Morgunblaðið - 21.11.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 15
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
LÖGMENN Saddams Husseins,
fyrrverandi forseta Íraks, fögnuðu í
gær niðurstöðum Mannréttindavakt-
arinnar (Human Rights Watch) en í
nýrri skýrslu samtakanna segir að
réttarhöldin yfir Saddam vegna
glæpa gegn mannkyni hafi í grund-
vallaratriðum verið gölluð. Fóru þeir
fram á það í gær að mannréttinda-
samtök hvarvetna gripu til aðgerða til
að binda enda á „skrípaleikinn“.
„Við erum ánægðir með þessa
skýrslu. Hún staðfestir það sem við
höfum ítrekað sagt: þessi dómstóll er
óréttlátur og ólöglegur,“ sagði Khalil
al-Dulaimi, aðalverjandi Saddams.
Annar lögmaður Saddams, Jórdan-
inn Ziad Najdawi,
tók í sama streng.
„Þessi skýrsla
kemur seint en við
erum samt
ánægðir með að
það skuli vera til
samtök sem gera
sér grein fyrir
sannleikanum og
hafa stillt sér upp
við hlið réttlætisins,“ sagði hann.
Saddam var 5. nóvember sl. dæmd-
ur til dauða fyrir morðin á 148 sjítum í
þorpinu Dujail árið 1982. Í skýrslu
Mannréttindavaktarinnar segir hins
vegar að réttarhöldin hafi einkennst
af svo mörgum réttarfarslegum van-
köntum að úrskurðurinn sé ótraust-
ur. „Dómstóllinn fyrirgerði mikil-
vægu tækifæri til að sjá til þess að
réttlætinu yrði fullnægt til handa
írösku þjóðinni. Og sú ákvörðun að
dæma [Saddam] til dauða eftir svo
ósanngjörn réttarhöld er óverjandi,“
hafði AFP-fréttastofan eftir Nehal
Bhuta, sem samdi skýrslu Mannrétt-
indavaktarinnar. Byggir hann mat
sitt á tugum viðtala og jafnframt var
grannt fylgst með réttarhöldunum
sjálfum.
Úrskurðurinn yfir Saddam var í
gær sendur áfrýjunardómstól í Bag-
dad, en þar með er áfrýjunarferlið
farið af stað. Sérfræðingar segja að
þetta ferli geti tekið marga mánuði en
Nuri al-Maliki, forsætisráðherra
Íraks, sagði hins vegar eftir að dómur
féll að hann gerði ráð fyrir að Saddam
yrði hengdur fyrir árslok.
Fagna gagnrýni Mann-
réttindavaktarinnar
Saddam Hussein
London. AFP. | Alexander Litvinenko,
fyrrverandi njósnaforingi rússnesku
leyniþjónustunnar, var fluttur í gjör-
gæslu á sjúkrahúsi í London í gær
vegna veikinda sem talin eru stafa af
því að eitrað hafi verið fyrir hann.
Talsmaður rússnesku leyniþjón-
ustunnar sagði að hún tengdist á
engan hátt veikindum Litvinenkos.
„Rússneskar leyniþjónustustofnanir
hafa ekki byrlað mönnum eitur eða
framið morð með öðrum hætti í lang-
an tíma,“ sagði hann.
Sjúkrahúsið lét fjölmiðlum í té
fyrstu myndirnar sem birtar hafa
verið af Litvinenko á sjúkrabeðnum.
Vinir njósnarans fyrrverandi
ítrekuðu ásakanir sínar um að
stjórnvöld í Rússlandi hefðu látið
leyniþjónustuna eitra fyrir hann.
Litvinenko hafði gagnrýnt Vlad-
ímír Pútín, forseta Rússlands, og
skrifað tvær bækur þar sem hann
sakaði leyniþjónustuna um glæpa-
starfsemi og hryðjuverk. Hann flúði
til Bretlands fyrir sex árum.
Bera af sér eiturbyrlun
Reuters
Fárveikur Alexander Litvinenko á
sjúkrabeðnum í London í gær.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði á blaðamannafundi með
Hamid Karzai, forseta Afganistans, í
Kabúl í gær að lyktir hryðjuverka-
stríðsins svonefnda myndu ráðast
þar í landi. Brýndi hann jafnframt
breska hermenn í landinu til dáða
þegar hann hitti þá, sagði að þeirra
framlag myndi ráða úrslitum um
öryggi í heimi hér á 21. öldinni.
Reuters
Afganistan mikilvægt
FYRIR KL. 9.00. FYRIR KL. 12.00. EKKERT STÖÐVAR OKKUR.
DHL kemur sendingum til Bandaríkjanna eftir mörgum leiðum. DHL er með heimsins stærsta flutn-
ingsnet og kemur pakkanum þínum fljótt á áfangastað. Á réttum tíma. Þess vegna er DHL álitið eitt
áreiðanlegasta flutningafyrirtæki í Bandaríkjunum. Ekkert fær stöðvað okkur. Ráðgjafar okkar eru í
viðbragðsstöðu núna, það er ekki eftir neinu að bíða.
HRINGDU Í SÍMA 535 1100 EÐA HEIMSÆKTU VEFINN OKKAR, WWW.DHL.IS, TIL AÐ SENDA
PAKKANN AF STAÐ NÚNA.