Morgunblaðið - 20.08.2006, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 27
kvaldi þetta Victoríu að hún fór eftir
þetta að hugleiða að svipta sig lífi.
Hún hafði árið 1887 gefið sig Bran-
des líkamlega á vald en haft af því litla
gleði. Hinir blautlegu kossar og það
sem á eftir fylgdi minnti hana um of á
eiginmann hennar, sem hún hafði
hina megnustu andstyggð á og hafði
löngu sagt óformlega skilið við. Ást
hennar á Brandes var fyrst og fremst
andlegs eðlis. Það gerði kannski ekki
svo mikið til, Brandes var um sömu
mundir í ástarsambandi við rúss-
neska furstynju og þótti Victoría
raunar fremur daufleg í samanburði
við þá líflegu konu, sem og átti hann
fleiri ástkonur sem hann reyndi að
dylja fyrir hinni mjög svo afbrýði-
sömu eiginkonu sinni. Allt þetta
skriftaði hann fyrir Victoríu og klapp-
aði henni á meðan blíðlega með sinni
smáu hendi.
Sú bók sem Victoría ætlaði að kalla
Konur, var aldrei skrifuð – en hið
hættulegasta og einlægasta var í
staðinn sagt í leikritinu hennar: Hin
bergnumda. Hún skrifaði líka um
þetta leyti athyglisverðar smásögur.
Siðvenjur og staða kvenna á þess-
um tíma voru hinni stóru sál Victoríu
Benediktsson æ erfiðari fjötrar.
Þunglyndi hennar fór vaxandi og þar
kom að hún reyndi að svipta sig lífi á
afmælisdegi sínum 4. febrúar 1888
með því að taka stóran morfín-
skammt. Hún hélt honum ekki niðri
og var bjargað.
Hún hafði skriftað fyrir frönskum
vini sínum William Molard sem sagði:
„Ástríða yðar verður að fá útrás, lög-
mál náttúrunnar mun heimta rétt
sinn. Verið kona í einu og öllu til hins
síðasta.“ Þegar Victoríu barst þetta
bréf hafði hún þegar gefið sig Bran-
des fullkomlega á vald en það hjálpaði
henni ekki. Tæplega vegna siðferði-
legs samviskubits – þótt hin hefð-
bundnu hugtök leyndust vafalaust og
gengu aftur í myrkrinu. Mestu olli lík-
lega hin líffræðilegu bönd, sem mein-
uðu henni að njóta lífsins til fullnustu
er álit höfundar bókarinnar um Victo-
ríu og Brandes, hann telur ógæfu
hennar vera miskunnarlaust af ást-
hneigð, sem fór villur vegar og þekkti
ekkert mark og var því aldrei hægt að
friða.
Einkunnarorðin sín skrifaði hún í
Stóru bókina: „Það er hægt að finna
hamingju í hjónabandinu en aldrei í
lausum ástarsamböndum.“
Allan þennan tíma stóð þau Vic-
toría og Brandes í bréfasambandi en
17. apríl 1887 tók hún upp á því að
skrifa móður Brandesar og fékk vin-
samlegt en vandræðalegt svar vel
meinandi gamallar konu.
Til Parísar fór Victoría um vorið og
fann þá aðeins til „hljóðrar, ólækn-
andi örvilnunar djúpt í brjósti mér.
Allt lífið er mér tómleiki – tómleiki“.
Eyðileggðu ekki
minnisblöð mín!
Hún sneri aftur til Kaupmanna-
hafnar og rétt eftir miðnætti 22. júlí
1887 skrifaði hún vini sínum Lundga-
ard: „Eyðileggðu ekki minnisblöð
mín. G.B. mun sennilega vilja fá þau,
en það má ekki gerast. Hvert orð er
sannleikur og þann sannleik, sem ég
get innsiglað með dauða mínum, ætti
hann einnig að hafa hugrekki til að
standa við.“ Síðustu hugsanir Victoríu
Benediktsson virðast hafa snúist um
Georg Brandes.
Að morgni fannst Victoría á grúfu á
teppinu fyrir neðan rúmið á Leopolds
hótel – hún hafði skorið í sundur stóru
hálsslagæðina með rakhníf.
Hraðboði var sendur eftir Lundga-
ard og hóteleigandinn flutti sjálfur
Brandes tíðindin. Hann vildi ekki sjá
líkið sem flutt var á líkhús St. Jóhann-
esspítalans.
Brandes kom í veg fyrir að sagt
væri frá dauðdaga Victoríu í Politiken
en frá sjálfsmorðinu var sagt í Social-
demokraten og Aftenbladet. Blaða-
maður þess síðarnefnda fór í líkhúsið
og sá hina látnu í glerkistu.
„Þar lá hin ógæfusama kona. Þrátt
fyrir hin miklu sár hvíldi friður yfir
andliti hennar, sem ennþá var fallegt
og unglegt.“
Við jarðarförina í hinni litlu kapellu
St. Jóhannesspítalans mættu auk að-
standenda og vina Brandesbræður og
þeir voru viðstaddir þegar kistunni
var sökkt í hina dönsku mold. Í henni
lá lík Victoríu Benediktsson með liljur
um skorinn hálsinn. – Svona átakan-
leg urðu örlög þessarar sænsku
skáldkonu úr framvarðasveit „Hinnar
ungu Svíþjóðar“.
