Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 27

Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 27 HALLDÓR Reynisson, verkefn- isstjóri fræðslusviðs Biskupsstofu, skrifar grein í Morgunblaðið laug- ardaginn 21. október síðastliðinn og furðar sig á því að margir haldi að „kristileg sálgæsla“ sem stunduð er í op- inberum skólum í formi „Vinaleiðar“ sé falið trúboð. Halldór segir að Vinaleiðin sé „þjónusta við náung- ann en ekki boðun“. Við þennan mál- flutning er margt að athuga. Sérstaklega það að aðrir talsmenn kirkjunnar sjálfrar virðast vera á önd- verðri skoðun við Halldór og telja að sálgæsla sé hluti af trúarstarfi. Samkvæmt er- indinu „Formleg staða sálgæsl- unnar“, eftir Þorvald Karl Helga- son, biskupsritara, er morgunljóst að sálgæsla er kristilegt trúboð. Í erindinu segir m.a.: „Markmið sálgæslunnar er ekki hvað síst sjáanlegt í skriftum hjá prestinum sem boðar fyrirgefn- ingu syndanna í Jesú nafni. Þar er lagður grunnur að endurnýjun í lífi einstaklingsins er leiðir til betra lífs, sátt við Guð og heim.“ „Sálgæsla er það að veita um- hyggju, stuðning, hlustun, skiln- ing, á kristnum forsendum.“ „Sálgæslan er ein af meg- instoðum kirkjulífsins, sá andi sem svífur yfir vötnunum og hefur áhrif bæði á tilbeiðslu, prédikun, boðun og fræðslu, hefur það víð- tæka markmið að veita manneskju leiðsögn á vegi trúarþroska og trúarstyrkingar“ „Í kristinni sálgæslu er umfram allt verið að auka sem mest teng- ingu við grunn kristinnar trúar, vísa í táknmál trúarinnar, og ekki hvað síst með skírskotun í hjálp- ræðissöguna, til lífs, dauða og upprisu Krists.“ Augljósara gæti trúboðið vart verið. Vinaleið er sálgæsla og sál- gæsla fjallar um „fyrirgefningu syndanna í Jesú nafni“, „sátt við Guð og menn“, er stunduð á „kristnum forsendum“, er ein af „meginstoðum kirkjulífsins“, hefur áhrif á „tilbeiðslu, prédikun, boðun og fræðslu“, hefur það markmið að efla „trúarþroska“ og styrkja trúna. Og um- fram allt að „auka sem mest tengingu við grunn kristinnar trúar [...] með skír- skotun í hjálpræð- issöguna, til lífs, dauða og upprisu Krists.“ Um hlutverk djákna í opinberum skólum segir á vef kirkjunnar sjálfrar. „Djákni er fulltrúi þjóðkirkjunnar og krist- innar trúar“, „djákni veitir kristi- lega sálgæslu“, „er tengiliður milli skóla, heimila og kirkju“, „djákni hefur bæna- og helgistundir fyrir nemendur og starfsfólk skólanna“, bæði í skólunum og í kirkjum safnaðarins, „djákni ræðir við börnin um kristin gildi, lífið og dauðann“. Í sérstakri kynningu Þjóðkirkj- unnar á Vinaleiðinni á vefsíðu trú- félagsins segir svo að „á skrifstofu VINALEIÐAR í skólunum [sé] heimilislegt og notalegt.“ Þar er meðal annars að finna „bæna- vers“, „Faðir vor í ramma“ og „sjö boðorð“. Á skrifstofu Vinaleiðar eru svo „auglýsingamiðar um fundartíma barnastarfs kirkj- unnar“ og „Jesúmyndir eru í körfu þar sem allir hafa góðan að- gang að.