Morgunblaðið - 16.10.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 45
/ KEFLAVÍK
JACKASS 2 kl. 8 - 10:10 B.i. 12
BEERFEST kl. 8 B.i. 12
HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16
ATH! ENGIR ÞJÓÐVERJAR VORU
SKAÐAÐIR EÐA MEIDDIR Á MEÐAN
TÖKUM MYNDARINNAR STÓÐ.
eee
EMPIRE
/ ÁLFABAKKI
JACKASS NUMBER TWO kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 12.ára.
JACKASS NUMBER TWO VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
THE THIEF LORD kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ
WORLD TRADE CENTER kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12.ára.
BEERFEST kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12.ára
NACHO LIBRE kl. 10:10 B.i. 7.ára.
BÖRN kl. 8 B.i.12.ára.
STEP UP kl. 5:50 - 10:10 B.i. 7.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 3:40 LEYFÐ
/ AKUREYRI
JACKASS 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12
THE THIEF LORD kl. 6 - 8 LEYFÐ
WORLD TRADE... kl. 10 B.i. 12
Frábær ævintýra-
mynd fyrir alla
fjölskylduna
Biluð
skemmtun!
NELGDI FYRSTA
SÆTIÐ ÞEGAR HÚN
VAR SÝND Í USA
FYRIR NOKKRU.
Jackass gaurarnir
JOHNNY KNOXVILLE
og STEVE-O
eru KOMNIR aftur,
bilaðri en
nokkru sinni fyrr!
Þú átt eftir
að skemmta
þér sjúklega
vel.
kvikmyndir.is
FRÁ HÖFUNDI „TRAINING DAY“ OG
„THE FAST AND THE FURIOUS“
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ
TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ
TAKA FYRSTA SPORIÐ. eeeE.B.G. Topp5.is
E.T. kvikmyndir.is
FRAMLEIDD AF TOM HANKS.
„the ant bully“
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
á mánudögum
MoggaBíó
í bíó1fyrir2 * sjá miða framan á morgunblaðinu í dag*
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þó að hrúturinn sé að gera eitthvað sem
hann hefur alltaf dreymt um, er hann
þegar byrjaður að láta sig dreyma um
eitthvað annað. Eldar metnaðargirni
eins og þinnar þurfa eldsmat. Einn
klukkutími til viðbótar í svefn gerir
gæfumuninn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í nautinu togast á ímyndað óhóf og raun-
veruleiki. Það sveiflast á milli þessara
tveggja póla og finnur hinn gleðilega
meðalveg áður en myrkur skellur á. Og á
meðan ég man, mörgum finnst þú aðlað-
andi um þessar mundir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef tvíburinn þreytist hvetur liðið hans
hann áfram. Þú ættir að vita hvað marg-
ir eru á þínu bandi og vilja gjarnan að
vegur þinn sé sem mestur. Ástvinir
leggja mikið á sig til þess að sanna
óslökkvandi ást sína á þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef þú vilt sinna sambandi sem er þér
mikilvægt vel, þarftu að breyta for-
gangsröðinni. Gakktu hratt og ákveðið
til verks. Viðhorf þess sem sigrar hjálpar
þér við að breyta áskorunum í sigra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljóninu hefur lærst hvernig á að breyta
hlutlausum atburðum í meiriháttar tæki-
færi sem eftir á að hyggja eiga eftir að
virðast klæðskerasaumuð. Tvíburi eða
vog hjálpar þér að ná hámarksgetu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þeir sem þekkja þig í einu samhengi,
eiga eftir að fá hugljómun þegar þeir fá
að njóta þíns líflega persónuleika til
fullnustu. Samband sem þú ert í tekur
framförum í því ljósi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Áhugi þinn á tiltekinni persónu magnast
með hverri klukkustund. Hver getur
staðist það þegar einhver hefur svona
mikinn áhuga á manni? Þú styrkir vin-
áttubönd.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Merkúr, himintungl tjáskiptanna, er
hliðhollt þér í augnablikinu, því ættir þú
ekki að vera í nokkrum vandræðum með
að vita hvað þú átt að segja við hvaða
tækifæri sem er. Haltu óvænt partí eða
skálaðu við einhvern.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn berst fyrir góðum málstað
en þarf að vera viss um að það sé óhjá-
kvæmilegt. Stundum er hreinlega nóg að
biðja fallega og það skilar alveg sama ár-
angri. Einhver í fiskamerkinu verður í
hlutverki sköpunargyðju í kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Atburðarásin verður ekki alveg eins og
steingeitin hafði hugsað sér, en það er
henni algerlega fyrir bestu. Engar út-
skýringar eru nauðsynlegar, því vinir
þurfa þær ekki og efasemdarmenn trúa
þeim ekki.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Úranus, sem stýrir vatnsberanum, ýtir
undir eirðarleysi. Forðastu of mikinn
hraða, ekki síst í akstri. Beindu tauga-
veiklaðri orku þinni í mannúðarstarf af
einhverju tagi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn prófar tiltekna einstaklinga í
kunningjahóp sínum og vill vera viss um
að þeir séu traustsins verðir, áður en
trúnaðarsamband kemst á. Prófið er
ekki erfitt, en fáir munu standast það.
