Morgunblaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RÚM Í ÚRVALI OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18 Komið og gerið góð kaup Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40 Hjónarúm Barnarúm Unglingarúm UNGMENNAFÉLAG Íslands áformar að reisa nýjar höfuðstöðvar á lóðinni við Tryggvagötu 13 í mið- borg Reykjavíkur, en samþykkt var á borgarráðsfundi í gær að félagið fengi að byggja á lóðinni. Sæmund- ur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, segir að um þrjú ár séu liðin frá því að sú hugmynd kom upp inn- an félagsins að byggja nýjar höf- uðstöðvar. „Samtökin verða eitt hundrað ára á næsta ári og við höf- um áhuga á því að byggja æsku- lýðs- og menningarhús,“ segir hann. Vonir standi til þess að hægt verði að taka húsið í notkun vorið 2008. Sæmundur segir að hugmyndin að nýja húsinu eigi sér að hluta til danska fyrirmynd en systursamtök UMFÍ í Danmörku hafi fyrir um tíu árum reist slíkt hús í Kaupmanna- höfn. Þar hafi þótt takast sérlega vel til og nú sé í bígerð að byggja fleiri slík í fimm öðrum borgum Danmerkur. Hugmynd að fyrirhug- aðri byggingu UMFÍ í Reykjavík hafi verið viðruð við fyrrum borg- arstjórnarmeirihluta, en ekkert hafi komið út úr því. Nýja borgarmeiri- hlutanum hafi hins vegar litist vel á hugmyndina og hafi ákveðið að út- hluta UMFÍ lóðinni við Tryggva- götu. Spurður um hvers vegna mið- borgin hafi orðið fyrir valinu segir Sæmundur að UMFÍ vilji að nýja æskulýðshúsið verði „hús fólksins“. Við viljum að þarna verði mikið líf og almenningur á að geta notið þarna ýmissa hluta líka,“ segir Sæ- mundur og nefnir tafl og dans sem dæmi. Gistiaðstaða fyrir íþróttafólk Sæmundur segir að í nýja húsinu sé ráðgert að verði þjónustumiðstöð UMFÍ, en félagið er nú til húsa í Fellsmúla. Þá verði í húsinu rekin gistiaðstaða fyrir íþróttafólk af landsbyggðinni sem sæki höf- uðborgina heim vegna keppni og æfinga. „Samkvæmt fyrstu drögum að teikningum er líka gert ráð fyrir lítilli sundlaug og fjölnota íþrótta- sölum sem einnig má nota sem fundarsali og fyrir leikfélög utan af landi.“ Teiknistofan ARK-þing hefur unnið tillögu að nýja húsinu og seg- ir Sæmundur það ósk UMFÍ að húsið verði mjög opið svo starfsem- in verði sýnileg. Að hluta til verði opið milli hæða í nýja húsinu. Hann segir að nýja húsið muni breyta miklu fyrir UMFÍ. Vissulega verði dýrt að reisa það en samtökin séu búin að kanna fjármögnun og þau mál líti vel út. Borgarráð veitir UMFÍ lóð við Tryggvagötu til byggingar nýrra höfuðstöðva Æskulýðs- og menning- arhús rísi UMFÍ í miðborgina Samtökin vilja að í nýja húsinu verði mikið líf og að al- menningur geti sótt þangað og notið ýmissa hluta, eins og tafls og dans. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýbygging UMFÍ Teiknistofan ARK-þing ehf. hefur unnið tillögu að nýja húsinu á lóð við Tryggvagötu 13, en það á að verða mjög opið. Ljósmynd/ARK-þing FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar í Reykjavík leggur sérstaka áherslu á e-töflur um þessar mundir í kjölfar atburðanna um síðustu helgi þegar stúlka lést og tveir ungir piltar veiktust eftir að hafa innbyrt eitur- lyfið. Á þriðjudag var karlmaður á fertugsaldri tekinn með fimmtán töflur. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni- efnadeildarinnar, segir lögregluna vera að skoða þessi mál og að hún vilji reyna að gera það eins vel og mögulegt er. Maðurinn sem tekinn var með e-töflurnar hafði einnig í fórum sínum um þrjátíu grömm af amfetamíni og var honum sleppt að lokinni skýrslutöku. Hann hafði áður komið við sögu lögreglunnar. Töflurnar voru sendar til efna- greiningar og er verið að bíða nið- urstöðu hennar. „Við óskuðum eftir því að fá þetta í flýtigreiningu en þetta er samt spurning um einhverja daga,“ segir Ásgeir. Hann segir yf- irheyrslum yfir drengjunum lokið en getur engar upplýsingar gefið um hvort þær hafi borið árangur. Áhersla lögð á að finna e-töflur Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is SKULDIR Landspítala – háskóla- sjúkrahúss (LSH) við heildsala vegna kaupa á lyfjum og hjúkrunar- vörum nema á bilinu 500-600 millj- ónum króna á hverjum tíma. Áætla má að vegna þessarra skulda greiði spítalinn um 50 milljónir króna á ári í dráttarvexti. Morgunblaðið hefur undir hönd- um bréf sem Fé- lag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) sendi forstjóra LSH, fjár- málaráðherra og heilbrigðisráð- herra vegna málsins þann 28. sept- ember sl. Í bréfunum kemur fram að í óformlegri könnun sem gerð hafi verið, í vikunni sem bréfið var sent, hafi gjaldfallnar skuldir LSH við að- ildarfyrirtæki FÍS sem selja