Morgunblaðið - 30.10.2006, Side 18

Morgunblaðið - 30.10.2006, Side 18
Morgunblaðið/Ómar Langömmubarn Þau voru númer 6 og 62 sem voru skírð í kjólnum. Kristín með fyrsta barnabarnabarnið, Sævar Inga Guðmundsson. Sævar Ingi er 62. barnið semer skírt í þessum kjól,“ segirlangamma hans KristínFriðriksdóttir. „Faðir minn fæddist árið 1886 en kjóllinn var saumaður fyrir skírnina hans. Á þess- um tíma voru komnar saumavélar og kjóllinn er vélsaumaður enda þótti það mjög fínt á þeim tíma. Hann er úr eins konar léreftsblúndu með pífu að neðan og þetta er mjög gott efni því það sér ekki á kjólnum eftir allan þennan tíma. Hann er alveg tand- urhreinn og ekki nokkurt gat á hon- um, ekki einu sinni saumspretta.“ 63. barnið á leiðinni Þetta hlýtur að teljast nokkurt af- rek, sérstaklega í ljósi þess að þessi merkilega flík hefur ferðast heims- hornanna á milli. „Pabbi og bróðir hans áttu samtals sjö stelpur, sem giftu sig hingað og þangað um heim- inn. Einhverjir í fjölskyldunni hafa bú- ið í Þýskalandi, á Spáni og í Bandaríkj- unum á tímabili og börn hafa verið skírð í kjólnum í öllum þessum lönd- um. Hann hefur alltaf komið óskadd- aður til baka og við höfum aldrei lent í neinum vandræðum með póstinn eða neitt slíkt.“ Milli skírna er kjóllinn geymdur í léreftspoka og jafnvel í stóru boxi, sem er hentugt til póstsendinga ef því er að skipta. „Það er mjög vel með kjólinn farið,“ segir Kristín. „Við setjum hann ekki í plast því það vill lita, hann fer aldrei í þvottavél og hann er ekki straujaður með heitu járni. Allir hafa virt þessar regl- ur. Oftast nær hefur hann verið notaður rétt á meðan barnið er skírt og í myndatöku og svo er hann settur í geymslu.“ Sjálf var Kristín barn númer sex sem var skírt í kjólnum góða en það var árið 1924, þegar kjóllinn var tæplega 40 ára. Og sagan heldur áfram. „Nú er 63. barnið á leiðinni því systir mín á von á barnabarnabarni og þá fer kjóllinn þangað. Hann er yf- irleitt á ferðinni því það er alltaf eitt- hvert barn að fæðast – barnabörnin eru orðin svo óskaplega mörg. Núna er búið að útbúa lista yfir alla þá sem hafa verið skírðir í kjólnum og í hvaða landi það var. Þegar nýtt barn er skírt í honum fær það eintak af listan- um og svo fylgir eitt eintak kassanum sem kjóllinn er geymdur í.“ Afkomendur Kristínar eru nú orðnir tólf talsins, þrjú börn, átta barnabörn og Sævar Ingi litli er fyrsta barnabarnabarnið. „Þetta er mikill fjársjóður því öll hafa þessi börn fæðst heilbrigð og staðið sig vel í lífinu,“ segir hún. „Og getur maður beðið um meira?“ Athöfnin Séra Þór Hauksson, sem skírði Sævar Inga, og foreldrarnir, Guðmundur Ívar Ágústsson og Inga Björk Valgarðsdóttir. Skírnarkjóll á ferðinni í 120 ár Sævar Ingi litli var skírður á dögunum. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að við athöfnina var hann í skínandi fallegum skírnarkjól sem langalangafi hans skrýddist 120 árum áður. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir hitti langömmuna Kristínu Friðriksdóttur en kjóllinn var upphaflega saumaður á föður hennar sem fæddist árið 1886. VíðförullKjóllinn hef-ur ferðastvíðs vegarum heiminn ígerðarlegumkassa semhonumfylgir. ben@mbl.is |mánudagur|30. 10. 2006| mbl.is daglegtlíf Við Oregon-háskóla hefur verið þróað svokallað PBS-kerfi sem er leið til að kenna og styrkja æskilega hegðun samhliða því að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun. » 20 menntun Smáhundur sem varð á vegi blaðamanns í Berlín fyrir nokkru hafði það mjög náðugt í barnakerru á meðan hann var með eigendum sínum að skoða borgina. » 20 hundur Nú þegar kominn er vetur þá er alls ekkert verra að gæludýr fái vítamín og fæðubótarefni. Þau þurfa á þessum efnum að halda rétt eins og mannfólkið. » 21 gæludýr Það eru engir staðlar til um hvort húsnæði telst vel eða illa við haldið og af hverju sum hús endast áratugum saman án teljandi viðhalds á meðan önnur hús lenda strax í viðhaldi. » 22 fjármál Aldrað fólk, sem borðar mikið af grænmeti á hverjum degi, virt- ist fimm árum yngra andlega þegar sex ára rannsókn lauk en þeir sem borðuðu ekkert eða lítið af grænmeti. » 19 heilsa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.