Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 32

Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 32
32 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Fjölmargt hefur breyst í fræð-unum og umheiminum fráþví að ég lauk hagfræði-námi. Tölvubyltingin hefurauðvitað gjörbreytt kennsluháttum, en breytingin á við- horfum til kenninga hagfræðinnar er einnig gríðarleg. Hér á landi var við- kvæðið gjarnan að ýmsar reglur hag- fræðinnar ættu ekki við, vegna smæð- ar þjóðfélagsins. Ég átti alltaf bágt með að skilja þetta, enda fannst mér sérkennilegt að styðjast við annað metrakerfi hér en í öðrum ríkjum, ef svo má að orði komast. En ég talaði oft fyrir daufum eyrum fyrstu árin. Ég get nefnt sem dæmi að ég starfaði töluvert fyrir þingflokk Sjálfstæðis- flokksins. Á fundi með þingflokknum nefndi ég einhverju sinni vaxtafrelsi og var greinilega álitinn hálfbilaður maður sem skildi alls ekki innviði ís- lensks þjóðfélags!“ Guðmundur Magnússon varð pró- fessor í hagfræði við Háskóla Íslands fyrir rúmum 38 árum, að loknu fram- haldsnámi og starfi við Uppsalahá- skóla. Hann var rektor Háskóla Ís- lands í sex ár, frá 1979 til 1985. Núna er hann í hálfu starfi við háskólann, sem leiðbeinandi doktors- og meist- aranema, auk þess að sinna ýmsu grúski, eins og hann kallar það. Und- anfarin ár hefur hann líka tekið að sér ýmis verkefni, t.d. var leitað til hans eftir ráðgjöf þegar Danir gerðu úttekt á fjármálaeftirliti sínu og þegar efna- hagsvandinn sótti sem harðast að Færeyingum. Guðmundur gerir þó lítið úr slíkri upphefð og segist hafa það fyrir satt að Dönum hafi þótt ívið skárra að fá Íslending í það verkefni en Svía. Þegar Guðmundur hóf kennslu við viðskiptadeild háskólans var hún miklu minni en nú er. „Ætli þá hafi ekki verið 20–30 nemendur á fyrsta ári, en sá fjöldi hefur tífaldast. Að- staða kennara var með þeim hætti að ég var í fyrstu með skrifstofu heima hjá mér. Tölvubyltingin og netvæð- ingin hafa gjörbreytt kennsluháttun- um og ég sé það til dæmis á ritgerðum nemenda, sem oft styðjast við fleiri heimildir af netinu en úr bókum. Þetta hefur líka gert mér kleift að vinna með kollegum um allan heim og leiðbeina nemendum sem eru víðs- fjarri. Doktorsnemandi, sem núna er undir minni handleiðslu, starfar í Finnlandi, en færir sig fljótlega til Ír- lands. Við þurfum ekkert að vera í sama landi, þótt við hittumst auðvitað af og til.“ Guðmundur segir að þessar breyt- ingar hafi kallað á mikla símenntun kennara. „Fljótlega eftir að ég kom til skólans leitaði ég til verkfræðideild- arinnar til að læra að nota tölvur, sem byggðust á gataspjöldum. Glærur voru líka að koma til sögunnar og verkfræðingarnir kenndu mér glæru- gerð.“ Aukin tengsl HÍ og atvinnulífsins Guðmundur segir að þótt hagkerfið hér á landi hafi allt verið með öðrum brag á sjöunda áratug síðustu aldar en nú hafi námsefnið verið alþjóðlegt. „Okkur kennurum var reyndar stundum legið á hálsi fyrir að vera að kenna um hagkerfi og fjármálamark- aði, sem ætti alls ekki við hér í þessu handstýrða þjóðfélagi boða og banna. En þetta varð þó til þess að þegar frelsið kom voru gamlir nemendur okkar vel undirbúnir og gátu nýtt sér menntunina. Aukið frelsi og alþjóða- væðing hefur orðið vatn á myllu við- skipta- og hagfræðinga. Þegar litið er yfir fjármálamarkaðinn núna sést að þarna er ungt fólk ráðandi. Ég pre- dika því ekki fyrir jafndaufum eyrum og áður fyrr, þegar ég var stundum talinn undarlegur.