Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 15
ERLENT
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
AÐEINS rúm vika er til kosning-
anna í Bandaríkjunum og benda all-
ar kannanir til, að demókratar hafi
verulegt forskot á repúblikana, svo
mikið raunar, að kunnur maður í
röðum þeirra síðarnefndu sagði um
helgina, að repúblikanar horfðust nú
í augu við miklar ófarir.
„Yrði gengið til kosninga nú,
myndu demókratar vinna 25 til 30
sæti í fulltrúadeildinni og fjögur til
fimm í öldungadeildinni,“ sagði John
Zogby, sem lengi hefur unnið við
skoðanakannanir, en minnti um leið
á, að enn væri rúm vika til stefnu. Í
kosningunum verður tekist á um öll
435 sætin í fulltrúadeild, um 33 sæti
af 100 í öldungadeild, 36 ríkisstjóra-
embætti og fjöldann allan af emb-
ættum í sveitarstjórnum.
Zogby minnti líka á, að um 20%
kjósenda hefðu ekki gert upp hug
sinn en kannanir eru samt allar á
einn veg. Könnun, sem tímaritið
Newsweek birti í gær, sýndi, að 53%
ætluðu að kjósa demókrata en 39%
repúblikana. Út úr könnuninni mátti
líka lesa, að repúblikanar væru
orðnir uppiskroppa með góð kosn-
ingamál enda virðast gömlu trompin
þeirra, þjóðaröryggi og baráttan
gegn hryðjuverkum, ekki gagnast
þeim lengur. Sem dæmi má nefna,
að samkvæmt Newsweek treysta
kjósendur demókrötum betur fyrir
Íraksmálinu en repúblikönum eða
45% gegn 33%. Í efnahagsmálum er
munurinn 47% gegn 34% demókröt-
um í vil og hann er enn meiri í heil-
brigðismálum eða 53% gegn 26%.
Dick Armey, fyrrverandi leiðtogi
repúblikana í fulltrúadeildinni og
kunnur hægrimaður, segir í grein,
sem birtist í The Washington Post í
gær, að repúblikanar horfist í augu
„við ófarir“ og ástæðuna segir hann
þá, að þeir hafi orðið „ástfangnir af
völdunum“ og farið að leggja meira
upp úr bröltinu, sem þeim fylgir, en
minna upp úr stefnunni.
Til að ná meirihluta í full-
trúadeildinni þurfa demókratar að
bæta við sig 15 sætum þar en sex til
að ná völdum í öldungadeildinni.
Stuart Rothenberg, yfirmaður
óháðrar rannsóknamiðstöðvar, spáir
„holskeflu demókrata“ í kosning-
unum og hann telur, að andrúms-
loftið sé nú andsnúnara stjórn-
arflokknum en það var 1994 þegar
demókratar misstu 52 sæti í full-
trúadeild, átta í öldungadeild og 10
ríkisstjóra. Þá náður repúblikanar
meirihluta í fulltrúadeildinni í fyrsta
sinn í áratugi. Aðrir, til dæmis Char-
lie Cook, útgefandi The Cook Politi-
cal Report, spáir því, að demókratar
vinni 20 til 35 sæti í fulltrúadeild og
að minnsta kosti fjögur í öld-
ungadeild, hugsanlega fimm til sex.
Gætu náð meirihluta í báðum deildum
AP
Stuðningur George W. Bush forseti hefur reynt að leggja flokksmönnum
sínum lið og hér er hann ásamt Mike Sodrel, fulltrúadeildarþingmanni fyr-
ir Indiana, en hann á í harðri baráttu við demókratann Baron Hill.
Þegar vika er til stefnu spá allar kann-
anir stórsigri demókrata 7. nóvember
Abuja. AP, AFP. | Óttast var, að um 100 manns hefðu farist
er nígerísk farþegaþota hrapaði til jarðar í vondu veðri
rétt eftir flugtak í Abuja, höfuðborg Nígeríu, í gær. Kom
hún niður í aðeins þriggja km fjarlægð frá flugvellinum
Haft var eftir heimildum, að þotan, sem var af gerðinni
Boeing 737 og í eigu nígeríska flugfélagsins ADC, hefði
lagt upp frá borginni Lagos í gærmorgun og hefði förinni
verið heitið til borgarinnar Sokoto í norðurhluta landsins
með viðkomu í Abuja. Örstuttu eftir flugtak þar hrapaði
hún til jarðar í slæmu veðri. Dreifðist brak úr henni yfir
stórt svæði.
Þegar vélin kom til Abuja voru 110 manns um borð,
farþegar og áhöfn, en ekki var ljóst hve margir fóru þar
frá borði eða bættust við. Talsmaður stjórnvalda í Sokoto
sagði í gær, að meðal hinna látnu væri Mohammadu Mac-
cido, andlegur leiðtogi múslíma í Nígeríu en þeir búa
flestir í norðurhluta landsins. Þá sagði nígeríska frétta-
stofan, NAN, að um borð hefðu einnig verið háttsettir
embættismenn, öldungadeildarþingmenn, stjórnmála-
menn og sonur eins fyrrverandi forseta landsins. Sagði
NAN, að sex menn hefðu lifað slysið af en fréttir af því
voru þó mjög óljósar.
Flugöryggi þykir lítið í Nígeríu og flugslys hafa verið
þar alltíð. Eru þau að minnsta kosti 11 frá 1995 og í þeim
hafa farist meira en 500 manns. Er slysið í gær það þriðja
á 12 mánuðum.
