Morgunblaðið - 30.10.2006, Page 44
44 MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Enn um tilvísanakerfi
hjartasjúklinga
NÚ ER ég búinn að prófa tilvísana-
kerfið og það virkar bara skolli vel.
Héraðslæknirinn minn gaf mér
umyrðalaust tilvísun, svo að ég þarf
ekki að kvarta til landlæknis. Ég
borgaði bara 700 kr. fyrir viðtalið og
þurfti ekkert að greiða sérstaklega
fyrir tilvísunina. Það hefur enginn
getað sagt mér hver er raunkostn-
aður þessa viðtals, en ég þykist vita
að þessar 700 kr. séu ekki raun-
kostnaður.
Ég greiddi 5.830 kr. fyrir viðtalið
hjá hjartalækninum og af þeirri upp-
hæð endurgreiddi Tryggingastofnun
1.878 kr. Ef ég hefði ekki átt annað
erindi til heimilislæknisins en að
sækja tilvísunina hefði ég aðeins
haldið eftir 1.178 kr. af endurgreiðsl-
unni.
Þar sem einungis ein kvörtun hef-
ur borist til landlæknis geri ég ráð
fyrir að það sé fátítt að heimilis-
læknar neiti sjúklingum um tilvísun.
Hvernig væri að sleppa þessum
millilið og leyfa okkur að framvísa
reikningnum án tilvísunar? Þannig
mundi sparast fyrirhöfn af heim-
sókninni til heimilislæknis og niður-
greiðslur vegna hennar.
Í mínu tilfelli er ferðakostnaður
vegna heimsóknar til sérfræðings í
Reykjavík u.þ.b. kr. 4.000 (rútufar-
gjöld fram og til baka kr. 1.600 og
tveir leigubílar kr. 2.400). Þess
vegna datt mér í hug hvort hægt
væri að sækja um ferðastyrk frá
Tryggingastofnun. Þá komst ég að
því að sérfræðingurinn hefur ekki
heimild til að gefa út ferðavottorð,
það fæst aðeins hjá heimilislækni.
Auk þess að greiða heimsóknar-
gjald, kr. 700, þarf að greiða sér-
staklega fyrir vottorðið (kr. 700 eftir
því sem ég kemst næst). Mér þykir
ólíklegt að heimilislæknirinn fari að
votta ferð sem ekki hefur verið farin,
svo það ætti ekki að vera hægt að fá
ferðavottorðið um leið og tilvísunin
er sótt. Það er ólíklegt að veittur sé
ferðastyrkur vegna einstakrar ferð-
ar. Enda óhagkvæmt að sækja um
hann, vegna þess að kostnaður við
öflun vottorðs er kr. 1.400 en mögu-
legur styrkur fyrir ferð Hveragerði
– Reykjavík – Hveragerði er u.þ.b.
1.300 krónur.
Þótt menn geisli sig milli staða í
STAR-TREK er það ferðamáti sem
stendur okkur sjúklingum ekki til
boða. Þess vegna þykja mér þessar
reglur um ferðavottorð fáránlegar.
E.t.v. mætti gera læknaþjónustuna
skilvirkari með því að létta af henni
óþarfri skriffinnsku.
Ég geri ráð fyrir að hjartasjúkl-
ingar sem stunda fulla vinnu sleppi
því að fá sér tilvísun, sem skilar
þeim 1.178 kr. frá Tryggingastofn-
un. Með því að taka upp 700 kr. gjald
fyrir tilvísunina, svo að eftir stæðu
aðeins 478 kr., væri hægt að fæla
okkur hina líka frá kerfinu og þannig
mætti spara ómældar upphæðir.
Þórhallur Hróðmarsson,
Bjarkarheiði 19, Hveragerði.
Misjöfn þjónusta
SÍÐASTA Sunnudag fór ég í Smára-
lind,byrjaði að fara til Dressmann og
þurfti að fá mér jakkaföt. Þar var
stúlkan sem náði fyrir mig í jakkaföt
en þau virkuðu eins og fermingarföt
á mér. Þjónustan þar var engin.
Benti hún mér á aðra verslun, en þar
voru aðeins föt fyrir tröllvaxta. Síð-
an fór ég í Herra Garðinn. Þar var
unglingur sem var illa brugðið er
hann sá mig og spurði sinn yfirmann
hvort til væru föt á mig. Svarið var
bara nei. Hann bað mig að prófa
Herra Garðinn í Kringlunni fór ég
þanngað á mánudeginum. Þar fékk
ég að mátta jakka sem var eins og
fermingafötin mín voru í gamladaga.
Verslunarstjórinn sagði mér að
hann hætti von á sendingum frá
Þýskarlandi. Eftir tvö daga hringdi
hann í mig og sagði að sendingin
væri komin, buxurnar pössuð á mig
en ekki jakkinn, og ég fór fýluferð.
Ég hringdi í verslunina Herrafata-
verslun Birgis og spurði hvort þeirr
ættu jakkaföt í öllum stærðum.
Þanngað fór ég þar fékk ég þau fal-
legustu jakkaföt sem ég hef eignast
og þjónustan var frábær.
Ég mun ekki fara meir í Dress-
mann eða Herra Garðinn, þar
skortir bæði lipurð og mannleg sam-
skpti.
