Morgunblaðið - 16.10.2006, Side 24
24 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
MJÓLK OG SAMKEPPNISLÖG
Árum saman hafa stjórnvöldhunzað tilmæli samkeppnisyf-irvalda, fyrst Samkeppnis-
stofnunar og síðar Samkeppniseftir-
litsins, um að afnema opinbera
verðlagningu á mjólk og hömlur á
frjálsri samkeppni í framleiðslu og sölu
á mjólkurvörum. Opinbera verðlagn-
ingu á mjólk átti að afleggja árið 2001,
samkvæmt þágildandi búvörusamn-
ingi frá 1997. Það var ekki gert, heldur
var því frestað til ársins 2004. Og þá
var því frestað aftur. Á röksemdir sam-
keppnisyfirvalda fyrir því að ekki eigi
að undanþiggja mjólkuriðnaðinn mik-
ilvægum ákvæðum samkeppnislaga
hefur heldur ekkert verið hlustað.
Þvert á móti voru árið 2004 gerðar
breytingar á búvörulögum, sem
hnykktu á því að mjólkursamlögum sé
heimilt að hafa með sér verðsamráð,
skipta með sér markaði og sameinast
án afskipta samkeppnisyfirvalda, en í
öllum öðrum atvinnugreinum telst
slíkt athæfi meðal alvarlegustu brota á
samkeppnislögum.
Í tilefni af ákvörðun sinni um að
Osta- og smjörsalan hafi brotið á
Mjólku ehf. við sölu á undanrennudufti
hefur Samkeppniseftirlitið sent land-
búnaðarráðherra álit um opinberar
samkeppnishömlur í mjólkuriðnaði.
Þar sýnir stofnunin fram á hvernig nú-
verandi löggjöf gerir þeim, sem reyna
að keppa við hið ríkisstyrkta einokun-
arkerfi í mjólkuriðnaðinum, erfitt fyr-
ir. Samkeppniseftirlitið bendir á að
þegar breytingarnar á búvörulögunum
voru gerðar árið 2004 hafi löggjafinn
augljóslega ekki hugsað út í að fyrir-
tæki eins og Mjólka, sem stendur utan
einokunarkerfisins, gæti komið til sög-
unnar, heldur sé gengið út frá því að
mjólkurvinnslan eigi sér stað innan
hins ríkisstyrkta kerfis og engin sam-
keppni ríki á milli innlendra afurða-
stöðva.
Í fyrsta lagi bendir Samkeppniseft-
irlitið á að Mjólku sé gert að greiða
gjald í verðtilfærslusjóð mjólkuriðnað-
arins. Sjóðurinn sé notaður til að nið-
urgreiða verð afurða sem keppinautar
Mjólku framleiða.
Í öðru lagi benda samkeppnisyfir-
völd á að í gegnum upplýsingaöflun
Bændasamtakanna um framleiðslu,
sölu og birgðir mjólkur fái keppinautar
Mjólku aðgang að viðskiptaupplýsing-
um varðandi rekstur fyrirtækisins.
Í þriðja lagi bendir Samkeppniseft-
irlitið á að með því að mjólkurstöðvum
sé leyft að hafa með sér samvinnu,
verðsamráð og sameinast án afskipta
samkeppnisyfirvalda sé aðgangur
nýrra keppinauta að markaðnum gerð-
ur torveldari en ella, „enda geta af-
urðastöðvarnar innan SAM [Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðnaði] í skjóli
ákvæðisins unnið saman með sam-
keppnishamlandi hætti og komið í veg
fyrir að fyrirtæki eins og Mjólka nái
fótfestu á markaðnum“. Viðkomandi
ákvæði búvörulaganna standi því í vegi
fyrir því að aðilar á borð við Mjólku láti
reyna á það hvort hagræða megi í land-
búnaði og afla neytendum sanngjarns
verðs.
Þegar búvörulögunum var breytt
2004 voru rökin þau að frjáls sam-
keppni í framleiðslu og sölu á mjólk
tryggði hvorki hagsmuni bænda né
neytenda. Samkeppniseftirlitið sýnir
fram á að þessi forsenda stenzt ekki:
„Þannig liggur ljóst fyrir að eftir að
Mjólka hóf að kaupa mjólk af bændum
hafa afurðastöðvar innan SAM hækk-
að greiðslur sínar til bænda vegna
kaupa á mjólk umfram greiðslumark.
Hafa þær greiðslur hækkað verulega á
milli ára, jafnframt því sem afurða-
stöðvarnar hófu að greiða bændum
fyrir svokallaðan fituhluta umfram-
mjólkur ásamt því að greiða fyrir pró-
teinhluta mjólkurinnar eftir að Mjólka
kom inn á markaðinn.“
Aukinheldur bendir stofnunin á þau
augljósu sannindi, að samkeppni milli
afurðastöðva um kaup á mjólk hljóti að
bæta hag bænda og að virk samkeppni
stuðli að lægra verði og auknum gæð-
um, neytendum til hagsbóta. Þannig
hefur verð á fetaosti lækkað á mark-
aðnum eftir að Mjólka kom til sögunn-
ar og neytendur njóta bæði aukins
vöruúrvals og lægra verðs.
