Morgunblaðið - 10.11.2006, Page 16
$%&'
%&(# )'(*+%&' &
(
)
%&'
( )$* +,
%,& +,
%') ( )$* +,
%
) ( )$* +,
- . ( )$* +,
/0 1 +,
2 ( )$* +,
(
'
0
+,
3$*4
0
+,
0
5 +,
6 +,
6)
& 2+
) +,
782 %' '
& 7' )$
9' $$ :-$ 2 ,0 +,
;$ +,
*
+
<=
' +,
2 ( )$* +,
>&
& ( )$* +,
?@+
+,
A "
'.
+,
B
$'.
+,
,
+ +
-&.&
9'$ ,C 9$$ ,
-
/
0'+
>D<E
1 +& +
2
!
!
!!
!
!!
!
" !!
!
!
!!
! !!
!
!!
!
" !!
!!
:
*'
A
0) # )
3$* 9
:
:
:
:
:
:
:
:
B
*'
# $
%A F %'+$$
'
2.
*'
:
:
:
:
:
9#'
16 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Húsaskilti
Klapparstig 44 • sími 562 3614
Síðasti dagur pantana fyrir jólin
er laugardagur 11. nóvember
Í HNOTSKURN
» Nefndina skipaði forsætisráðherra hinn 24.nóvember 2005 til að fjalla um forsendur al-
þjóðlegrar fjármálastarfsemi á Íslandi.
» Sigurður Einarsson, stjórnarformaðurKaupþings banka, var skipaður formaður nefndarinnar.
» Nefndinni var m.a. ætlað að skoða lög ogreglur um fjármálastarfsemi út frá því sjónarmiði hvort um-
bóta væri þörf.
NEFND forsætisráðherra um al-
þjóðlega fjármálastarfsemi birtir
skýrslu sín í dag. Í skýrslunni er
fjallað um forsendur alþjóðlegrar
fjármálastarfsemi á Íslandi og reif-
aðar hugsanlegar breytingar á laga-
og reglugerðarumhverfi til að stuðla
að slíkri starfsemi. Ráðstefna um
efni skýrslunnar verður í Þjóðleik-
húsinu í dag og hefst hún kl. 13.
Í skýrslunni segir m.a. að hug-
myndin um að efla alþjóðlega fjár-
málastarfsemi á Íslandi snúist um að
veita hingað alþjólegum fjármagns-
hreyfingum, gera landið að höfn höf-
uðstöðva alþjóðlegara fyrirtækja og
mynda tekjustrauma sem með hóf-
legri skattlagningu yrðu mikilvæg
tekjulind fyrir íslenska ríkið og upp-
spretta nýrra og arðbærra sérfræði-
starfa.
„Um er að ræða umhverfisvæna
starfsemi, þar sem með litlum fórn-
arkostnaði er hægt að skapa umtals-
verðar tekjur fyrir þjóðarbúið,“ seg-
ir ennfremur í skýrslunni.
Stiglækkandi tekjuskattur
Að mati nefndarinnar gæti Ísland
mætt þeirri samkeppni sem ríkir um
höfðustöðvar alþjóðlegra fyrirtækja
með því að bjóða þeim hagstæðara
skattalegt rekstrarumhverfi en
þekkist í nágrannalöndum okkar, án
þess að flækja skattframkvæmd eða
fórna skatttekjum.
„Meginatriði þessarar hugmyndar
er að taka upp stiglækkandi tekju-
skatt fyrirtækja. Þannig yrði al-
mennt skatthlutfall fyrirtækja áfram
18% en skatthlutfall lækkaði hjá fyr-
irtækjum á þeim hluta skattskylds
hagnaðar sem væri umfram ákveðið
mark,“ segir í skýrslunni.
Ísland yrði með virkt skatthlutfall
á félög sem gæti verið með því
lægsta á EES-svæðinu, eða á bilinu
10–18%, ef hugmyndinni yrði hrint í
framkvæmd. Segir nefndin allar lík-
ur á því að stiglækkandi tekjuskatt-
ur fyrirtækja myndi auka heildar-
skatttekjur í landinu, enda hafi það
verið raunin við lækkun á fyrirtæk-
jasköttum hérlendis.
Alþjóðleg lífeyrismiðstöð
Ein þeirra hugmynda sem nefndin
reifar varðar Ísland sem alþjóðlega
lífeyrismiðstöð.
