Morgunblaðið - 10.11.2006, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 10.11.2006, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 61 100% lánamöguleiki. Subaru Im- preza 2.0 Wagon 4WD árg. 1999. Ek. 139 þ. km. Ásett 690 þ. Tilboð 580 þ. 100% lánamöguleiki. Meðal af- borganir 20 þ. á mánuði. Getum bætt bílum á plan og skrá. Sími 567 4000. 100% lánamöguleiki. VW Passat Sedan árg. 12/2003. Ek. 49 þ. km. Ásett 1.690 þ. Tilboð 1.550 þ. Áhvíl- andi 1.480 þ. Afborganir 22 þús. á mánuði. Getum bætt bílum á plan og skrá. Sími 567 4000. MMC Pajero árg. 1998 til sölu, 2.8 dísel, sjálfskiptur, topplúga, raf- magnsrúður o.fl. 35" jeppaupphækk- un. Toppbíll. Upplýsingar í síma 544 4333 og 820 1070. Tilboð 23.90 þús + vsk Mercedes Benz 213 CDI til sölu. 130 hest., dísel, ESP stöðugleikakerfi, ABS, loftpúðar. Ekinn .2000 km. Kaldasel ehf., Dalvegur 16b, Kópavogur, s. 544 4333 og 820 1070. Toyota RAV4 árg. '02, ek. 67 þús. km. Til sölu fallegur Toyota RAV4 4WD. 2.0 150 h. 5 dyra, sjálfsk., dráttark. Engin skipti. Uppl. í síma 861 5303 og 895 6300. Bílavörur Hjólbarðar/Felgur. Til sölu 4 nýjar stálfelgur undan Suzuki Grand Vitara. Verð 20.000 kr. Sími 893 4957/Ólafur. Hjólbarðar Insa Turbo negld vetradekk 4 stk 185/65 R 15 + vinna kr. 27.900. 4 stk. 175/70 R 13 + vinna kr. 24.900. Kaldasel ehf , Dalvegur 16 b, Kópavogur s. 544 4333. Insa Turbo negld vetradekk. 4 stk. 205/70 R 15 + vinna 38.000 kr. Kaldasel ehf. , Dalvegur 16b, Kópavogur, s. 544 4333. Matador ný vetrardekk. Tilboð 4 stk. 195/65 R 15 + vinna 31.900 kr. Kaldasel ehf. , Dalvegur 16b, Kópavogur, s. 544 4333. Matador vetradekk tilboð 4 stk. 31x10.5 R 15 + vinna kr. 59.600. 4 stk 215/70 R 16 + vinna kr. 51.900. 4 stk 225/70 R 16 + vinna kr. 59.600. 4 stk. 215/65 R 16 + vinna kr. 55.900. Kaldasel ehf, Dalvegur 16 b, Kópavogur, s. 544 4333. Matador vörubíladekk tilboð 295/80 R 22.5 kr. 35900 Kaldasel ehf, Dalvegur 16 b, Kópavogur, s. 544 4333. Bílar Toyota Yaris árg. '05. Dökkgrár. Sjálfskiptur. Álfelgur, filmur. Sími 698 6710 og 555 1710. Fornbílar Dýrðlingsbílar, 2 st. Til sölu 2 st. Volvo sportbílar til uppgerðar. Annar er S1963 og hinn E1970. Verðtilboð. Upplýsingar og myndir á www.studioverk.com. Sími 844 2068. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl FRÉTTIR BLINDRAFÉLAGIÐ hefur um árabil gefið út jólakort og merk- isspjöld á jólapakka til styrktar starfseminni. Í ár verða tvær gerðir af jólakortum. Jólakort með myndinni „Pakki til þín“ eftir listamanninn Mæju og kort með ljósmynd af Jökuls- árlóni eftir Sigurgeir Sigur- jónsson. Jólakortin eftir Mæju eru seld 8 í pakka ásamt umslögum á 1.000 kr. Merkispjöldin eru 8 í pakka og eru seld á 300 kr. Kortin með mynd af Jökuls- árlóni eru seld 5 saman í pakka ásamt umslögum á 600 kr. pakk- inn. Hægt er að nálgast kortin hjá Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða senda tölvu- póst á blind@blind.is. Sölumenn frá Blindrafélaginu munu ganga í hús í nóvember og desember og bjóða kortin til sölu. Sölufólk óskast til að selja jóla- kortin og eru góð sölulaun í boði. Upplýsingar í síma 525-0000. Jólakort Blindrafélagsins komin út HINN ÁRLEGI haust- og jólabasar Dagdvalar í Sunnuhlíð, Kópavogs- braut 1c, verður haldinn á morgun, laugardag, og hefst kl. 14. Einnig verður kaffisala í matsal þjón- ustukjarna til styrktar Dagdvölinni. Á basarnum verður margt fal- legra muna til jólagjafa og einnig heimabakaðar kökur og lukkupakk- ar. Dagdvölin hefur nú starfað í 17 ár og á þeim tíma hafa hátt á fjórða hundrað aldraðir Kópavogsbúar notið þar þjónustu um lengri eða skemmri tíma. Markmið Dagdvalar er að styðja aldraða, sem búa heima og veita þeim ýmsa aðstoð og þjón- ustu. „Við vonum að sem flestir sjái sér fært að koma og styðja við starfsemi Dagdvalarinnar,“ segir í tilkynn- ingu. Basar í Sunnuhlíð BRESKA sendiráðið heldur minn- ingarathöfn um þá hermenn, er létu lífið í fyrri og síðari heims- styrjöldinni, í hermannagrafreitn- um í Fossvogskirkjugarði sunnu- daginn 12. nóvember kl. 10.45. Athöfnin er leidd af sendiherra Bretlands á Íslandi, Alp Mehmet. Fulltrúar annarra þjóða sem eiga landa er hvíla í Fossvogskirkju- garði taka einnig þátt í athöfninni. Séra Arngrímur Jónsson stjórnar minningarathöfninni og eru allir velkomnir. Minningar- athöfn haldin um hermenn SKÁKMÓT KB banka og