Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 37
menning
Tilkynning samkvæmt lögum um fjármálaþjónustu og -markaði,
2000 varðandi
Alba Life Limited („Alba“)
og
Britannic Assurance plc („BA“)
og
Britannic Retirement Solutions Limited („BRS“)
og
Britannic Unit Linked Assurance Limited („BULA“)
og
Century Life plc („Century“)
og
Phoenix Life & Pensions Limited („PLP“)
og
Phoenix Life Limited (áður Royal & Sun Alliance Linked Insurances
Limited) („Phoenix“)
Þann 25. júlí 2006 lögðu Alba, BA, BRS, BULA, Century, PLP og Phoenix fram
beiðni um úrskurð við High Court of Justice, Chancery Division, Companies Court, í
Lundúnum samkvæmt 107. kafla laga um fjármálaþjónustu og -markaði 2000
(„Lögin“):
1. Samkvæmt 111. kafla laganna til heimilunar áætlunar („Áætlunin") sem
miðar að því að flytja tryggingastarfsemi sem Alba, BA, BRS, BULA, Century og
PLP hafa haft með höndum til Phoenix; og
2. setja hjálparskilyrði í tengslum við áætlunina í samræmi við 112. kafla laganna.
Hægt er að fá afrit af: (i) bréfi til tryggingartaka, skýringarbæklingi og dreifiriti með
spurningum og svörum og hagnaðarbundnu dreifiriti eftir því sem við á; (ii) skýrslu
um skilmála áætlunarinnar, gerða af óháðum sérfræðingi í samræmi við 109. grein
laganna; og (iii) áætlunarskjalinu gjaldfrjálst með því að hringja í +44 (0) 1564
207057. Þessi skjöl og önnur tengd skjöl, þar með taldar tryggingafræðilegar
skýrslur, eru fáanleg á vefsíðu Phoenix Life Limited, www.phoenixlifegroup.co.uk.
Einnig er hægt að nálgast afrit með því að senda skriflega beiðni til: The Part VII
Department, Forth Marketing Services Limited, 8 John's Place, Leith, Edinburgh,
EH6 7EL.
Beiðnin verður tekin fyrir í Royal Courts of Justice, Strand, London WC2A 2LL þann
6. desember 2006. Hver sá einstaklingur (þar með taldir starfsmenn Alba, BA,
BRS, BULA, Century, PLP eða Phoenix) sem telur sig skaðast af framkvæmd
áætlunarinnar má mæta við réttarhöldin og tjá skoðanir sínar, í eigin persónu eða í
fylgd lögmanns. Hver svo sem þess óskar er beðinn um að láta lögmennina hér að
neðan vita skriflega, ekki síðar en tveimur virkum dögum áður en réttarhöldin
hefjast, og setja fram forsendur andmæla sinna. Hver sá einstaklingur sem
andmælir áætluninni, en ætlar sér ekki að mæta við réttarhöldin, getur tilkynnt slík
áform eða andmæli og ástæður skriflega til lögmannanna sem nefndir eru hér að
neðan, ekki síðar en tveimur virkum dögum áður en réttarhöldin hefjast.
Tilkynning frá Fjármálaeftirlitinu á Íslandi varðandi tilfærsluna var birt í
Lögbirtingarblaðinu þann 31. júlí 2006.
Dagsett 30. október 2006.
Slaughter and May
One Bunhill Row
London EC1Y 8YY
Tilv.: OAW/DZK
Lögmenn Alba, BA, BRS, BULA, Century, PLP og Phoenix
Verið velkomin
á fyrirlestraröð
Umhverfisstofnunar
Fyrirlestur um
„leirhluti og umbúðaefni í snertingu við matvæli“
Fyrirlesari er:
Dr. Grímur Ólafsson, matvælafræðingur á matvælasviði
Umhverfisstofnunar. Sjá nánar á www.ust.is.