Klúbburinn þinn er bara ætlaður útvöld-
um.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Þótt mörgum hafi verið
innrætt að ræða ekki
stjórnmál eða trúmál í
kurteisisheimsóknum gerir
hornrétt staða Merkúrs og
Neptúnusar að verkum að
erfitt er að stilla sig um að ræða þau og
önnur eldfim umræðuefni. Ekki falla í þá
gildru. Ekki labba í burt frá þannig sam-
tölum – hlauptu, hlauptu, hlauptu eins
og vindurinn.
MÁLVERKIÐ hefur átt nokkru fylgi að fagna undanfarin
ár og virðist vera í sókn en hér á landi eru fígúratífir mál-
arar í minnihluta. Þórdísi Aðalsteinsdóttur (1975) má setja
í þann hóp en málverk hennar eru fígúratíf og af frásagn-
arlegum toga. Þórdís er afkastamikill listamaður eins og
sjá má á sýningunni á Kjarvalsstöðum þar sem hún sýnir
fjölda málverka auk tveggja myndbandsverka, en Þórdís
útskrifaðist með mastersgráðu í myndlist í New York
2003. Sýning hennar skiptist í grófum dráttum í þrennt
þar sem meginhlutinn er málverk sem fjalla um samtím-
ann. Minni myndröð fæst við myndefni úr Biblíunni en tvö
myndbönd innihalda frásögn sem birtir viðhorf og afstöðu
listakonunnar til lífs og listar. Framsetning verka er til
fyrirmyndar og þeim vel fyrir komið, bæklingur er vand-
aður og textar í honum áhugaverðir, af hálfu sýning-
arstjórans Ólafar K. Sigurðardóttur og sömuleiðis texti
eftir Charles Stuckey.
Viðfangsefni Þórdísar er samtíminn séður með augum
ungrar konu sem er búsett í New York. Sýn hennar er
nokkuð dökk, myndheimurinn inniheldur ofbeldi, grimmd,
sjúkdóma, lífsleiða og fágun. Myndmálið minnir á teikni-
myndasögur samtímans, kaldhæðnin og grimmdin kalla
fram persónur Hugleiks Dagssonar en listamenn eins og
Egon Schiele koma líka sterkt upp í hugann, einnig Mar-
lene Dumas. Það ríkir óhugnanleg stemmning í flestum
myndanna, þær eru bæði áleitnar og óþægilegar. Þórdís
er fær málari og teiknari og hefur gott vald á myndbygg-
ingu og litum, áferðarfallegir litir og mynstur skapa mót-
vægi við ljótleika myndefnis. Það er vel til fundið hjá henni
að myndskreyta kafla úr Biblíunni og láta þær myndir
kallast á við ofbeldi samtímans, nú þegar trúarbrögð eru
jafn stór þáttur í lífi okkar og raun ber vitni. Ofbeldi og
grimmd eru sýnd á fágaðan hátt á myndfletinum,fágunin
minnir á samfélagið sem leitast við að halda yfirborðinu
fínu á meðan allt er í steik undir niðri. Á örfáum stöðum
færir Þórdís þó ofbeldið inn í rými áhorfandans, þar sem
má ímynda sér líkt og blóðug fingraför á yfirborði mál-
verkanna og eru þau verk með þeim eftirminnilegri.
Í heildina er sýning Þórdísar persónuleg um leið og
greina má áhrif úr mörgum áttum. Verk hennar hafa
þróast á skömmum tíma en bera þess um leið merki að
vera í mótun. Samtímasýn Þórdísar er óumdeilanlega
sönn, þó eru sem betur fer fleiri hliðar á samtímanum en
hér má sjá.
Stungið á kýli
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Til 3. desember. Opið alla daga vikunnar frá kl. 10–17.
Aðgangseyrir: Fullorðnir 500 kr. Eldri borgarar og öryrkjar
250 kr. Gildir samdægurs í Hafnarhús og Ásmundarsafn.