“ Af þessum orðum að dæma virð- ist sá eini sem misskilur starf Vinaleiðar vera verkefnisstjóri fræðslusviðs Biskupsstofu. Er hægt að lýsa trúboði mikið betur en með þeirri lýsingu sem Þjóð- kirkjan veitir sjálf um Vinaleiðina? Aðskiljum skóla og kirkju Trúaruppeldi á ekki að vera í verkahring opinberra skóla eða annarra opinberra aðila. Siðmennt telur að slíkt uppeldi sé alfarið á ábyrgð foreldra. Starfsemi sem þessi er brot á grundvall- arákvæðum trúfrelsis sem bundin eru í stjórnarskrá Íslands. Að auki hefur mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna úrskurðað að starf- semi sem þessi í opinberum skól- um sé brot á mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Takmörkuð virðing er borin fyrir mismunandi uppruna, lífsskoðunum eða þörfum annarra en ríkiskirkjunnar. Skilja þarf að skóla og kirkju sem allra fyrst. Þeir sem starfa innan Siðmennt- ar eru að sjálfsögðu fylgjandi því að börnum sé boðin víðtæk þjón- usta fagmanna, svo sem sálfræð- inga, félagsráðgjafa og iðjuþjálfa. Siðmennt er einfaldlega þeirrar skoðunar að áróður eigi ekki heima í opinberum skólum, óháð því hvort sá áróður er af pólitísk- um, trúarlegum eða öðrum toga. Opinberir skólar eiga að vera hlutlausar fræðslustofnanir og griðland barna. Foreldrar barna eiga heldur ekki að hafa áhyggjur af því að börn þeirra verði fyrir áróðri í skólanum sínum og þeir eiga heldur ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að þau verði stimpluð öðruvísi eða komið fram við þau á annan hátt vegna þess að þau aðhyllast ekki ríkistrúna. Þjóðkirkjan segir Vinaleið vera trúboð Sigurður Hólm Gunnarsson svarar grein Halldórs Reynissonar um Vinaleið þjóðkirkjunnar » Siðmennt er einfald-lega þeirrar skoð- unar að áróður eigi ekki heima í opinberum skól- um, óháð því hvort sá áróður er af pólitískum, trúarlegum eða öðrum toga. Sigurður Hólm Gunnarsson Höfundur er varaformaður Siðmennt- ar. „Það er ljóst að í landi með 300 þúsund íbúa er eðlilegt að það sé eitt sérgreinasjúkrahús sem sér um þjónustuna sem þarf að sinna,“ sagði heil- brigðisráðherra í blaðaviðtali nú í byrj- un september. Sam- eining stóru sjúkra- húsanna í Reykjavík á síðasta áratug byggðist m.a. á þess- ari sömu afstöðu þá- verandi ráðherra. Sameining er jú stjórnunaraðgerð sem er til þess fallin að ná fram hagræð- ingu í rekstri fyr- irtækja og stofnana í opinberum sem og í einkarekstri, og hef- ur sem slík oft reynst vel. En ekki verður fram hjá því litið að starfsemi sjúkrahúsa er bundin nokkuð öðrum lögmálum en almennt gerist meðal fyrirtækja og stofn- ana. Tækni- og tækjavæðing innan sjúkrahúsa leiðir t.d. ekki sjálfkrafa til fækkunar starfsfólks heldur oftar en ekki til fjölgunar. Þá gefur ný tækni kost á því að gera meira en áður var mögulegt. Ennfremur geta sérhæfing og samhæfing í starfseminni stangast á. Gæði, öryggi og framfarir þjón- ustunnar byggjast t.d. á aukinni sérhæfingu hámenntaðs starfs- fólks, meðan heildstæð þjónusta við notendur er m.a. öryggisþáttur sem kallar á yfirsýn, aukna sam- hæfingu og stjórnun vandasamra verkefna og vinnuhraða þar sem ekkert má fara úrskeiðis. Rekstrarleg rök að baki samein- ingu sjúkrahúsa gera ráð fyrir að með hagkvæmni stærðar megi draga úr tvöföldun á starfsemi og tækjabúnaði, minnka stjórn- unarkostnað og þannig auka hag- ræðingu í rekstri. Fagleg rök að baki sameiningu sérgreina byggjast á því að tryggja þurfi ákveðinn lágmarks- fjölda sjúklinga í sérgreinum læknisfræðinnar til að sér- fræðilæknar fái viðhaldið þekk- ingu og hæfni, og til að lækna- nemar geti kynnst sem flestum viðfangsefnum læknisfræðinnar. Þannig megi tryggja gæði og ör- yggi þjónustunnar við notendur í bráð og lengd. Svo virðist sem fagleg og rekstrarleg markmið geti hér sameinast um sömu