Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 4

Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 4
4 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Aðeins örfá sæti Róm 17. nóvember frá kr. 59.990 Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast töfrum borgarinnar eilífu. Eigum örfá sæti í haustferðina 17. nóvember. Í Róm upplifir þú árþúsunda- menningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturs- kirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið, auk meistaraverka endurreisnartímans. Það er einstakt að rölta um torgin í Róm og kynnast litríku mannlífinu á Piazza Novona og við hinn fræga Trevi brunn. Spennandi kynnisferðir í boði undir öruggri leiðsögn fararstjóra Heimsferða. Verð frá kr.59.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 4 nætur á Hotel Archimede með morgunverði og íslenskri fararstjórn. Munið Mastercard ferðaávísunina Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is SUMARIÐ var töluvert erfitt heyskaparsumar og hefði verið kallað óþurrkasumar í gamla daga, að sögn Ólafs R. Dýrmundssonar, ráðunautar hjá Bændasamtökum Íslands. Ótíðin var á Suður- landi, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og jafnvel á stærri svæðum. Baggatæknin, þar sem heyi er pakkað í plast áður en það er fullþurrt, bjargaði miklu. Um 90% af heyfeng landsmanna eru orðin þannig innpakkað vothey með háu þurrefni. Ólaf- ur segir að þessi vinnsluaðferð hafi aukið mjög ör- yggi við heyskap. „Það hefði orðið mjög slæmt ástand ef við hefðum verið með tæknina sem var fyrir svona 20 árum. Baggatæknin hefur gjör- breytt stöðunni,“ segir Ólafur. Grasspretta var ágæt í heildina í sumar, en framan af sumri var dálítið kvartað yfir því að ekki væri nóg sprottið. Júní var sólarlítill og votviðra- samur og hugsanlega nýttist áburður ekki sem skyldi vegna sólarleysisins. Ólafur segir að menn hafi kvartað nokkuð yfir lélegum fyrri slætti. Síð- an tók sprettan við sér og ágústmánuður var ágæt- ur. Haustið hefur síðan verið alveg einstakt alveg fram undir þetta, að sögn Ólafs. Það var óvenju- hlýtt og gróður að spretta fram eftir öllu. Menn slógu víða góða há á túnum og jafnvel dæmi um að menn hafi slegið þrisvar. Góður annar sláttur bætti mörgum upp það sem á vantaði í fyrri slætti. Litlar fyrningar á liðnu vori Í lok mánaðarins verða send eyðublöð til bænda sem þeir fylla út með upplýsingum um heyforða og búfjárfjölda. Nákvæmar niðurstöður um heyfeng landsmanna eiga því að liggja fyrir eftir áramótin. Ólafur kvaðst hafa á tilfinningunni að mjög litlar fyrningar hefðu verið á liðnu vori því veturinn í fyrra var langur. Á norðanverðu landinu þurfti að taka fé á gjöf þegar í byrjun október í fyrra og má því segja að veturinn hafi lengst um heilan mánuð. Fyrningar voru víða orðnar litlar í vor, sérstaklega á norðanverðu landinu, og menn sums staðar farn- ir að miðla heyjum. Síðan er heilmikill markaður fyrir hey handa hestum og taldi Ólafur að nóg hefði verið til af plastbögguðu heyi en ekki of mikið af þurrheysböggum. Jafnvel væri orðinn skortur á þurrheyi. Þeir sem væru með fáa hesta kysu frek- ar þurrhey því þeir næðu ekki að gefa nógu fljótt úr stóru votheysböggunum. Ólafur taldi að út- flutningur hefði einnig verið nokkur á heyi á þessu ári. Búfé er ekki að fækka, kúm heldur að fjölga og svipaður fjöldi af sauðfé og hrossum. „Mín tilfinn- ing fyrir þessum vetri er að við séum ekkert með of mikið fóður. Það megi ekki mikið út af bera. Sér- staklega ef það hefur verið selt úr landi og litlar fyrningar í vor. Plastbaggarnir björguðu heyfeng sumarsins Hugsanlega nýttist áburður ekki sem skyldi vegna sólarleysis í júnímánuði Í HNOTSKURN »Ólafur segist vonast til þess að heyfeng-ur sé í meðallagi en ekki megi mikið út af bera. »Ólafur segir að stundum komi ár þegarmenn kvarti yfir að það sé of mikið hey en það telji hann út í hött. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is ELDUR kom upp í þvottarými á fjölveiðiskipinu Beiti NK á sjötta tímanum á laugardaginn en skip- verjar náðu að ráða niðurlögum elds- ins og varð engum meint af. Þyrlur Landhelgisgæslunnar höfðu verið kallaðar út og var önnur þeirra lögð af stað þegar tilkynning barst um að skipverjar hefðu náð tökum á eldinum og var henni þá snúið við. Þá hafði flugvél Flugmála- stjórnar flogið yfir svæðið þar sem skipið var. Eldurinn kom upp þegar Beitir NK var um 12 sjómílur austur af Vattarnesi, yst í Reyðarfirði, en skip- ið var á leiðinni út á sjó. Sturla Þórðarson, skipstjóri, segir að áhöfnin hafi sýnt snör handtök með því