Morgunblaðið - 20.08.2006, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
essi könnun sem hér
birtist er bæði lítil og
í hæsta máta óvís-
indaleg; hún er ein-
ungis gerð til gam-
ans. Hún byggist á
því að fimmtán ljóða-
unnendur voru beðnir um að til-
nefna þrjú uppáhaldsskáld sín frá
nýliðinni öld. Ugglaust eru til kenn-
ingar um það hvernig á að velja
svarendur til að fá sem markverð-
asta útkomu. Ég þekki þær ekki og
hef ekki notað neitt slíkt. Fljótt sá
ég að ekki þýddi að taka einhvers-
konar slembiúrtak, eða spyrja þá
sem yfirhöfuð virtust ekki þekkja
eitt einasta nafn á skáldi frá 20. öld.
Því miður voru þeir oftast úr hópi
ungu kynslóðarinnar, sem búin er
að verma skólabekki undanfarin ár.
En einnig þar voru markverðar
undantekningar.
Þeir sem spurðir voru eru að vísu
flestir af menningarsviðinu, sem svo
er nefnt, sex þeirra eru bókmennta-
fræðingar og þeir eru að sjálfsögðu
þungavigtarmennirnir í þessari
könnun. Einn er blaðamaður, þrír
eru fastráðnir kennarar, einn er
hjúkrunarfræðingur, einn er leikari
en vinnur við þýðingar, einn er úr
bílabransanum, einn er verkfræð-
ingur, einn er fyrrverandi prestur
og síðan eru tveir menntaskólanem-
ar. Þetta er einhverskonar úrtak
ljóðaunnenda , meðalaldur þeirra
um 50 ár, verður hér á eftir gerð
betri grein fyrir þeim. Þó að úrtakið
sé ekki stórt, vekja tilnefningarnar
samt ýmsar spurningar.
Þátttakendur og tilnefningar
Eftirfarandi ljóðaunnendur sam-
þykktu að taka þátt og leggja til
svar við spurningunni. Þeir eru hér
taldir upp í stafrófsröð og tilnefn-
ingar þeirra fylgja með.
1. Arna Guðmundsdóttir, verk-
fræðingur sem starfar hjá Nýherja,
var spurð vegna þess að hún er ung
og líklega finnst mörgum að verk-
fræði sé afar fjarlæg ljóðlist. En
Arna, sem er ein af þessum vel
menntuðu ofurkonum, taldi að svo
væri ekki og hafði svör á reiðum
höndum.
Arna nefndi þrjú eftirfarandi
skáld: Stein Steinarr, Tómas Guð-
mundsson og Hannes Hafstein. At-
hyglisvert er að einn yngsti þátttak-
andinn skuli nefna Hannes Hafstein
og mörgum finnst að hann hafi bara
verið 19. aldar skáld. En Arna benti
á að Hannes gaf út stærstu ljóðabók
sína 1916 . Flestir vita að hann varð
fyrsti ráðherra Íslands 1904, en
þrátt fyrir annríki orti hann mikið.
2. Ágústína Jónsdóttir, er mynd-
listarkona og ljóðskáld, sem hefur
sent frá sér fimm ljóðabækur. Hún
er sérkennari í Hjallaskóla. Ljóð
Ágústínu bera vott um mikla ná-
kvæmni og hárfína tilfinningu.
Ágústína nefndi Stefán Hörð
Grímsson, Snorra Hjartarson og
Hannes Sigfússon. Allt eru það
landskunn og óumdeild skáld í
fremstu röð. Hannes Sigfússon
hlaut þó aðeins þessa tilnefningu.
3. Ástráður Eysteinsson, prófess-
or í bókmenntum við Háskóla Ís-
lands, er einn af sex bókmennta-
fræðingum í þessum hópi; hann er
mikill unnandi ljóða og fengur er í
að heyra álit hans og hinna bók-
menntafræðinganna.
Ástráður nefndi Einar Benedikts-
son, Stefán Hörð Grímsson og
Helga Hálfdanarson. Í vali bók-
menntaprófessorsins kann að koma
á óvart að hann nefnir Einar Bene-
diktsson, og ef til vill ber það með
sér að hinir vísu menn hafi tekið
hann til endurmats. Lesendur munu
þekkja Helga Hálfdanarson vel sem
þýðanda, enda hefur hann unnið
stórvirki með þýðingum sínum, sem
Ástráður telur að meta eigi til fulls
þegar litið er á uppáhaldsskáldin.
4. Bragi Friðriksson, fyrrum
sóknarprestur í Garðabæ. Hann var
– og er reyndar enn – afburða ræðu-
maður og vitnaði þá oft í ljóð, enda
hafði hann uppáhaldsskáldin sín á
hraðbergi.