lausnina, þ.e. að sameina sjúkra- hús. En markmið einstakra stjórn- unaraðgerða s.s. sameining sjúkrahúsa, og stýring á heilu heilbrigðiskerfi fara ekki alltaf vel saman. Nú sýna rannsóknir á sameiningum sjúkrahúsa að áhrif sameiningar á stjórnunar- og sam- hæfingarþátt þjónustunnar hafi verið vanmetin, og að endanleg út- koma ráðist oft af sameining- arferli þar sem ákvarðanir hafi tekið of lítið mið af ytra umhverfi og því heildarsamhengi sem sjúkrahúsin starfa í. Árangur af sameiningu sjúkra- húsa fyrir rekstur og starfsemi sjúkrahússins sé eitt, en áhrif sameiningarinnar á heilbrigð- iskerfið í heild sinni annað. Deila má um rekstrarlegan ávinning af sameiningu sjúkrahús- anna í Reykjavík, en flestir telja að sameining sérgreina sé til bóta. Nú vísa menn í umræðunni á Ís- landi til útlanda og segja að íbúa- fjöldi á bak við eitt sérgreina- sjúkrahús þurfi að vera á bilinu 700 þúsund til um 1 milljón. Þetta er reyndar viðmiðun sem læknaháskólar víða á Vest- urlöndum nota til að rökstyðja stærð á upptökusvæði háskóla- sjúkrahúsa þar sem rannsóknir og kennsla og þjálfun í sérfræðilækn- ingum fer fram. LSH er ekki slíkt háskólasjúkrahús og yfirvöld á Íslandi ættu ekki að ætla því slíkt hlutverk fyrr en íbúa- tala landsins hefur náð a.m.k. 700 til 800 þúsundum. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum eru í sí- fellu að leita nýrra leiða til að takast á við vaxandi kostnað heil- brigðisþjónustunnar og koma á aðhaldi og betri stýringu innan heilbrigðiskerfisins. Sameining sjúkrahúsa þar sem niðurstaðan yrði aðeins eitt sjúkrahús fellur ekki vel að þeim stjórn- sýsluaðferðum sem þar er beitt til að ná markmiðum rekstrar og gæða, þ.e. blönd- uðum aðferðum sam- anburðar, samkeppni og samstarfs í sama umhverfi. Rík- isstjórnir eiga að stýra en ekki að róa, og þar eru möguleikar notenda til að velja virkjaðir en ekki vanmetnir. Í sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík fólst ekki lausn allra mála heldur einnig ómældur fórn- arkostnaður. Eitt stórt bráða- og sérgreina- sjúkrahús í Reykjavík er ekki best vegna þess að a) rannsóknir hafa sýnt að heppilegasta stærð bráða- sjúkrahúsa sé á bilinu 200–400 rúm, umfram það eykst stjórn- unarkostnaður og óhagkvæmi stærðar byrjar að gæta, b) stór sjúkrahús með afar blandaða starfsemi eins og LSH hafa mikla stjórnunarlega yfirbyggingu sem lengir boðleiðir upplýsinga og ákvarðana og getur aukið hættuna á því að eitthvað fari úrskeiðis, c) það hefur neikvæð áhrif á framþróun og umbótastarf þegar hvorki starfsfólki né sjúklingum gefst kostur á að velja á milli sjúkrahúsa, d) ekkert varasjúkra- hús yrði á höfuðborgarsvæðinu ef slíkt ástand skapaðist að LSH yrði óstarfhæft að hluta eða með öllu, og e) það skapar sjúkrahús- inu aðstöðu til að einoka lykilupp- lýsingar og þekkingu sem stjórn- sýslunni er nauðsynleg til að geta tekið stefnumarkandi ákvarðanir fyrir heilbrigðiskerfið í heild. Með aðeins einu stóru sjúkrahúsi í Reykjavík fækkar stýritækjum í verkfærakistu ríkisstjórnarinnar, – ráðherrann er að mála sig út í horn. Hugmyndin um að sameina stóru sjúkrahúsin í Reykjavík kom fyrst fram fyrir um 30 árum. Síð- an þá hefur margt breyst í innra og ytra umhverfi sjúkrahúsanna og heilbrigðiskerfisins. Næstu skref í sjúkrahúsmálum á höfuðborgarsvæðinu þarf því að hugsa betur og í ljósi nýrra tíma. Er eitt sjúkrahús í Reykjavík best? Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir skrifar um sameiningu sjúkrahúsanna Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir »Ríkisstjórnireiga að stýra en ekki að róa, og þar eru möguleikar not- enda til að velja virkjaðir en ekki vanmetnir. Höfundur er stjórnsýslufræðingur. ÞAÐ hefur verið mikill upp- gangur í íslensku efnahagslífi á undanförnum árum. Kaupmáttur almenns launafólks hefur aukist og Íslendingar hafa það almennt gott. Skatttekjur rík- issjóðs hafa stórauk- ist og afgangur af rekstri ríkissjóðs hef- ur verið umtals- verður. Er þá allt gott? Nei, því samfara þessum vexti hefur bilið milli ríkra og fá- tækra aukist meira en nokkru sinni. Í öllu ríkidæminu eru hópar fátæks fólks sem hefur vart í sig eða á. Allir mæli- kvarðar um tekjujöfnun segja að við Íslendingar séum komnir hóp með Bandaríkjamönnum, í stað þess að vera á líku róli og ríkin í Norður-Evrópu sem við viljum helst jafna okkur við. Hér vantar að rétta kúrsinn. Ís- lendingar vilja ekki bandarískt samfélag í velferðarmálum. Nú- verandi ríkisstjórnarflokkum er ekki treystandi til að leiðrétta stefnuna í þessum málum það er á þeirra ábyrgð hvernig komið er. Biðlistar eftir hjúkrunarrým- um skýrasta dæmið! Málefni aldraðra eru ef til vill skýrasta dæmið. Í þeim málaflokki fer ríkið með ákveðin verkefni og sveitarfélögin önnur. Verkaskiptingin er kapítuli út af fyrir sig og þarf að taka til gagngerrar uppstokk- unar. Það er óþolandi að aldraðir fái ekki þá þjónustu sem þeim ber af því að ríki og sveitarfélög séu að togast á um hver eigi að veita hana. Það liggur þó alveg ljóst fyrir að ríkinu ber að sjá til þess að nægilegt framboð sé af hjúkrunarrýmum fyrir þá sem af heilsufarsástæðum geta ekki búið sjálfstætt. Þar vantar mikið á, ekki síst hér á höfuðborg- arsvæðinu. Hundruð einstaklinga fá ekki notið eðlilegrar umönn- unar vegna þess að ríkisstjórnin kýs heldur að nota peningana í annað eða nota þá ekki. Það er vissulega mikilvægt fyrir ríkissjóð að skila afgangi og greiða upp skuldir. Ég er samt sem áður þeirrar skoðunar, að það sé mikilvægara að byggja upp nauðsynlega þjónustu fyrir aldr- aðra. Þar greinir okkur jafn- aðarmenn á við ríkisstjórnina, sem telur flest annað mikilvægara. Við höfum vissulega efni á því og við höfum alls ekki efni á að gera það ekki. Að minnsta kosti ekki ef við viljum telja okkur í hópi siðmenntaðra þjóða. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem ég mun beita mér fyrir fái ég til þess stuðning í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í Suðvest- urkjördæmi hinn 4. nóvember næstkomandi. Ég sækist eftir fyrsta sæti og þar með að leiða framboðið af festu, ábyrgð og reynslu. Við jafnaðarmenn munum á komandi kosningavetri gera allt það sem í okkar valdi stendur til að fella núverandi meirihluta rík- isstjórnarflokkanna, skapa ný tækifæri til stjórnarmyndunar, þar sem sjónarmið jafnaðar og jafnréttis verða leidd til öndvegis. Við sækjumst eftir fulltingi lands- manna til að gera það að veru- leika. Við erum tilbúin. Við höfum efni á að útrýma fátækt Gunnar Svavarsson skrifar um velferðarmál » Við höfum vissulegaefni á því og við höf- um alls ekki efni á að gera það ekki. Gunnar Svavarson Höfundur er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.