Kynnt verður ný reglugerð um leirhluti sem út kom á þessu ári en eitt
meginmarkmið með henni er að hindra flæði þungmálma úr þeim í
matvæli. Einnig verður fjallað um samspil umbúða og matvæla og
rætt um mikilvæg atriði varðandi plast- og pappírsumbúðir.
Allir velkomnir,
heitt á könnunni.
þriðjudaginn 31. október 2006 kl. 15.00-16.00
á 5. hæð Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24,
Reykjavík.
UNGT par býður öðru ungu pari í
mat. Fljótlega kemur í ljós að heim-
ilisfólkið hefur gaman af valdatafls-
leikjum og sálfræðistríði og láta sem
þau hafi myrt samstarfsmann
stúlknanna sér til afþreyingar og
lífsfyllingar og komið líkamsleifum
hans fyrir í kistu í stofunni. Er það
satt eða ekki? Af þessu spinnst at-
burðarás þar sem ofbeldi og ólík-
indalegur húmor eru í brennipunkti
og væri engum greiði gerður ef hún
væri rakin frekar.
Herra Kolbert á sér marga for-
feður og sækir til þeirra ýmis ein-
kenni, atburði og afstöðu. Dauður
maður í kistu vekur upp hugrenn-
ingatengsl við Rope eftir Hitchcock,
bernsk siðblindan á sér forföður í
absúrdistanum Fernando Arrabal
og húmorinn sækir svarta litinn og
sitthvað fleira í smiðju meistara Joe
Orton. Og ekki má gleyma einu leið-
arstefi verksins, upprifjun firrta
kærustuparsins á þeirri vanmetnu
kvikmynd Falling Down, um rang-
skreiðan réttlætisriddara sem fær
nóg af mótlætinu í umferðartepp-
unni einn daginn og leggur upp í
blóði drifið ferðalag. En þau Ralf og
Sara hafa ekki áhuga á innihaldi,
lærdómum eða boðskap. Það eina
sem pirrar þau við framgöngu Mich-
aels Douglass í myndinni (eða per-
sónunnar réttara sagt) er sá drama-
túrgíski tæknifeill að hann var með
óútskýrða byssu í bílnum. Í sjálfu
sér mætti taka Herra Kolbert sömu
tökum og finna því það eitt til for-
áttu að tiltekið bank frá tilteknum
stað sem gegnir lykilhlutverki í flétt-
unni á sér enga rökræna skýringu.
Er galli, nánar tiltekið. En við ætl-
um ekki að stoppa við það.
Byrjum frekar á að segja að sýn-
ingin er frábærlega vel unnin. Leik-
myndin og lýsingin eru rosalega
flottar á sinn klisjulega Innlit-útlit-
hátt, tónlistin sömuleiðis. Allt ferli
og leikaranna í rýminu lipurt og eðli-
legt, gervi, slagsmál og aðrar tækni-
brellur fullkomlega heppnaðar.
Leikararnir hver öðrum öruggari í
rullum sínum og þó þær kalli fæstar
á einlægni eða djúpa innlifun, nema
þá eins og fyrir tilviljun eða sem
markvisst og írónískt stílbragð, þá
verður að taka ofan af fyrir hópnum
fyrir að skila því sem í verkinu býr
svona vel og áreynslulaust.
En hvað býr í verkinu? Ekki eins
mikið og það heldur, myndi vera
stutta svarið frá mér. Til þess er það
of stílfært, persónurnar of einhliða
og löngunin til að skemmta og ganga
fram af áhorfendum of oft í ekilssæt-
inu. Til þess að við höfum eitthvað
gagn af því að sjá venjulegt fólk
missa stjórn á villidýrinu í sér af ein-
skærum lífsleiða þarf fólkið nefni-
lega helst að vera – venjulegt fólk.
Að öðrum kosti er svo sem ekki
meira að sækja þangað um firringu
nútímamannsins en í Tomma og
Jenna. Sjálfsagðir hlutir.
En fyndið er það. Þó það nú væri.