Georg Brandes dó 1927. Hann
hafði mikil áhrif á þróun norrænna
bókmennta með fyrirlestrum sínum.
Hann reis gegn rómantísku stefn-
unni, játaði guðleysi sitt og var sem
fyrr sagði mikill fylgismaður frjálsra
ásta.
Síðasta árið sem Victoría Bene-
diktsson lifði reyndi hún að búa í hag-
inn fyrir þá skoðun að hún hefði fram-
ið sjálfsmorð af ástarsorg og hún
lagði fram reynslu sína og örlög sem
sönnun fyrir hinni miklu kenningu um
bölvun hinnar frjálsu ástar. Svo mikið
bar þeim á milli, elskendunum Bran-
des og Victoríu. Hún setti lífsreynslu
sína í stórt málefnalegt samhengi
enda var þetta stórt deiluefni þeirra
tíma.
Harmagyðjuna kallaði Georg
Brandes Victoríu Benediktsson. Í
nóvember 1886 skrifar Victoría í
Stóru bókina: „Það sem eðli sínu sam-
kvæmt hlýtur að leiða af skapgerð
beggja, það gerist.“
Victoría reisti í minnisblöðum sín-
um varanlega minnisvarða yfir einn
kafla í ævi Brandesar, sem fyrir hana
varð hinn mikli harmleikur, jafnframt
því sem hún nýtti sér reynslu sína í
leikritinu um Hina bergnumdu. Fróð-
legt væri óneitanlega fyrir þá sem
áhuga hafa á dramatík að sjá eða
heyra það leikrit.
Saga Victoríu Benediktsson er at-
hyglisverð saga um metnaðargjarna
konu sem reyndi að njóta hæfileika
sinna í örðugu umhverfi. Hún bjó yfir
ofurheitum tilfinningum en var á
sama tíma svo „kúl“ að hún skrásetti
samtöl og lýsti atlotum næstum eins
og hún væri áhorfandi að eigin ást-
arsögu. Þetta eru vinnubrögð og hug-
arfar sem ekki hefur verið algengt
meðal kvenna undir lok 19. aldar og
eru það varla enn – í upphafi 21. aldar.
gudrung@mbl.is
Haukur Þór Hauksson
GSM 893 9855
Sigurbjörn Magnússon hrl.
Investis er fyrirtækjaráðgjöf sem sér hæfir sig í miðlun fyrirtækja og breyting um á eignarhaldi.
Vinnum verð mats skýrslur og greinum fjár hags lega valkosti fyrir fjárfesta og fyrirtæki.
Erum með til sölu áhugaverð fyrirtæki á sviði inn flutnings,
dreifingar, bygg ingar starfsemi og veitingastarfsemi.
Einnig til sölu verslun í Reykjavík og svo smásöluverslunarkeðja.
Höfum jafnframt góð fjárfestingatækifæri á sviði fasteigna.
Getum í samstarfi við SAM Business Broker A/S í Danmörku,
boðið frábær fjárfestingatækifæri á Norðurlöndunum.
•
•
•
•
FYRIRTÆKJAMIÐLUN
RÁÐGJÖF
Aukum verðmæti eigna þinna!
Lágmúla 7 - 108 Reykjavík - Sími 590 7660 - www.investis.is
Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi
Austurvegi 3, 800 Selfossi, s. 480 2900 - log.is
Til sölu er jörðin Jaðar I, Hrunamannahreppi, sem er um 810 ha að
stærð. Land jarðarinnar er víðerni sem liggur á milli Dalsár og Hvítár
og á jörðin land að stórfenglegum náttúruperlum s.s. fossinum Gull-
fossi og Pjaxa. Jörðin er ofarlega í Hrunamannahreppi og á land að
afrétti. Engar byggingar eru á jörðinni. Land jarðarinnar liggur nokk-
uð hátt og er lægst í um 200 m hæð yfir sjó. Nokkur hluti landsins er
afgirtur vegna uppgræðslu á vegum Landgræðslu ríkisins og er þar
birkikjarr og vaxandi skógur. Jörðin er þurrlend að mestu en ekki er
ræktað land á jörðinni. Veiðiréttur Tungufells, Jaðars I og Jaðars II
er í óskiptri sameign og landið er ágætt gæsa- og rjúpnaland. Volgar
lindir eru við Gullfoss.
Nánari upplýsingar á skrifstofu og einnig á www.log.is
Löggiltir fasteignasalar:
Ólafur Björnsson hrl. & Sigurður Sigurjónsson hrl.
JÖRÐ VIÐ GULLFOSS
RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM 21-28 ÁGÚST
NÚ ER TÆKIFÆRI TIL AÐ KAUPA ÞAÐ SEM ÞÉR HEFUR ALLTAF LANGAÐ Í
Lumex
Skipholti 37
Sími 568 8388
www.lumex.is