Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 1
Fyrirmyndir
eða fórnarlömb
Hver er boðskapur Aðþrengdra
eiginkvenna? | 24
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Sumarið erfiðasti tími veðurfræðingsins
Leyndardómar frönsku salatsósunnar Æskuljóminn og eilífðin
Atvinna | Leiðtogahæfileikar og samvinna Einhæf vinna
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
JÓN SIGURÐSSON, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, er nýr formað-
ur Framsóknarflokksins. Jón hlaut
53,8% greiddra atkvæða á meðan
Siv Friðleifsdóttir hlaut 44,15%
þegar kosið var um embætti for-
manns á flokksþingi framsóknar-
manna sem haldið var á Hótel
Loftleiðum í gærdag.
Jón sagði kosningu sína góða en
að allir hefðu komið vel út úr kjör-
inu, hann og Siv væru bæði sig-
urvegarar og myndu standa þétt
saman við það að efla flokkinn og
styrkja til að koma til móts við
þjóðina í komandi kosningum. „Við
stöndum öll sameiginlega fyrir
meginviðhorf Framsóknarflokks-
ins og munum vinna sameiginlega
að þeim, sem er að efla þetta þjóð-
félag inn í framtíðina, vinna nýja
sigra og ná frækilegum árangri
fyrir þjóðina.“
Helstu mál sem sett verða ofar-
lega á baug hjá framsóknarmönn-
um eru að ná jafnvægi í efnahags-
málum, og halda áfram að þroska
og skapa þekkingarþjóðfélag, að
sögn Jóns en varðandi Evrópumál-
in sagði hann: „Við höfum sagt það
frambjóðendur að spurningin um
aðild [að Evrópusambandinu] er
ekki á dagskrá á næstu árum. Við
þurfum að ná varanlegum stöðug-
leika og öryggi í íslenskum efna-
hagsmálum þannig að við getum
farið að fjalla um það sem frjáls
þjóð í styrkleika, hvað okkur þókn-
ast í þeim efnum.“
Siv Friðleifsdóttir sagði að nú
væri tími til að horfa fram á veg
enda mörg verk framundan fyrir
alþingiskosningarnar og hennar
ætlun væri að taka þátt í þeim af
fullum krafti. „Ég held að það verði
mjög gott framundan hjá okkur
núna. Ég sé aðeins bjart framund-
an og er mjög bjartsýn á okkar
vinnu sem í hönd fer núna eftir
þetta góða flokksþing. Þetta er
mjög öflugur upptaktur fyrir bar-
áttuna,“ sagði Siv sem telur stöðu
sína í flokknum sterka. „Ég tel að
mín staða sé mjög góð, 44% fylgi á
flokksþingi er mjög gott að mínu
mati.“
Guðni Ágústsson situr áfram
sem varaformaður en hann fékk
60,91% greiddra atkvæða en Jón-
ína Bjartmarz, fékk 36,54% at-
kvæða. Guðni þakkaði Jónínu fyrir
góða kosningabaráttu og fyrir að
hafa látið sig hafa fyrir sigrinum en
tók þó fram að konu sína, Margréti
Hauksdóttur, hefði dreymt fyrir
úrslitunum fyrir mánuði – ná-
kvæmlega eins og tölurnar féllu.
Stefnir að því að vinna
nýja og frækilega sigra
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Ásgrímsson óskar arftaka sínum, Jóni Sigurðssyni, innilega til hamingju með formannsembættið.
Framsóknarmenn | 4
Jón Sigurðsson formaður Framsóknar Guðni Ágústsson varaformaður
SÉRSVEITIR ísraelska hersins
gerðu skyndiáhlaup á svæði í
Bekaa-dalnum í Austur-Líbanon
snemma í gærmorgun og rufu þar
með sex daga gamalt vopnahlé
milli Ísraela og Hizbollah sem
Sameinuðu þjóðirnar, SÞ, komu á.
Herinn sagði árásina gerða til að
koma í veg fyrir að Hizbollah-sam-
tökin fengju afhent vopn frá Íran
og Sýrlandi. Fuad Saniora, for-
sætisráðherra Líbanons, sagði
árásina „svívirðilegt brot“ á vopna-
hléinu og sagðist mundu taka málið
upp við SÞ.
Einn ísraelskur hermaður féll í
aðgerðinni og tveir særðust. Her-
inn sagði aðgerðina hafa gengið vel
en Hizbollah sagði að komið hefði
til bardaga og liðsmenn hreyfing-
arinnar hefðu hrakið herinn á
brott. Vitni segja herinn hafa skot-
ið flugskeytum og eyðilagt brú og
herflugvélar flogið lágt yfir svæðið.