Drepfyndið á köflum. Bæði er nú
alltaf gaman af taumleysi og
óskammfeilni, og svo eru tímasetn-
ingar leikaranna afbragð. Reyndar
væri verkið enn fyndnara ef það
styddist ekki bara við þessi element,
heldur hefði líka sterka fléttu sem
hryggjarstykki. En því er ekki að
heilsa, of oft er eins og það sem
kveikir næsta samtal sé ekki ætlan
eða vilji persónanna heldur þörf
leikskáldsins til að fylla upp í kvöld-
stundina.
Flottur leikur. Og bitastæðasta
hlutverkið kannski það sem á sterk-
asta enduróminn, en ekki hvað. Gísli
Pétur er framúrskarandi sem vit-
granni skapofsamaðurinn með sið-
ferðiskenndina. Guðjón Davíð alger-
lega á heimavelli sem gestgjafinn.
Það sama má segja um Eddu Björgu
og Unni Ösp, þó það sæki nú reynd-
ar að mér sú hugsun að báðar mættu
fara að gæta sín á að festast ekki um
of í kækjum og stílbrögðum, Edda
sem þunna ljóskan og Unnur sem
pósandi tálkvendi. En það hentar
hér og allt í góðu. Ólaf Stein hef ég
ekki séð gera betur en fínlega unnið
hlutverk pizzusendilsins.
Það er engin ástæða til að ætla
annað en að hér hafi Leíkfélag Ak-
ureyrar hitt í mark og eignast
fyndna og hæfilega ögrandi sýningu
sem gaman er að spjalla um í góðra
vina hópi að henni lokinni. Bara ekki
búast við að hún kveiki nýjar hugs-
anir, eða segi ferskan sannleika um
samfélag okkar. Þó hún þykist gera
það. Það er ekki allt sem sýnist á
þessu heimili.
Ef þú hefur ekki drepið
þá hefurðu ekki lifað
Góður leikur „Og bitastæðasta hlutverkið kannski það sem á sterkasta
enduróminn, en ekki hvað. Gísli Pétur er framúrskarandi sem vitgranni
skapofsamaðurinn með siðferðiskenndina.“
LEIKLIST
Leikfélag Akureyrar
Höfundur: David Gieselmann, þýðandi
Bjarni Jónsson. Leikstjóri: Jón Páll Eyj-
ólfsson, leikmynd og búningar: Íris Egg-
ertsdóttir, lýsing: Björn Bergsteinn Guð-
mundsson, tónlist og hljóðmynd: Hallur
Ingólfsson, gervi: Ragna Fossberg.
Leikendur: Edda Björg Eyjólfsdóttir, Gísli
Pétur Hinriksson, Guðjón Davíð Karls-
son, Ólafur Steinn Ingunnarson og Unnur
Ösp Stefánsdóttir.
Samkomuhúsinu á Akureyri 28. október
2006.
HERRA KOLBERT
Þorgeir Tryggvason
Það var með nokkurri eftirvæntingu
sem undirritaður tókst á við að rýna
í nýútkomna frumraun trúbadorsins
Togga, Puppy. Ég hafði heyrt nokk-
ur laganna í útvarpinu og þótti lagið
„Sexy Beast“ gefa sérstaklega góð
fyrirheit. Því miður leiddi nánari
skoðun í ljós að þar rís platan lang-
hæst en gutlar að mestu í djúpum
dölum meðalmennsku þess á milli.
Toggi er með góða rödd sem
minnir óneitanlega á Chris Martin,
söngvara Coldplay. Eins og Chris á
Toggi það til að stökkva í falsettu,
oftast með ágætum árangri. Viðlagið
í einu af betri lögum plötunnar,
„Birthday Boy,“ er til vitnis um
þetta. Laglínan
er búin að bræða
minnst þúsund
grunlaus hjörtu
þegar viðlaginu
lýkur og ekki
spillir fyrir að
textinn tekur á ástarsorg á temmi-
lega væminn máta.
