Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 64
64 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON
H.J. MBL.
eee
S.U.S. XFM 91,9
LADY IN THE WATER kl. 6 - 8:20 - 10:40 B.i. 12.ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 9 - 10:30 B.i. 12.ára.
SUPERMAN kl. 6 B.i. 10.ára.
THE BREAK UP kl. 5:30 - 8 - 10:30 Leyfð
JOHNNY DEPP ORLANDO BLOOM KIERA KNIGHTLEY
57.000 GESTIR
TVEIR BRÆÐUR. EIN
HELGI. ENGIN SKÖMM.
MEÐ CHRIS KLEIN ÚR “AMERICAN PIE” MYNDUNUM.
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA
Frá leikstjóra Sixth Sense, Signs og Village.
PAUL GIAMATTI (SIDEWAYS) SÝNIR STJÖRNULEIK
með hinum knáa
Freddie
Highmore
úr
„Charlie &
the
Chocolate
Factory“
og
„Finding
Neverland„
Allt getur gerst
ef þú bara trúir á það.
úr smiðju Jim Henson
Frábær
skemmtun
fyrir alla
fjölskylduna
OVER THE HEDGE M/ísl tali kl. 2 - 4
STORMBREAKER kl. 6 - 8
SILENT HILL kl. 10
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR kl. 2 - 4
MIAMI VICE kl. 9
5 CHILDREN AND IT kl. 2 - 4 Leyfð
HALF LIGHT kl. 8 - 10:20 B.i.16
OVER THE HEDGE M/ísl tali kl. 2 - 4
PIRATES OF THE CARIBBEAN: 2 kl. 6 - 9
THE LONG WEEKEND kl. 6 B.I.14
eee
V.J.V - TOPP5.IS
Gefum okkur að það sé hægtað skipta menningu og list-um upp í tvo flokka, í há-
menningu og lágmenningu. Ég
held, ég endurtek „ég held“, að það
sé ekki hægt en sé þessi raunveru-
lega skipting til, þá er ég búinn að
velta mér upp úr hinni ófínni und-
anfarna daga eins og fíll í forarpolli.
Já, ég er að tala um Rockstar-
þáttinn, ég er kominn með þrá-
hyggju fyrir honum og segja má að
þessi pistill hafi sprottið fram full-
skapaður í einu vetfangi eftir að ég
horfði á síðasta þátt.
Einhverra hluta vegna reynistRockstar vera hið mesta hug-
arfóður – sem einhverjum myndi
finnast kaldhæðið. Taugarnar fá
líka vænt adrenalínskot þegar mað-
ur fylgist með sjálfri keppninni en
svo, eins og með Survivor, fer mað-
ur að rembast við að hampa hinum
og þessum á meðan maður leggur
óstjórnlega fæð á aðra. Ég er mein-
fýsinn í garð Lukasar á meðan ég er
orðinn sannfærður um að Magni sé
hreinn og beinn snillingur.
Greinar um Rockstar hrynja inn í
blöðin um þessar mundir, allir virð-
ast hafa skoðun á málinu og ýmist
úthúða þættinum sem drasli eða
eiga ekki til orð yfir dásemdum
samsplæsingar á rokki og róli og
kappleik. Þessi mikla umræða er
ein öruggasta sönnun þess að þátta-
formúlur virka.
Annars er ég farinn að sjá hvertstefnir með þessum þætti.
Þátturinn er bandarískur, hljóm-
sveitin bandarísk og undir og yfir er
andi Hollywood og Vegas. Sem
sagt, þetta er allt afskaplega amer-
ískt. Og hafið þið ekki tekið eftir því
hvernig smátt og smátt er verið að
henda út exótísku söngvurunum ef
svo má kalla. Það er voða gaman að
hafa einn Ástrala, einn Íslending
o.s.frv. en mér sýnist allt stefna í að
það eigi að halda eftir „amerískum“
söngvurum, sem eru kyndilberar
þeirrar meðal- og yfirborðs-
mennsku sem einkennir þessa dags
markaðsrokk. Ryan Star, það
smeðjulega illfygli, á eftir að vinna.
Magni stóð í fyrsta sinn frammi
fyrir því að vera með neðstu þremur
keppendunum í síðasta þætti. Það
kom mér ekki á óvart, enda var
flutningur hans á „Starman“ ósann-
færandi. Dómaratríóið, Tommy
Lee, Gilby Clarke og Jason New-
stead voru þó að vanda yfir sig
hrifnir og virtust reyndar yfir sig
hrifnir af nánast öllu sem á borð var
borið. Ég er hræddur um að þetta
dómgreindarleysi verði tekið með
upp á svið, inn á plötu og í rútuna
þegar þáttaröðinni lýkur.
Magni bjargaði sér með því að
syngja leiðinlegasta lag í heimi,
„Creep“ eftir Radiohead.
Ég verð ekki svekktur ef Magni„tapar“, verð fremur feginn
því að hugur minn er hjá kærustu
hans og nýfæddum syni. Einhvern
veginn hljómar það lítt spennandi
að þurfa að eyða einu ári í að taka
upp plötu með Supernova og túra
síðan um heiminn með henni.
Já, lítt spennandi, segi ég. Lögin
sem ég heyri frá bandinu eru arfa-
slök, hljóma eins og annars flokks
útgáfa af Velvet Revolver og með-
limir allir meira og minna útbrunnir
rokkhundar. Líkt og með Idol eru
töfrarnir og stuðið mest á meðan
þáttaröðin er í gangi. Þó að yfirlýst
markmið þar sé að söngstjarna eigi
að koma í leitirnar og svo muni
frægðarferill hennar hefjast í kjöl-
farið með tónleikum, plötum og
áritanaflóði verður það sjaldnast
raunin. Allflestar íslensku Idol-
plöturnar hafa þannig reynst frem-
ur slakar og „stjörnurnar“ hafa
ekki beint skotist upp í himin-
hvolfið. Mig grunar að sama verði
upp á teningnum hvað varðar Sup-
ernova. Já, mér líst ekkert á það að
Magni lendi í þessum félagsskap.
En mun Magni svo ganga í Á móti
sól á nýjan leik er heim verður kom-
ið. Eða er ný rokksveit í uppsigl-
ingu?
Ég skal að endingu gefa þessa
hugmynd frítt: Íslenskt Rock Star.
Skothelt efni.
Dregur til tíðinda
’Greinar um Rockstarhrynja inn í blöðin um
þessar mundir, allir
virðast hafa skoðun á
málinu og ýmist úthúða
þættinum sem drasli eða
eiga ekki til orð yfir dá-
semdir samsplæsingar á
rokki og róli og
kappleik. Þetta er ein
öruggasta sönnun þess
að þáttaformúlur
virka.‘
„Einhvern veginn hljómar það lítt spennandi að þurfa að eyða einu ári í að
taka upp plötu með Supernova og túra síðan um heiminn með henni.“
arnart@mbl.is
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
Ljósmynd/Jeff Bottari
Magni er kominn í sjö manna úrslit í Rock Star: Supernova, en er ekki í sérlega góðum félagsskap.