Morgunblaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 36
G
amanleikurinn Stórfengleg eftir Peter Quilter var frumsýndur á föstudagskvöldið
í Þjóðleikhúsinu þar sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir er Florence Foster Jenkins;
ein versta söngkona allra tíma. Fastagestir og fleiri voru mættir: Frú Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti lýðveldisins, var með vini sínum Sveini Ein-
arssyni, fyrrverandi þjóðleikhússtjóra, Friðrik Zophusson, þingmaður, Loftur
Atli Eiríksson, aðstoðarritstjóri á Séð&heyrt, og Karl Steingrímsson, gjarnan kenndur við
Pelsinn, sem var í mjög bleikri skyrtu. Í hléinu notfærði Fluga sér óumdeilanlegan rétt sinn til
hlerana og tyllti sér óséð á öxl Ágústu Evu Erlendsdóttur (Silvíu Nætur) sem greinilega var að
rækta leiklistargyðjuna innra með sér og hafði stór orð um hversu vel hún skemmti sér. Á
frumsýningarkvöldinu voru margir gestir úr leikarastétt eins og Kristbjörg Kjeld, Róbert
Arnfinnsson og Herdís Þorvaldsdóttir. Og auðvitað leikstjórar líka, eins og Ágúst Guðmunds-
son. Fulltrúi sjónvarpsmiðlanna var hins vegar Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarpsins, en
hann var fönkí með rautt bindi. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir, gáfukona og fyrrverandi dóm-
ari úr Gettu betur, var flott í dragsíðum, fjólubláum kjól. Svo sást líka til frú Þóru Hall-
grímsson. Með tilliti til að um frumsýningu var að ræða voru óvenju fáir sjálfstæðismenn á
fremstu bekkjunum enda allir á bólakafi í prófkjöri flokksins. Fluga kann alltaf vel að meta
metnað og baráttugleði en hún var engu að síður orðin mjög pirruð á endalausum símhring-
ingum síðustu daga þar sem óskað var eftir stuðningi dömunnar við hina ýmsu frambjóðendur.
Verstur var samt straumurinn af frambjóðendabæklingum sem fyllti póstkassann í vikunni og
er hin mesta tímaskekkja. Hverjum dettur til hugar að einhver lesi svona dreifipóst á okkar
dögum? Eini tilgangurinn hlýtur að vera að styrkja rekstur auglýsingastofa.
Á laugardaginn var bærinn fullur af borgarbúum á rölti í góða veðrinu og sæta sjónvarps-
konan Nadía Banine var umvafin barnaskara á horni Vesturgötu og Aðalstrætis. Ragnhildur
Sverrisdóttir blaðamaður leyfði líka barninu í sjálfri sér að sprella og valhoppaði eftir Lækj-
argötu með litlu dóttur sinni. Guðrún Hrund Sigurðardóttir, ritstjóri á Gestgjafanum, sat með
kaffibolla yfir blaðalestri á Litla andarunganum með myndarlegum herramanni og þar var
einnig verið að taka viðtal við söngkonuna Lay Low (Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur) sem er
nýjasta og skærasta stjarnan í tónlistarlífinu. Handverk og hönnun hélt stóra sölusýningu á ís-
lensku handverki og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. Flugu rak í rogastans er hún
kíkti þar við á laugardaginn en engu var líkara en um rokk-konsert væri að ræða, slíkur mann-
fjöldi sótti viðburðinn. Töfrandi munir úr leðri, roði, gleri og beinum fönguðu hugann en það
sem vakti mesta athygli undirritaðrar á hannyrðasýningunni var að fyrrnefndur Kalli í Pels-
inum var mættur og var enn í bleiku skyrtunni frá kvöldinu áður. Fluga fékk dreypti á kaffi
latte á kaffihúsi Ráðhússins og horfði dreymin fuglalífið á Tjörninni. Var ekki borgarfulltrúinn
Gísli Marteinn Baldursson annars búinn að lofa að skjóta mávana …? | flugan@mbl.is
Óumdeilanlegur hlerunar-
réttur í samkvæmislífinu
» Frum-
sýning á
Stórfengleg
var í Þjóð-
leikhúsinu.
»Útgáfuteiti
Skjald-
borgar vegna
bókarinnar
Hermikráku-
heimur var í
FÍ-salnum.
Guðmunda Elíasdóttir og Helen Gunnarsdóttir.
Kleopatra Kristbjörg og Gunnar Dal.
Birna Guðmundsdóttir og Beggo.
Fríða Jónsdóttir, Geir Ólafsson og
Ingibjörg Sölvadóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Hildur Pálsdóttir og Nancy Gunnarsdóttir.
Þórunn Guðmundsdóttir Kjeld, Margrét Guðmunds-
dóttir, Sigurbjörg Stefánsdóttir og Kristbjörg Kjeld.
Sigmundur Örn Arngrímsson, Vigdís Finn-
bogadóttir og Sveinn Einarsson.
Lára Ómarsdóttir og Haukur Olavsson.
Morgunblaðið/Eggert
Bjarni Guðjónsson og Anna María Gísladóttir.
Þórunn
Lárusdóttir
og Sigrún
Hjálmtýs-
dóttir.
Sigríður Regína
Valdimarsdóttir og
Regína Berndsen.
Ása Matthíasdóttir, Bryndís Torfadóttir, Sólveig
Hákonardóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Birna Sigurð-
ardóttir og Ragna Fossberg.
Guðbjörg Sigurðardóttir, Gunnar Víðisson,
Ragna Garðarsdóttir, Gestur Einar Jónasson
og Elsa Björnsdóttir.
Morgunblaðið/Ragnhildur Aðalsteinsson
Rúna Alexandersdóttir og
Þorvaldur Ingvarsson.
» Leikfélag Akureyrar frumsýndi Herra Kolbert.
. . . sem greinilega var að rækta
leiklistargyðjuna innra með . . .
|mánudagur|30. 10. 2006| mbl.is
Staðurstund
Atli Bollason gefur nýútkom-
inni plötu trúbadorsins Togga,
Puppy, tvær stjörnur. Hann
segist hafa hlakkað til að
rýna í plötuna en orðið fyrir
vonbrigðum. » 37
plötudómur
„Menn verða ekki sviknir af því
að fara á þessa sýningu, hlæja
að sjálfum sér og hugsa
kannski svolítið um leið.“ María
Kristjánsdóttir er hrifin af
Best í heimi. » 38
leiklist
Um þessar mundir eru liðin 125
ár síðan Nýja Ísland samein-
aðist formlega Manitobafylki í
Kanada. Steinþór Guðbjartsson
fylgdist með menningar-
dagskrá í Nýja Íslandi. » 39
úr vesturheimi
Þrítugustu og þriðju Alþjóðlegu
nútímalistahátíðinni í París
lauk í gær. Hátíðin var æði
skrautleg sem endranær og
voru ungir listamenn
áberandi sem fyrr. » 37
myndlist
Dóttir krókódílaveiðarans
Steve Irwins, Bindi, mun feta í
fótspor föður síns og höndla
hættuleg dýr í sjónvarpsþætti
sem sýndur verður á Discovery
Kids-sjónvarpsstöðinni. » 45
fólk