Annars eru textar Togga yfirleitt
yfir meðallagi, í „A Place in My He-
art“ er tekist á við eiturlyfjafíkn ást-
vinar ljóðmælandans, erfiðleikana
sem fíkninni fylgja, en um leið ástina
sem neitar að slokkna. „Kill the
King“ er ástarjátning í frumlegri
kantinum og fyrrnefnt „Sexy Beast“
er skemmtileg og glettin sýn á hvað
þýðir í raun og veru að vera kyn-
tákn: „I know / that beauty leaves a
bruise / I feel your pain.“
Platan fer ágætlega af stað með
laginu „Heart in Line“ sem hefur
verið að gera það gott í útvarpinu, og
er ágætlega að því komið. Ofan-
greint „Birthday Boy“ er einnig
grípandi, en best er „Sexy Beast.“
„Lalalala-kaflinn“ er ótrúlega gríp-
andi, söngurinn skemmtilega
óhreinn (svipað og í „Barfly“ með
Jeff Who?), taktfastur trommuleik-
urinn fær mann til að vagga sér til
og frá í amstri dagsins, og brúin er
vel heppnuð.
Yfirleitt eru laglínurnar þó ein-
faldlega ekki nógu góðar, þeim tekst
ekki að festast í minni og hefð-
bundnum útsetningum plötunnar
tekst engan veginn að fá lögin til að
skera sig úr flórunni sem tröllríður
Bylgjunni og Létt-Bylgjunni svo-
nefndu. Það er helst að ukulele í lag-
inu „Light of Day“ fái mann til að
líta upp, en því er þvælt aftast í
hljóðmyndina þegar algjörlega
óþarfur kassagítarinn bætist við.
Dæmi um þessa vankanta plötunnar
má heyra greinilega í einu slakasta
lagi plötunnar „It’s Over“. Laglínan
situr ekki eftir í manni nema brot úr
augnabliki og sérkennilega hallær-
islegur gospel-kór undir lokin fær
hrollinn til að hríslast niður eftir
bakinu (á neikvæðan hátt).
Röddin er með Togga í liði, en
lagasmíðar eru ekki hans sterka hlið
enn sem komið er. Líklegast væru
kraftar hans best nýttir við flutning
laga eftir aðra í samstarfi við ein-
hvern snjallan útsetjara. Sé mark
takandi á titli plötunnar þurfum við
þó engar áhyggjur að hafa – Toggi á
vafalítið eftir að vaxa enda ekki
nema smáhvolpur í dag.
Þúsund grunlaus hjörtu
TÓNLIST
Geisladiskur
Lög og textar eru eftir Togga sem syngur,
leikur á kassagítar og stöku rafmagns-
gítar. Bjarki leikur á hljómborð, annast
forritun og tekur í bassa, rafmagnsgítar
og ukulele í nokkrum lögum. Don Pedro
hjálpar til við bassa- og rafmagnsgít-
arleik. Birkir leikur á bassa í fjórum lag-
anna. Hjörvar trommar í þremur lögum.
Þórður Halldórsson leikur á selló og Guð-
björg Hlín Guðmundsdóttir á fiðlu í tveim-
ur laganna. Gurrý, Lovísa, Arnbjörg, Hjört-
ur, Bjarki og Toggi sjálfur koma fram þrjú
í senn í líki kórs og drengjakór Breiðholts
syngur í „Sexy Beast.“ Bjarki annaðist
upptökur, Addi 800 hljóðblandaði megn-
ið, en Óskar Páll Sveinsson fyrstu tvö
lögin. Bjarni Bragi hljómjafnaði í Írak. Alli
Metall hannaði umslag. Sena gefur út.
Toggi – Puppy
Atli Bollason
Reuters
Tvo þarf til Alþjóðlegu nútímalistahátíðinni í París, FIAC, var slitið í gær.
Að venju kenndi þar ýmissa og oft óvenjulegra grasa. Hér getur að líta
verkið „Það þarf tvo til“ eftir skoska listamanninn David Mach.