Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 39 MENNING Í BRAUTARHOLTI í Selárdal bjó listamaðurinn Samúel Jónsson sem gjarnan hefur verið nefndur lista- maðurinn með barnshjartað. Hann er yfirleitt flokkaður í hóp svokallaðra naívista en minjar um listiðkun hans má finna í Selárdal þar sem hann reisti tvö hús af eigin rammleik; kirkju utan um altaristöflu sem hann málaði og listasafn utan um verk hans. Þrátt fyrir að Selárdalurinn sé meðal afskekktustu sveita landsins koma engu að síður fjögur til fimm þúsund ferðamenn á hverju sumri í dalinn til að berja hinn sérstæða list- verkaheim Samúels augum. Listamannaferill Samúels verður að teljast nokkuð merkilegur en alla sína list skóp Samúel eftir að hann komst á eftirlaun og þá eru húsasmíð- arnar meðtaldar. Hann var að öllu ómenntaður í listum en engu að síður, af einhverjum óviðráðanlegum hvöt- um, ákvað hann að helga sín efri ár- um í listsköpun og nú hafa verk hans borist manna á milli og nafn lista- mannsins hefur smám saman hlotið virðingu og viðurkenningu þjóð- arinnar. Tíminn hefur tekið sinn toll af verkum Samúels og því hefur verið stofnað sérstakt félag um endurreisn listasafns Samúels undir forystu Ólafs Hannessonar. Félagið stóð sumarið 2004 að viðgerðum á styttum Samúels Jónssonar í Selárdal í sam- ráði við landbúnaðarráðuneytið, sem hefur með umsýslu verkanna að gera. Gerhard König, þýskur myndhöggv- ari, tók að sér verkstjórn annað sum- arið í röð og hófst hann handa í júlí- mánuði 2005. Lárus Sigurðsson var honum til aðstoðar og Guðjón Krist- insson frá Dröngum sá um aðdrætti. Gerhard König kom svo aftur núna í byrjun ágúst með fimmtán manna vinnuhóp frá listaskólum í Þýskalandi til að vinna að þessu verki. Hópurinn var fluttur með rútu í Selárdal í byrj- un ágúst og hefur dvalið þar í tvær vikur og unnið að viðgerðum undir leiðsögn Gerhards og tveggja ann- arra leiðbeinenda. Heilmikið hefur unnist í sumar og fer staðurinn smám saman að hverfa í sitt fyrra æv- intýralega horf. Johann Ristau er sautján ára lista- skólanemandi frá Þýskalandi sem bauð sig fram í þetta verkefni. Hann var að steypa grunn í litla tjörn við listasafn Samúels þegar blaðamaður truflaði hann og náði við hann smá- spjalli. Af hverju komstu hingað? „Mér þótti mjög spennandi til- hugsun að vinna hér á Íslandi. Lands- lagið hérna er svo rosalega framandi. Ég hef auk þess mjög gaman af því að vinna að listtengdum verkefnum. Hvað finnst þér um listaverkin hans Samúels? „Mér finnst ótrúlegt að hann skuli hafa afkastað svo miklu svona gamall. Vinnan sem hann lagði í þennan stað er svo miklu meiri en það sem blasir við við fyrstu sýn. Það hefur t.d. verið heilmikil vinna að gera grunninn að þessum húsum. Ég er rosalega hrif- inn af þessum verkum öllum og ég held að ég komi hingað aftur eftir þrjú ár til að sjá þetta allt saman end- urbætt að fullu.“ Ekki náðist að klára viðgerðirnar í sumar en Gerhard König segist full- viss um að verkið klárist næsta sum- ar. Myndlist | Þýski myndhöggvarinn Gerhard König snýr aftur að viðgerð listasafns Samúels Morgunblaðið/RAX Þýskir listnemar huga að húsum Samúels með bros á vör. Ævintýralegt listasafn Samúels nálgast fyrra horf Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is H á g æ ð a fra m le ið sla A ll ta f ó d ýr ir GÓÐ HEILSA GULLI BETRI Magi og melting Acidophilus FRÁ www.nowfoods.com APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR Meistaraskólinn í fjarnámi: Allir rekstrar og stjórnunaráfangar til iðnmeistara í fjarnámi. Nánari upplýsingar á www.ir.is / fjarnam Hómópatanám Um er að ræða 4 ára nám sem byrjar 21. og 22. okt. á vegum College of Practical Homoeopathy í Bretlandi. Mæting 10 helgar á ári í Reykjavík. Kynning á náminu verður 22. sept. Upplýsingar gefur Martin í símum 567 4991 og 897 8190. Hómópataskólinn - Stofnaður 1993 www.homoeopathytraining.co.uk Getum bætt við nemendum í eftirtalda áfanga í dagskóla: Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600 Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is www.fb.is Stærðfræði 603 Stærðfræði 513 Efnafræði 313 Eðlisfræði 203 og 303 Stærðfræði- og raungreinanám í FB Í Kvöldskóla FB eru einnig í boði áfangar fyrir nemendur sem eru að bæta við sig námi í stærðfræði og raungreinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.