lyf og hjúkrunarvörur numið 588 milljón- um króna, og sé sú upphæð farin að bera dráttarvexti. Bréfum FÍS ekki svarað Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri FÍS, segir að félagið hafi engin svör fengið frá ráðherr- unum tveimur eða forstjóra LSH. Málið hafi einnig verið rætt á fundi með fjármálaráðherra í lok október en hann hafi aðeins hlýtt á málflutn- ing félagsins en ekki gefið nein svör. Að lokum hafi verið óskað eftir fundi með Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis- ráðherra vegna málsins, fyrir um tveimur vikum síðan, en hann hafi ekki fengið svar við því erindi. Hann segir að ákveðið hafi verið að gefa stjórnvöldum tækifæri til að grípa til aðgerða með því að senda umrædd bréf, en það hafi ekki skilað tilætluðum árangri. „Gjaldfallin vanskil Landspítala – háskólasjúkrahúss við lyfja- og hjúkrunarfyrirtæki eru að jafnaði á bilinu 500–600 milljónir króna,“ seg- ir Andrés. Um sé að ræða u.þ.b. sex lyfjafyrirtæki og í það minnsta ann- an eins fjölda sem selji hjúkrunar- og rekstrarvörur. Veltan sé þó ákaf- lega misjöfn, og lang mest hjá lyfja- fyrirtækjunum. Andrés segir, að ætla megi að rík- ið þurfi að greiða um 50 milljónir króna í dráttarvexti vegna skulda við lyfja- og hjúkrunarfyrirtæki á ári hverju. Það sé þó ekki nákvæm tala heldur áætlun miðað við skulda- stöðu. Skv. bráðabirgðauppgjöri LSH fyrir fyrstu 10 mánuði ársins 2006 námu dráttarvaxtagreiðslur samtals 58 milljónum króna á þeim tíma. Andrés segir þau aðildarfélög FÍS sem málið varði, hafi haft samband við félagið og lýst áhyggjum af þessu ástandi og segir að staðan í dag sé orðin svipuð og sumarið 2002, áður en gert var átak til að greiða upp skuldir LSH við birgja. Gengur ekki að einkafyrirtæki fjármagni reksturinn „Það er ekki með nokkru móti hægt að ætlast til þess að einkafyr- irtæki, í hvaða grein sem er, fjár- magni rekstur opinbers fyrirtækis sem á í rekstrarerfiðleikum,“ segir Andrés. Hann bendir á að hið op- inbera gefi einkafyrirtækjum engan grið ef ekki sé staðið í skilum með opinber gjöld. Opinber fyrirtæki verði að gegna sömu skyldum. „Það er ekkert í fjárlagafrum- varpinu og ekkert í frumvarpi til fjáraukalaga sem bendir til þess að það eigi að koma einhver innspýting inn í þetta kerfi til að laga rekstur spítalans. Við skynjum það svo að stjórnendur spítalans séu að bíða eftir að eitthvað gerist í kjölfar þess að við ýtum málinu af stað,“ segir Andrés. Hann segir þessa skuldastöðu LSH við heildsala afar bagalegar, heildsalarnir þurfi að greiða erlend- um birgjum fyrir vörurnar og vel- vild bankanna sé þanin til hins ýtr- asta. LSH skuldar heildsöl- um 500–600 milljónir Ráðherrar og forstjóri spítalans svara ekki bréfum FÍS Í HNOTSKURN »Í lok september skuldaðiLSH birgjum um 588 millj- ónir. Rekstrarhalli LSH var 707 milljónir á fyrstu átta mánuðum ársins. »FÍS áætlar að ríkið greiðium 50 milljónir á ári í dráttarvexti vegna skulda LSH við heildsala á sviði lyfja og hjúkrunarvara. »Kostnaður við hvern legu-dag sjúklings á LSH er á bilinu 30–40 þúsund krónur. 50 milljónir króna myndu því duga fyrir um 1.250 legudög- um á spítalanum. Andrés Magnússon HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm héraðsdóms Suðurlands um að Ísfélagi Vestmannaeyja beri að greiða háseta á loðnuskipi félagsins skaðabætur vegna slyss sem hann varð fyrir í mars árið 2001. Hæsti- réttur lækkaði þó bæturnar um 400 þúsund krónur, úr tæpum 16,9 millj- ónum króna í tæpar 16,5 milljónir. Fram kom í málinu að margoft hefði verið kvartað undan hávaða um borð án þess að úrbætur væru gerð- ar. Voru vinnuaðstæður stefnanda mjög hættulegar og brýnt að tafar- laust hefði verið hægt að ná til neyð- arrofa. Stefnandi þurfti að treysta á vinnufélaga sína til að slá út rofann þegar hann festi hönd sína í nótinni og dróst inn undir. Þrátt fyrir köll stefnanda tókst honum ekki að gera vart við sig og voru honum því allar bjargir bannaðar, hann náði ekki sjálfur til rofans, skipstjórinn var úr sjónlínu og vinnufélagar hans heyrðu ekki í honum. Talið var að þessar vinnuaðstæður hefðu verið al- gjörlega óviðunandi og stórhættu- legar. Stefnandi hlaut alvarlega áverka á hægri handlegg og brot á upphandlegg. Varanlegur miski var talinn vera 20% og varanleg örorka 30%. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Ingibjörg Benediktsdóttir, Hjördís Hákonardóttir og Jón Stein- ar Gunnlaugsson. Björgvin Þor- steinsson hrl. sótti málið en Guð- mundur Pétursson hrl. varði Ísfélag Vestmannaeyja. 16,5 millj- ónir króna í bætur Heyrðu ekki hrópin vegna mikils hávaða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.