“ Aðspurður hvort hann og sam- kennarar hans hafi verið álitnir úr tengslum við viðskiptalífið segir hann að þar hafi smæð samfélagsins vegið á móti. „Við viðskiptadeildina hafa alltaf starfað menn sem hafa verið með annan fótinn í atvinnulífinu og nægir þar að benda á Árna Vilhjálms- son. Háskólinn hefur líka unnið mark- visst að því að færa ýmis verkefni sem tengjast atvinnulífinu inn í skólann. Ég lagði til dæmis áherslu á það í minni rektorstíð að styrkja samvinnu háskólans og atvinnulífsins í rann- sóknum. Háskólalögunum var þá breytt í þá veru að skólinn fékk heim- ild til að stofna fyrirtæki og reka með aðilum utan skólans. Þá varð ég hins vegar fyrir aðkasti af hálfu sumra nemenda. Þegar Happdrætti Háskóla Íslands auglýsti rannsóknir í þágu at- vinnuveganna litu þeir svo á að há- skólinn væri farinn að selja sig. Sama gilti þegar við styrktum samskipti við erlenda háskóla. Ég fór til dæmis til Minnesota og gerði samstarfssamn- ing við háskólann þar, en þegar ég sneri aftur létu sumir nemendur eins og ég væri landráðamaður að leita á þann hátt í smiðju Bandaríkjamanna. Samt tryggði þessi samningur ís- lenskum nemendum lægri skólagjöld í Minnesota og núna er auðvitað kom- ið annað hljóð í strokkinn.“ Guðmundur kveðst hafa vonað að fleiri fyrirtæki yrðu stofnuð innan vé- banda skólans en raun varð á. „Við er- um líklega of miklir einstaklings- hyggjumenn til að vilja það. Þó má nefna að bæði Marel og Lyfjaþróun eiga rætur að rekja til háskólans, auk nokkurra annarra. Hins vegar leita bæði opinberir aðilar og einkaaðilar til rannsóknarstofnana háskólans í ríkum mæli, til dæmis Hagfræði- stofnunar, Líffræðistofnunar, Verk- fræðistofnunar og Lagastofnunar. Í þessu litla þjóðfélagi er erfitt að finna óháða aðila og þessar stofnanir því nauðsynlegar. Þegar ég starfaði í Færeyjum gerði ég mér enn betur grein fyrir þessu. Þar er hagkerfið svo örsmátt að engan óháðan var að finna og háskólamenn þorðu vart að opna munninn af ótta við stjórnmála- menn, sem kunni auðvitað ekki góðri lukku að stýra.“ Samkeppnin hefur bætt HÍ Aðspurður hvort hann telji að menntun hagfræðinga sé núna betri en hún var þegar hann hóf störf segist hann oft hafa velt því fyrir sér. „Menn eru að jafnaði lengur að fara í gegnum námið núna en áður. Ég held að góðir námsmenn núna séu með öðruvísi menntun en góðir námsmenn fyrir 30–40 árum. Ég held að Háskóli Ís- lands fái enn bestu nemendurna, en líka fleiri í lakari kantinum, sem kom- ast ekki inn í skóla sem setja fjölda- takmarkanir. Samkeppni háskólanna innanlands er orðin mikil og hún hlýt- ur að vera til hagsbóta. Mér finnst hins vegar ótækt þegar samkeppnis- staðan er brengluð, því Háskóli Ís- lands fær sömu upphæð með hverjum nemanda og aðrir háskólar, en þeir geta tekið skólagjöld að auki. Háskóli Íslands er hins vegar áreiðanlega betri skóli eftir að samkeppnin brast á, því við höfum skerpt ýmsar áherslur og gert kennsluna markviss- ari. Við fórum að vísu offari á tímabili, til dæmis buðum við upp á stutt, hag- nýtt nám í viðskiptafræði, svokallað diploma-nám. Mér fannst alltaf vafa- samt að fara að keppa á þeim grunni og er feginn að því hefur verið hætt. Háskóli Íslands á ekki að gína yfir öllu. Hinir skólarnir leggja áherslu á færni og góða aðstöðu, en við eigum að einbeita okkur að æðri menntun.