Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 38
38 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
SPUNAVESENIÐ á leikurum sem
hefur verið mann lifandi að drepa
það sem af er liðið þessum vetri í
leikhúsunum tók á sig óvæntan og
gleðilegan viðsnúning á laugardags-
kvöld. María Reyndal framleiðandi
og leikstjóri sýningarinnar Best í
heimi hefur haft sinnu á því að fá til
liðs við sig og spinnandi leikhópinn
leikskáld, Hávar Sigurjónsson, sem
kann að nota orð í leikhúsi. Það er
því góð uppbygging, léttleiki og
áreynslulaus húmor og tragík í
stuttum atriðunum sem dregin eru
upp af þeirri lífsreynslu nokkurra
einstaklinga að taka flugið til Ís-
lands og lenda hér meðal okkar sem
tölum hið ástkæra, ylhýra nokkurn
veginn reiprennandi. Annað merki-
legt er einnig við þetta samstarf að
hér, líkt og átt hefur sér stað hjá
sumum leikhópum í London að und-
anförnu, er leitað í veruleikann,
byggt er á viðtölum við hópa inn-
flytjenda, könnunum, ritgerðum um
aðstæður þeirra hérlendis og að
sjálfsögðu á eigin reynslu leik-
aranna. Og það sem þá gerist í leikn-
um á sviðinu er að þar birtast, sem
sjaldgæft er orðið, raunsannar per-
sónur en ekki eftirlíkingar, eft-
irhermur á frægum sjónvarps-
stjörnum eða bíóstjörnum úr
ameríska iðnaðinum og er leikur
Caroline Dalton sem yfirkeyrð for-
stöðukona á spítala er reynir að
kenna rússneska lækninum (Pierre
Alain Gieraud) hið nýja starf hans
við ræstingar til dæmis ákaflega
gott dæmi um það.
Flugferð heldur utan um reynslu-
sögurnar þrjár, Egill Ingibergsson
og Móeiður Helgadóttir hafa byggt í
þröngu rýminu haganlega upp
„breiðþotu Flugleiða“, til vinstri
sætaröð, gangur fram í salinn, til
hægri rými þar sem með kössum og
söluborði flugfreyja er á örskammri
stund hægt að skapa heimili, skóla,
sjúkrahús o.s.frv. Yfir öllu trónir svo
sjónvarpsskjár þar sem fylgjast má
með ferð flugvélarinnar og „mynd-
titlar“ yfir reynslusögurnar birtast.
Sýningin hefst með grínaktugum
dansi (Lára Stefánsdóttir) flug-
freyja og flugmanns, sjálfumglatt,
glaðbeitt Ísland „þar sem nátt-
úruperlur eru margar“ býður gesti í
vél og sal velkomin og byggir upp
léttan háðskan gegnumgangandi
taktinn sem studdur er vel af tónlist
Þorkels Hreiðarssonar.
Ég hafði kviðið að þurfa að hlusta
á menn bögglast á íslensku því póli-
tísk rétthugsun mín er nokkuð á
reiki á því sviði svo sem öðrum. En
ótti minn var ástæðulaus. Þessir
ágætu leikarar tala góða íslensku og
þar sem áherslur eru ekki alveg kór-
réttar skapast skemmtileg fjarlægð
á það sem gerist á sviðinu. Öll leika
þau mörg hlutverk og María Reyn-
dal hefur skipað hyggilega í hlut-
verkin. Pierre-Alain Giraud er eft-
irminnilegur sem skoplegur
belgískur flugfarþegi er reynir að
tala íslensku við flugfreyjuna og
varnarlaus rússneskur læknir sem
ekki skilur orð af því sem yfirmað-
urinn segir. Dimitra Drakopoulou
dregur upp viðkvæma mynd af Kim,
austurlenskri stúlku , fórnarlambi
íslenskrar sérgæsku og fordóma.
Tuna Metya er afskaplega sannfær-
andi íslenskur unglingur. Og Car-
oline Dalton bregður sér með eleg-
ans úr og í hlutverk úrvinda
forstöðukonu, smáborgaralegrar að-
þrengdrar fordómafullrar íslenskrar
móður og glæsilegrar flugfreyju. Sú
hefur skemmtilega sýn á okkur Ís-
lendinga!
Menn verða ekki sviknir af því að
fara á þessa sýningu, hlæja að sjálf-
um sér og hugsa kannski svolítið um
leið. Það gefast ekki alltof mörg
tækifæri til þess.
Horft á Ísland innan frá og utan
LEIKLIST
Rauði þráðurinn
eftir Hávar Sigurjónsson, Maríu Reyndal
og leikhópinn. Leikstjóri: María Reyndal.
Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir. Leik-
myndar- og ljósahönnun: Egill Ingibergs-
son og Móeiður Helgadóttir. Búningar:
Dýrleif Ýr Örlygsdóttir og Margrét Ein-
arsdóttir. Tónlist og hljóðmynd: Þorkell
Hreiðarsson. Raddir í flugvél: Gunnar
Hansson. Leikarar: Caroline Dalton, Tuna
Metya, Pierre-Alain Giraud og Dimitra
Drakopoulou. Iðnó, laugardaginn 28.
október kl. 20.
