Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 58
fyrir nýja nemendur á grunnskólastigi haustið 2006 Verður haldið í húsnæði skólans Engjateigi 1, 105 Reykjavík Miðvikudaginn 23. ágúst Grunnstig 1. ár: kl. 17:30 (börn fædd 1997) Nemendur sem eru lengra komnir geta mætt í prufutíma samkvæmt samkomulagi Listdansskóli Íslands hefur viðurkenningu menntamálaráðuneytisins sem einkaskóli á framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar veittar í síma 588 9188 Nám við Listdansskóla Íslands er samkvæmt aðalnámskrá á grunn- og framhaldsstigi. Skólinn verður frá 1. ágúst 2006 rekinn af Dansmennt ehf, sem er einkahlutafélag í eigu Listaháskóla Íslands. INNTÖKUPRÓF Borgarleikhúsinu Föstudag 8. september kl. 19.30 Föstudag 8. september kl. 22.00 Miðaverð kr. 3.100 miðagjald innifalið. Miðasala hafin á www.borgarleikhusid.is og www.midi.is Sími: 568 8000 www.hordurtorfa.com 58 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING PANTIÐ MIÐA TÍMANLEGA Í SÍMA 437 1600 Leikstjóri: Peter Engkvist LEIKHÚSTILBOÐ Tvíréttaður kvöldverður og leikhúsmiði frá kr. 4300 - kr. 4800 Sýningar í ágúst Lau. 19. ágúst kl. 20 örfá sæti Sun. 20. ágúst kl. 15 uppselt Sun. 20 ágúst kl. 20 uppselt Fös. 25. ágúst kl. 20 uppselt Lau. 26. ágúst kl. 20 Laus sæti Lau. 2. sept. kl. 20 uppselt Sun. 3. sept. kl. 15 Sun. 3. sept. kl. 20 ARKÍTEKTARNIR Margrét Harð- ardóttir og Steve Christer hjá Studio Granda eru saman tilnefndir til Sjón- listarorðunnar 2006 fyrir nýjan nem- endagarð og rannsóknar- og frum- kvöðlasetur Viðskiptaháskólans á Bifröst. Byggingin setur sterkan svip á svæðið við Bifröst þó með hóg- værum hætti sé. Hún er stílhrein og lágstemmd, þökk sé bæði látlausu formi og jarðbundinni koparáferð, en er á sama tíma töluvert stærri en þær byggingar sem fyrir eru á svæð- inu. Eftir því sem kemur fram í um- sögn dómnefndar samlagast hún engu að síður landslaginu og mann- gerðu umhverfinu í kring. Leyst úr brýnni þörf á hagkvæman hátt Margrét verður fyrir svörum fyrir hönd þeirra Steves. Hún segir að mjög afmarkaðar og takmarkandi forsendur hafi verið lagðar verkinu til grundvallar þegar farið var af stað. „Það var orðið mjög knýjandi að byggja nemendagarða við Bifröst en það þurfti hins vegar að gerast á lágmarkskostnaði. Í húsinu er 51 einstaklingsíbúð fyrir nemendur en einnig alls óskyld starfsemi á jarðhæð,“ útskýrir hún en þessar ólíku þarfir gerðu verkefnið flóknara og dýrara heldur en ef um eina tegund af starfsemi hefði verið að ræða. „Það var því í rauninni verið að leysa mjög brýna þörf á staðnum á eins hagkvæman hátt og mögulegt var. Þessar forsendur mótuðu mjög úrlausn verkefnisins og voru ögrandi viðfangsefni.“ Til viðbótar er byggingin mun stærri en þau hús sem fyrir eru á staðnum. „Það þurfti einhvern veg- inn að laga bygginguna að mæli- kvarða byggðarinnar í kring svo ég tali ekki um að hinu viðkvæma nátt- úruumhverfi sem þarna er.“ Að sögn Margrétar má að þessu leyti segja að arkítektúr sé frábrugð- inn hönnun almennt. „Greinin er svo rígbundin við veruleikann og kaldar staðreyndir. Þetta þarf þó ekki endilega að hafa slæm áhrif á sköpunarkraftinn, held- ur gerir hann enn mikilvægari, því það er eina vopnið og það er hægt að gera eitthvað úr öllu ef maður missir ekki móðinn.“ Margét vonast til þess að bygg- ingin sé gott dæmi um að metnaður þurfi ekki að víkja í byggingalist þó fé sé af skornum skammti. „Sem betur fer höfðu skólayfirvöld skilning á mikilvægi hönnunar og reyndar er byggingin fyrsti áfangi í framtíðarsýn skólans, verkefni sem líka hefur verið unnið af Studio Granda. Það er tilraun til að sjá fyrir afleiðingar mikillar uppbyggingar á þessum fallega stað, svo byggðinni verði beint í góðan farveg og auki við náttúrulega fegurð staðarins fremur en rýri. Það er svo auðvelt að eyði- leggja einmitt það sem gerir staðinn svo áhugaverðan.“ Fallegur arkítektúr skiptir miklu máli „Það sem er sérstaklega ánægju- legt við tilnefninguna til Sjónlist- arorðunnar er að um er að ræða hversdagslega byggingu sem margir eiga eftir að nota,“ heldur Margrét áfram. „Fallegur arkítektúr er ekki einungis einhver munaður eða lúxus. Hann á erindi inn í allt umhverfi okk- ar og skiptir þjóðfélagið miklu máli. Byggt umhverfi okkar hér á Íslandi gæti verið svo margfalt betra með aðeins meiri hugsun og undirbúningi framkvæmda. Þeir sem stýra bygg- ingariðnaðinum og halda utan um fjármagnið eru því miður ekki alltaf meðvitaðir um þá ábyrgð sem á þeim hvílir fyrir hönd okkar hinna og sjá ekki endilega möguleikana sem þeim bjóðast. Þá vantar oft gott aðhald og skilning á afleiðingum athafna sinna. Við þurfum að koma á betri sam- vinnu milli fjármögnunaraðila, bestu fagmannanna og almennings svo samfélagið allt njóti góðs af. Góð byggingarlist er fín fjárfesting sem skilar sér margfalt til baka í betri Sjónlist | Margrét Harðardóttir og Steve Christer eru tilnefnd til Sjónlistarorðunnar 2006 Byggingin hýsir nemendagarð ásamt rannsóknar- og frumkvöðlasetri. Hún er fyrsti áfangi í framtíðarsýn skólans. Lýsandi dæmi um vel heppnaða húsagerðarlist Morgunblaðið/Eyþór Margrét Harðardóttir og Steve Christer stofnuðu Studio Granda árið 1987. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.