Embættismenn sögðu að sérsveit-
armennirnir sem komu í þyrlum
hefðu m.a. farið inn í skóla í þorpi
nálægt bænum Baalbek, líklega til
að leita að Hizbollah-liðum. Að-
gerðirnar setja vopnahléð í hættu
en ástand á svæðinu er ótryggt.
Fimmtíu franskir friðar-
gæsluliðar komnir
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, bað í gær aðildarþjóðir stofn-
unarinnar enn og aftur um að
leggja til mannskap til að taka þátt
í friðargæslu SÞ í Suður-Líbanon.
Hann sagði ástandið enn afar „við-
kvæmt“ og hvatti Ísraela til að
leyfa flugvélum og skipum að kom-
ast að Líbanon svo hjálpargögn
gætu borist þangað sem fyrst.
Um fimmtíu franskir hermenn
komu sjóleiðina til strandbæjarins
Naqura í suðurhluta Líbanons í
gærmorgun til að taka þátt í frið-
argæslu á vegum SÞ í landinu. Eru
þetta fyrstu friðargæsluliðarnir
sem koma til Líbanon eftir að sam-
ið var um vopnahlé. Samkvæmt
vopnahlésályktun SÞ á að senda
15.000 manna fjölþjóðlegt friðar-
gæslulið til Suður-Líbanons.
Ísraelar gerðu skyndiárás
Annan segir ástandið viðkvæmt og biður ríki að leggja til friðargæsluliða
AP
Ísraelskir hermenn koma til baka frá Líbanon eftir skyndiárás hersins
þar snemma í gærmorgun en árásir sem þessar setja vopnahléið í hættu.
Eftir Bryndísi Sveinsdóttur
bryndis@mbl.is
Lundúnir. AFP. | Kona frá bænum
Cowes á bresku eyjunni Wight slapp
naumlega þegar kálfur féll ofan af
háum kletti niður á sólbekkinn hennar
á ströndinni þar sem hún hafði legið
stuttu áður. Kálfurinn drapst sam-
stundis við fallið en konan hafði brugð-
ið sér út í sjó til að kæla sig. Má hún
teljast afar heppin því ekki er víst að
hún hefði verið til frásagnar hefði hún
enn verið í sólbaði þegar kálfurinn féll.
„Ég sneri mér við og þá sá ég allt í
einu kú koma fljúgandi niður af klett-
inum og lenda þar sem ég hafði verið í
sólbaði nokkrum sekúndum áður. Ef
hún hefði lent á mér hefði hún getað
drepið mig,“ sagði konan. Bóndinn
sem átti kálfinn hefur beðið konuna af-
sökunar og lofar að passa að kúahjörð-
in hans haldi sig frá klettinum.
Sá kálf koma
fljúgandi
STOFNAÐ 1913 224. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ARNARVARP í Danmörku var með besta
móti í ár. Komust 24 arnarungar á legg og
eru þeir fleiri en nokkru sinni áður, að því
er segir í frétt Jyllands-Posten. Þannig
heppnaðist varp hjá 11 af 16 fullorðnum
pörum sem hafa fastan samastað og kom
hvert par að meðaltali upp tveimur ungum.
Síðan árið 1996 hafa því 112 hafernir
klakist út í danskri náttúru en fyrir rúmum
tíu árum var haförninn nánast ekki að finna
þar í landi.
Á meðan arnarvarp í Danmörku hefur
sjaldan gengið betur var arnarvarp hér á
landi í ár eitt það lakasta í langan tíma.
Þess má geta að 66 fullorðin pör á Íslandi
komu einungis upp 24 ungum í ár eða jafn
miklum fjölda og 16 pör í Danmörku.
Morgunblaðið/RAX
Arnarvarp hefur gengið illa hér á landi.
Arnarvarp í
Danmörku mun
betra en á Íslandi
YFIRVÖLD í Brasilíu
eru í mestu vandræðum
með að finna heimili fyr-
ir 68 ljón sem hafa verið
yfirgefin af eigendum
sínum, oftast sirkusum.
Sum hafa fundist á víða-
vangi, hungruð og stund-
um veik, að því er fram kemur hjá BBC.
Ljónum í óskilum hefur fjölgað eftir að
samþykkt voru lög í sumum ríkjum sem
banna að villt dýr séu notuð í sýningar. Nú
síðast fundust fimm soltin ljón við veg í
ríkinu Minas Gerais. Lögreglan situr uppi
með ljónin, sum eru í bráðbirgðabúrum og
önnur jafnvel inni á lögreglustöðvum. Eitt
var látið vera á fótboltavelli þar til dýra-
garður gat tekið við því.
Sitja uppi
með tugi ljóna