Morgunblaðið - 30.10.2006, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 30.10.2006, Qupperneq 33
og mamma brunuðum af stað í Borg- arfjörðinn til að vera viðstödd út- skriftina. Þú brostir allan hringinn. Mér eru einnig ofarlega í minni ein jólin þegar þú og amma komuð í Keilufellið. Mér hafði verið gefinn kettlingur og það fyrsta sem hann gerði var að taka ástfóstri við stólinn sem þú sast alltaf í. Ég veit ekki hvort það var neftóbakið eða bara stóllinn. En eftir þetta var eilíf barátta um stólinn og það endaði með því að hann svaf í fanginu hjá þér eftir þetta. Elsku afi, nú er komið að kveðju- stund. Ég veit að nú líður þér vel og eflaust ertu ríðandi um á glæstum fáki. Elsku amma, megi guð vera með þér og leiða þig. Þórhildur María Krist- insdóttir og fjölskylda. Elsku afi, þó að við vitum öll að dauðinn er hluti af lífinu þá er það svo sárt þegar kallið kemur. Ég veit eiginlega ekki hvar byrja skal, því ég á svo mikið af góðum minningum um þig. Ég man þegar ég var í pössun í Ferjuvoginum, allar ferðirnar á öskuhaugana og lestur „krabbabók- arinnar“. Ekki má gleyma því þegar ég var í mat hjá þér og ömmu meðan ég var í Verzlunarskólanum. Allar þessar góðu minningar munu alla tíð lifa með mér. Þín verður sárt saknað. Guðmundur Arnar Óskarsson. Það er komið að kveðjustund. Gísli föðurbróðir minn og vinur er látinn, rétt að verða níræður. Vitað var að hverju stefndi, en þegar stundin er upp runnin fyllist hugurinn söknuði. Það verða þá ekki fleiri samverustundirnar að sinni. Það rifjast upp margra ára samskipti við þau Gísla og Ingu. Yfir þeim öll- um er birta og ylur. Bernskuminningin er Gísli á ferð og flugi um landið þvert og endilangt sem sölumaður fyrir Belgjagerðina. Viðdvölin á Húsavík var yfirleitt ekki löng en andblær glaðværðar og hisp- ursleysis situr eftir. Á þessum ferð- um Gísla kynntist hann fjölda fólks, aðstæðum þess og kjörum, og varð þess vegna síðar uppspretta fróð- leiks um menn og málefni víða að. Þegar ungir menn, frændur norð- an af Húsavík, fóru að venja komur sínar til höfuðstaðarins var heimili þeirra Gísla og Ingu í Ferjuvoginum miðdepill nokkurra daga dvalar. Það var eins og ekkert væri sjálfsagðara. Þangað var gott að koma. Árin liðu og samskiptin þróast í stuttar heimsóknir eða að síminn var notaður. Umræðuefnið var oftast fjölskyldan, stjórnmál og hross. Yf- irleitt hafði maður vit á því að hlusta, því Gísli hafði frá svo mörgu að segja. Ekki spillti frásagnarmátinn, Gísli og mörg systkinanna frá Haugi höfðu til að bera sérstaka hæfileika að þessu leyti. Mönnum lá hátt rómur, kváðu skarpt að og stutt í gamanmál. Gísli var ákaflega ræktarlegur við allan sinn frændgarð. Lét sér annt um stóra sem smáa. Gladdist ef menn voru að standa sig. Gísli var þátttakandi í pólitísku starfi á yngri árum og fylgdist síðan ævinlega vel með, þannig að maður kom þar ekki að tómum kofunum. Hann átti kunningja í öllum stjórn- málaflokkum sem leiddi til þess að hann hafði þannig fleiri sjónarhorn á ýmis mál. Ekki vorum við Gísli sam- herjar í pólitík en þó oftast sammála þegar upp var staðið. Gísli hafði úr föðurhúsum áhuga á hestum eins og þeir fleiri bræður frá Haugi. Faðir þeirra Gísli Brynjólfs- son var kunnur hestamaður í Flóan- um á sinni tíð. Fyrir okkur yngri sem e. t.v. höfum erft þessa tilhneigingu var fróðlegt og skemmtilegt að kynn- ast hestamanninum Gísla Gíslasyni. Ég sendi fyrir mína hönd og fjöl- skyldunnar innilegar samúðarkveðj- ur til Ingu, barna og allra aðstand- enda. Stefán Haraldsson.  