Morgunblaðið - 16.10.2006, Qupperneq 40
40 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
VEISU HVAÐ
GRETTIR?
SUM GÆLUDÝR SKEMMTA MANNI
Í ALVÖRU?
VIÐ VERÐUM
Á FÁ OKKUR
NOKKUR
SVOLEIÐIS
ÉG HEYRÐI
AÐ KETTIR
LENTU ALLTAF
Á FÓTUNUM EF
ÞEIR DETTA...
ÞVÍ MEIRA SEM ÉG
HEYRI UM KETTI ÞVÍ
MINNA LÍST MÉR Á ÞA
ÉG ER KOMINN
HEIM!
ERTU
GLAÐUR AÐ
SJÁ MIG?
AF HVERJU
ÞARF ÉG AÐ
LÁTA VITA ÞEGAR
ÉG KEM HEIM
VEISTU HVAÐ ÉG
ELSKA VIÐ ÞIG
HELGA?
ÞAÐ SKIPTIR EKKI
MÁLI HVAÐ ÉG ER
LENGI Á KRÁNNI...
ÞÚ HELDUR
MATNUM
MÍNUM
ALLTAF
HEITUM
HVERNIG
FINNST GRÍMA
AÐ HAFA EYRUN
Á SÉR LÍMD?
EKKI
MJÖG
GAMAN
ÉG LOFAÐI HONUM AÐ ÉG
MUNDI TAKA ÞAÐ AF EF HANN
HJÁLPAÐI AÐ BERA FRAM MATINN VILL EINHVER
PINNAMAT?
LITLA STELPAN
OKKAR ER AÐ SJÁ
SLÆMA ÍMYND AF KONUM
ALLAN DAGINN
JÁ
EN
SAMT...
ÉG HELD AÐ STÓR
HLUTI AF ÞVÍ AÐ ÞROSKAST
SÉ AÐ LÆRA AÐ FÁST
VIÐ ÁREITI EINS
OG ÞETTA
Æ NEI, STELPAN
OKKAR ER AÐ
ÞROSKAST!
OG
ÞAÐ
HRATT
AF HVERJU VILTU
EKKI VERA
SKOTHELDUR Í
MYNDINNI?
VEGNA ÞESS
AÐ ÉG ER EKKI
EINHVER ÖNNUR
OFURHETJA
SEM ÞIÐ GETIÐ
BÚIÐ TIL...
ÉG GET EKKI
FLOGIÐ EINS OG
STENDUR HÉRNA
ÉG SÉ
EKKI Í GEGNUM
HLUTI
ÉG GET
EKKI GERT
NEITT AF
ÞESSUM
HLUTUM
ÞAÐ ER ALLT
Í LAGI, VIÐ
NOTUM BARA
TÆKNIBRELLUR
Verkefnið 50+ var sett álaggirnar af félagsmála-ráðherra árið 2005 til aðstyrkja stöðu miðaldra og
eldra fólks á vinnumarkaði.
Verkefnisstjórn 50+ efnir til
fundaraðar þar sem fjallað verður
um málefni aldurshópsins frá ýms-
um hliðum. Verður fyrsti fundurinn
17. október, sá næsti 9. nóvember og
síðasti 7. desember. Fundirnir verða
haldnir á Grand Hóteli, kl. 8.30 til 10
hverju sinni.
Elín R. Líndal er formaður verk-
efnisstjórnar: „Atvinnuleysi meðal
miðaldra og eldra fólks er ekki meira
en hjá öðrum aldurshópum, sveiflur í
atvinnu eru minni milli árstíða og
hreyfing inn og út af atvinnuleys-
isskrá sömuleiðis almennt minni.
Hins vegar er áhyggjuefni að lang-
tímaatvinnuleysi virðist meira við-
varandi meðal þessa hóps, og reynist
miðaldra og eldra fólki erfiðara að fá
vinnu aftur ef það missir vinnuna af
einhverjum ástæðum,“ segir Elín.
