Morgunblaðið - 19.08.2006, Side 52
52 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Geirmundur
Valtýsson
í kvöld
Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar.
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
Mr. Skallagrímsson
- leiksýning Landnámssetri í Borgarnesi
Höfundur/leikari: Benedikt Erlingsson
Leikstjóri: Peter Engkvist
KVÖLDVERÐARTILBOÐ
Tvíréttaður matur og
leikhúsmiði kr. 4.300 - 4.800
Lau. 19. ágúst kl. 20 örfá sæti
Sun. 20. ágúst kl. 15 uppselt
Sun. 20 ágúst kl. 20 uppselt
Fös. 25. ágúst kl. 20 uppselt
Lau. 26. ágúst kl. 20 Laus sæti
Lau. 2. sept. kl. 20 uppselt
Sun. 3. sept. kl. 15
Sun. 3. sept. kl. 20
PANTIÐ MIÐA TÍMANLEGA
Í SÍMA 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningard.
TVÆR sýningar verða opnaðar í Gerðarsafni í
Kópavogi í dag, annars vegar á verkum Valgerðar
Briem og hins vegar á verkum dóttur hennar Val-
gerðar Bergsdóttur.
Valgerður Briem (1914–2002) hélt mjög fáar
sýningar á eigin verkum á ferli sínum og hafa því
fæstar teikningar hennar komið fyrir almennings-
sjónir. Hefur hún þess vegna gjarnan verið kölluð
huldukona í íslenskri myndlist.
Sýningin ber yfirskriftina „AND-LIT“ en það
er nafngift sem hún sjálf gaf myndaseríu sem
þarna er sýnd en verk sýningarinnar spanna nán-
ast allan feril listakonunnar.
Ytra og innra landslag
Í austursal Gerðarsafns er um að ræða annars
vegar mismunandi persónulýsingar í andlits-
myndum, sem yfirskrift sýningarinnar vísar til, og
hins vegar eru þarna mjög smáar myndir, teikn-
aðar á löngum ferli, þar sem viðfangsefnin eru
nokkur. AND-LITS-myndirnar eru flestar unnar
á árunum 1967–1969 en smáu myndirnar eru aftur
á móti öllu nýrri eða frá árunum 1970–1985.
Einnig getur að líta stór verk frá árunum 1967–
1970 sem hafa verið skýrð LAND-LIT og þekja
þau allan vestursalinn í Gerðarsafni en þau mætti
túlka bæði sem ytra og innra landslag.
„Það má segja að myndirnar séu túlkun Val-
gerðar Briem á veröldinni í stærra samhengi,“
segir Valgerður Bergsdóttir.
Í sýningarborðum í austursal er hægt að skoða
vinnubækur Valgerðar Briem en sá hluti sýning-
arinnar lýtur að áratugalöngum kennsluferli
hennar. Hún hóf að kenna við Austurbæjarbarna-
skóla og kenndi þar í tuttugu og fimm ár, síðar fór
hún að kenna við Myndlista- og handíðaskólann
og svo við Kennaraháskólann. Margir af fremstu
myndlistarmönnum þjóðarinnar lærðu hjá Val-
gerði en þeirra á meðal var Erró sem hefur sagt
að engin kennsla hafi haft jafnmikil áhrif á hann
og sú sem hann hlaut hjá Valgerði Briem.
Þar að auki birtust eftir hana fjölmargar grein-
ar um myndlistarkennslu, barna- og alþýðulist og
íslenska og erlenda hönnun í dagblöðum og tíma-
ritum.
Í tilefni sýningarinnar kemur út bók um list
Valgerðar Briem þar sem er að finna listfræðilega
umfjöllun um verk hennar eftir dr. Halldór Björn
Runólfsson listfræðing. Þar eru einnig greinar
eftir Valgerði, viðtal við hana og minning-
argreinar eftir samferðamenn hennar sem bregða
ljósi á samtíð hennar og persónu.
Eins og áður sagði var Valgerður lítið fyrir að
hafa hátt um listsköpun sína á meðan hún lifði og
því ætti sýningin í Gerðarsafni að sæta töluverð-
um tíðindum.
