Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 20.08.2006, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ AUÐLESIÐ EFNI Á MIÐVIKUDAG létust þrír og tveir slösuðust alvarlega eftir tvö slys í umferðinni, annars vegar á Vestur-lands-vegi við Kjalar-nes og hins-vegar á Garð-skaga-vegi rétt utan við Sand-gerði. Í árekstrinum á Vestur-lands-vegi lést stúlka sem var farþegi og ökumaður bílsins slasaðist alvarlega. Á Garð-skaga-vegi létust tveir menn í sendibíl og 17 ára ökumaður fólks-bíls slasaðist alvarlega. Ágúst Mogensen, formaður Rann-sóknar-nefndar umferðar-slysa, segir hrað-akstur, vanrækslu á notkun bílbelta og þreytu við akstur vera algengustu orsakir alvarlegra umferðar-slysa og kallar hann á aðgerðir og segir brýnt að gera veg-bætur á Vestur-lands-vegi, svipaðar þeim sem gerðar hafa verið á Reykja-nes-braut og í Svína-hrauni. „Umferð á Vestur-lands-veginum er ekki aðgreind úr gagn-stæðum áttum en þar er um að ræða 1+1 veg. Nú höfum við séð á þeim hluta Reykja-nes-brautarinnar sem var tvö-faldaður að ekki hefur orðið banaslys eða harður árekstur frá því veg-bæturnar voru gerðar. Sama á við um Suður-lands-veginn þar sem kominn er 2+1 vegur með vír sem aðskilur umferð úr gagn-stæðum áttum. Þess-vegna veltir maður fyrir sér hvort Vestur-lands-vegurinn sé ekki næstur á dagskrá,“ segir Ágúst. Ágúst segir að mannleg mistök hafi verið ástæðan í slysunum tveimur og flest bendi til þess að á Garð-skaga-vegi hafi verið um hrað-akstur að ræða en einnig hafi öku-maðurinn sem slasaðist alvarlega ekki notað bíl-belti og hafi hann því kastast út úr bílnum. „Akstur krefst algerrar athygli og benda má á að 3. til 4. algengasta orsök bana-slysa á undan-förnum árum hefur verið svefn og þreyta,“ segir Ágúst. Þrjú banaslys í umferðinni – kallað á vegabætur Morgunblaðið/Júlíus Þrír létust í umferðinni á miðvikudaginn og tveir slösuðust alvarlega. Myndin er frá slysinu á Garðskagavegi en þar létust tveir og einn slasaðist alvarlega. Í BRETLANDI fjölgar þeim sem eiga plasma-flat-skjái líkt og hér heima en þessi þróun veldur stór-aukinni orku-þörf að sögn breska dag-blaðsins The Guardian. Plasma-sjónvörp geta þurft allt að fjórum sinnum meira rafmagn en hefð-bundið túbu-sjónvarp en þetta er haft eftir Joseph Reger, yfir-manni tækni-mála hjá Fujitsu Siemens tölvu-fyrirtækinu í München í Þýskalandi. Þessi aukna orku-þörf svarar til þess að reisa verði tvö ný kjarn-orku-ver bara til að útvega rafmagn fyrir plasma-skjáina en þeir myndu þurfa um 2,5 gígavött af rafmagni ef þeir væri allir í gangi samtímis, að sögn Regers. Fleiri tæki en plasma-skjáir valda aukinni orku-þörf. Stafræna byltingin sem nú gengur yfir heimilin þýðir að mörg heimili eru með fleiri tæki en áður fyrir afþreyingar-efni og má þar t.d. nefna DVD tæki, svokallaða flakkara sem eru með efni geymt á hörðum disk og fleira. Um fjórðungur allrar losunar á koltvísýringi í andrúms-loftið stafar af framleiðslu orku til heimilis-nota en það er álíka hlutfall og vegna samgangna. Margir skilja sjónvarps-tæki og önnur raftæki