Morgunblaðið - 10.11.2006, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 69
dægradvöl
Staðan kom upp í fyrri hluta Flug-
félagsdeildar Íslandsmót skákfélaga.
Franski stórmeistarinn Igor-Alexandre
Nataf (2586) er annálaður sérfræðingur
í byrjunum. Á þessu fékk alþjóðlegi
meistarinn Stefán Kristjánsson (2482)
að kenna þegar Igor lék 20. Dd6!. og af-
hjúpaði að svarta staðan er götótt sem
svissneskur ostur. Allir menn svarts eru
á hvítum reitum fyrir utan hrókinn á
kóngsvæng og skipti engu um úrslit
skákarinnar þó að svartur yrði manni
yfir eftir 20...Dxa4. Hvítur hóf þá sókn-
aratlögu að svarta kóngnum sem úti-
lokað var að verjast: 21. Had1 Kf7 22.
Df4+ Ke7 23. f3! og svartur kaus að gef-
ast upp þar sem hann getur ekki rönd
við reist þegar f-línan opnast og svartur
yrði t.d. óverjandi mát innan fárra leikja
eftir 23... Db4 24. Dg5+ Kf7 25. fxe4+
Kg7 26. De5+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Fjarlægir draumar.
Norður
♠K95
♥Á8
♦854
♣KG753
Vestur Austur
♠D82 ♠G1074
♥K43 ♥G76
♦DG62 ♦K1093
♣642 ♣Á8
Suður
♠Á63
♥D10952
♦Á7
♣D109
Suður spilar 3G og fær út tígultvist.
Þetta er fullmikið sagt, en ekki þýðir
að gefast upp baráttulaust. Eftir út-
spilið á vörnin minnst þrjá slagi á tígul
og laufás, svo ekki má gefa slag á
hjarta. Það er hugsanlegt að hálita-
þvingun myndist ef sagnhafi sækir
laufásinn og vörnin tekur tígulslagina.
En það er nokkuð fjarlægur draumur.
Annar möguleiki (ekki alveg eins fjar-
lægur) er að taka kínverska svíningu í
hjartanu – spila hjartadrottningu, áður
en farið er í laufið. Hver veit, kannski
tímir vestur ekki kóngnum, enda væri
það neyðarlegt ef hjarta suðurs væri
DG109x. (Það er kölluð „kínversk svín-
ing“ að spila út drottningu þegar gos-
ann vantar. Yfirleitt heppnast hún
ekki, en þó helst í stöðum þar sem það
gæti kostað vörnina slag að leggja
kónginn á drottninguna.)
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 tónverk, 8 ang-
an, 9 þurrkað út, 10 frjó-
angi, 11 veiða, 13 skepn-
urnar, 15 spik, 18 djöfull-
inn, 21 títt, 22 segulstál,
23 óskertan, 24 hrakin af
hríð.
Lóðrétt | 2 trylltar,
3 gremjast, 4 fastheldni,
5 vesælar, 6 hjartarkolla,
7 pípan, 12 lofttegund,
14 fiskur, 15 sjávardýr,
16 himnaverur, 17 elds-
neytið, 18 vísa, 19 er
kyrr, 20 nálægð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 svipa, 4 signa, 7 rýjan, 8 tjása, 9 set, 11 kona,
13 ball, 14 fálki, 15 þjöl, 17 kjól, 20 enn, 22 kauni, 23 af-
ræð, 24 ragan, 25 tossi.
Lóðrétt. 1 skræk, 2 iðjan, 3 agns, 4 sótt, 5 gráta, 6 aðall,
10 eklan, 12 afl, 13 bik, 15 þokar, 16 örugg, 18 járns,
19 liðni, 20 einn, 21 naut.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Bandaríkin hafa fengið nýjan varn-armálaráðherra, Robert Gates, í
stað Rumsfelds. Hann gegndi áður
einu áhrifamesta embætti í Bandaríkj-
unum. Hvert er það?
2 Óvissa er um framtíð Íslendinga-bókar sem Íslensk erfðagreining
hefur staðið straum af. En hvaða fyrir-
tæki starfrækir gagnagrunninn?
3 Hvaða knattspyrnukappi og lands-liðsmarkvörður hefur beitt sér fyrir
stofnun Vinafélags Grímseyjar?
4 Nýjasta kvikmynd Pedros Almo-dóvars er með sex tilnefningar
fyrir evrópsku kvikmyndaverðlaunin.
Hvað heitir myndin og hvað þýðir titill-
inn?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Eftir hvern var brjóstmynd sem var af-
hjúpuð af Davíð Oddssyni í Ráðhúsinu sl.
þriðjudag? Svar: Helga Gíslason. 2. Hver
bar fram tillögu um að opna á nýjan leik læk-
inn sem rann úr Tjörninni til sjávar þar sem
nú heitir Lækjargata. Svar: Björn Ingi Hrafns-
son. 3. Hvaða frægi kvikmyndaleikari vann
öruggan sigur í ríkisstjórakosningum í einu
af ríkjum Bandaríkjanna í fyrradag? Svar:
Arnold Schwarzenegger í Kaliforníu. 4. Her-
mann Hreiðarsson kom Charlton áfram með
því að skora lokamarkið í vítaspyrnukeppni.