Steindir gluggar Reykholtskirkju
Á neðri hæð Gerðarsafns sýnir Valgerður
Bergsdóttir vinnuteikningar fyrir steinda gler-
glugga í Reykholtskirkju og ber sýningin yf-
irskriftina „Teikn og hnit“. Á árunum 1991–1992
fór fram lokuð samkeppni um gerð glugganna í
Reykholtskirkju og valdi dómnefnd á endanum
tillögu Valgerðar og fór fram formleg vígsla á
gluggunum 30. júlí síðastliðinn. Auk vinnuteikn-
inganna verða einnig til sýnis ljósmyndir af upp-
settum gluggunum.
Í gluggateikningunum sækir Valgerður í bók-
menntaarfinn sem og myndlistararf þjóðarinnar.
Hún byggir þær meðal annars á myndum úr Ís-
lensku teiknibókinni í Árnagarði, Ufsa-Kristi sem
er talið elsta Kristslíkneski sem fundist hefur hér
á landi og eins sækir hún myndefni í Sólarljóð.
Eins og yfirskriftin gefur til kynna skiptist sýn-
ingin í tvennt, „teikn“ og „hnit“, en auk vinnu-
teikninganna, er um að ræða teikningar að grunn-
formi glugganna sem hún teiknaði á árunum
1998–99. Í þessum uppdráttum leitar Valgerður
að möguleikum á því að nota teikningu og mynst-
urgerð í steindu gleri.
Sýningarnar tvær verða opnaðar í dag klukkan
15 en um helgar verður boðið upp á leiðsögn og
spjall um verkin.
Nánari upplýsingar er að finna á www.gerdar-
safn.is.
Myndlist | Verk eftir Valgerði Briem og Valgerði Bergsdóttur sýnd í Gerðarsafni
Andlit Valgerðar Briem
Morgunblaðið/Eyþór
Valgerður Bergsdóttir, dóttir Valgerðar Briem,
sýnir teikningar sem gerðar voru fyrir steinda
glugga í Reykholtskirkju í Gerðarsafni.
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
UM ÁRABIL hefur Endurmenntun
Háskóla Íslands boðið upp á fjöl-
breytt menningarnámskeið við mikl-
ar vinsældir. Námskeið á sviðum
klassískrar tónlistarsögu, listasögu
og heimspeki auk námskeiðs um Ís-
lendingasögurnar hafa verið afar fjöl-
sótt. Í tilefni af Menningarnótt býður
Endurmenntun upp á stutta fyr-
irlestra um valin efni í húsakynnum
sínum að Dunhaga 7 í dag, en fyr-
irlesararnir munu allir kenna hjá
Endurmenntun í vetur.
Dagskráin hefst kl. 14 á því að
Ólafur Gíslason listgagnrýnandi flyt-
ur fyrirlestur undir yfirskriftinni
„Orisha – hinn afríski guðaheimur á
Kúbu“. Þar mun hann fjalla um
trúarbrögð, helgisiði og menningu
sem blökkumenn af Yorubakynstofni
báru með sér frá Nígeríu til Kúbu á
tímum þrælahalds og hafa varðveist í
skjóli kristindóms og kommúnisma.
Kl. 14.30 verður svo boðið upp á tvo
fyrirlestra. Annan þeirra flytur Þor-
leifur Friðriksson sagnfræðingur og
ætlar hann að kynna nýja keðju nám-
skeiða um Austur-Evrópu sem hann
mun sjá um og verða í boði hjá End-
urmenntun á næstunni. „Þetta verð-
ur stórt þrískipt námskeið og getur
fólk valið hversu mikið það tekur.
Fjallað verður um sögu og menningu
þessa svæðis. Það munu margir koma
að þessu, fólk sem hefur búið í Aust-
ur-Evrópu og fólk sem kemur þaðan.
Þarna er heillandi heimur,“ segir
Þorleifur en á námskeiðinu verður
sjónum beint að hinum
ýmsu hlutum, svo sem
dansi, jarðsögu, trú-
málum, pólitík og list-
um.