að loka rýminu og kæfa eld- inn. Aðstæður sem þessar séu afar hættulegar enda ekkert hægt að fara. „Þetta fór betur en á horfðist, hefði getað farið miklu verr,“ segir Sturla og bætir við að gríðarlegur hiti hafi myndast þegar eldurinn kom upp. Kviknaði í út frá þvottavél Talið er að kviknað hafi í út frá þvottavél í skipinu. Skipið sneri aftur til hafnar eftir að náðst hafði að slökkva eldinn og reiknar Sturla með að um þrjá til fjóra daga taki að gera skipið klárt á ný. Síldarvinnslan í Neskaupstað ger- ir út skipið og eru fjórtán manns í áhöfn skipsins. Það var smíðað í Þýskalandi árið 1958 en Síldar- vinnslan keypti skipið árið 1981. Skipverjar náðu að slökkva eld um borð Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Viðbúnaður Slökkvilið og sjúkrabíl- ar biðu áhafnarinnar í landi. „Þetta fór betur en á horfðist“ NOKKUÐ er komið af bóluefni við inflúensu hing- að til lands. Treg- lega hefur gengið að rækta þá stofna veirunnar sem Alþjóðaheil- brigðisstofnunin hefur mælt með að ræktaðir séu og því er magn bóluefnisins ekki mik- ið. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segist efast um að skortur verði á bóluefninu og enn sé engin ástæða til að hafa áhyggjur þar sem inflúensu hefur ekki orðið vart í nágrannalönd- unum. „Af því að bóluefnið kom seint til landsins þá höfum við frekar látið áhættuhópa ganga fyrir og látið þá sem eru hraustir mæta afgangi. Við höldum að það verði nóg af bóluefni á endanum,“ segir Haraldur. Allir þeir sem eru komnir á sjötugsaldurinn eða þeir hafa undirliggjandi sjúkdóma eru skilgreindir í áhættuhópi. Flensu- tímabilið stendur venjulega yfir frá október eða nóvember og fram í mars eða apríl. Haraldur segir að ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur nú þar sem flensuveiran sé ekki snemma á ferðinni. Bóluefni seinkar enn Haraldur Briem Sóttvarnalæknir óttast ekki skort BÆJARRÁÐ Hveragerðisbæjar hef- ur þungar áhyggjur af stöðu og fram- tíð garðyrkjumenntunar að Reykjum í Ölfusi, að því er fram kemur í sam- þykkt ráðsins. Óvissa hafi ríkt um framtíð staðarins um nokkra hríð og sett mark sitt á skólastarfið sem og alla uppbyggingu í greininni. Við mat á framtíðarstaðsetningu garðyrkju- menntunar þurfi að taka tillit til þeirr- ar löngu sögu sem garðyrkjumenntun að Reykjum hafi. „Sú þýðing sem Garðyrkjuskólinn hefur fyrir Hvera- gerði og Suðurland allt verður ekki ofmetin og það væri mikið slys ef starfsemi að Reykjum bæri á ein- hvern hátt skarðan hlut frá borði í þeim viðræðum sem nú eiga sér stað um framtíð skólans.“ Hvetur bæjar- ráðið ráðamenn til að huga vel að ofangreindum þáttum. Áhyggjur af garðyrkju- menntun ♦♦♦Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is TÖLUVERT var um umferðar- óhöpp um helgina sem rekja má til hálku á vegum landsins og urðu að minnsta kosti sjö bílveltur auk ann- arra minniháttar óhappa. Alls voru 19 umferðaróhöpp tilkynnt til lög- reglunnar í Reykjavíkí gær. Engan sakaði þó alvarlega. Alls urðu þrjár bílveltur í Hval- firði í gær samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík. Tvær þeirra urðu við Kiðafell en ein við Fossá. Engan sak- aði alvarlega í þessum veltum. Þá valt bíll í Kollafirði rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt sunnudags eftir að hafa ekið yfir hálkublett en meiðsli ökumanna reyndust ekki al- varleg. Þá urðu tvö minniháttar óhöpp í Hafnarfirði um helgina vegna hálku. Bifreið sem sautján ára gömul stúlka ók valt í gær eftir að honum var ekið yfir hálkublett við afleggj- arann að Miðnesi, skammt frá Akra- nesi, en að sögn lögreglu var mikil mildi að ekki fór verr. Bíllinn lenti á hjólunum utan vegar og varð stúlk- unni ekki meint af. Þá varð umferðaróhapp á veginum milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur rétt fyrir miðnætti á laugardags- kvöld þegar bifreið ók yfir ísingu á veginum, valt og hafnaði utan vegar. Ökumaðurinn slapp þó vel, að sögn lögreglunnar í Stykkishólmi. Um tíuleytið í gærmorgun valt svo bifreið með ökumanni og þremur farþegum í Þrengslunum og voru tveir fluttir á slysadeild en meiðsli þeirra voru þó ekki talin alvarleg. Á vef Vegagerðarinnar kom fram í gær að hálka og hálkublettir væru á Vestfjörðum, Norðaustur-, Norð- vestur- og Austurlandi. Margar veltur í hálkunni Morgunblaðið/Ingólfur Hálka Margar bílveltur urðu um helgina en hálka er víða á vegum landsins. Þessi bifreið valt í Kollafirði á laug- ardag en lítið var um meiðsli. Alls voru tilkynnt 19 umferðaróhöpp til lögreglunnar í Reykjavík í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.