Fleiri minningargreinar um Gísla Gíslason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Kristín Hraundal. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 33 ✝ Margrét Á.Jónsdóttir fædd- ist á Ísafirði 11. ágúst 1919. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 24. október síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Jón Albert Þórólfsson kaup- maður á Ísafirði, f. 1. september 1872, d. 18. mars 1933, og Guðbjörg Gísladótt- ir, f. 1. október 1878, d. 8. mars 1972. Margrét var í hópi tólf systkina, átta þeirra komust á legg og er Margrét sú síðasta af þessum systkinahópi sem kveður. Margrét giftist 3. desember 1941 Bjarna Kr. Björnssyni, f. 14. febrúar 1917, d. 26. mars 1992. Börn þeirra eru: 1) Jón Þór, f. 20. febrúar 1943, d. 30. júní 2004. Hann kvæntist Kristbjörgu Jó- hannesdóttur, f. 5. janúar 1941. Börn þeirra eru Gunnar Þór, f. 20. mars 1966, Birna Kristín, f. 19. janúar 1981. Auk þess átti Jón Þór börnin Jóhann Óla, Eystein og Söru. 2) Björn, f. 14. október 1945. Hann kvæntist Árdísi Þórð- ardóttur, f. 6. mars 1948, þau skildu. Synir þeirra eru Bjarni, f. 24. ágúst 1988, og Baldur, f. 1. janúar 1991. 3) Björg Yrsa, f. 28. nóvember 1948. Hún giftist Svend Richter, f. 29. ágúst 1947. Börn þeirra eru Pétur Örn, f. 24. maí 1971, kvæntur Helgu Dröfn Þórarins- dóttur, Margrét Yrsa, f. 22. febrúar 1974, gift Þóri Steinþórssyni, og Guðrún Yrsa, f. 8. september 1981, sambýlismaður Daníel Þórðarson. Lang- ömmubörn Margrétar eru 14. Margrét ólst upp á Ísafirði. Hún fluttist til Reykjavíkur þar sem hún kynntist eiginmanni sínum og bjuggu þau fyrst á Túngötu en síðar á Unnarstíg 6. Þau reistu sér hús í Skipasundi 38, hús sem var flutt af Laufásvegi. Næstu áfangastaðir voru Álfheimar 11 og Langholtsvegur 2. Margrét fluttist 6. janúar 2001 að Hrafn- istu í Hafnarfirði og dvaldi fyrst á dvalarheimilinu, en lengst af á sjúkradeild. Útför Margrétar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku amma. Síðan þú kvaddir okkur hafa margar minningar um þig komið upp í huga minn. Fyrst og fremst hversu góð þú varst við mig. Þú hafðir mjög sterkar skoðanir á öllum hlutum, hvort sem um var ræða þrif, mataræði eða klæðaburð. Mínar fyrstu minningar um þig eru af Langholtsveginum þar sem þú og afi bjugguð með útsýni yfir Viðey sem afi hafði svo mikið dálæti á. Þangað kom ég ósjaldan með móður minni sem sinnti ykkur mikið þegar aldurinn færðist yfir ykkur. Minn- ingar um jólin tengjast þér. Jólaver- tíðin hófst hjá þér í lok sumars og sankaðir þú þá að þér gjöfum handa öllum, hvort sem það var handa skyldmennum eða einfaldlega handa einhverjum sem þú vildir gleðja. Þú hafði svo sannarlega gaman af því að gefa gjafir. Eftir að þú fórst að tapa sjón hlustaðir þú á útvarp dag og nótt, tókst eftir því sem auglýst var og hringdir út um allan bæ til að kaupa gjafir. Ég fékk svo oftar en ekki það hlutverk að pakka inn öllum gjöfunum. Á mínu heimili var til viss mælikvarði á hvort þú værir tilbúin, þegar komið var að því