Morgunblaðið - 16.10.2006, Side 18
VÉLMENNAELDHÚSIÐ eða
Robot Kitchen er nafnið á nýjum
veitingastað sem nýlega var opn-
aður í Hong Kong. Vélmenni taka
við pöntunum frá gestum stað-
arins og þeir koma einnig með matinn
á borðið þegar búið er að elda hann.
Þetta er fyrsti vélmennaveitinga-
staður í heimi og eigandinn er bjart-
sýnn á að mikið verði að gera.
Mennskir matreiðslumeistarar sjá
um eldamennskuna á þessu nýja veit-
ingahúsi, að minnsta kosti enn sem
komið er.
Reuters
Öðruvísi Börnum þykir gaman að láta mynda sig með vélmennunum.
Vélmenna-
eldhúsið í
Hong Kong
|mánudagur|16. 10. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Jakob er danskur köttur sem
vekur heimilisfólkið klukkan sex
á morgnana og opnar dyr eins
og ekkert sé. » 21
gæludýr
Það getur verið varasamt að
leggja sér til munns kartöflur
sem eru orðnar grænar því þær
kunna að vera eitraðar. » 20
neytendur
Bandarískir nemendur sem
eru með háar einkunnir
eyða minni tíma við sjón-
varpið en aðrir. » 19
rannsókn
Samrýndar systur hafa ekki
lengur tölu á öllum verðlauna-
peningunum sem þær hafa
landað á sundmótunum. » 22
áhugamál
J
ólasveinar tveggja ís-
lenskra Katrína komust í
sviðsljósið í Danmörku
fyrir skemmstu þegar
vikuritið Familie Journal
birti myndir og uppskriftir af þeim.
Sveinkarnir voru í góðum fé-
lagsskap kollega sinna sem runnir
voru undan rifjum bekkjarsystkina
Katrínanna tveggja.
Katrín Ósk Björnsdóttir og Katr-
ín Jóhannesdóttir stunda BA-nám í
handavinnu við Textilseminariet í
Viborg í Danmörku en jólasvein-
arnir voru verkefni sem prjóna-
kennari þeirra lagði fyrir bekkinn í
ársbyrjun. „Familie Journal hafði
samband við hana og bað um að við
hönnuðum uppskriftir að prjón-
uðum jólasveinum,“ segir Katrín
Ósk, sem er nýkomin til Íslands í
stutt frí. „Okkur leist nú ekkert
rosalega vel á þetta í fyrstu og
langaði miklu frekar að prjóna okk-
ur peysur. Þetta reyndist hins veg-
ar mjög skemmtilegt. Við fengum
okkur jólaglögg og smákökur
þarna í febrúar og komumst strax í
rétta jólaskapið.“
Þrátt fyrir að tveir skaparanna
væru íslenskir urðu þeir Pottaskef-
ill, Giljagaur og þeir bræður allir
að halda sig víðsfjarri dönsku
kennslustofunni. „Danir halda mik-
ið upp á sína jólasveina sem eru
gerólíkir íslensku sveinunum,“ út-
skýrir Katrín Ósk. „Þeir eru eig-
inlega búálfar eða „nissar“ sem búa
í húsum fólks allt árið um kring en
eru sérstaklega skemmtilegir yfir
jólin.“
Útgáfa Katrínar Óskar af þessum
snillingum er lítil og keilulaga.
„Hann er bæði léttur og mjög þétt
prjónaður svo hann getur staðið
sjálfur á borði en eins er hægt að
prjóna á hann hanka þannig að það
sé hægt að hengja hann á jólatré
eða vegg. Ég vildi hafa þetta eins
einfalt og hægt var svo fólk treysti
sér til að búa hann til. Það er svo
mikil hætta á að fólk hætti við ef
uppskriftirnar eru of flóknar.“
Hún bætir því við að jólasvein-
arnir hafi verið eins ólíkir og skap-
arar þeirra voru margir. „Til dæm-
is hannaði ein bekkjarsystir mín
stelpu og strák sem hægt er að
hneppa saman á höndunum. Hug-
myndirnar voru mjög mismun-
andi.“
Alls voru tólf nemendur í bekkn-
um þegar verkefnið var lagt fyrir
og um helmingur þeirra var valinn í
blaðið, sem kom út í Danmörku
fyrstu vikuna í október. „Við feng-
um fyrst að vita af því hvaða jóla-
sveinar urðu fyrir valinu þegar
skólinn byrjaði aftur í ágúst. Og
auðvitað var gaman að við Katrín
skyldum báðar komast á blað,“ seg-
ir Katrín Ósk að lokum.
Morgunblaðið/Eyþór
Jólin Katrín Ósk Björnsdóttir hannaði uppskrift að prjónuðum jólasveini
fyrir danska tímaritið Familie Journal.
Katrín, Katrín
og jólasveinarnir
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is