Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 15
’Sú afstaða Bandaríkjamannaað taka einhliða ákvarðanir
um varnir Íslands, án þess svo
mikið sem reyna að ná nið-
urstöðu með okkur, hefur gert
það að verkum að ég lít ekki
lengur á þá sem bandamann
sem við getum treyst í einu og
öllu.‘Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins , um sam-
skiptin við Bandaríkjamenn um málefni
varnarliðsins í viðtali við Morgunblaðið.
’Þeir sem koma frá löndumutan EES fá ekki leyfi til þess
að búa á íslandi.‘Gerður Gestsdóttir, verkefnastjóri hjá
Alþjóðahúsi , segir að reglur um frjálsan
atvinnu- og búseturétt launafólks innan
Evrópska efnahagssvæðisins hafi haft í
för með sér að margir frá löndum utan
svæðisins fái ekki endunýjun leyfa sinna
og sé gert að yfirgefa landið og landamær-
um Íslands hafi verið lokað að mestu fyrir
fólki utan Evrópu.
’Hann sýndi fram á muninn ákúlu og kleinuhring í huga
okkar stærðfræðinga.‘Sigurður Helgason, stærðfræðiprófessor
við MIT-háskóla , um verk stærðfræðings-
ins Grigory Perelman, sem bíða 70 millj-
ónir króna fyrir að hafa sannað tilgátu
franska fjölfræðingsins Henri Poincaré
frá 1904. Ekkert hefur sést til Perelmans í
þrjú ár.
’Þeir vilja stinga höndunuminn í hljóðfærið mitt og segja
það vera hluta af vinnu sinni.‘Pinchas Zukerman fiðluleikari greinir
frá raunum, sem geta fylgt því að ferðast
með hljóðfæri. Nú er það orðið hálfu erf-
iðara vegna herts hryðjuverkaeftirlits í
farþegaflugi.
’Ég minni á að Kólumbus fórvestur um haf til að finna sjó-
leiðina til Indlands en hafnaði
í Ameríku. Bush var að leita
að gereyðingarvopnum en
endaði á að boða lýðræði!‘Miðausturlandafræðingurinn Fouad
Ajami telur að göfug markmið hafi búið að
baki innrásinn í Írak, en einfeldnings-
háttur hafi einkennt afstöðu ýmissa ráða-
manna í Washington.
’Þetta er örugglega líka til-raun einhverra til að gera mig
að „ópersónu“.‘Þýski rithöfundurinn Günter Grass svar-
ar þeim, sem hafa gagnrýnt hann eftir að
hann greindi frá því að hann hefði verið fé-
lagi í Waffen-SS-sveitum nasista á tán-
ingsaldri, með vísun til bókarinnar 1984
eftir George Orwell þar sem óæskilegir
einstaklingar voru þurrkaðir út úr al-
menningsvitundinni með því að þegja um
þá. Grass greinir frá þessu í endurminn-
ingum sínum, sem seljast í bílförmum.
’Ég held að hann ætti nú aðgera þessar kröfur til sjálfs
sín og skila öllum viðurkenn-
ingum, sem veittar hafa verið
honum til heiðurs – þar á með-
al Nóbelsverðlaununum.‘Wolfgang Börnsen, þingmaður kristi-
legra demókrata í Þýskalandi, eftir játn-
ingu Grass um aðild sína að SS.
Morgunblaðið/RAXHeilleg beinagrind fannst ásamt
sverði, spjótsoddi og fleiru í vik-
unni í Hringsdal í Arnarfirði og er
talið að hún geti verið af Hringi
þeim, sem dalurinn er nefndur eft-
ir. Beinin eru frá 10. öld.
Ummæli vikunnar
VERSLUNIN Debenhams
hefur tekið miklum breyt-
ingum frá því hún var opnuð
fyrir fimm árum.
Í tilefni 5 ára afmælisins,
sem verður 10. október, var
ákveðið að fara í stórbreyt-
ingar. Í fréttatilkynningu
kemur fram að vinsælu
merkin haldi áfram og ný
þekkt og spennandi merki
bætist við.
Dömudeildin hefur verið
stækkuð með því að flytja
undirföt og skó á fyrstu hæð
í stærra rými.
Breyting-
ar í Deb-
enhams
Morgunblaðið/Ásdís