að sækja ykk- ur á aðfangadagskvöld. Mælikvarð- inn fólst í því hvort þú værir komin í sokkabuxurnar. Þá stóð afi yfirleitt tilbúinn á tröppunum meðan þú varst ennþá að ákveða í hvaða fötum skyldi fara. Þetta leiddi til þess að oftar en ekki vorum við í bílnum á leiðinni í Hæðarbyggðina þegar klukkurnar hringdu jólin inn. Þegar ég varð eldri og fékk bíl- próf, fékk ég enn stærra hlutverk hjá þér. Ég átti að koma einu sinni í viku og þrífa. Það var hægara sagt en gert þar sem þér tókst ætíð að plata mig í búðarferð eða á kaffihús svo lítið varð úr þrifum. Þótti mér af- skaplega erfitt að þiggja fyrir það laun en þú tókst ekki annað í mál og bættir alltaf einhverju við fyrir akst- urinn eða eitthvað annað. Þegar ég var 17 ára var ég farin að þekkja all- ar fínustu kvenfataverslanir bæjar- ins. Þú varst alltaf mikil dama og í minningum mínum ertu alltaf í pilsi, blússu, háhæluðum skóm og með stafinn hans afa. Þú áttir líka ófáa hatta og slæður til að vera með við sérstök tilefni. Svo kom að því að þú ,,þurftir“ að fara inn á Hrafnistu, eins og þú orð- aðir það. Þú varst ekki sátt og beiðst með að flytja þangað þar til svo var komið að þú varst við það að missa herbergið. Þrátt fyrir að hafa verið treg til að flytja reyndist þetta þér mikið gæfuspor því þar fór þér að líða mun betur og starfsfólkið reynd- ist þér vel. Það kom þó oftar en einu sinni fyrir að við fengum hringingu um að þú værir að fara heim á Lang- holtsveginn. Þegar við mamma kom- um til þín sastu tilbúin á stólnum með lyklana í hendinni. Þurfti þá ekki meira til en að fara með þig í fatabúð eða á kaffihús til að þú tækir gleði þín á ný. Starfsfólk Hrafnistu og þá sérstaklega starfsfólk deildar 3B reyndist þér mjög vel. Eftir að þú fékkst heilablóðfall fyrir rúmum fimm árum var allt gert til að láta þér líða sem best og reynt var að hafa allt eftir þínu höfði. Hvort sem það fólst í því að leyfa þér að vaka fram á nótt til að hlusta á útvarpið, sofa út á morgnana eða vera í sunnu- dagsfötum á þriðjudögum. Það var ekki fyrr en á síðari árum sem ég sá virkilega hversu vænt þér þótti um hana mömmu. Á tímabili varðst þú alltaf veik þegar mamma fór til útlanda eða út á land og lengi vel fékk ég það hlutverk að heim- sækja þig þegar mamma var í burtu og semja sögur um hversu mikið væri að gera hjá henni. Þá var oft gott að nota ástæður á borð við saumaklúbb eða að mamma væri að passa barnabörnin og ótrúlegt en satt, þá hættir þú að veikjast þegar mamma fór burt. Hjátrúarfull varstu og sást oft á tíðum meira en aðrir, þrátt fyrir slæma sjón. Þegar ég var unglingur og leið ekki sem best fannstu ráð við því, þú keyptir handa mér sérstakan lukkustein sem þú lést blessa. Þessi steinn hefur fylgt mér alla tíð síðan og það merkilega er að þegar ég hóf störf á núverandi vinnustað var ná- kvæmlega eins steinn í skrifborðs- skúfunni. Er það tilviljun? Þegar þú veiktist fyrir mánuði fór ég með steininn sem þú gafst mér upphaf- lega, til þín og viti menn, nokkrum dögum síðar varstu búin að ná þér. Það entist þó ekki, enda var þinn tími kominn þrátt fyrir hetjulega baráttu við örlög þín í mörg ár. Ég veit að ef eitthvað er til í kenningum þínum þá ertu hjá mér núna og munt halda áfram að styðja mig gegnum lífið. Elsku amma, ég mun aldrei