lifa lífinu í sátt við það sem skaparinn úthlutar hverju okkar. Það gerðir þú í þínu lífi, á þinn stóíska hátt, án þess að hafa um það hátt. Elsku amma, hafðu þökk fyrir allt og allt. Inga Bryndís Jónsdóttir, Birgir Örn Arnarson, Jónatan Birgisson, Bryndís Stella Birg- isdóttir. Kallið er komið. Amma Inga hefur kvatt okkur; samverustundir okkar systkina með henni verða ekki fleiri að sinni. Með brotthvarfi hennar verða ákveðin kaflaskil í lífi okkar. Við ólumst upp við þau forréttindi að geta, hvenær sem okkur lysti, farið í skemmtiferðir til Kópaskers að heimsækja ömmu Ingu og afa Brynj- úlf. Nú, þegar þau eru bæði horfin á braut, er ekki laust við að söknuður og tregi nísti hjarta okkar. Ofar söknuðinum situr þó í huga okkar þakklæti fyrir allt það sem amma Inga var okkur. Betri ömmu var ekki hægt að hugsa sér. Hún kenndi okk- ur svo ótalmargt sem mun fylgja okkur alla tíð. Með því eigum við ekki einungis við fróðleikinn sem hún miðlaði okkur af örlæti heldur ekki síður það fordæmi sem hún setti með hátterni sínu og framkomu allri. Amma Inga var skapstillt, réttsýn og hlý. Hún kvartaði sjaldnast þótt vindurinn væri í fangið og tókst jafn- an á við erfiðleika með jafnaðargeði. Okkur systkinin og fjölskyldur okkar studdi hún ætíð með ráðum og dáð og þegar við vorum hjá henni áttum við athygli hennar óskipta. Einstakt skopskyn er tvímæla- laust meðal eftirminnilegustu eigin- leika ömmu Ingu. Hún hafði sérstakt lag á að koma gráglettnum athuga- semdum inn í samræður svo að lítið bæri á. Þessi eiginleiki fylgdi ömmu allt fram undir það síðasta þrátt fyrir að heilsa hennar væri orðin bág. Við systkinin minnumst hennar með hlý- hug og virðingu og verðum eilíflega þakklát fyrir að hafa átt svo góða ömmu. Herdís Þuríður Sigurðardóttir, Brynjúlfur Sigurðsson, Karl Hannes Sigurðsson. Á sumrin var ég hjá afa og ömmu í móðurætt. Átti þar ánægjulega æskudaga. Alla þá tíð var Ída, systir móður minnar, sem önnur móðir mín, slík var gæska hennar í minn garð. Því minnist ég frænku minnar hér með örfáum þakkarorðum. Aldrei gat ég endurgoldið slíka umönnun er hún veitti óstýrilátum sveinstaula, ásamt góðum heilræðum. Eiginmað- ur hennar, Brynjúlfur Sigurðsson, var mikill veiðimaður og skaut sel og fugla til matar. Allan búskap þeirra á Brúnum átti frænka handa mér súrsaða selshreifa. Mér þótti það taka öllu fram er ég neytti sem mat- ar. Þetta lostæti gaf hún mér á hverju sumri er ég vann við síldar- verkun á Raufarhöfn. Þetta sýnir hvílíkum mannkostum þessi frænka mín var búin. Slíkir verðleikar eru tíðir í hennar ætt. Ég átti mörg símtölin við þau hjón, yf- irleitt með 10 daga bili. Síðast talaði ég við frænku síðasta dag júlí og átti hún þá erfitt um mál og sagðist vonast eftir hvíld. Að lokum þakka ég þessum hjón- um ógleymanlegar stundir. Blessuð sé minning þín, frænka. Ættmennum hennar og niðjum óska ég gæfu og gengis. Árni Einarsson. INGIRÍÐUR ÁRNADÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.