Með áliti sínu er Samkeppiseftirlitið
að uppfylla þá lagaskyldu, sem á því
hvílir samkvæmt samkeppnislögum,
„að gæta þess að aðgerðir opinberra
aðila takmarki ekki samkeppni og
benda stjórnvöldum á leiðir til þess að
gera samkeppni virkari og auðvelda
aðgang nýrra samkeppnisaðila að
markaði“. Það er þess vegna út í hött
að segja að stofnunin hafi farið út fyrir
verksvið sitt og sé í pólitík, eins og Þór-
ólfur Sveinsson, formaður samtaka
kúabænda, hefur látið hafa eftir sér í
fjölmiðlum.
Í áliti Samkeppniseftirlitsins er
vitnað í alllöngu máli til bréfaskipta
þess við landbúnaðarráðuneytið vegna
málsins. Þar kemur m.a. fram að „það
sé mat ráðuneytisins að óheft sam-
keppni við sölu landbúnaðarafurða,
miðað við núverandi markaðsaðstæð-
ur, tryggi hvorki sanngjarnt verð til
framleiðenda né neytenda …“ Þá kem-
ur fram það álit ráðuneytisins að heim-
ildir afurðastöðvanna til að hafa með
sér verðsamráð og verkaskiptingu séu
„líklegar til þess að lækka vöruverð
með aukinni hagræðingu og sérhæf-
ingu innan raða þeirra, og auka sam-
keppnishæfni þeirra gagnvart inn-
flutningi á mjólkurafurðum. Jafnframt
megi ætla, að þessar heimildir leiði til
þess að tryggt verði nægjanlegt og
fjölbreytt vöruframboð“.
Það er með nokkrum ólíkindum að
þetta sé afstaða stjórnvalda á Íslandi
árið 2006. Mætti ekki með sömu rökum
halda því fram að í öðrum atvinnu-
greinum væri langbezt, bæði fyrir
framleiðendur og neytendur, að af-
leggja samkeppni og leyfa verðsamráð
og verkaskiptingu fyrirtækja? Eru
þessi ólukkans samkeppnislög ekki
bara óþörf?
Það er áhyggjuefni að sú löggjöf,
sem Samkeppniseftirlitið leggur til að
verði felld úr gildi, skuli hafa komizt
hindrunarlaust í gegnum Alþingi fyrir
tveimur árum. Kannski var ekki við
öðru að búast en að frumvarp af þessu
tagi kæmi úr landbúnaðarráðuneytinu,
miðað við skilning þess á gildi frjálsrar
samkeppni. En hvar voru talsmenn
hagsmuna neytenda í stjórnarflokkun-
um? Af hverju létu þeir ekki í sér heyra
þegar frumvarp landbúnaðarráðherra
var afgreitt í maí 2004? Ef þeir áttuðu
sig ekki á því þá að verið var að vinna
gegn frjálsri samkeppni og þar með
hagsmunum neytenda (og reyndar
bænda líka) ættu þeir að láta í sér
heyra nú, þegar álit Samkeppniseftir-
litsins liggur fyrir. Eða vilja þeir halda
áfram að hjálpa einokunarkerfinu að
reyna að drepa af sér keppinautana?
SAMTÖKUNUM The Climate Change
var komið á fót árið 2004 af Tony Blair
og ýmsum forystumönnum viðskiptalífs-
ins en markmið samtakanna er að vekja
athygli umheimsins á starfsemi þeirra
fyrirtækja og stjórnvalda sem tekið hafa
af skarið hvað varðar aðgerðir gegn
gróðurhúsaáhrifum. Steve Howard er
framkvæmdastjóri samtakanna og er
staddur hér á landi vegna alþjóðlegs
fundar um aðgerðir gegn loftslagsbreyt-
ingum.