Talið er að um 100
manns hafi farist
Leiðtogi múslíma og fleiri háttsettir menn í hópi þeirra
sem létu lífið í þriðja stóra flugslysinu í Nígeríu á einu ári
TYRKNESK börn veifa þjóðfán-
anum en í gær voru 83 ár liðin frá
stofnun tyrkneska ríkisins. Vörp-
uðu deilur um höfuðklútaburð
kvenna skugga á hátíðarhöldin en
Mustafa Kemal Ataturk, stofnandi
ríkisins, lagði áherslu á, að Tyrk-
land væri veraldlegt ríki og leit á
hina íslömsku höfuðklúta sem póli-
tíska yfirlýsingu. Hafa þeir verið
bannaðir síðan á ýmsum opinberum
stöðum og forsetinn, Ahmet Necdet
Sezer, og herinn styðja bannið. Nú-
verandi stjórnarflokkur er hins
vegar andvígur því og af þeirri
ástæðu sátu margir ráðherrar rík-
isstjórnarinnar heima og tóku eng-
an þátt í hátíðarhöldunum.
AP
Deilt um höfuðklúta á þjóðhátíð
SVO miklar breytingar hafa orðið á
veðurfari í Afríku, að líklegt er, að
þær muni gera að engu tilraunir til
að draga úr fátækt þar. Kemur þetta
fram í nýrri skýrslu nokkurra um-
hverfis- og hjálparsamtaka.
Veðurfar í Afríku virðist vera
miklu óstöðugra en áður var en meg-
inbreytingin er sú, að þurru eyði-
merkursvæðin í norðri hafa teygt sig
lengra í suður og úrkoma hefur einn-
ig minnkað í austanverðri álfunni og
sums staðar í henni sunnanverðri.
Við miðbaug hefur hún hins vegar
aukist. Kom þetta fram á fréttavef
BBC, breska ríkisútvarpsins, í gær.
Valda hörmungum í Afríku
Skýrsluhöfundar segja, að lofts-
lagsbreytingar eigi eftir að valda
miklum hörmungum í Afríku, sem þó
eigi lítinn þátt í vaxandi mengun.
Segja þeir, að til að snúa þróuninni
við verði að draga úr útblæstri gróð-
urhúsalofttegunda um 60 til 90%,
eða um miklu meira en stefnt er að
með Kýótó-sáttmálanum.
Fram kemur í svokallaðri Stern-
skýrslu, sem birt verður í Bretlandi í
dag, að grípi ríki heims ekki til að-
gerða nú þegar muni vaxandi meng-
un og loftslagsbreytingar af hennar
völdum kosta heimsbyggðina allt að
sjö billjónir dollara á næsta áratug.
Það er meira en svarar til kostnaðar-
ins við báðar heimsstyrjaldirnar á
síðustu öld og kreppuna miklu að
auki.
AP
Móða Mengun í Kairó er 10 til 100
sinnum umfram alþjóðleg mörk.
Mengun
veldur
aukinni
fátækt
Jerúsalem. AFP. | Moshe Katsav, for-
seti Ísraels, ætti að láta af embætti
um stundarsakir vegna þess, að
hann verður hugsanlega dæmdur
fyrir nauðgun.
Kom þetta fram í
gær hjá rík-
issaksóknara Ísr-
aels.
Menahem Maz-
uz ríkissaksókn-
ari sagði, að Kat-
sav ætti að hafa
frumkvæðið að
því að fara frá
enda gengi það
ekki, að maður, sem sætti jafnalvar-
legum ásökunum og hann, gegndi
forsetaembættinu á sama tíma. Í
allra augum væri embættið tákn-
rænt fyrir fullveldi þjóðarinnar og
virðingu. Lagði Mazuz til, að þingið
viki Katsav frá, yrði hann ekki fyrri
til.
Þrýstingur á Katsav að segja af
sér fer dagvaxandi en Mazuz sagði
um miðjan mánuðinn, að embætti
hans hefði nægar vísbendingar í
höndunum til að ákæra forsetann
fyrir nauðgun, kynferðislega áreitni
og hleranir. Er nú verið að ganga frá
formlegri ákæru á hendur honum.
Fyrir rúmri viku gaf hæstiréttur
Ísraels Moshe Katsav vikufrest til
skýra það, að hann hefði ekki sagt af
sér og í gær lét hann loksins frá sér
fara yfirlýsingu þar sem hann
kvaðst ekki hafa í hyggju að segja af
sér.
Katsav fari
úr embætti
Moshe Katsav
♦♦♦
Kabúl. AFP. | Afganskir og vestrænir
hermenn hrundu á laugardag árás
talibana á herstöð í Suður-Afganist-
an og felldu allt að 70 þeirra.
Um 100 til 150 talibanar réðust
gegn herstöð í héraðinu Uruzgan en
hún hefur verið aðsetur hermanna
frá Ástralíu og Hollandi. Haft var
eftir talsmanni ISAF, alþjóðlega
herliðsins, að talibanar hefðu lengi
reynt að koma sér fyrir í norðan-
verðu Uruzgan-héraði en ávallt verið
hraktir brott. Sagði hann, að allt að
70 þeirra hefðu fallið í árásinni á
laugardag en þá var beitt gegn þeim
fallbyssuþyrlum og orrustuvélum.
Innan breska hersins virðist
óánægja með veru hans í Írak og
Afganistan fara vaxandi og síðasta
uppákoman er, að Charles Guthrie
hershöfðingi og fyrrverandi yfirmað-
ur herráðsins sagði í viðtali við dag-
blaðið Observer, að stríðið í Afgan-
istan væri „kjánalegt“. Átti hann þá
við, að bresku hermennirnir þar
væru allt of fáir og allt of illa búnir.
Mikil átök í
Afganistan