Á sama tíma ætlar
Steinunn Inga Stef-
ánsdóttir ráðgjafi að
flytja fyrirlestur undir
yfirskriftinni: „Starfið,
heimilið, lífið – skipu-
lag í stað álags“. Er-
indi hennar mun fjalla
um atriði sem geta
auðveldað fólki að ráða
við álag á helstu svið-
um lífsins. Rithöfund-
urinn Andri Snær
Magnason mun fjalla um hina geysi-
vinsælu bók sína Draumalandið kl.
15. Hann bregður upp nýrri og
ferskri sýn á stöðu og möguleika Ís-
lendinga í nútíð og framtíð.
Síðasta fyrirlesturinn flytur Gunn-
ar Hersveinn, heimspekingur og rit-
höfundur kl. 15.30 undir yfirskriftinni
„Gæfuspor – gildin í lífinu“. Hann
segir að fyrirlesturinn muni fjalla um
nálgun á hugtökum. „Þau verða skoð-
uð út frá því að þau séu ekki nið-
urnjörvuð heldur frekar lifandi. Hug-
myndin er að fólk geti svo í framhaldi
unnið áfram með hugtökin. Maður
lærir oftast í skóla að þetta hugtak
merki nákvæmlega þetta, og margir
vilja hafa það þannig og finnst pirr-
andi ef hugtak er eitthvað óljóst. Það
verður prófað að nálgast hugtök eins
og ást og umhyggja út frá því að fólk
geti gengið inn í hugtakið sjálft og
skoðað það.“ Gunnar Hersveinn tek-
ur þó skýrt fram að þetta merki ekki
að það geti komið hvað sem er út úr
þessari skoðun. Hugmyndin sé að
einhver mörk séu til staðar og að fólk
geti skoðað hugtökin innan þeirra.
Hann segir að fyrirlesturinn sé hugs-
aður þannig að hver sem er geti kom-
ið og velt innihaldinu fyrir sér. „Ég
hef reynt að sérhæfa mig í því að
fjalla um svona hugtök eða gildi á
þann hátt að allir skilji. Ég er búinn
að henda út öllum óþarfa hugtökum
og er ekki með einhver löng tækni-
hugtök, heldur reyni ég að nota
venjulega íslensku.“
Menntun | Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á fjölbreytta fyrirlestra í dag
Draumalandið, lifandi hugtök og fleira
Þorleifur
Friðriksson
Gunnar
Hersveinn
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
JPV ÚTGÁFA hefur sent
frá sér skáldsögu Ólafs
Gunnarssonar, Tröllakirkju,
í enskri þýðingu David
McDuff og Jill Burrows.
Bókin kom upphaflega út á
íslensku 1992 og var síðan
gefin út á ensku af breskum
útgefanda í tveimur prent-
unum en er löngu uppseld.
Tröllakirkja var tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverð-
launanna og hinna al-
þjóðlegu IMPAC verðlauna.
Hún kom út í Þýskalandi á
síðasta ári í innbundinni út-
gáfu og hlaut afar góðar
móttökur þar í landi og
kemur út þar í kilju á haust-
mánuðum.
Einnig gefur JPV útgáfa
út enska þýðingu á Svan-
inum eftir Guðberg Bergs-
son. Bernard Scudder þýddi
bókina sem kom upphaflega
út í Bretlandi fyrir all-
mörgum árum og er löngu
uppseld.
Svanurinn hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin 1991
og var tilnefnd til Bók-
menntaverðlauna Norð-
urlandaráðs árið eftir. Hún
hefur komið út í fjölmörgum
löndum og hvarvetna hlotið
mikið lof jafnt gagnrýnenda
sem lesenda. Margir erlendu
útgefendurnir hafa marg-
prentað hana bæði í inn-
bundinni útgáfu og kiljuút-
gáfu.
Svanurinn
og Trölla-
kirkja gefn-
ar út á ensku
ÁSKRIFTARSÍMI 569 1100