Morgunblaðið - 30.10.2006, Side 22

Morgunblaðið - 30.10.2006, Side 22
fjármál fjölskyldunnar 22 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Yamaha píanó. Yamaha píanó og flyglar með og án SILENT búnaðar. Veldu gæði – veldu Yamaha! Samick píanó. Mest seldu píanó á Íslandi! Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 357.000 kr. Goodway píanó. Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 238.000 kr. 15 mán. Vaxtalausar greiðslur. Estonia flyglar. Handsmíðuð gæðahljóðfæri. Steinway & Sons Fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Til sýnis í verslun okkar. H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350                               !"# $%  &' ()*+"# ,-# .$/ $0  1112+232# Það eru í reynd engir staðlartil um það hvort húsnæðitelst vel eða illa við haldið.Þaðan af síður eru til staðl- ar um það af hverju sum hús endast áratugum saman án teljandi viðhalds á meðan önnur hús lenda strax í við- haldi. Það ber að byggja öll hús í sam- ræmi við byggingalöggjöf og bygg- ingareglugerðir og síðan er það hlutverk húseigenda að taka ákvarð- anir um viðhald,“ segir Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseig- endafélagsins. Að sögn Sigurðar hefur viðhalds- iðnaðurinn verið hálf lamaður und- anfarin tvö til þrjú ár þar sem allir þeir, sem vettlingi hafa getað valdið, hafa verið bundnir í vinnu við ný- byggingar. Það má því búast við að komið sé að viðhaldi víða þegar svig- rúm loks skapast. „Oft fer fólk ekki að huga að viðhaldsmálum fyrr en með hækkandi sól á vorin og þá er oft erfitt að fastsetja verktaka. Haustið er á hinn bóginn hárréttur tími til að undirbúa viðhald fyrir komandi sum- ar. Því er nú upplagt að nota tímann til að setja sig í samband við verk- fræðinga og verktaka til að taka út hús og verk því góður undirbúningur og ábyrgir verktakar geta skipt sköp- um í því hvernig til tekst.“ Sérþekking á viðhaldsvinnu Í fjöleignahúsum þarf að liggja fyr- ir óyggjandi og lögleg ákvörðun um framkvæmd. Í kjölfarið er rétt að fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástand hússins og viðgerðarþörf. Í því ástandsmati felst yfirleitt gróf lýsing á ástandi ásamt sundurliðuðum verkliðum með áætluðum magntöl- um. Sé um minni verk að ræða er hægt að óska eftir tilboðum frá verk- taka, byggðum á magntölum og verk- lýsingu samkvæmt ástandsmati. Við stærri verk eru úttektaraðilarnir jafnan fegnir til að fullgera útboðs- og Hárrétt að undirbúa viðhald fasteigna á haustin Morgunblaðið/Þorkell Framkvæmdir Ef um minni verk er að ræða er hægt að óska eftir tilboðum frá verktaka, byggðum á magntölum og verklýsingu samkvæmt ástandsmati. verklýsingu og standa að útboði. Húseigendur skulu gæta þess að við- urkenndir meistarar standi fyrir við- haldsverkum þar sem slík verk eru oft mjög vandasöm. Ekki síður er mikilvægt að leita til hæfra ráðgjafa, sem hafa næga þekkingu til úttekta. Vegna steypuviðgerða, sem hafa í för með sér niðurbrot og endurgerð hluta burðarvirkja, klæðninga og gluggaskipta, verður að afla bygg- ingaleyfis. Ef fyrirhugaðar eru við- gerðir á sprungum og múr nægir að tilkynna það til byggingafulltrúa með skriflegri greinagerð um eðli verks- ins, hver hafi með því eftirlit og sjái um framkvæmd þess. Þess er krafist að iðnmeistarar standi fyrir fram- kvæmdum slíkra viðhaldsverka og skulu þeir hafa sérþekkingu á við- haldsvinnu og árita yfirlýsingu hjá byggingafulltrúa um ábyrgð sína, að sögn Sigurðar Helga. Endurbætur eru lánshæfar Allur gangur er á því hvernig hús- eigendur mæta kostnaði vegna