Morgunblaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 68
68 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
LOKSINS
FÁANLEG
AFTUR Á
ÍSLANDI
BÓKIN SEM BREYTT HEFUR
LÍFI MARGRA TIL HINS BETRA
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
BLINT STEFNUMÓT Á TORFÆRU-
KEPPNI, HVAÐ VAR ÉG AÐ HUGSA?
HÚN VAR MEÐ RAUTT HÁR NIÐUR
ALLT BAKIÐ...
EKKI Á HÖFÐINU,
HELDUR Á BAKINU
NÚ ER NÓG
KOMIÐ, ÉG ER
AÐ BORÐA
STUNDUM
ER ÉG
ALVEG
BRJÁLÐUR
ÞEGAR
ÉG
VAKNA...
LÍÐUR EINS OG ÉG VERÐI
AÐ BÍTA KÖTT! MÉR LÍÐUR
EINS OG EF ÉG BÍTI EKKI
KÖTT ÞÁ MISSI ÉG VITIÐ
EN SÍÐAN
ANDA ÉG
DJÚPT OG
GLEYMI
ÞESSU ÖLLU
SAMAN...
ÞAÐ ER
ÞAÐ SEM ER
KALLAÐ AÐ
ÞROSKAST
ANSANS! ÉG BRAUT
HJÓLIÐ ÞEGAR ÉG VAR
AÐ REYNA AÐ LOSA ÞAÐ
ÚR GRINDINNI
FLUGVÉLIN
ÞARF EKKERT
AÐ HAFA HJÓL
MÍNIR
KUBBAR
PASSA
EKKI
SAMAN
LEYFÐU
MÉR AÐ
SJÁ ÞETTA!
ÉG GET
FEST ÞETTA
SAMAN
EKKI
AFTUR
ÞESSI
FLUGVÉL Á
EFTIR AÐ EIGA
ERFITT MEÐ
LENDINGAR
ÉG ER BÚINN AÐ FINNA NÝJA
LEIÐ SEM AÐ MAMMA ÞÍN GETUR
FARIÐ Á LEIÐINNI HEIM
GOTT,
HVAÐ HEITIR
ÞESSI LEIÐ?
„ÁIN ENDALAUSA“
ÉG SKIL EKKI
HVERNIG ÞÚ FÓRST
AÐ ÞVÍ AÐ FALLA Í
HLÝÐNISKÓLA
ÉG KLÁRAÐI
EKKI
RITGERÐINA
MÍNA
ÁTTIR ÞÚ
AÐ SKRIFA
RITGERÐ Í
SKÓLANUM?
AUÐVITAÐ
EKKI! ÉG ER
HUNDUR, ÉG
ÁTTI AÐ BORÐA
RITGERÐ
ÞETTA VAR
SKEMMTILEGT,
HVAÐ VILJIÐ ÞIÐ
GERA NÆST?
EIGUM
VIÐ AÐ
FARA Í
DRAUGA-
HÚSIÐ?
ER ÞAÐ
EKKI OF
HRÆÐILEGT
FYRIR ÞIG
KIDDA?
ÉG VERÐ
EKKERT
HRÆDD!
GERÐU ÞAÐ,
MÁ ÉG FARA
Í DRAUGA-
HÚSIÐ
ER ÞETTA EKKI
AÐ VERÐA BÚIÐ?
VERÐUR
ÁHÆTTU-
LEIKKONA Í
STAÐINN FYRIR
MIG Í ÞESSU
ATRIÐI?
NEI, ÞAÐ
ER EKKERT
HÆTTULEGT VIÐ
ÞETTA ATRIÐI
HVERNIG
GETUR EITTHVAÐ
VERIÐ HÆTTULEGT
ÞEGAR ÉG ER Á
STAÐNUM?
ÞETTA
ER ÞAÐ
SEM ÉG
VILDI FÁ AÐ
HEYRA
ÉG ÆTLA AÐ KÁLA
KÓNGULÓARMANNINUM UM LEIÐ OG
ATRIÐIÐ BYRJAR
Opinn dagur verður í Lista-háskóla Íslands á morgun,laugardaginn 11. nóvem-ber, frá kl. 11 til 15.
Álfrún G. Guðrúnardóttir er kynn-
ingarstjóri LHÍ: „Listaháskólinn hef-
ur haldið opinn dag árlega í aðdrag-
anda umsóknarferlis næsta skólaárs.
