Morgunblaðið - 20.08.2006, Síða 60
60 SUNNUDAGUR 20. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
An International
Education in Iceland
The international school offers a dynamic learning environment for elementary
school children in grades K-7 (aged 5-13).
Our emphasis is on international-mindedness and positive discipline in a bilin-
gual environment. The school is located within Sjálandsskóli, a new state-of-
the-art school in Garðabær. For more information please visit our site at
www.internationalschool.is
Skólinn er einkarekinn grunnskóli innan Sjálandsskóla, sem býður upp á
alþjóðlega menntun fyrir börn á aldrinum 5-13 ára.
Áhersla er lögð á
alþjóðalegavitund og
jákvæðan aga í tvítýngdu
umhverfi. Kennslan
hefst
22 ágúst.
Sjá nánari
upplýsingar á
www.internationalschool.is
(354) 694 3341
www.internationalschool.is
int.school.iceland@gmail.com
HIN fjölmenna hljómsveit Benni
Hemm Hemm, sem er hugarfóstur
tónlistarmannsins Benedikts H.
Hermannssonar, hefur gert víðreist
á tónleikum í Þýskalandi undanfarið
sem gerður hefur verið góður róm-
ur að. Ellefta ágúst spilaði sveitin til
að mynda við opnun Admiralspalast
í Berlín Mitte fyrir eitthvað um tvö
þúsund manns. En Admiralspalast
er stórt og sögufrægt hús sem hýsir
nú leikhús ásamt fleira og er rekið, í
samvinnu við fleiri aðila, af þúsund-
þjalasmiðnum Helga Björnssyni.
Daginn eftir kom hljómsveitin
fram á bátahátíðinni Hanse sail í
Rostock og voru herlegheitin tekin
upp af þýska ríkisútvarpinu. Fjór-
tánda var sveitin á ný komin í ná-
grenni Berlínar til að spila á hinni
votviðrasömu og hippalegu tónlist-
arhátíð Goldmund Festival, þar sem
hún náði, að sögn viðstaddra, upp
hinni fínustu stemningu. Á þriðju-
daginn var svo röðin komin að Club
Bastard (im Prater) við Kast-
anienallee í Prenzlauer Berg, sem
er það sem kalla mætti íslensku-
vænt hverfi Berlínarborgar, enda
búa þar þó nokkuð margir landar
okkar. Tilefnið var útgáfa sam-
nefndrar breiðskífu sveitarinnar í
Þýskalandi og Evrópu, en hún mun
koma þar út á næstu dögum.
Enginn aulahrollur
Undirritaður var viðstaddur tón-
leikana ásamt fleiri Íslendingum, en
eins og flestir vita er það lenska Ís-
lendinga í útlöndum að leita uppi
allt sem íslenskt er og vill oft
brenna við að slíkar uppákomur
beri meiri keim af einhvers konar
íslensku teiti þar sem aðalmálið er
frekar að flippa og skemmta sér í
útlöndum en að halda góða og metn-
aðarfulla tónleika. Þarf þetta svo
sem ekki að einskorðast við tónlist;
þetta er einnig móðins innan mynd-
listarinnar. Svo sem góðra gjalda
vert, en samt eitthvað kjánalegt við
það; eitthvað sem framkallar aula-
hroll.
Tónleikar Benna Hemm Hemm á
Bastard voru blessunarlega lausir
við þetta. Að vísu var haldið í þá
hvimleiðu íslensku venju að byrja
ekki að spila fyrr en liðið var tals-
vert á kveldið; umtalsvert frá aug-
lýstum tíma, en það kom ekki að sök
þar sem tónlistarflutningurinn var
vel heppnaður í alla staði og þau
þýsku andlit sem fyrir tónleikana
voru sem steinrunnin gátu ekki ann-
að en verið brosið uppmálað að
þeim loknum. Þessir tónleikar voru
líka allt annað en flipp og Íslend-
ingasamkunda, þótt auðvitað hafi
margir gert sér glaðan dag í tilefni
dagsins.
Að þessu sinni voru og „útlend-
ingarnir“ í meirihluta og einkennd-
ist kveldið af fagmennsku auk þess
sem það er ekki verra að hafa vel úr
garði gerðar lagasmíðar í pokahorn-
inu; eitthvað sem Benni Hemm
Hemm virðist hafa nóg af.