Hafliði Helgason.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Þá eru hvalveiðarhafnar aftur eftir
17 ára hlé og eins og
við var að búast, eru
skoðanir á þeim dálítið
skiptar. Víkverji er
gamall hvalveiði-
maður, var háseti eitt
sumar á Hval 8, og
minnist þess með mik-
illi ánægju. Vinnan var
ágæt, fólst aðallega í
því að vera uppi í
tunnu og skima eftir
hval og láta vita hvar
hann kæmi upp undir
lok eltingarleiksins.
Hvalveiðar eru mjög
spennandi veiðiskapur
og ekki spilltu launin. Þau voru tölu-
vert betri en gekk og gerðist hér áð-
ur en á móti kom, að allt sumarið var
ein allsherjarkappsigling og aldrei
stoppað.
Ekki þarf að spyrja að því, að Vík-
verji var ekki ánægður með hval-
veiðibannið á sínum tíma og hann
hefur hneykslast mikið í gegnum tíð-
ina á alls konar firrum um hvali og
hvalveiðar, sem útlendingar ýmsir
hafa haldið fram. Að sjálfsögðu ber
okkur að stunda ábyrgar og sjálf-
bærar veiðar og til að meta það vant-
ar okkur ekki hina ágætustu vís-
indamenn.
Þrátt fyrir það, sem hér hefur ver-
ið sagt, þá er það nú einu sinni svo,
að tímarnir breytast og
mennirnir með. Það,
sem áður þótti góð lat-
ína, er það kannski ekki
lengur vegna þess, að
forsendurnar hafa
breyst.
x x x
Langt er um liðiðsíðan Víkverji
heyrði því haldið fram,
að á sínum tíma hefði
Hvalur hf. vegið jafn-
þungt í íslensku at-
vinnulífi og General
Motors í því banda-
ríska. Ekki selur Vík-
verji það dýrara en
hann keypti en það kom fram í
Morgunblaðinu fyrir skemmstu, að
þegar hvalveiðar voru stundaðar hér
af fullum krafti, hefðu afurðirnar
svarað til 2% af útfluttum sjávar-
afurðum.
Um þetta munaði á sínum tíma en
hvert skyldi hlutfallið geta orðið nú
fyrir nokkra hvali, sem enginn hvort
unnt er að selja? Já, jafnvel þótt
jafnmikið væri veitt og áður og allt
seldist? Núll komma núll eitthvað?
Sem sagt, efnahagslegu hagsmun-
irnir eru hverfandi. Víkverji getur
því miður ekki komist að annarri
niðurstöðu en þeirri, að í þessu máli
hafi skynsemin orðið að láta í minni
pokann.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er mánudagur
30. október, 303. dagur
ársins 2006
Orð dagsins: „Á þeim degi munuð þér skilja, að ég
er í föður mínum og þér í mér og ég í yður.“
(Jóh. 14, 20.)
WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919
Varðveit líf mitt fyrir
ógnum óvinarinsKVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
MÝRIN kl. 5:50 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára.
WORLD TRADE CENTER kl. 8 - 10:30 B.i. 12.ára
THE QUEEN kl. 5:50 - 8 B.i. 12.ára.
THE DEPARTED kl. 6 - 9 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 10:10 B.i.12.ára.
LES MAUVAIS JOUEURS (HINIR TAPSÁRU) kl. 8 B.i.12.ára.
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
BESTA MYND MARTINS
SCORSESE TIL ÞESSA
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR
HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
eeee
H.S. – Morgunblaðið
eeee
DV
Mogga á mánudögumBíó í bíófyrir2 1 sjá miða framan á morgunblaðinu í dag gildir ekki á mýrina*
LES MAUVAIS JOUEURS
HINIR TAPSÁRU
ÖRFÁAR SÝNINGAR
„THE DEPARTED ER EÐAL
GLÆPAMYND EINS OG ÞÆR
GERAST BESTAR OG ER ENN EIN
RÓSIN Í HNAPPAGAT SCORSESES.“
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
Einn af ritstjórum tónlistar-tímaritsins Rolling Stone,
David Fricke, heimsótti Iceland
Airwaves-tónlistarhátíðina í ár og
segist vera hæstánægður með þá
listamenn sem hann nefnir í grein
sinni „Rolling Stone Goes Native at
Airwaves Music Fest“, þ.e. Reykja-
vík!, Diktu, Mugison, Ghostdigital,
Skakkamanage og Jakobínarínu.
Þá segir hann að tónleikar Jóhanns
Jóhanssonar í Fríkirkjunni hafi
verið einn af hápunktum ferðar-
innar.
Fólk folk@mbl.is
Miðar í stúku á afmælistónleikaSykurmolanna í Laugardals-
höllinni föstudaginn 17. nóvember
nk. seldust upp á hálftíma. Tilefni
tónleikanna er að tuttugu ár eru lið-
in frá því að smáskífa Sykurmolanna
með laginu „Ammæli“ kom út en
hljómsveitin hefur ekki komið full-
skipuð fram á tónleikum síðan 18.
nóvember 1992.
Starfsfólkhins gerð-
arlega Holly-
wood-stórleik-
ara Brad Pitt
heldur því fram
að sjónvarps-
þáttastjórnandi
nokkur og
upptökumaður
á hans vegum
hafi vanvirt friðhelgi heimilis leik-
arans í leyfisleysi þegar Pitt og
fjölskylda hans voru fjarverandi.
Þáttastjórnandinn og töku-
maðurinn störfuðu fyrir E!-sjón-
varpsstöðina en hefur verið sagt
upp, samkvæmt yfirlýsingu frá
stöðinni.