Best í heimi
María Kristjánsdóttir
Morgunblaðið/ÞÖK
Góð „Menn verða ekki sviknir af því að fara á þessa sýningu, hlæja að sjálfum sér og hugsa kannski svolítið um leið.“
ÞAÐ bókstaflega neistaði og rúm-
lega það af Bill Kaulitz, söngvara
þýsku popphljómsveitarinnar To-
kio Hotel, á hátíð sem haldin var
í Hamburg í síðustu viku í tilefni
þess að fimmtíu ár eru liðin frá
því að byrjað var að gefa út ung-
lingatímaritið BRAVO.
Reuters
Funheitur
Sun 19/11 kl. 14
Sun 26/11 kl. 14
Fös 3/11 kl. 20 Fim 9/11 kl. 20
Fös 10/11 kl. 20 Fim 16/11 kl. 20
Sun 5/11 kl. 20 Lau 11/11 kl. 20
Fös 17/11 kl. 20 Fös 24/11 kl. 20
Fös 3/11 kl. 20
Fös 10/11 kl. 20
Sun 19/11 kl. 20
Aðeins þessar sýningar.
Lau 4/11 kl. 20 Sun 5/11 kl. 20
Lau 11/11 kl. 20 Sun 12/11 kl. 20
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELWW AG.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Síðasta vika kortasölunnar!
Herra Kolbert – forsala í fullum gangi!
Fim 2. nóv kl. 20 UPPSELT – 3 .kortasýn
Fös 3. nóv kl. 19 örfá sæti – 4. kortasýn
Lau 4. nóv kl. 19 UPPSELT – 5. kortasýn
Fim 9. nóv kl. 20 örfá sæti – 6. kortasýn
Fös 10. nóv kl. 19 UPPSELT - 7. kortasýn
Lau 11. nóv kl. 19 UPPSELT - 8. kortasýn
Næstu sýn: 16/11, 17/11, 18/11
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Lau 4. nóv kl. 14 Aukasýning – í sölu núna
Sun 5. nóv kl. 14 UPPSELT
Sun 5. nóv kl. 15 UPPSELT
Sun 5. nóv kl. 16 Aukasýning – í sölu núna
Sun 12.nóv kl. 14 örfá sæti laus
Sun 12. nóv kl. 15
Næstu sýn: 19/11, 26/11
STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:00
Þjóðleikhúsið fyrir alla!
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
STÓRFENGLEG eftir Peter Quilter
4. sýn. lau. 4/11 örfá sæti laus, 5. sýn. sun. 5/11 örfá sæti laus, 6. sýn. lau. 11/11 örfá
sæti laus, 7. sýn. sun. 12/11 örfá sæti laus, 8. sýn. lau. 18/11 örfá sæti laus.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Sun. 5/11 kl. 14:00 uppselt, lau. 11/11 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 12/11 kl. 14:00
örfá sæti laus, lau. 18/11 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 19/11 kl. 14:00 uppselt, fös. 29/12
kl. 20:00, lau. 30/12 kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 14:00.
PÉTUR GAUTUR eftir Henrik Ibsen. Leikgerð Baltasar Kormákur.
Fim. 2/11 örfá sæti laus, fös. 3/11 örfá sæti laus, fim. 9/11 uppselt, fös. 10/11 örfá
sæti laus, fim 16/11, fös. 17.11.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ aðalbyggingu Lindargötumegin, kl. 20:00
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur.
Lau. 4/11 kl. 11:00 uppselt og kl. 12:15 uppselt, sun. 5/11 kl. 11:00 uppselt og kl. 12:15
uppselt, lau. 11/11 kl. 11:00 uppselt og kl. 12:15 uppselt, sun. 12/11 kl. 11:00 uppselt
og kl. 12:15 uppselt.
LEIKHÚSLOFTIÐ aðalbyggingu, kl. 11:00 og 12:15
UMBREYTING – brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik.
Lau. 4/11 örfá sæti laus, sun. 5/11 kl. 17:00, sun. 12/11 kl. 17:00.
KÚLAN Lindargötu 7, kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Lau. 4/11, sun. 5/11, fös. 10/11 örfá sæti laus.
Gjafakort í Þjóðleikhúsið
opnar ævintýraheim!
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
ATH! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Strengjaleikhúsið í samvinnu við íslensku óperuna
SKUGGALEIKUR
Ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Sjón og Messíönu Tómasdóttur
Frumsýning 18. nóvember kl. 20
2. sýning 25. nóvember kl. 20
3. sýning 2. desember kl. 20
ATH! AÐEINS ÞESSAR ÞRJÁR SÝNINGAR STRENGJALEIKHÚSIÐ
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
ÞRIÐJUDAGINN 31. OKTÓBER KL. 19.30
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Olli Mustonen
Ludwig van Beethoven ::: Píanókonsert nr. 1
Ludwig van Beethoven ::: Píanókonsert nr. 2
Johannes Brahms ::: Sinfónía nr. 3
FIMMTUDAGINN 2. NÓVEMBER KL.19.30 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einleikari ::: Víkingur Ólafsson
Ludwig van Beethoven ::: Píanókonsert nr. 3
Johannes Brahms ::: Sinfónía nr. 4
Fáðu úrslitin
send í símann þinn