Djarfar hugmyndir
vænlegri til árangurs
„Það kann að vera djarft að stefna að því
að gera hagkerfi jarðar óháð kolefnis-
notkun, en þetta er í raun hugmynda-
stefna sem felur það í sér að við munum
gera allt sem í okkar valdi stendur til að
koma í veg fyrir ofhitnun jarðar, í stað
þess að tala um að minnka orkunotkun
um 2% og gera þetta hér og hitt þar,“
segir Howard. Að hans sögn hafa enn
sem komið er aðeins tvö fyrirtæki af
FTSE 100 listanum axlað ábyrgð hvað
varðar loftslagsbreytingar; British Sky
Broadcasting og HSBC, eitt stærsta
fjármálafyrirtæki heims, hafa tekið stór
skref í átt að vistvænu rekstrarumhverfi
þar sem ekki er treyst á brennslu kola,
auk þess sem einn af olíurisunum fjór-
um, BP, hafi tekið skref í rétta átt. The
Climate Group hefur einnig verið í nánu
samstarfi við ríkisstjóra Kaliforníuríkis,
Arnold Schwarzenegger, og fleiri stjórn-
málamenn, en enn er langt í land. „Ef við
ætlum að snúa þróuninni við þurfum við
að fá alla til liðs við okkur, enginn má
skjóta sér undan ábyrgð. Öll fyrirtækin á
Fortune 500 listanum [Listi yfir 500
stærstu einkafyrirtæki Bandaríkjanna,
m.t.t. heildartekna] þurfa að ganga í okk-
ar raðir. Við þurfum einnig að láta rödd
okkar heyrast í öllum stjórnkerfum
við í endurnýjanlegri
dag má segja að nettó
irtækisins sé enginn,“
Anderson, upplýsinga
einnig er staddur hér
arins. Anderson segir
miðlafyrirtækisins ha
hópum; Starfsfólki, vi
neytendum. Til að byr
þörf fyrirtækisins ver
muna, lýsingu í byggi
rætt og kyndingin ger
þess var starfsmönnu
sem eru um 13.000, bo
indapunktum, inn á þa
iskreditkort“, en punk
að takmarka orkunotk
hjóla til vinnu og bjóð
mönnum far. „Með þe
gera orkusparnað ske
hvetjandi í stað þess a
aðinn sem kvöð,“ segi
Hvað viðskiptamen
Sky varðar, segir And
verið boðið til að hlýða
um loftslagsbreytinga
mikilvægt væri að vei
„Að því búnu gerðum
félögum okkar ljóst að
samstarfi við okkur áf
stuðla að auknum ork
veggja sinna fyrirtæk
komið að allir leigubíl
fyrirtækisins nota eru
hybrid) auk þess sem
frá kaupum á 1400 sen
eru mjög sparneytnir
um við fjölmiðlafyrirt
hverri fjölskyldu í Bre
varpssendingar okkar
okkur að því hvernig v
viðræður við þessar fj
sparnað og hvernig þæ
með því að gæta aukin
orkunýtingu,“ segir A
heimsins og fá forseta allra ríkja til að
opna dyrnar fyrir okkur,“ kveður How-
ard. Hann segir að í stað þess að líta á
loftslagsbreytingarnar sem óleysanlegt
vandamál reyni samtökin að koma fyr-
irtækjum og stjórnvöldum í skilning um
að nú sé kjörið tækifæri til að taka þátt
og snúa blaðinu við. „Heimurinn er á
barmi nýrrar iðnbyltingar, ör vöxtur
efnahagskerfa heimsins leiðir til þess að
á næstu 50 árum þurfum við að fram-
leiða helmingi meiri orku en við gerum í
dag. Fyrir liggur að 16–20 billjónum
bandaríkjadala verður varið til fram-
leiðslunnar, hví ekki að nýta það fjár-
magn til framleiðslu á vistvænni orku?“
spyr Howard. Hann segir að verði hug-
myndirnar að veruleika séu í vændum
mjög spennandi tímar fyrir unga at-
hafnamenn, þeim bjóðist tækifæri til að
framleiða afurðir sem snerta líf fólks á
nýjan hátt og leggja sitt af mörkum til að
uppræta breytingar á loftslagi „Við mun-
um horfa aftur til ársins 2006 og segja að
það hafi verið árið sem jarðarbúar tóku
við sér og hófust handa við að koma í veg
fyrir loftslagsbreytingar af manna völd-
um. Þetta er kynslóðin sem mun sporna
við gróðurhúsaáhrifunum, fæla burt
svæluna og setja umhverfi sitt á sama
stall og viðskiptalífið,“ segir Howard.
Hvatt til orkusparnaðar
á öllum vígstöðvum
Síðastliðinn maí varð British Sky Broad-
casting fyrsti fjölmiðill heims til þess að
taka upp stefnu sem miðar að því að
minnka kolefnisnotkun við rekstur. „Við
byrjuðum á því að mæla hversu mikill
koltvísýringur losnaði við starfsemi okk-
ar og að því loknu hrintum við af stað að-
gerðaáætlun til þess að minnka losun
koltvísýrings út í andrúmsloftið. Til að
bæta upp fyrir þann koltvísýring sem
enn myndast við reksturinn fjárfestum
„Ísland hefur rutt
vistvænnar orkun
Samráðsfundur Bekkir Bessastaða voru þétt setnir á laugardaginn, en þar voru lykilmenn úr efnahag
strengi sína í umhverfismálum. Fundurinn var í boði forseta Íslands, en frumkvæði að honum höfðu sam
Jarðvarmi Þeim Steve Howard (til vinstri) og Matthew Ander
til Bláa lónsins koma, enda um musteri hins íslenska jarðvarm
Alþjóðlegum fundi um
aðgerðir gegn loftslags-
breytingum lauk í gær, en
á fundinum ræddi fjöldi
aðila úr alþjóðlegu við-
skiptalífi, fjölmiðlum og
frjálsum félagasamtökum
raunhæfar leiðir í um-
hverfismálum með því
að tengja saman fjármagn
og nýsköpun.
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is