Að þessu sinni tökum við upp þá ný-
breytni að kynna starf skólans á laug-
ardegi en ekki virkum degi eins og
áður hefur verið, til að koma til móts
við þá sem kunna að vera bundnir í
skóla eða vinnu en hafa áhuga á að
kynna sér þá möguleika í listnámi
sem LHÍ hefur upp á að bjóða“ segir
Álfrún.
Allar deildir skólans bjóða upp á
ítarlega kynningu á námsbrautum:
„Hægt er að finna dagskrá dagsins á
heimasíðu Listaháskólans en alls
kyns kynningar og viðburðir verða
yfir daginn svo hægt er að kynnast
miklu um starf skólans í einni heim-
sókn,“ segir Álfrún. „Meðal þess sem
gestir geta fengið að kynnast er
starfsemi myndlistardeildar, opnar
æfingar á kammertónlist við tónlist-
ardeild og sýnishorn af hljóðverkum
nemenda í tónsmíðadeild. Kynntar
verða hinar ýmsu námsbrautir, s.s.
leikaranám, fræði og framkvæmd,
grafísk hönnun, fatahönnun, vöru-
hönnun og arkitektúr, og bæði nem-
endur og kennarar verða til viðtals.
Ekki hvað síst munu inntökumöppur
nemenda verða til sýnis, en fyrir
marga sem hyggjast sækja um náms-
vist við Listaháskólann er inntök-
umappan ein helsta áskorunin,“ segir
Álfrún.
Fjölbreytt námsframboð
Listaháskóli Íslands er með starf-
semi á þremur stöðum: á Sölvhóls-
götu, í Laugarnesi og Skipholti. Skól-
inn starfar í fjórum deildum:
myndlistardeild, leiklistardeild,
hönnunar- og arkitektúrdeild og tón-
listardeild, en auk þess er boðið upp á
viðbótarnám í kennslufræði fyrir fólk
með listmenntun á háskólastigi. Sam-
tals er boðið upp á 15 námsleiðir við
skólann. Inntökupróf við Listahá-
skólann hefjast að jafnaði í febrúar en
inntökuferlið krefst góðs undirbún-
ings af nemendum.
„Opni dagur Listaháskólans hefur
notið mikilla vinsælda. Flestir sem
heimsækja skólann eru nemendur á
3. og 4. ári framhaldsskóla en einnig
fáum við fjölda fólks sem komið er á
vinnumarkað en hefur áhuga á að
leggja fyrir sig listnám,“ segir Álfrún.
„Við fáum bæði gesti sem eru með
fastmótaðar hugmyndir um hvaða
leið þeir vilja fara í námi, og aðra sem
vilja þreifa fyrir sér til að finna það
nám sem hentar þeim best.“
Kennsla hófst við Listaháskóla Ís-
lands árið 1999. Að jafnaði sækja um
400 nemendur skólann en kennt er í
fjórum deildum. Skólinn bæði tekur á
móti fjölda skiptinema og býður nem-
endum upp á skiptinám við sam-
starfsskóla í fjölda landa. Einnig fær
Listaháskólinn til sín fjölda gesta-
kennara erlendis frá. Nám við LHÍ
er lánshæft og veitir LÍN lán fyrir
bæði framfærslu og skólagjöldum.
Nánari upplýsingar um námið við
Listaháskóla Íslands má finna á
heimasíðu skólans á slóðinni
www.lhi.is.
Listnám | Kynning á fjölbreyttu námi
Listaháskóla Íslands á laugardag
Opið hús hjá
Listaháskólanum
Álfrún G. Guð-
rúnardóttir lauk
BA-prófi í ís-
lenskum bók-
menntum, MA-
prófi í listrænni
stjórnun og
°menningarfræð-
um með leikhús-
fræði sem auka-
fag. og V. stigi í
söngnámi. Hún starfaði sem deild-
arstjóri Listadeildar Menningar-
miðstöðvarinnar Gerðubergi og
hefur unnið ýmis störf á sviði
menningar og lista: var m.a. kynn-
ingar- og markaðsstjóri Leikfélags
Reykjavíkur. Álfrún hefur einnig
starfað við útgáfu, textavinnu,
kvikmyndagerð og kennslustörf í
framhalds- og háskólum. Álfrún er
nú kynningarstjóri Listaháskóla Ís-
lands.
Fréttir á SMS