Morgunblaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 27
AKUREYRI
Verkefni
næstu
ríkisstjórnar
Hádegisfundur með
Össuri Skarphéðinssyni
á Sólon, í dag.
Prófkjör Samfylkingarinnar í
Reykjavík er haldið á morgun
laugardaginn 11. nóvember, í
Þróttarheimilinu frá kl. 10 til 18.
Össur Skarphéðinsson hefur
gefið kost á sér í 2.-3. sæti.
Össur áfram til forystu
MAGNAÐUR KVEÐSKAPUR!
Eyfirsk
skemmtiljóð
koma öllum í
gott skap.
GLÆSILEG viðbygging við hjúkr-
unar- og dvalarheimilið Hlíð var vígð
í gær við hátíðlega athöfn. Í bygg-
ingunni eru 60 einstaklingsherbergi,
eldhús, matsalur og búningsaðstaða
fyrir starfsfólk, og segja for-
ráðamenn Akureyrarbæjar að að-
staða í nýja húsinu verði með því
besta sem gerist í landinu.
Byggingin er um 4.000 fermetrar
og þegar hún er tekin í notkun verða
þau tímamót að einbýli stendur öll-
um íbúum Hlíðar til boða. Elsti hluti
heimilisins leggst nú af svo og starf-
semin í Skjaldarvík.
Heildarkostnaður við bygginguna
verður hátt í 900 milljónir króna.
Skipting kostnaðar samkvæmt
samningi milli heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytis og Akureyr-
arbæjar er þannig að ríkissjóður
greiðir 30%, Framkvæmdasjóður
aldraðra 40% og Akureyrarbær
30%.
Fram kom við athöfnina í gær að
áhugi bæjarbúa fyrir nýbyggingunni
væri mikill og á opnu húsi síðastlið-
inn laugardag hefðu um 1.000 manns
komið til þess að líta á aðstöðuna.
Voru menn á einu máli um að vel
hefði tekist til og byggingin væri
rúmgóð, björt og heimilisleg.
Tréverk ehf. á Dalvík var að-
alverktakti en ráðgjafar Arkitekt-
ur.is, VST hf. og Teikn á lofti.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ánægja Heimilisfólk og gestir lýstu ánægju með nýja húsið en kunnu ekki síður að meta söng Óskars Péturssonar, sem hér var að syngja Hamraborgina.
Nýbyggingin við Hlíð vígð
Sagan Verkalýðsforkólfarnir Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Eggert Jónsson
og Björn Snæbjörnsson skoða gamlar myndir sem verkalýðsfélög gáfu.
Í HNOTSKURN
»Jón Kristjánsson heilbrigð-isráðherra tók fyrstu skóflu-
stunguna 28. apríl 2005.
»Björn Friðþjófsson, fram-kvæmdastjóri Tréverks, seg-
ir að 27 manns hafi að meðaltali
verið við störf í byggingunni alla
daga síðan hafist var handa.
ÁHUGAHÓPUR um stjórnmál, sem
vill Akureyri og Akureyringum vel,
opnaði vefsíðuna pollurinn.net í
gær. Þar verða birtar greinar um
málefni líðandi stundar, landsmálin
eða heimsmálin eftir atvikum, sjón-
armið Akureyringa verða jafnan
höfð í öndvegi en hópurinn telur
allt of algengt að umræða hérlendis
fari fram af sjónarhóli höfuðborg-
arsvæðisins. Í hópnum er fólk úr
öllum stjórnmálaflokkum og einnig
óflokksbundnir, eins og t.d. Ragnar
Sverrisson kaupmaður, sem verið
hefur áberandi í umræðunni síð-
ustu misseri. Á myndinni eru þrír
úr hópnum, Jón Ingi Cæsersson,
Ragnar og Lára Stefánsdóttir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Umræða að norðan
Sýning á tillögum um uppbygginga-
reiti í miðbæ Akureyrar var opnuð í
gær í Amtsbókasafninu. Þar gefst
fólki kostur að virða fyrir sér nýjar
hugmyndir um framtíðarþróun mið-
bæjarins. Tillögurnar voru kynntar á
fundi bæjarráðs í gærmorgun.
Rætt um Kolbert Leikritið Herra
Kolbert hefur hlotið afbragðsviðtökur
gagnrýnenda og áhorfenda, haft áhrif
á marga og vakið umtal. LA hefur
þess vegna ákveðið að efna til um-
ræðu að lokinni sýningu í kvöld. Að-
standendur sýningarinnar taka þátt í
umræðunni og sitja fyrir svörum.
Sýningin hefst kl. 19 og þeim sem
ekki verða þar, en vilja taka þátt í um-
ræðum, er bent á að að mæta um kl.
20.40. Aðgangur er ókeypis.
Markaður í Hlíð Miðbæjarstemning
verður á dvalarheimilinu Hlíð á morg-
un, laugardag, kl. 13 til 16. Þá munu
mörg fyrirtæki sína nýjar vörur og
markmiðið að koma til móts við þá
sem ekki geta heilsu sinnar vegna
farið í þreytandi verslunarferðir og
um leið að skapa skemmtilegan dag í
Hlíð. Handverk veðrur til sölu og
kaffi og bekkelsi selt.
Fyrirlestur um Charcot Friðrik
Rafnsson fjallar á morgun, laugar-
dag, um franska landkönnuðinn, leið-
angursstjórann og lækninn, í fyrir-
lestri á vegum Akureyrarakadem-
íunnar, kl. 14.00 í gamla Húsmæðra-
skólanum. Friðrik bregður, í fyrir-
lestrinum, upp svipmyndum af Char-
cot og vináttusambandi hans við Ís-
lendinga, ekki síst Akureyringa, en
hann og menn hans höfðu oft viðkomu
á Akureyri í rannsóknarleiðöngrum
sínum til Grænlands á sínum tíma.