“ Ferðalag krónunnar Á síðasta ári gaf viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Íslands út safn pistla og ritgerða eftir Guðmund, undir heitinu Stundarhagur. Í ritinu kennir ýmissa grasa, þar eru pistlar sem lúta að ábyrgð einstaklingsins, óvissu og áhættustjórnun, mannauði, fjármálamarkaði og málefnum hins opinbera. Guðmundur ritar jafnframt um peningamál og gengi, Ísland og umheiminn og birtir sjö ritgerðir um ýmis efni, þar á meðal aukaaðild Ís- lands að Myntbandalagi Evrópu. Með vísan til þeirrar síðastnefndu er Guð- mundur spurður hvort hann þreytist ekki á að tala fyrir daufum eyrum, eins og hann gerði þegar hann fyrst sneri til starfa hér á landi eftir nám erlendis. „Ég held auðvitað áfram að tala og skrifa um það sem mér finnst, hvað sem öðrum kann að þykja um það,“ segir hann. „Ferðalag krónunnar undanfarið gefur tilefni til að velta þessu fyrir sér enn á ný. Krónan er þessa stundina eins konar Svarti Pét- ur, sem enginn vill hafa á hendi. Sveiflurnar í gengi eru ekki bara óþægilegar, heldur eru þær ein helsta ástæða fákeppninnar sem ríkir hér á mörgum sviðum. Hér ráða 2–3 stór- fyrirtæki í tryggingum, bankastarf- semi, olíusölu og sölu á byggingavör- um, svo dæmi séu tekin. Erlendir aðilar veigra sér við að koma inn á markaðinn og taka þá gengisáhættu sem í því felst. Kjarni málsins er hins vegar sá, að stjórnmálamenn og margir fleiri einblína fyrst og fremst á atvinnustigið. Þeir kjósa því að hafa háa vexti og töluverðar sveiflur í efna- hagslífinu, til að geta sýnt fram á að þeir geti leyst betur úr vanda þjóð- arbúsins en markaðurinn. Þeir ættu fremur að huga að því að fjarlægja gengisáhættuna, ef þeir vilja ekki í raun að nokkrir aðilar eignist landið allt.“ Guðmundur segir að fyrir nokkrum árum hafi þáverandi forsætisráð- herra haldið því fram í ræðu hjá Verslunarráði að hér væri staðan slæm ef við værum með evru, en ekki krónu. Guðmundur segir að í einni grein bókarinnar Fiskur og farsímar beri hann saman stöðu íslenska hag- kerfisins, þar sem sjávarútvegur vegi þungt og krónan er gjaldmiðillinn, og finnska hagkerfisins, sem býr við evru og yfirburðastöðu Nokia-far- símaframleiðandans. Niðurstaðan er sú að evran hafi ekki haft neikvæð áhrif á stöðu Finna. En væri aukaaðild að Myntbanda- laginu möguleg? Guðmundur segir að nú virðist hvorugur aðilinn, Ísland eða ESB, hafa á því áhuga. „Evrópusambandið vill ekki að ríki stytti sér leið inn í sambandið, heldur vill aðeins fulla að- ild. Við fáum heldur enga hjálp frá EFTA, enda vilja Norðmenn ekki fara í Myntbandalagið. Í sjálfu sér er ekkert í Evrópusáttmálanum sem Predikar ekki fyrir jafn- daufum eyrum og áður Guðmundur Magnússon, hagfræðiprófessor og fyrr- verandi rektor Háskóla Ís- lands, starfar enn við við- skiptadeild háskólans. Hann er þó sestur að á býli í Danmörku, þar sem hann getur látið reyna á hag- fræðikenningar í verki. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi við Guðmund, m.a. um breytt viðhorf til kenn- inga hagfræðinnar, sam- keppni háskóla, aukaaðild að Myntbandalagi Evrópu og þenslu í efnahagslífinu. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Guðmundur Magnússon, fyrrverandi háskólarektor, lætur senn af störfum en þá tekur við rekstur gamals býlis sem hann á í Danmörku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.