Ókeypis á mánudögum.
Því heyrist þó hvíslað að einhverjir muni komast af.
Málverk og myndbönd Þórdís Aðalsteinsdóttir
Morgunblaðið/ÞÖK
Upprennandi stjarna? Maður og kona í eins náttfötum
eftir Þórdísi Aðalsteinsdóttur listakonu.
Ragna Sigurðardóttir
TÓNLEIKAR Aton-hópsins hafa oft verið skemmtilegir
og óneitanlega var lífleg stemning á tónleikum hans sl.
mánudagskvöld. Verkin á dagskránni voru þó ærið mis-
jöfn og sum beinlínis kjánaleg, eins og Toccata og fúga
eftir Áka Ásgeirsson, sem m.a. samanstóð af því að skot-
ið var á trommusett með teygjubyssu.
Flest annað var skárra, þ.á m. Failure eftir Kaj Aune,
en þar var sýnt myndband af manni í misheppnaðri
byggingarvinnu við einhvers konar grínútgáfu af Tungl-
skinssónötu Beethovens. Var Aune að segja að tónmál
fyrri tíma hafi á endanum beðið skipbrot? Sumir hafa
haldið því fram að hefðbundið tónmál (þ.e. dúr og moll)
hafi verið þurrausið fyrir löngu og nauðsynlegt hafi verið
að finna nýjar leiðir í tónsköpun. Sjálfsagt er það alveg
rétt, en að skjóta á trommusett með teygjubyssu eða
nota ódýr trix til að bregða áheyrendum er ekki lausnin.
Annað á tónleikunum var upp og ofan. Tónsmíð eftir
Inga Garðar Erlendsson sem hét tungubrjótnum
Streptococcaceae (íslenska þýðingin er einfaldlega
Streptókokkar) var stutt og hnitmiðuð, en tengsl tónlist-
arinnar við streptókokkasýkingu voru óljós. Vibrancy
eftir Steingrím Rohloff var sömuleiðis ágætlega sam-
ansett verk í vel ígrunduðu formi, en Attitude eftir Lene
Grenager óttalega klén samsuða sem fór inn um annað
eyrað og út um hitt. Því miður.
Teygjubyssan
hitti ekki
TÓNLIST
Norrænir músíkdagar –
Listaháskólinn
Tónlist eftir Áka Ásgeirsson, Inga Garðar Erlendsson, Lene
Grenager, Steingrím Rohloff og Kaj Aune í flutningi Aton. Mánu-
daginn 9. október.
Kammertónleikar
Morgunblaðið/Kristinn
Teygjubyssa „Verkin á dagskránni voru þó ærið mis-
jöfn og sum beinlínis kjánaleg,“ segir Jónas m.a í
dómnum um tónleika Aton hópsins í Listaháskólanum.
Jónas Sen
vegna þeirra átaka sem áttu sér stað
milli Ísraels og Hizbollah í Líbanon.
Leikarinn og leikstjórinn Mel
Gibson segir að uppákoman þar sem
hann lét ýmis miður falleg orð falla
um gyðinga í júlí sl. hafi mögulega
stafað af því hve honum gramdist sú
gagnrýni sem beindist gegn kvik-
mynd hans The Passion of the
Christ. Myndin, sem kom út árið
2004, segir frá því þegar Jesús
Kristur er krossfestur og var harð-
lega gagnrýnd meðal leiðtoga gyð-
inga, en þeir vildu meina að myndin
myndi ala á hatri í garð gyðinga.
Í viðtali í sjónvarpsþættinum Go-
od Morning America sagðist Gibson
skammast sín fyrir það sem hann
sagði.
„Ég sætti frekar harkalegum op-
inberum árásum. Ég hélt að ég hefði
náð að takast á við þá hluti,“ sagði
Gibson.
„En mannshjartað getur borið á
sér ör gremjunnar, og hún mun
koma út þegar maður er yfirspennt-
ur og búinn að drekka nokkur glös,“
sagði hann við Diane Sawyer,
fréttakonu ABC-sjónvarpsstöðv-
arinnar.
Í viðtalinu, sem er skipt í tvo
hluta sem sýndir eru á tveimur dög-
um, segir Gibson að yfirlýsing hans
við lögregluna – „Gyðingar bera
ábyrgð á öllum stríðum í heiminum“
– hefði stafað af áhyggjum hans
vegna þeirra átaka sem áttu sér stað
milli Ísraels og Hizbollah í Líbanon.