Morgunblaðið - 30.10.2006, Síða 9

Morgunblaðið - 30.10.2006, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Glæsilegur sparifatnaður Dögg Pálsdóttir www.dogg.is Kæru sjálfstæðismenn í Reykjavík. Ég þakka kærlega fyrir frábæran stuðning í prófkjöri okkar um helgina. Með kærum kveðjum, Mánudagur 30. okt. Hummus, buff og bakað grænmeti Þriðjudagur 31. okt. Afrískur pottréttur m. steiktum bönunum Miðvikudagur 1. nóv. Spelt pizza og gott salat Fimmtudagur 2. nóv. Spínatlasagna og pestó Föstudagur 3. nóv. Engiferpottur og kartöflubakstur Helgin 4.-5. nóv. Burritos m. chillisósu og guacamole Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Nýbýlavegi 12, Kóp. Sími 554 4433. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16. Úlpur og kápur JÓHANN Björnsson gefur kost á sér í forvali Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs á höfuð- borgarsvæðinu vegna komandi alþingiskosninga og stefnir á 2. sæti. Jóhann er fæddur í Keflavík 1966 og hefur ver- ið félagi í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði frá stofnun flokks- ins. Hann lauk BA prófi í heimspeki frá HÍ og MA prófi í sömu grein frá KU Leuven í Belgíu. Jóhann kennir við Réttarholtsskóla, situr í barna- verndarnefnd Reykjavíkur og hefur séð um undirbúningsnámskeið fyrir borgaralegar fermingar undanfarin 10 ár. Jóhann leggur megináherslu á að nálgast beri viðfangsefni sam- félagsins og stjórnmálanna í ríkari mæli með gleraugum siðfræðinnar. Siðfræðin er mjög vannýtt í allri pólitískri umræðu og ákvarðanatöku en ætti að vera leiðbeinandi þegar taka þarf erfiðar pólitískar ákvarð- anir, segir í tilkynningu vegna fram- boðsins. Jóhann stefnir á 2. sæti Jóhann Björnsson GESTUR Svav- arsson gefur kost á sér í 2.–3. sæti í forvali Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs í sameiginlegu for- vali flokksins í Suðvesturkjör- dæmi og Reykja- víkurkjördæmun- um tveimur. Í tilkynningu frá Gesti segir að undanfarin ár hafi gildi markaðar og auðmagns sótt á í allri samfélagsum- ræðu en heilbrigt samfélag byggist ekki á arðseminni og hagnaðinum einum saman. „Það er ekki heilbrigt samfélag því fjöldi fólks fer á mis við að njóta grundvallarréttinda. Smám saman hafa óeðlileg viðhorf orðið eðlileg. Við sitjum uppi með þjóð- félag þar sem mengandi stóriðja í þéttbýli þykir eðlileg. Þjóðfélag þar sem fátækt þykir eðlileg. Þjóðfélag þar sem vændi þykir eðlilegt. Þjóð- félag þar sem mestu varðar að eign- ast sem mest, hvað sem það kostar. Þjóðfélag þar sem hver er sjálfum sér næstur. Það er ekki þjóðfélag fyrir börnin okkar, ekki þjóðfélag fyrir framtíðina. Við verðum að leggja meiri áherslu á gildi á borð við heiðarleika, sanngirni, nýtni, jöfnuð og samábyrgð og láta þau verða veg- arnesti barna okkar og barnabarna. Ég vil leggja lóð mitt á vogarskál- arnar til þess að þjóðfélagið þróist í þá átt að framtíð barnanna okkar og framtíðin verði betri en sú sem nú blasir við,“ segir í tilkynningu Gests. Gestur vill í 2.–3. sætið í Suðvestur- kjördæmi Gestur Svavarsson STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands fagnar þeirri tillögu ríkisstjórnar- innar að virðisaukaskattur verði lækkaður á bókum, blöðum og tíma- ritum úr 14% niður í 7%. Segir í fréttatilkynningu frá Stúdentaráði að breytingarnar verði án vafa nokkur kjarabót, enda bókakaup með stærri útgjaldaliðum náms- manna. Íslenskir námsmenn standa nú nær kollegum sínum í nágranna- löndum okkar, enda hefur virðis- aukaskatturinn verið óeðlilega hár hér á landi, segir í fréttatilkynning- unni. „Um leið og SHÍ fagnar þessum breytingum, bendum við á að mörg skref eru óstigin í kjarabaráttu stúdenta, en þetta er skref í rétta átt og kemur stúdentum nær tak- marki sínu. Í því ljósi má líta til Nor- egs en þar ákváðu menn árið 1967 að hætta allri skattlagningu á „hinu frjálsa orði“. Stúdentar fagna lægri bókasköttum ♦♦♦ Fréttir í tölvupósti GRÁHEGRI er sérstakur fugl sem mörgum finnst skrýtið að sjá í ís- lenskri fuglafánu. Þessi sást nærri Akranesi í gær og átti hann í nokkrum útistöðum við fimm hrafna. Þrátt fyrir að segja megi að hann sé sjaldgæfur koma hingað árlega 50 til 100 fuglar og eru yfir veturinn. Þeir halda sig einkum í votlendi á Suður- og Suðvestur- landi og lifa þá einkum á fiski. Þeir eru miklir aðdáendur fiskeldis- stöðva þar sem iðulega má finna gott úrval matar. Þekkst hefur að gráhegrar hafi étið aðra smærri fugla og jafnvel rottur. Ljósmynd/Árný Jóhanns Gráhegri sást nærri Akranesi AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.