Á móti hvaða liði? Svar: Chesterfield.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
önnur óþekkt,
en þau eiga það
sameiginlegt að
vera sérlega fal-
leg og skemmti-
leg. Regína Ósk
er gríðarlega
sterk söngkona
og þegar röddin
hennar er beisl-
uð á réttan hátt
er hún glæsileg.
Hún er mun betri en sumir hálfdrættingarnir
sem hún syngur bakraddir fyrir.
Þvílík snilld að fá Barða Jóhannsson til að
útsetja plötuna. Hann er með svo góðar hug-
myndir fyrir popptónlist. Honum tekst að ljá
plötunni ákaflega vandað og fallegt yfirbragð.
Hann er ekki feiminn við að láta skína í ræt-
urnar því í lögunum má heyra í „surf“-gítar og
þann skemmtilega stíl sem honum fylgir sem
kalla mætti kammerpopp. Barði kann að út-
setja – það er ekki spurning – en sú dýpt og sá
mikli persónuleiki sem hér um ræðir hjá Reg-
ínu Ósk er óhjákvæmilega afrakstur samstarfs
þeirra.
Það eru mörg skemmtileg lög á plötunni.
ÉG fer ekki ofan af því að þessi plata er það
besta sem ég hef heyrt frá Regínu Ósk hingað
til. Lögin eru sérdeilis vel valin. Sum þekkt,
Trúin flytur fjöll er eitt þeirra, dásamlega
„hippískt“ og flott. Sömuleiðis er vert að nefna
Draumur um dag þar sem þunglyndisleg djass-
áhrif eru í fyrirrúmi. Prins eftir Jóhann Helga-
son er afskaplega fallegt auk þess sem ég var
hrifin af Hvað tekur við? Í því síðastnefnda
beitir Regína Ósk röddinni á allt annan hátt en
hún er vön að gera. Stórkostlegt. Ég vissi ekki
að hún ætti þetta til í sér.
Það er svolítið skemmtilegt að lokalag plöt-
unnar er lagið sem hún söng í undankeppni
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Þér
við hlið. Lagið hefði vafalaust unnið ef að-
stæður hefðu verið aðrar. Gott hjá henni að
hafa það með – hún má vera stolt af flutningi
sínum á því.
Ég er afar ánægð með þá leið sem Regína
Ósk valdi við gerð þessarar plötu. Hún sýnir
hér hvers megnug hún er sem söngkona og ég
dáist að henni fyrir að hafa sjálfstraust í að
beygja af þeirri tilþrifalausu leið sem hún virt-
ist vera á í tónlistarsköpun sinni. Ég vona að
hún stökkvi í djúpu laugina og haldi áfram að
taka áhættur.
Sigur fyrir góða söngkonu
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geisladiskur Regínu Óskar er nefndur Í djúpum dal. Lög
og textar eru eftir ýmsa. Regína Ósk Óskarsdóttir syng-
ur. Barði Jóhannsson leikur á kassa- og rafgítar, orgel,
Roland VC330, bassa, Rhodes, auk þess að sjá um hljóð-
gervla, cuica, forritun og klapp. Trommur og ásláttur eru
í höndum Denis Benarrosh, Hubert Decottignes leikur á
bassa, Védís Hervör syngur bakraddir, Þórhallur Berg-
mann spilar á píanó og Reykjavík Sessions Quartet sér
um strengi. Guðmundur Pétursson leikur á gítar og Kjart-
an Hákonarson blæs í Flugelhorn og trompet. Karl Ol-
geirsson spilar á píanó, orgel, pumpuorgel, Moog, Rol-
and VC330 og sér um hljóðgervla, raddir, og klapp.
Hreimur Örn Heimisson leikur á kassagítar, Daði Birg-
isson spilar á Rhodes, orgel og Roland VC330, Eiður Arn-
arsson spilar á bassa. Karl Olgeirsson sá um strengjaút-
setningar í Ástfangin. Um upptökur sáu Hubert
Decottignes og Barði Jóhannsson. Diddi sá um upptökur
á strengjum í Ástfangin, Hubert Decottignes aðstoðaði
við upptökstjórn. Barði Jóhannsson stjórnaði upptökum.
Sena gefur út.
Regína Ósk - Í djúpum dal
Helga Þórey Jónsdóttir
Broadway-söngleikur með lögumeftir Bob Dylan og syngjandi
og dansandi trúðum er fallinn, tæp-
um mánuði
eftir að hann
var frum-
sýndur.
Gagnrýn-
endur hafa
farið ófögr-
um orðum
um uppsetn-
inguna, þar
sem lög og
textar eftir
Dylan voru
notuð til að
segja sögu um sirkusmeistara og
óánægða starfsmenn hans.
Það kom mörgum á óvart þegar
Dylan veitt leyfi fyrir því að lögin
hans yrðu notuð með þessum hætti,
því að hann hefur löngum reynt að
forðast sviðsljósið.
Höfundur dansa var Twyla
Tharp, sem einnig samdi dansa fyrir
söngleik með lögum og textum Bil-
lys Joels, er sló í gegn.
Fólk folk@mbl.is