Á meðal áhorfenda
Með kassagítarinn og röddina að
vopni leiddi forsprakki hinnar ellefu
manna sveitar hana í gegnum dag-
skrána af öryggi og festu og allt að
því dramatískir Ennio Morricone
skotnir tónarnir og stemning sem
líkja mætti við þá stemningu er
bandaríska hljómsveitin Calexico
nær naut sín furðanlega vel í hljóð-
kerfi húsins. En ég bar einmitt
þann ugg í brjósti fyrir tónleikana
að hljóðkerfið kæmi hugsanlega til
með að vera í vandræðum með svo
stóra hljómsveit, samansetta af
þremur gíturum, bassa, trommum,
hljómborði og klukkuspili auk
brassdeildar.
Slíkar áhyggjur voru þó óþarfar
og komst dýnamíkin sem einkennir
tónlistina (og einn meðlima kallaði
„Sigur Rósar effektinn“; rólegheit
og hávaði skiptast á) vel til skila og
rúmlega það, enda var sveitin
klöppuð upp og tók uppklappslagið
á skemmtilegan hátt með því að
brassdeildin stillti sér upp innan um
áhorfendaskarann meðan Benni var
ásamt trommuleikaranum Helga
Svavari Helgasyni og bassaleik-
aranum Páli Ívani Pálssyni uppi á
sviðinu. Svo segja mætti að þau hafi
spilað hver á móti öðrum.
Næstum fullkomnað
Miðvikudagskvöldið var síðan tví-
þætt dagskrá. Hestbak, sem sam-
anstendur af fjórum meðlimum
Benna Hemm Hemm, spilaði á Café
Wendel við Schlesische Str. 42 í
Kreuzberg og Benni Hemm Hemm
á Bar 25 við Holzmarktstr. 25 í
Friedrichshain.
Hestbak er af allt öðru sauðahúsi
en Benni Hemm Hemm og spilar
tónlist sem líklega fellur best að
óhljóða-skilgreiningunni. Þar er
alltént að finna tónskáld sem spila
verk sín við myndbandsverk, sem
virka líkt og nótur. Auk þess spilaði
Hestbak spuna við myndbandsverk
myndlistarmannsins Egils Snæ-
björnssonar. Útkoman var jákvæð
viðbrögð þeirra spekinga sem
hlýddu á.
Lokatónleikar Benna Hemm
Hemm voru svo eins konar leyni-
tónleikar enda eftir því sem ég best
veit ekki auglýstir. Þeir fóru fram á
allsérstökum stað niðri við ána
Spree. Um er að ræða viðarbygg-
ingu sem er í því sem kalla mætti
vestrastíl. Allavega afar notalegt
andrúmsloft í einkar frambærilega
útlítandi umhverfi. Og með ljúfa
tóna sveitarinnar mætti næstum því
ganga svo langt að segja það full-
komnað. Bandið náði í það minnsta
flugi og hljómburðurinn var til fyr-
irmyndar. Að þessu sinni var „Sigur
Rósar effektinum“ sleppt og meira
dvalið við rólegri geðhrif sem féllu
vel að umhverfinu og voru viðtök-
urnar eftir því góðar.
Það er því, held ég, óhætt að
segja að þetta stutta tónleika-
ferðalag hafi farið vel fram, fyllt
fagmennsku og fínni stemningu.
Það er svo bara vonandi að Evrópa
taki Benna Hemm Hemm opnum
örmum og sjái að það komi ekki ein-
tómir álfar frá Íslandi.
Tónlist | Benni Hemm Hemm hélt vel heppnaða tónleika í Berlín, Rostock og Goldmund Festival
Af fagmennsku og fínustu stemningu
Morgunblaðið/Eggert
„Með kassagítarinn og röddina að vopni leiddi forsprakki hinnar ellefu manna sveitar hana í gegnum dagskrána af öryggi og festu.“
www.bennihemmhemm.com
www.hestbak.tk
Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson
olafurgudsteinn@googlemail.com
Hin kasólétta Britney Spearssegir í viðtali við bandaríska
tímaritið People að hún og eig-
inmaðurinn Kevin Federline hafi
ekki skipulagt það að hún yrði ólétt
að barni númer tvö svo skjótt eftir
að sonurinn Sean Preston fæddist.
Spears segir að sér líði þessa dagana
eins og að hún hafi verið ólétt í tíu
ár. Hjónakornin vita ekki enn hvort
þau munu eignast strák eða stelpu
og Spears segist vera orðin mjög
spennt og hlakki mikið til að fylgjast
með börnunum tveimur verða náin.
Að hennar sögn er hún sjúk í súkku-
laði þessa dagana og vakni því oft
um miðjar nætur, nái sér í stórt
súkkulaðistykki, bræði það í ör-
bylgjuofninum og borði það svo.
Fólk folk@mbl.is
Britney Spears