Elín bætir við að jafnframt dragi
mjög úr þátttöku í sí- og endur-
menntun upp úr fimmtugu og að þeir
menntaðri séu duglegri að viðhalda
menntun sinni en þeir sem minni
menntum hafa. „Þetta þarf að skoða
sérstaklega í ljósi þess að vinnu-
markaðurinn krefst sífellt meiri
þekkingar, og hraðari tækniþróun
kallar á öflugri sí- og endur-
menntun.“
Á fundinum 17. október verður
áhersla lögð á fyrirtækin og aldurs-
dreifingu á vinnustað. „Félagsmála-
ráðherra mun ávarpa fundinn og síð-
an mun Sigurgeir Guðmundsson hjá
fjármálaráðuneytinu fjalla um ald-
ursbreytingar í atvinnugreinum, og
Steinn Logi Björnsson, forstjóri
Húsasmiðjunnar og Rakel Ýr Guð-
mundsdóttir starfsmannastjóri
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrenn-
is fjalla um stefnu fyrirtækja með til-
liti til aldursdreifingar á vinnustað,“
útskýrir Elín. „Á fundi 9. nóvember
verður áherslan á einstaklinginn og
möguleika hans á vinnumarkaði þeg-
ar miðjum aldri er náð. Á þeim fundi
ætlar Hugrún Jóhannesdóttir, for-
maður þjónustuskrifstofu Vinnu-
málastofnunar á höfuðborgarsvæð-
inu að fjalla um hlutverk
vinnumiðlana og þátt þeirra í að hafa
áhrif á viðhorf til aldurshópsins 50+.
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, stjórn-
arformaður Rannsóknarstofu í
vinnuvernd, fjallar um einstakling-
inn á vinnustað, vellíðan hans og
hvort aldurssamsetning hópsins geti
haft áhrif, t.d. á einelti á vinnustað.
Loks munu Vilhjálmur Egilsson
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins og Gunnar Pálsson, for-
maður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur fjalla um þátt fé-
lagasamtaka, stéttarfélaga og félaga
atvinnurekenda.“
Á síðasta fundinum, 7. desember,
verður fjallað um símenntun: „Jón
Torfi Jónasson prófessor í uppeldis-
og menntunarfræði við HÍ fjallar um
símenntun innan fyrirtækja, Soffía
Gísladóttir framkvæmdastjóri Sí-
menntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar
og Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri Fræðslu-
miðstöðvar atvinnulífsins munu
fjalla um símenntunaraðila og sam-
spil framboðs og eftirspurnar.“
Fundirnir eru öllum opnir en
æskilegt er að skrá þátttöku með
pósti á netfangið margret.gunn-
arsdottir@vmst.is.
Vinnumarkaður | Morgunverðarfundir 50+
verkefnisins á Grand Hótel fram að jólum
Atvinna eftir
fimmtugt
Elín Rannveig
Líndal fæddist á
Hvammstanga
1956. Hún lauk
diplóma-námi í
opinberri stjórn-
sýslu og stjórnun
frá HÍ 2002 og
diplóma-námi í
rekstrar- og við-
skiptafræði frá HA 2005. Elín hefur
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í
héraði og á landsvísu. Hún hefur
frá 2002 starfað sem deildarstjóri
hugbúnaðardeildar og markaðs-
stjóri Forsvars ehf. Hún er gift Þóri
Ísólfssyni bónda og eiga þau þrjú
börn.
Margar af þekktustu Holly-wood-stjörnum samtímans
fögnuðu með leikaranum og leik-
stjóranum George Clooney er
hann veitti viðtöku American
Cinematheque-verðlaununum árið
2006 við hátíðlega athöfn í Beverly
Hills á laugardaginn, en verið var
að fagna því sem Clooney hefur
náð að afreka á ferlinum.
Meðal þeirra sem fögnuðu með
Clooney voru leikstjórinn Oliver
Stone og leikararnir Julia Ro-
berts, Christian Slater, Salma Ha-
yek, Geoffrey Rush og Lindsay
Lohan.
„Líklega á enginn annar en
hann frekar skilið að vera verð-
launaður. Hann er frábær lista-
maður, góður leikstjóri og ótrúleg-
ur mannvinur. Ég held að hann
setji frábært fordæmi fyrir aðra
leikara, og mig þar með,“ sagði
Christian Slater í viðtali við AP-
fréttastofuna.
Athöfnin var haldin til þess að
safna fé fyrir American Cine-
matheque, sem er góðgerð-
arstofnun sem styður við bakið á
upprennandi kvikmyndagerð-
armönnum og þá stendur stofn-
unin á bak við atburði sem ætlað
er að færa aðdáendur og leik-
stjóra nær hver öðrum.
„Í raun og veru er þetta bara
hópur vina þinna sem ætla að
grilla ærlega í þér,“ sagði hinn 45
ára gamli Clooney þegar hann var
beðinn að lýsa því hvað hátíðin
gengi út á.
„En þegar því er lokið þá er
maður að safna fé til þess að að-
stoða American Cinematheque,
sem kemur ótrúlegum hlutum í
verk,“ bætti hann við.
Fólk folk@mbl.is