Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 45

Morgunblaðið - 20.08.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 45 UMRÆÐAN Laugavegi 97 - 101 Rvk • Sími: 440 6020 • Fax 440 6001 • GSM 664 6020 Vefsíða: www.leiguradgjof.is • Netfang: leiguradgjof@leiguradgjof.is Til leigu 210 fm verslunar- /skrifstofuhúsnæði með góðum gluggum út á götu á horni Síðumúla og Fellsmúla. Möguleiki á að skipta í 2 rými, 80 fm og 130 fm. Auk verslunarrýmis eru þar 2 smáskrifstofur, snyrting og kaffiaðstaða. Húsnæðið er laust og um langtímaleigu er að ræða. Leiguráðgjöf hefur á boðstólum úrval af skrifstofu-, atvinnu- og íbúðarhúsnæði til leigu. Nánari upplýsingar: www.leiguradgjof.is Barbara Wdowiak s. 440 6020 og 664 6020. barbara@domus.is TIL LEIGU VERSLUNARHÚSNÆÐI SÍÐUMÚLA - REYKJAVÍK Þórðarsveigur 4, íbúð 0402 Eign á mjög góðu verði - Laus strax www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00. Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Erum með í einkasölu góða mjög vel skipulagða ca 85 fm 3ja herbergja íbúð á 4. hæð sem er efsta hæð í vel staðsettu lyftuhúsi. Íbúð fylgir gott stæði í bílskýli. Stórar suðursvalir, gott útsýni úr íbúð, parket og flísar á gólfum. Laus strax. Einstaklega gott verð eða aðeins 20,5 m. Opið hús verður í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Bjarki og Kolbrún taka á móti áhugasömum. Sími 588 4477 Laugarnesvegur 110, íbúð 0302 Opið hús í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Í einkasölu á Valhöll falleg, vel skipulögð 3ja herb. íbúð á 3. hæð í góðu húsi sem staðsett er inn í botnlanga (ekki út við umferðargötu). Suðursvalir út frá herb. Góð eign á einstaklega góðum stað, steinsnar frá mjög góðri þjónustu og með miðbæ Reykjavíkur skammt undan. Verð aðeins 15,9 millj. Íbúðin er laus mjög fljótlega. Gylfi tekur á móti áhugasömum í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali MIÐVANGUR 10, 2. HÆÐ Til sýnis í dag björt og falleg 5 herb. 150 fm íbúð á 2. hæð í 9 íbúða stigagangi í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Búið er að klæða húsið að utan. Yfirbyggðar svalir (sólstofa). Skápar í öllum herb. Snyrtileg sameign. Þetta er fjölskylduvænt hverfi. Verð 24,9 millj. Helgi og Karen sýna öllum áhugasömum íbúðina í dag frá kl. 17-19. (Bjalla merkt 201) Suðurlandsbraut 20 — Sími 533 6050 — Fax 533 6055 Bæjarhrauni 22 — Sími 565 8000 — Fax 565 8013 Opi ð h ús í dag kl. 17-1 9 FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali. OPIÐ HÚS - FLÉTTURIMI 33 Vorum að fá í sölu glæsilega 118 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í fallegu fjölbýli auk 20 fm bíl- skúrs, samtals 138 fm. Þrjú stór svefnherb. Glæsilegar nýl. innréttingar. Baðhb. með sérsmíðuðum sturtuklefa (einn með öllu). Stór og björt stofa. Tvennar svalir. Parket og dúkur á gólfum. Falleg sameign. Barnvænt hverfi. Falleg og vel staðsett eign. Áhvílandi hagstæð lán. Verð 24,4 millj. Sigurður og Erla Ósk sýna eignina í dag, sunnudag, frá kl. 14–16. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Til sölu nýtt sérhannað glæsilegt sumarhús á frábærum útsýnisstað. Húsið er á einni hæð og skiptist í forstofu, geymslu, baðherbergi, stórt eld- hús og borðstofu, stóra stofu, stórt hjónaherbergi með sérbaði inn af og tvö stór svefnherbergi. Selst fullbúið með vönduðum innréttingum, flísalögðum baðherbergjum, parketi og flísum á gólfum og kammínu. Við húsið er gríðarstór pallur með heitum potti. Húsið er byggt sem heilsárshús. Húsið er frábær hönnun gerð af Helga Hjálmarssyni arkitekt. Í Úthlíð og næsta nágrenni er öll þjónusta, s.s. sundlaug, golfvöllur og útivistarparadís. Til afhendingar mjög fljótlega. Ingileifur Einarsson, löggiltur fasteignasali gsm 8941448, sýnir húsið skv. samkomulagi. Verð hússins í framangreindu ástandi er kr. 29,5 millj. MOSABRÚNIR 1, ÚTHLÍÐ, BISKUPSTUNGUM EITT VANDAÐASTA SUMARHÚSIÐ Á MARKAÐNUM Suðurlandsbraut 54, við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali. BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is UNDANFARIN ár hafa drag- nótaveiðar verið stundaðar í Skagafirði þrátt fyrir að mönnum sé kunnugt um skaðsemi þeirra á lífríki sjávar, en dragnótin skefur upp botngróður og veldur þannig skaða á lífríki á botni sjávar. Reynslan hefur sýnt að ár og ára- tugi tekur fyrir sjávarbotninn að komast í samt lag aftur á svæðum þar sem dragnótaveiðar hafa ver- ið stundaðar. Þrátt fyrir að safnað hafi verið undirskriftum um fjögur hundruð heimamanna, sveitarstjórn hafi samþykkt að stöðva þessar veiðar og erindi hafi verið sent um málið til sjávarútvegsráðherra hefur ekkert gerst, þrátt fyrir ítrekun sveitarstjóra um þetta mál. Í sumar sem nú er senn liðið hefur keyrt um þverbak hvað stærð og fjölda skipa snertir og er nú ekki lengur um dragnóta- báta að ræða heldur dragnótaskip og hefur fjöldi þeirra verið á bilinu sjö til níu. Hvað stærðina varðar eru það tvö skip sem toppa hin: Dal- aröstin ÞH 40, sem er 153 brúttó- tonn, skráð sem togbátur með tvö þilför, 26 metrar á lengd, vél- arstærðin er 699 hestöfl og tog- kraftur 6,8 tonn; og Kristbjörg HU 82, sem er 208 brúttótonn, einnig skráð sem togbátur, 31 metrar á lengd, vélarstærðin er 714 hestöfl og togkraftur 9,8 tonn. Þess má geta að algeng vél- arstærð togbáta, sem voru und- anfarar minni skuttogara, var um 660 hestöfl. Það verður að teljast með ólík- indum að þessum skipum skuli líðast að toga með dragnót um viðkvæm svæði, og í sumum til- fellum á uppeldisstöðvum, og fara nánast upp í fjörur og inn í fjarð- arbotn. Sumir menn sem ég hef rætt við og eru á dragnót hafa lýst furðu sinni á því að dragnót skuli leyfð innan eyja á Skaga- firði. Væri hugsanlegt að skuttog- arinn Málmey SK mætti toga inn allan Skagafjörð ef það héti drag- nót en ekki troll sem hún dregur á eftir sér? Skagafjörður var að komast í þá stöðu að þar gæti myndast góður grunnur fyrir handfæra- og línuveiðar, sem eru taldar vist- vænar veiðar, en nú er svo komið að ekki verður vart á handfæri á innanverðum firðinum og dregið hefur mjög úr afla á línu. Þurfa þeir sem þær veiðar stunda að sækja langt út meðan dragnóta- skipin toga innar í firðinum. Þann 7. ágúst tekur gildi bann við dragnótaveiðum á Málmeyj- arsundi og sýnir það best hve ágangur dragnótaskipa er mikill að það skuli þurfa að banna veiðar á þessu svæði þar sem stutt er milli lands og eyja og um lokað sund að ræða. Dragnótaskip sem stunda nú veiðar í Skagafirði eru nánast öll aðkomuskip og hafa engra hagsmuna að gæta varðandi lífríki Skagafjarðar. Þau eru þarna tímabundið á meðan afli endist en hverfa svo á braut og finna sér önnur svæði þegar allt er uppurið í Skagafirði. STEINAR SKARPHÉÐINSSON Hólmagrund 16, Sauðárkróki. Dragnótaveiðar í Skagafirði Frá Steinari Skarphéðinssyni: Ljósmynd/Steinar Skarphéðinsson Dragnótabátar í Sauðarkrókshöfn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.