Bragi nefndi Hannes Pétursson,
Þórarin Eldjárn og Matthías Jo-
hannessen. Kemur ef til vill á óvart
að þeir Þórarinn og Matthías skuli
ekki verða fengsælli hér, en Þór-
arinn hlaut tvær tilnefningar og
Matthías eina.
5. Finnbogi Eyjólfsson er aldurs-
forseti, kominn yfir áttrætt en vinn-
ur fullan vinnutíma og vel það hjá
Heklu; er sumsé í bílabransanum.
Finnbogi er skemmtikraftur að upp-
lagi, jafnvígur á tækifærisræður og
söng og hann er einn þeirra sem
kunna fjölda ljóða utanað.
Finnbogi nefndi Einar Benedikts-
son, Stein Steinarr og Hannes Pét-
ursson. Það sýnir bezt hvað Finn-
bogi er með á nótunum að hann er
sá eini sem tilnefnir alla sem lentu í
þrem efstu sætunum. Hvað val hans
á Einari Ben. snertir kvaðst hann
alls ekki geta gengið framhjá stór-
skáldinu sem orti Útsæ. Finnbogi
telur það meðal helztu stórvirkja á
bókmenntasviði og sjálfur kvaðst
Einar raunar hafa aðeins ort eitt
ljóð, það var Útsær.
6. Guðmundur Valur Sigurðsson
er 16 og bráðum 17 ára nemandi í
Menntaskóla Kópavogs. Hann var
valinn af handahófi sem fulltrúi
þeirrar kynslóðar sem enn er undir
tvítugsaldri.
Guðmundur nefndi Einar Bene-
diktsson, Hannes Pétursson og
Megas. Ugglaust finnst einhverjum
að telja megi til tíðinda þegar Meg-
as er valinn í þetta úrtak, en það er í
sjálfu sér eðlilegt að yngsti mað-
urinn meðal spyrjenda velji ein-
hvern af yngri kynslóð skálda; mann
sem þó er ekki ýkja ungur; kominn
á sextugsaldur. Að sá yngsti velji
líka Einar Ben. er eftirtektarvert.
7. Guðný Svava Strandberg er
myndlistarkona, skrautritari og
ljóðskáld og hefur líklega oftar en
allir aðrir birt ljóð sín í Lesbókinni á
árabili sem spannar tvo áratugi.
Hún er einnig kennari við Fjöl-
mennt.
Guðný Svava nefndi Einar Bene-
diktsson, Stein Steinarr og Tómas
Guðmundsson. Tók hún sérstaklega
fram, og það gerði Arna Guðmunds-
dóttir einnig, að Tómas eigi sérstak-
an heiður skilið fyrir að innleiða
gamansemi í alvarlegan kveðskap
og auk þess varð hann fyrstur
skálda til að vegsama fegurð
Reykjavíkur og borgarlífsins.
8. Halldór Guðmundsson er víð-
kunnur bókmenntafræðingur og
prófessor við Háskóla Íslands.
Hann er einn af sex bókmennta-
fræðingum í þessum hópi og titlaður
útgáfustjóri í símaskránni. En hann
er einnig rithöfundur og síðasta
verk hans var ævisaga Halldórs
Kiljans Laxness sem þykir hafa tek-
izt afburða vel.
Halldór nefndi Stefán Hörð
Grímsson, Jóhann Sigurjónsson og
Ingibjörgu Haraldsdóttur. Það
gegnir nokkurri furðu að Ingibjörg
er eina konan sem fær tilnefningu;
hún er reyndar tilnefnd tvisvar.
Kann einnig að koma á óvart val
Halldórs á Jóhanni Sigurjónssyni.
Hefur að því er virðist gleymst að
Jóhann var afburða gott ljóðskáld.
Ögn um það síðar.
9. Hólmfríður Gunnarsdóttir er
hjúkrunarfræðingur, doktor í heil-
brigðisvísindunum. Hún er af þing-
eyskum bókmenntaættum og í fjöl-
skyldu hennar er sjálfsagður hlutur
að kunna skil á ljóðskáldum og
verkum þeirra.
Hólmfríður nefndi Hannes Pét-
ursson, Stefán Hörð Grímsson og
Ingibjörgu Haraldsdóttir og um til-
nefningar hennar er ekkert nema
gott að segja.
10. Karl Guðmundsson leikari er
einnig þrautreyndur ljóðaþýðandi
og hefur að segja má sem sérgrein
að þýða gullfalleg ljóð írska skálds-
ins Seamusar Heaneys. Sjálfur hef-
ur Karl ort heilmikið um dagana.