„Aðalatriði þessarar hugmyndar
er að nýta þá athygli sem íslenska líf-
eyrissjóðakerfið vekur á alþjóðavett-
vangi vegna sjóðsöfnunar og sam-
spils samtryggingar og séreignar í
sjóðunum. Rök hafa verið færð fyrir
því að hægt sé að markaðssetja ís-
lenska lífeyrissjóðakerfið erlendis og
koma til móts við áhuga stjórnenda
alþjóðafyrirtækja um fjölþjóðlega
lífeyrissjóði sem starfi innan laga-
ramma ESB,“ segir í skýrslunni.
Forsendur og sóknarfæri
Jákvæð afstaða stjórnvalda til al-
þjóðlegrar fjármálaþjónustu er með-
al þeirra þátta sem gætu verið til
þess fallnir að gera umhverfi Íslands
eftirsóknarverðara fyrir alþjóðlega
fjármálaþjónustu og nefndin leggur
áherslu á.
Þá segir að mikill ávinningur yrði
fyrir samkeppnisstöðu fjármálageir-
ans ef dregið yrði úr kostnaði við
skrifræði. Nefndin færir einnig rök
fyrir því að innleiðing virks lána-
markaðar með verðbréf sé nauðsyn-
leg forsenda þess að hér á landi sé
fjármálamarkaður sem uppfylli öll
helstu skilyrði sem alþjóðlegur verð-
bréfamarkaður þurfi að uppfylla.
Ísland sem höfn fyrir al-
þjóðleg fjármálafyrirtæki
Skýrsla nefndar forsætisráðherra um alþjóðlega fjármálastarfsemi birt í dag ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● Hlutabréf hækkuðu í verði í Kaup-
höll Íslands í gær. Úrvalsvísitalan
hækkaði um 0,7% og var skráð
6239 stig við lok viðskipta, en velta
á hlutabréfamarkaði nam 5.032
milljónum króna í gær.
Mest hækkuðu hlutabréf Straums
Burðaráss eða um 1,79%. Bréf FL
Group hækkuðu um 1,77% og bréf
Landsbankans um 1,61%. Bréf Av-
ion Group lækkuðu um 2,65%, bréf
Flögu um 0,72% og bréf Marels
lækkuðu um 0,64%
Hlutabréf hækkuðu
í Kauphöll Íslands
EF fram heldur
sem horfir hefur
deCode, móð-
urfélag Íslenskr-
ar erfðagrein-
ingar, fjármuni
til að halda
áfram rekstri í
tæp tvö ár til við-
bótar. Þetta seg-
ir í Morgunkorni
Greiningar
Glitnis í tilefniu af birtingu níu
mánaða uppgjörs deCode, sem
greint var frá í Morgunblaðinu í
gær.
„Þetta gæti þó breyst ef félagið
nær að komast lengra í lyfjaþróun
með tilheyrandi sölutekjum eða ef
félagið eykur við hlutafé sitt,“ segir
í Morgunkorninu.
Tap deCode á fyrstu níu mán-
uðum þessa árs nam 62,2 milljónum
dollara, um 4,2 milljörðum króna,
samanborið við 41,6 milljóna doll-
ara tap á sama tímabili í fyrra.
Sjóður sem
dugar í tæp
tvö ár í viðbót
Sjóður deCode
hefur minnkað.
● EIMSKIP hefur eignast meiri-
hluta í fyrirtækinu Harbour Grace
Coldstore á Nýfundnalandi. Eim-
skip eignaðist 25% hlut í fyrirtæk-
inu á árinu 2000 en hefur nú auk-
ið hlut sinn í 51%.
Í tilkynningu segir að kaupin séu
til að styrkja enn frekar stöðu Eim-
skips á Nýfundnalandi.
Harbour Grace Coldstore sér um
frystigeymslu- og losunarþjónustu
við togara í bænum Harbour Grace
við Conception Bay á Nýfunda-
landi, sem er rúmlega þrjú þúsund
manna bær um 50 kílómetra frá
höfuðborginni St. John’s.
Eimskip hefur rekið skrifstofu í
St. John’s frá árinu 1990. Í til-
kynningunni segir að Eimskip sé
með sterka stöðu í innflutningi til
þessa svæðis. Kaupin á meiri-
hluta í Harbour Grace Coldstore
séu mikilvægur liður í vexti Eim-
skips og þeirri stefnu fyrirtækisins
að bjóða viðskiptavinum sínum
heildarlausnir á sviði frysti- og
kæliflutninga um allan heim.
