Morgunblaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 65 rukka svo inn er ekki nándar nærri nóg. Það þarf að breyta hugs- unarhættinum. Erlendis hefur mað- ur komist í kynni við tónleikastaði sem eru reknir af metnaði, þar sem menn gera sér grein fyrir því að auðsuppspretta staðarins eru hljómveitirnar og fylgismenn þeirra og því er komið fram við þetta fólk af virðingu. Umgjörð staðanna og umstang allt end- urspeglar þennan einfalda útgangs- punkt. Er það virkilega svo erfitt að koma svona starfssemi í gang hér á landi? Þessu gróskumikla tón- listarríki, sé mið tekið af öðru hverju erlendu tónlistartímariti. Er ekki tímabært að bretta upp ermar, og reyna að standa undir því lofi sem verið er að ausa á okkur er- lendis frá, með því að hlúa betur að þessari fjölæru tónlistarflóru sem hér þrífst? arnart@mbl.is Rokkarar Hljómsveitin Singapore Sling fer mikinn á tónleikum á Grand Rokk. Morgunblaðið/Árni Torfason VORTISISMI er myndlistarstefna sem sjaldan er nefnd í yfirlitsritum um módernisma 20. aldar, enda lifði hún eingöngu í 2 ár og eina sýningu árið 1914. Vortisismi er fyrsta breska liststefna módern- ismans en henni svipar til fútúr- isma nema hvað listamennirnir leit- uðust við að sýna tilfinningalegt ástand. Vortisismi gekk út á tíma og hreyfingu í mynd og þótt sumir listamannanna snérust síðan gegn formrænu vortisismans og í átt til tjástíls héldu þeir nokkru trygg- lyndi við hreyfingu í mynd. Popplist er önnur breska mynd- listarstefnan sem kemur upp í mód- ernismanum, þá 40 árum síðar. John McHale, sá hinn sami og setti fyrstur fram hugtakið „Popplist“ í samhengi við list sína og nokkurra annarra breskra listamanna, var m.a. undir áhrifum af vortisisma. Rétt er að geta þess að bresk popp- list er töluvert ólík harðkjarna- popplist sem síðar kom fram í Bandaríkjunum. Þegar Einar Hákonarson sneri heim til Íslands eftir nám í Svíþjóð á sjöunda áratug síðustu aldar var hann nokkurskonar kyndilberi bresku popplistarinnar sem hafði þá þegar náð til annarra landa í Skandinavíu. Með tíð og tíma hefur listamaðurinn hallast æ meir í átt að tjástíl og á sýningu hans sem nú stendur yfir í Galleríi Fold er lítið sem minnir á skarpar myndir fyrri tíma. Fígúrur renna nú saman við umhverfi en birtast manni innan um áköf efnistök. Litir eru fjörlegir og raðast í rytma sem ásamt ákefð- inni skapa hreyfingu á myndflet- inum. Af þeim sökum varð mér hugsað til þessa þróunarferlis lista- manna vortisismans, ekki síst Dav- ids Bombergs sem virðist mæta Einari á miðri leið milli vortisisma og popplistar til tjástíls. Síðastliðin ár hef ég séð sýningar Einars í Húsi málaranna og í Hljóm- skálagarðinum. Hann hefur haldið sínu striki þessi ár og er hvergi af baki dottinn þótt kominn sé á sjö- tugsaldur. Sýningin í Galleríi Fold er heilsteypt og flæðir ekki bara vel sem ein sýning heldur líka sem ein frásögn. Hver mynd virkar sem hluti af ímyndaðri ferðasögu þar sem mörk raunveruleika og draums eru allskostar óljós. Á hreyfingu MYNDLIST Gallerí Fold Opið daglega frá 10-18, laugardaga 11- 17 og sunnudaga 14-17. Sýningu lýkur 12. nóvember. Aðgangur ókeypis. Einar Hákonarson Jón B.K. Ransu Morgunblaðið/Eyþór Hreyfingar í mynd. Fígúrur renna saman við umhverfi en birtast manni innan um áköf efnistök, segir meðal annars í umsögn um sýninguna. R • LESTUR ER BESTUR TUR ER BESTUR R • LESTUR ER BESTUR TUR ER BESTURedda.is Komin í verslanir „Frábær saga!“ Móðir höfundar „Örugglega ýkt skemmtileg og fyndin bók. Ég ætla samt bara að bíða eftir bíómyndinni.“ Bróðir höfundar „Hræðilegt ritverk. Foreldrar, leyfið börnunum ykkar ekki að lesa þessa bók. Hún inniheldur engan góðan boðskap, hvetur til óhlýðni og virðingarleysis og er allt of bleik á litinn.“ Velferðarnefnd unglinga Aron er fjórtán ára þegar honum býðst að til Kína með pabba sínum. Hann órar ekki fyrir því ævintýri sem bíður hans, kínversku borgirnar eru yfirþyrmandi, fljótin breið, mannmergðin mikil – svo ekki sé talað um matinn sem er býsna frábrugðinn því sem Aron er vanur ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.