við- halds. „Algengast er að íslenski hátt- urinn sé sá að menn taka bara á vandamálinu þegar það dúkkar upp, en sýna litla fyrirhyggju með því að safna í sérstaka viðhaldssjóði. Hús- sjóðir geta hinsvegar bæði verið til rekstrar og viðhalds, en ekki er skylda að stofna til hússjóðs í fjöl- eignahúsum nema fjórðungur íbú- anna krefjist þess,“ segir Sigurður. Auk bankalána lánar Íbúðalána- sjóður til endurbóta á sömu kjörum og bjóðast við kaup eða byggingu fasteigna. Hámarkslán nemur 17 milljónum króna. Lánað er fyrir allt að 80% af kostnaði, en lánið þarf að rúmast innan við 100% af brunabóta- mati að viðbættu lóðarmati. Skilyrði fyrir lánveitingu eru þau að fimmtán ár séu frá því að viðkomandi fasteign varð fokheld og að lánsfjárhæðin sé að lágmarki 570 þúsund krónur. Lánshæfar eru hvers kyns end- urbætur á fasteigninni hvort sem er utanhúss eða innan. Til endurbóta getur t.d. talist endurnýjun á raf- og/ eða vatnslögnum, þakviðgerðir, máln- ingarvinna, endurnýjun eldhús- innréttinga og margt fleira. Allar við- bætur við íbúð, hvort sem þær eru keyptar eða byggðar, eru lánshæfar ef þær hafa hlotið samþykki bygging- aryfirvalda. Viðaukinn þarf þó að vera fullbyggður þegar lánið er veitt. Lóðarframkvæmdir, bygging sólpalla og girðinga eru ekki lánshæfar. Þeir, aðilar, sem geta staðfest kostnað og verklok, eru byggingafulltrúar, arki- tekta-, tæknifræði- og verk- fræðistofur. Svartir sauðir í bransanum „Í viðgerðabransanum eru því mið- ur margir svartir sauðir sem oft hafa enga eða takmarkaða fagþekkingu á viðgerðum. Þessir aðilar bjóða gjarn- an töfralausnir, bæði í efnum og að- ferðum. Húseigendur þurfa að varast þessa aðila. Yfirleitt stenst fátt og enginn verksamningur er gerður og jafnvel er um vinnu að ræða án reikn- ings, sem er ekki eingöngu ólöglegt heldur stórvarasamt. Án fullgilds reiknings hefur húseigandi ekkert í höndunum sem sannar hvað var gert eða að viðkomandi verktaki hafi yf- irleitt komið nálægt verkinu. Því miður eru töluverð brögð að reikningslausum viðskiptum og virð- ast sumir húseigendur telja sig spara á því. Rétt er að ítreka að yfirleitt of- metur verkkaupi hag sinn í þeim við- skiptum. Verkkaupi stendur eftir án nokkurs eða veikburða réttar gagn- vart verktaka og ábyrgð á verki er engin. Einnig er mikilvægt að benda á að virðisaukaskattur fæst aðeins endurgreiddur af vinnu við nýsmíði, endurbætur og viðgerðir á húsnæði, ef reikningar frá verktaka eru full- gildir,“ segir Sigurður Helgi.  Fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástand eignarinnar og við- gerðaþörf.  Við minni verk er hægt að óska eftir tilboðum frá verktökum, byggðum á magntölum og verklýsingu. Við stærri verk fer yfirleitt fram útboð.  Meta þarf tilboðin í samhengi við útboðsgögnin, heildarverð, ein- ingaverð, uppsetningu tilboðsins og verktíma.  Þegar ákveðið hefur verið hvaða tilboði skal taka, er gengið til samn- inga við viðkomandi verktaka. Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka, hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða.  Eftirlit með framkvæmd þarf að vera í vel skilgreindum og föstum far- vegi og oft er ráðinn til þess óháður aðili.  Lokauppgjör fer fram eftir að verki telst lokið. Mikilvægt er að taka út framkvæmdina og frágang á verkinu áður en lokagreiðsla fer fram. Heilræði til húsfélaga Ekki er til einhlít regla um það hvernig beri að standa að viðhaldi fast- eigna því bæði verk og aðstæður eru afar mis- munandi. Jóhanna Ingvarsdóttir kynnti sér viðhald húseigna. join@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.