Karl nefndi Einar Benediktsson,
Snorra Hjartarson og Magnús Ás-
geirsson. Tveir þeir fyrri eru meðal
þeirra sem fá flestar tilnefningar
hér, „en okkur má ekki yfirsjást um
Magnús Ásgeirsson,“ segir Karl.
„Hann var svo góður þýðandi að
sumar þýðingar hans á ljóðum eftir
markverð skáld eru jafnvel taldar
betri en frumgerðin.“
11. Kjartan Gíslason mennta-
skólanemi úr Menntaskólanum í
Kópavogi er líkt og félagi hans,
Guðmundur Valur, fulltrúi þeirra
ungu. Skoðanir beggja á uppáhalds-
skáldum voru fastmótaðar þrátt fyr-
ir ungan aldur.
Kjartan nefndi Einar Benedikts-
son, Stein Steinarr og Þórarin Eld-
járn. Kjartan er aðeins 18 ára og
ugglaust ekki eins kunnur og flestir
sem hér svara. En hann var fljótur
að komast að niðurstöðu og niður-
staða hans vekur engar sérstakar
spurningar.
12. Njörður P. Njarðvík, fyrrum
prófessor í bókmenntum við Há-
skóla Íslands, telst eins og hinir
bókmenntafræðingarnir, þungavigt-
armaður í greiningum á ljóðlist.
Hann hefur góða yfirlitsþekkingu á
íslenzkri ljóðlist, allt frá Sólarljóð-
um, sem hann hefur skrifað bók um,
til okkar tíma.
Njörður sagði að það væri hrein-
lega ekki hægt að nefna bara þrjá;
fimmtán væru nær lagi. En það stóð
ekki til boða og þá nefndi Njörður
Hannes Pétursson, Snorra Hjartar-
son og Þorstein frá Hamri. Allir eru
þeir meðal þeirra ljóðskálda sem
flestar tilnefningar fá hér.
13. Sigurður Hróarsson bók-
menntafræðingur, býr nú í Slóveníu
og starfar þar við þýðingar fyrir ís-
lenzk bókaforlög. Hann var áður
leikhússtjóri hjá Leikfélagi Akur-
eyrar og er mikill hafsjór af bók-
menntafróðleik.
Sigurður nefndi Einar Benedikts-
son, Snorra Hjartarson og Þorstein
frá Hamri. Allt eru það þungavigt-
armen í ljóðlist og meðal þeirra sem
flestar tilnefningar fá.
14. Þórður Helgason er sá fimmti
sem telst til fagmanna í bókmennt-
um. Hann hefur í 12 ár verið dósent
í bókmenntum við Kennaraháskóla
Íslands, staðið að námskeiðahaldi
um ljóðlist og yrkingar og sjálfur er
hann ljóðskáld með fjórar ljóðabæk-
ur að baki.
Þórður nefndi Hannes Pétursson,
Snorra Hjartarson og Þorstein frá
Hamri. Margir munu veita vali
Þórðar sérstaka eftirtekt í ljósi þess
að hann hefur verið að kenna kenn-
araefnunum okkar og átt þátt í að
móta ljóðasmekk þeirra.
15. Þröstur Helgason er sjötti
bókmenntafræðingurinn í hópnum.
Hann hefur verið umsjónarmaður
Lesbókar Morgunblaðsins síðan í
ársbyrjun 2001 og þar skrifar hann
að staðaldri um hverskyns menning-
armál.
Þröstur nefndi Stein Steinarr,
Sigfús Daðason og Gyrði Elíasson.
Síðari skáldin tvö fengu ekki aðrar
tilnefningar og þó að Gyrðir sé ekk-
SJÓNARHÓLAR OG SJÓNARMIÐ VIII
Uppáhaldsskáldin
Gísli Sigurðsson
Skáldið og þrjár úr aðdáendahópnum. Standmyndinni af Einari Benediktssyni eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara
hefur verið ágætlega fyrir komið á Miklatúni. Í næsta nágrenni er höggmynd af Þorsteini Erlingssyni, en þau skáld sem
hlutu tilnefningar hér hafa yfirleitt ekki fengið af sér styttur.
Margir ljóðaunnendur
kunna utanað heilu ljóða-
bálkana eftir uppáhalds-
skáld sín frá nýliðinni öld.
Gísli Sigurðsson hefur valið
15 misþekkta ljóðaunn-
endur, og þeir voru beðnir
um að velja „þrjú beztu
skáldin“ úr hópi ljóðskálda
sem ortu á 20. öld.