SparisjóðsBolungarvíkur, Hraðskákmót Ís- lands 2006, fer fram í Bolungarvík um helgina. Margir af fremstu skákmeisturum landsins fjölmenna þá vestur á firði. Mótið fer fram í Íþróttamiðstöðinni Árbæ, Bolung- arvík, og hefst klukkan 13 á morg- un, laugardaginn 11. nóvember. Mótið er öllum opið og tefldar verða 5 mínútna skákir. Sigurveg- ari mótsins hlýtur titilinn Hrað- skákmeistari Íslands 2006. Bolungarvík er sögufrægur skákstaður sem um tíðina hefur getið af sér fjölda skákmeistara í fremstu röð. Bolvíkingurinn Hauk- ur Sveinsson er elsti skráði kepp- andinn á mótinu en hann er 83 ára að aldri, vistmaður á Hrafnistu, og átti á sínum tíma ríkan þátt í að byggja upp blómstrandi skáklíf í Bolungarvík. Haukur verður heiðr- aður sérstaklega um helgina fyrir framlag sitt til skáklistarinnar á Vestfjörðum. Slegið verður upp dansleik með Baggalút um kvöldið. Skákmót KB banka og Sparisjóðs Bolungarvíkur er liður í þeirri stefnu stjórnar Skáksambands Ís- lands að efla skáklíf á landsbyggð- inni. Mótið er öllum opið og jafnt byrjendur sem lengra komnir, krakkar sem eldri borgarar, eru hvattir til að vera með. Allir krakk- ar fá verðlaun og viðurkenningu fyrir þátttökuna. Áhugasamir geta skráð sig á netfangið siks- @simnet.is eða í síma 568 9141. Skákmeistarar flykkjast vestur á firði LÝSING fagnaði 20 ára afmæli sínu í september í ár og hefur staðið að ýmiss konar uppá- komum í tilefni þess. Meðal ann- ars voru allir þeir sem gengu frá bílasamningi við Lýsingu frá 18. september til 1. október settir í afmælislukkupott. Á þessu tíma- bili tvöfaldaðist umsóknarfjöldi bílasamninga Lýsingar og því margir sem bitust um vinninginn. Þann 5. október var dregið úr pottinum og var það Elín Ósk- arsdóttir sem hreppti vinninginn. Hún gekk frá bílasamningi við Lýsingu þann 29. september þeg- ar hún festi kaup á Renault Meg- ane. Lýsing greiddi upp allan samninginn og á hún því bifreið- ina skuldlausa í dag. Dregið úr afmælispotti Lýsingar NÝLEGA var auglýst eftir umsókn- um um Eyrarrósina 2007, viður- kenningu til framúrskarandi menn- ingarstarfs á landsbyggðinni, og rennur umsóknarfrestur út 13. nóv- ember. Verðlaun verða afhent í þriðja sinn í janúar 2007. Þjóðlagahátíðin á Siglufirði hlaut fyrstu Eyrarrósina, sem afhent var árið 2005 og Eyrar- rósina 2006 hlaut LungA, listahátíð ungs fólks, Austurlandi. Úthlutunar- nefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda og hljóta þau öll sér- staka kynningu. Eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina, verðlaunafé kr. 1.500.000 og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur, til eignar. Hin tvö hljóta kr. 200.000 viðurkenn- ingu og öll verkefnin fá flugferðir með Flugfélagi Íslands. Viðurkenningin Eyrarrósin á ræt- ur sínar í samningi sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flug- félag Íslands gerðu árið 2004 um efl- ingu menningarlífs á landsbyggð- inni. Viðurkenningin verður veitt í jan- úar 2007. Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú. Allar nánari upplýsingar um Eyr- arrósina eru á heimasíðu Listahátíð- ar í Reykjavík, www.listahatid.is. Umsóknarfrestur um Eyrarrósina 2007 að renna út MÁLÞING um Skriðuklaustur verður haldið í fyrirlestrasal Þjóð- minjasafns Íslands, laugardaginn 11. nóvember, kl. 11-15. Málþingið er hið fyrra af tveimur og byggir á rannsóknum hóps fræðimanna á klaustrum og klaust- urhaldi hérlendis. Miðað er við að viðfangsefni þeirra gangi frá hinu almenna til hins sértæka sem í þessu tilfelli er Skriðuklaustur í Fljótsdal. Klaustrið þar var stofnað undir lok 15. aldar og lagt af við siðaskiptin. Uppgröftur á rústum þess hefur nú staðið yfir í fimm ár og hefur um helmingur klaust- urbygginganna verið grafinn fram. Verkefnið hefur frá upphafi notið styrkja úr Kristnihátíðarsjóði. Málþing um Skriðuklaustur UNGIR jafnaðarmenn í Hafnarfirði standa fyrir opnum fundi um stækkun álvers Alcan í Straumsvík sunnudaginn 19. nóvember næst- komandi kl. 16. Fundurinn verður haldinn í Hafnarfjarðarleikhúsinu, Strand- götu 50, og munu þeir sem skoðun hafa á málinu hér í Hafnarfirði – frá Alcan, Sól í Straumi og stjórn- málaflokkunum – flytja mál sitt, auk þess sem Ómar Ragnarsson mætir og ræðir um málið frá sínu sjónarhorni. Fundur um stækkun álvers Alcan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.