Eimskip fjárfestir
á Nýfundnalandi
DANSKE Bank hefur keypt finnska
bankann Sampo Bank fyrir 30,1
milljarð danskra króna, jafnvirði
liðlega 351 milljarðs íslenskra
króna. Sampo Bank er þriðji
stærsti banki Finnlands og á einnig
dótturbanka í Eystrasaltslöndunum
þremur og keypti fyrir skemmstu
banka í Rússlandi.
Sumir norrænir fjölmiðlar höfðu
gert því skóna að Sampo væri eitt
af nokkrum hugsanlegum félögum
sem Kaupþing banki hefði áhuga á
að kaupa. Í Morgunkorni Glitnis
segir að samþjöppun eigi sér stað á
bankamarkaðinum og líkast til
muni Kaupþing banki taka þátt í
þeirri samþjöppun. Bent er á að
Nordea hafi nýlega keypt rúss-
neskan banka en með kaupunum á
Sampa styrki Danske Bank stöðu
sína sem annar stærsti banki Norð-
urlandanna á eftir Nordea auk þess
að færa umsvif sín í austurveg.
Mikill kostnaður í upphafi
Peter Straarup, forstjóri Danske
Bank, segir í dönskum fjölmiðlum
að rekstur Sampo falli ákaflega vel
að rekstri Danske og bendir á að
hagvöxtur í Finnlandi og Eystra-
saltslöndunum sé yfir meðallagi í
Evrópusambandinu sem sé góður
grundvöllur fyrir frekari vexti.
Gert er ráð fyrir að kostnaður
vegna samrunans muni nema um
18,6 milljörðum íslenskra króna
fram til ársins 2009.
Kaupa Sampo
HAGNAÐUR samheitalyfjafyrir-
tækisins Actavis nam 8,2 milljónum
evra, jafngildi 715 milljóna íslenskra
króna, á þriðja ársfjórðungi sem
lauk 30. september 2006. Á sama
tímabili í fyrra nam hagnaðurinn
23,2 milljónum evra, eða sem sam-
svarar um tveimur milljörðum ís-
lenskra króna. Á fyrstu níu mánuð-
um ársins nemur hagnaður félagsins
70,1 milljónum evra, eða 6,1 milljörð-
um króna, en á sama tímabili í fyrra
var hann 45,5 milljónir evra.
Kostnaður vegna yfirtökutilrauna
Actavis á króatíska félaginu Pliva er
gjaldfærður í uppgjörinu og nam
hann 20,7 milljónum evra, jafngildi
1,8 milljarða króna. Undirliggjandi
hagnaður félagsins á fjórðungnum
var því 28,9 milljónir, eða um 2,5
milljarðar íslenskra króna. Meðalspá
íslensku viðskiptabankanna, sem tók
ekki tillit til kostnaðar vegna Pliva,
hljóðaði hins vegar upp á 23,3 millj-
óna evra hagnað, þannig afkoman er
töluvert yfir væntingum.
Heildartekjur á fjórðungnum tvö-
földuðust miðað við sama tíma á síð-
asta ári; voru 323,8 milljónir evra í ár
samanborið við 161 milljón á þriðja
ársfjórðungi 2005.
Hagnaður fyrir skatta, afskriftir
og fjármagnsliði (EBITDA) jókst
um 36% í 65,7 milljónir evra á fjórð-
ungnum, en hann var 48,3 milljónir
evra á sama tíma á síðasta ári.
Í tilkynningu frá Actavis segir Ró-
bert Wessman, framkvæmdastjóri
félagsins, að stefnt sé að því að ljúka
kaupum á tveimur nýjum félögum
fyrir árslok.
Uppgjör Actavis vel yfir
væntingum bankanna
● SAMKVÆMT nýrri könnun Gallup
í Danmörku lesa 161 þúsund
manns fríblaðið
Nyhedsavisen.
Er þetta í fyrsta
sinn sem lestur
á blaðinu er
mældur en
danskir fjöl-
miðlar benda á
að eigendur Ny-
hedsavisen hafi
haft uppi áform
um að ná til
milljón lesenda á hverjum degi.
Könnunin var gerð fyrir keppinauta
Nyhedsavisen; 24timer og Dato,
sem fá svipaðan lestur og fyrir
mánuði. Lesendum 24timer fjölgar
þó úr 387 þúsund í 395 þúsund
en um 150 þúsund manns lesa
Dato.
161 þúsund les
Nyhedsavisen
?G
9H7
"
!
!
I
I
2A9<
/%J
!
#!
I
I
D%D
K6J 9') +
!
#!
! !
I
I
K6J 3+.,
?
!
!
I
I
>D<J /)L M)
!
!
#!
!
I
I