í gangi eða í biðstöðu og eykur það loft-mengun gríðarlega. Þó er talið að aukin umhverfis-vitund neytenda og tækni-þróun í rafmagns-tækjum muni líklega leiða til hagkvæmari tækja innan tíðar. Morgunblaðið/Árni Torfason Plasmaskjáir geta þurft allt að fjórum sinnum meira rafmagn en hefðbundið túbusjónvarp. Meiri orkuþörf með plasmaskjá LÍBANSKIR flótta-menn halda nú heim á leið enda virðist flest benda til þess að vopna-hléið milli Hizbollah og Ísraels-hers muni halda eftir að ísraelskir hermenn yfir-gáfu austur-hluta landa-mæra-svæðisins í Líbanon á mánudaginn. Margir Líbanar virðast treysta því að stríðið sé búið en næstum því milljón manns hafa flúið heimili sín og um 100 þúsund eru heimilis-laus eftir sprengju-árásir síðustu vikna. Varnar-mála-ráðherra Líbanons, Elias Murr, sagði að herinn myndi senda fimmtán þúsund hermenn að norður-bakka Litani-árinnar nú um helgina til samræmis við vopnahlés-ályktun öryggis-ráðs Sameinuðu þjóðanna. Bæði Ehud Olmert, forsætis-ráðherra Ísraels, og Hassan Nasrallah, leiðtogi Hizbollah, hafa fagnað sigri eftir átökin. Vopnahlé virðist halda – Líbanar á heimleið Reuters Líbönsk kona leitar að eigum sínum í rústum fjölbýlishúss í suðurhluta Beirut á föstudaginn. ÞAÐ ERU rúm tvö ár síðan eins fáum kaup-samningum á fast-eignum var þing-lýst og nú. Samningarnir voru 67 talsins í liðinni viku en hafa að meðaltali verið 126 á viku síðustu tólf vikur og voru 174 í sömu viku fyrir ári. „Sala fast-eigna hefur verið óhemju-mikil síðustu tvö til þrjú árin og það reiknar enginn með slíkum við-skiptum í framhaldinu. Markaðurinn nær sér vonandi á strik í þessum mánuði eða í byrjum september þó að búast megi við því að samningar verði færri en þeir hafa verið undanfarin ár,“ segir Jón Guðmundsson, lög-giltur fast-eigna-sali hjá Fast-eigna-markaðnum ehf. Jón býst ekki við því að við-skiptin aukist mikið fyrr en vextir lækka að nýju. Bankar virðast eiga erfitt með að lána meðan Seðla-bankinn hækkar stýri-vexti jafn mikið og gert hefur verið á síðustu vikum. Að sögn Jóns hefur ásett verð fast-eigna verið að lækka og kaupendur hafa nýtt sér það í auknum mæli við tilboðs-gerð. „Margir seljendur sem hafa verið með eignir í sölu í þrjá til fjóra mánuði hafa nú séð sæng sína upp-reidda og látið slag standa,“ segir Jón. Kaupendamarkaður á næstunni ÍSLENSKA karla-lands-liðið í knatt-spyrnu stóð sig vel gagn-vart Spán-verjum í vikunni í vin-áttu-leik þjóðanna á Laugar-dals-vellinum. Tæplega þrettán þúsund áhorfendur mættu í góðu veðri og fylgdust með íslenska liðinu verjast vel og var baráttu-gleði íslenska liðsins mikil og nutu spænsku stjörnurnar ekki neinnar sérstakrar virðingar. Eins og sjá má á myndinni átti Arnar Þór Viðarsson í ströngu er hann varðist þremur af stjörnum spænska liðsins, þeim Raul fyrir-liða og leik-manni Real Madrid, Andreas Iniesta leik-manni Barcelona og Jose Antonio Reyes leik-manni Arsenal. Morgunblaðið/Einar Falur Landsleikur í knattspyrnu, 0-0. Markalaust jafntefli gegn Spánverjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.