Morgunblaðið - 30.10.2006, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 17
Suðurlandsbraut 20 – 108 Reykjavík – Sími 588 0200 –www.eirvik.is
-hágæðaheimilistæki
Ef þú kaupir Miele þvottavél færðu kaupverðið
endurgreitt með betri meðferð á þvottinum þínum
Miele þvottavélar erumeð nýrri tromlumeð
vaxkökumynstri semferbeturmeðþvottinn.
Einkaleyfi Miele.
Miele þvottavélar eru byggðar á stálgrind
og eru með ytri þvottabelg úr ryðfríu stáli
ólíkt flestum öðrum þvottavélum.
Miele þvottavélar endast lengur en aðrar
þvottavélar.
Íslenskt stjórnborð
AFSLÁTTUR
30%
ALLT AÐ
1. VERÐLAUN
í Þýskalandi
W2241WPS
Gerð Listaverð TILBOÐ
ÞvottavélW2241 kr. 160.000 kr. 114.800
1400sn/mín/5 kg.
Þurrkari T223 kr. 112.200 kr. 78.540
útblástur/5 kg.
Þurrkari T233C kr. 131.000 kr. 91.700
rakaþéttir/5 kg.
MIELE ÞVOTTAVÉL
- fjárfesting sem borgar sig
Hreinn sparnaður
GENGIÐ hefur verið frá samningi
um franska útgáfu bókarinnar
Tröllakirkju eftir Ólaf Gunnarsson
milli JPV útgáfu og franska bóka-
forlagsins Gaïa édition. Gaïa édition
gefur út fjölda bóka ár hvert en var
upprunalega stofnað í þeim tilgangi
að koma verkum danska verðlauna-
höfundarins Jørn Riel á framfæri.
Áður hefur Tröllakirkja komið út
í Bretlandi og Þýskalandi auk þess
sem nýverið náðust samningar við
tékkneskan útgefanda.
Tröllakirkja kom fyrst út á ís-
lensku árið 1992. Bókin var tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverð-
launanna það árið og síðar til hinna
alþjóðlegu IMPAC-verðlauna í Du-
blin.
Tröllakirkja
seld til
Frakklands
Útbreiddur Franska útgáfan Gaïa
édition gefur út Tröllakirkju Ólafs
Gunnarssonar.
ÞAÐ ER engin lognmolla í
kringum íslenska leikhóp-
inn Vesturport þessa dag-
ana. Á laugardaginn lauk
sýningum hópsins á Ham-
skiptunum eftir Franz
Kafka í Lyric-Hammer-
smith-leikhúsinu í London
en framundan eru mikil
ferðalög hjá hópnum með
uppsetningar sínar á Ham-
skiptunum, Rómeó og Júlíu
og Woyzeck.
Að sögn Rakelar Garð-
arsdóttur, framkvæmda-
stjóra Vesturports, gengu
sýningarnar í Lyric-
Hammersmith mjög vel;
sætanýting hefði verið 94%
sem þýðir að uppselt var
nánast á hverja einustu sýn-
ingu.
Með boð ár
fram í tímann
Næst er ferð leikhópsins heitið á
leiklistarhátíð í Ludwigshafen í
Þýskalandi í lok nóvembermánaðar.
Þaðan heldur hann svo beint til
Stavanger í Noregi og sýnir Rómeó
og Júlíu þrisvar sinnum, 1., 2. og 3.
desember.
„Við erum með boð alveg ár fram
í tímann,“ segir Rakel. „Við erum
t.d. bókuð í Madríd í janúar og í
mars förum við til Amsterdam.“
Hún upplýsir einnig að verið sé
að skipuleggja mikla ferð í vor. „Við
erum búin að fá boð um að sýna í
Nýja-Sjálandi og Asíu, t.d. í Kóreu, í
maí. Um þessar mundir erum við að
reyna að púsla öllu saman
því þetta verður svo mikið
ferðalag. Við erum jafnvel
að reyna að koma því við að
heimsækja Ástarlíu vegna
tengslanna við Nick Cave,“
en Nick Cave samdi tónlist
við bæði Hamskiptin og
Woyzeck.
Unnur Ösp hleypur í
skarðið fyrir Nínu
Dögg í Woyzeck
Nína Dögg Filippus-
ardóttir er barnshafandi og
mun ekki taka þátt í sýn-
ingum leikhópsins í bráð.
Frá því hefur verið gengið
að Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir fylli skarð Nínu í
Woyzeck.
„Þetta er náttúrulega
rosalega spennandi,“ segir
Unnur þegar hún er spurð
út í verkefnið framundan. „Sér-
staklega þar sem ég var afskaplega
hrifin af þessari sýningu sjálf. Þar
fyrir utan hef ég virkilega gaman af
því að vinna með þessum krökkum,
sem voru samhliða mér í Leiklist-
arskólanum. Ég hef fylgst með því
með aðdáun í fjarlægð hvað þau
hafa verið framtaksöm og boðið upp
á frumlegt leikhús. Svo eru mikil
forréttindi að fá að feta í fótspor
Nínu.“
Enn er óljóst hver bregður sér í
hlutverk Júlíu í Stavanger.
„Það kemur í ljós. Við erum að
vinna í því,“ segir framkvæmda-
stjórinn Rakel stóísk.
Vesturport með
boð víða um heim
Morgunblaðið/Eggert
Á faraldsfæti Vesturport hefur nýlokið sýningum á Hamskiptunum í Ly-
ric-Hemmersmith-leikhúsinu í London. Stefnt er á frekari landvinninga.
Stefnir á leikferð til Asíu og Eyjaálfu
Unnur Ösp
Stefánsdóttir
Rakel
Garðarsdóttir