geta þakkað þér fyllilega fyrir allt það sem þú hefur gert fyrir mig. Þú sýndir mér meiri umhyggju og ástúð en nokkur getur búist við af einni ömmu. Ég vil enda þessa litlu kveðju mína til þín með ljóði sem Jón úr Vör samdi um þig og gaf þér: Þakka björtu brosin þín, blómstur augna og vara. Þessar gjafir, Magga mín, máttu aldrei spara. Þú átt fjársjóð fólginn í fagri lund og kátri. Aldrei hvíli angurs ský yfir þínum hlátri. Þín, Guðrún Yrsa Richter. Elsku amma Margrét, nú ertu sofnuð svefninum langa. Við Yrsa Rós komum til þín á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir nokkru og kvödd- um þig. Við vorum þó ekki vissar um að þetta yrði síðasta kveðjustundin því fjölskyldan hefur nokkrum sinn- um áður komið í miklum veikindum og kvatt. En þú virtist eiga þér níu líf því þú reist alltaf upp aftur eftir veikindi sem flestir töldu að væru þín síðustu. Lífsvilji þinn hefur kannski verið svona sterkur eða ótti þinn við dauðann mikill. Það var að lokum friður yfir þér þegar þú loks kvaddir þetta líf. Bernskuminningar mínar um þig einkennast af dulúð, spákonum, fjár- sjóðum sem þú áttir um alla íbúð á Langholtsveginum, gjöfum og óbeit þína á orðunum þrif og tiltekt. Síðustu árin hefur lífið fjarað hægt út hjá þér og viðbrögð þín við heimsóknum okkar minnkað. Ég er viss um að þú ert komin á góðan stað, til afa Bjarna sem var skemmtilegur karl og alltof langt er síðan við kvöddum. Jón Þór, minn elskulegur frændi, hefur líka tekið á móti þér á þeim stað sem þið eruð öll nú komin til. Elsku mamma og Guðrún Yrsa, þið hafið hugsað vel um ömmu og votta ég ykkur samúð mína. Elsku amma og nafna mín, hvíl þú í friði. Margrét Yrsa. En handan við fjöllin og handan við áttirnar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur. Inn í frið hans og draum er förinni heitið. (Snorri Hjartarson) Hvíldu þú í friði, elsku amma. Pétur Richter. Fyrrverandi tengdamóðir mín Margrét Á. Jónsdóttir er dáin. Hún lést síðastliðinn þriðjudag eftir lang- varandi erfið veikindi en tiltölulega stutta banalegu. Ég trúi því að hún hafi orðið hvíldinni fegin, elskuleg. Margrét var fædd á Ísafirði og þar ólst hún upp í faðmi fjalla blárra. Hún leit á sig sem Ísfirðing alla tíð og talaði fallega um æsku sína þar og vinina góðu. Hún var dóttir skipa- smiðs og kaupmanns og fjölskyldan bjó við góðan efnahag. Áföll dundu yfir. Hún missti systkini og þyngst hefur vafalaust verið að missa föð- urinn rétt um fermingu. Guðbjörg móðir hennar hélt þó áfram kaup- mennskunni og gat stutt börn sín af meira afli en margur maðurinn. Margrét talaði ávallt af miklum kær- leika um móður sína. Þessi reynsla setti auðvitað sitt mark á Margréti. Lundin var stríð á stundum. Margrét fór suður að læra hatta- saum og vann við það og í verslun þegar hún kynntist Bjarna ástinni sinni. Þau bjuggu í Reykjavík alla tíð. Þegar börnin voru komin upp fór Margrét svo út á vinnumarkaðinn aftur og vann við verslunar- og þjón- ustustörf, seinast hjá Reykjavíkur- borg, hvarvetna afar vel liðin. Margrét reyndist mér alla tíð vel. Um hana á ég góðar minningar og fyrir þær er ég þakklát. Ég fann það svo vel að hún var alltaf að gera sitt besta. Það besta hjá henni Margréti var ekkert venjulega gott því rausn- arleg var hún með afbrigðum hún tengdamóðir mín fyrrverandi. Í hennar augum var sælla að gefa en að þiggja. Margrét ferðaðist töluvert um æv- ina. En hún var svo flughrædd að það hamlaði för. Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að keyra þær Ástu Sig- munds til Ísafjarðar en þar vildi Margrét verða sjötug. Bjarni sonur minn, tæplega ársgamall, fór með og var ömmu sinni mikill gleðigjafi. Yfir Breiðafjörð var siglt á gamla Baldri og komið við á Tálknafirði að hitta skólasystur þeirra vinkvenna. Við dvöldum á Hótel Ísafirði í góðu yf- irlæti enda ekkert til sparað. Suður var svo farið Djúpið. Þetta var eft- irminnileg ferð og góð. Þegar við Björn lukum MBA prófum frá Northwestern University í Chicago fyrir þrjátíu árum buðum við Mar- gréti og Bjarna til okkar og Margrét lét sig hafa það að fljúga. Þar áttum við dásamlega daga. Ég held að henni hafi þótt ánægjulegast að sitja á matsölustöðum og kaffihúsum en af þeim er nóg í borginni. Svo hafði hún alltaf ánægju af því hún Margrét að versla enda kaupmannsdóttir. Þessa för endurgalt Margrét svo ríkulega um aldamótin, eftir að henni tæmdist arfur, og bauð okkur Birni, Bjarna og Baldri í siglingu um Karíbahafið. Það var dýrleg veisla. Hún naut þjónustunnar um borð og leið vel í hitanum. Skömmu eftir þessa för flutti Margrét á dvalarheimilið Hrafnistu í Hafnarfirði og um þrem- ur mánuðum síðar fékk hún áfall, sem varð til þess að hún bjó á sjúkra- deild Hrafnistu og þaðan lagði hún upp í ferðina miklu. Margrét var trú- uð kona, svo áfangastaður þeirrar ferðar var henni alveg ljós. Á Hrafnistu var afbragðsvel um Margréti hugsað og ekki spillti að stutt var í Björgu einkadóttur henn- ar. Vakti það aðdáun mína hve mikið og vel Björg hugsaði um móður sína veika. Margrét hafði mikinn áhuga á fal- legum fötum og var glæsilega til fara þegar hún vildi það við hafa. Hún hafði yndi af því að fara í leikhús og var með fasta miða í leikhús með vin- konu sinni til margra ára. Svo var út- varpið hennar heimilisvinur. Mar- grét fylgdist lengst af vel með þjóðmálum og vildi veg Sjálfstæðis- flokksins sem mestan. Hún var glögg og benti oft á óvænt sjónar- horn á menn og málefni. Margrét var líka ljóðaunnandi og síðustu gleði- stundirnar okkar saman var þegar ég las fyrir hana ljóð á Hrafnistu. Margrét var drengjunum mínum góð, hlý og elskandi amma. Þeir sakna nú ömmu Margrétar. Full af þakklæti kveð ég nú þessa góðu konu og votta Birni, Björgu og öðrum að- standendum samúð mína. Blessuð sé minning Margrétar Á. Jónsdóttur. Árdís Þórðardóttir. Margrét Á. Jónsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, HJÖRLEIFUR INGÓLFSSON sjúkraflutningamaður, frá Vöglum í Vatnsdal, Tjarnargötu 25a, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 28. október. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 2. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Félag langveikra barna. Sigrún Bryndís Gunnarsdóttir Arna Björk Hjörleifsdóttir, Högni Sturluson, Ingvi Þór Hjörleifsson, Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir, Árni Jakob Hjörleifsson, Geirþrúður Ósk Geirsdóttir Halldór Hagalín Hjörleifsson, Ingunn Guðmundsdóttir Larson, Gunnar Brynjólfur Sigurðsson, Ólöf Haraldsdóttir, Sara Björg Pétursdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.