Morgunblaðið - 21.11.2006, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 17
menning
ÞAU Magni, Dilana, Toby, Storm
og húsbandið úr Rock Star: Super-
nova-þáttunum mæta til leiks á tón-
leikum í Laugardalshöllinni 30.
nóvember nk. auk þess sem hljóm-
sveitin Á móti sól mun hita upp með
lögum af væntanlegri plötu sveitar-
innar. Vegna mikillar eftirspurnar
hefur aukatónleikum verið bætt við
1. desember í Laugardalshöllinni.
Miðasala á aukatónleikana 1. des-
ember hefst í dag, þriðjudag, kl. 12
hjá midi.is og í verslunum Skíf-
unnar.
Þá er einnig hægt að nálgast
miða hjá verslunum BT á Akureyri
og Egilsstöðum, að því er segir í til-
kynningu.
Ljósmynd/Matthias Ingimarsson
Félagar Þeir Magni og Toby taka saman lagið fyrir margt löngu.
Rock Star –
aukatónleikar
SKUGGINN nær yfirhöndinni í
nýrri óperu eftir þau Karólínu
Eiríksdóttur og Sjón, en hún var
frumsýnd á föstudagskvöldið. Óper-
an, sem ber nafnið Skuggaleikur, er
byggð á sögu eftir H.C. Andersen,
og fjallar um rithöfund er missir
valdið á skugganum sínum.
Þetta hljómar kannski súrreal-
ískt, en er það í rauninni ekki. Sál-
fræðingurinn Carl Jung sagði
skuggann tákna þá eiginleika í fari
mannsins sem hann vill yfirleitt ekki
viðurkenna að hann sjálfur búi yfir –
en þolir ekki í öðrum. Þegar hroki,
hefnigirni eða öfund stýrir gjörðum
manns, þá hefur skugginn náð yfir-
höndinni.
Í óperunni er aðalsögupersónan
rithöfundur, en hinar þrjár persón-
urnar eru hliðar á honum sjálfum.
Þetta eru skugginn – sjálfumgleðin
og hrokinn sem er allsráðandi í vit-
und rithöfundarins – og tvær kven-
persónur, skáldagyðjan og skugga-
hlið hennar, prinsessan. Skálda-
gyðjan er annað tákn sem Jung
fjallaði töluvert um. Hún er aníman
eða sálin sem tengir okkur við hið
guðlega, en prinsessan verður til
þegar hrokinn og sjálfumgleðin hef-
ur spillt sálinni, myrkvað hana, líkt
og tunglmyrkvinn undirstrikar í lok
óperunnar.
Í búningum og leikmynd Messí-
önu Tómasdóttur er hið táknræna
sterkt. Skugginn er í fyrstu ein-
kennilega kynlaus tvívíddarmynd en
ummyndast svo í kirkjugarðs-vúdú-
guðinn Baron Samedi og endar sem
H.C. Andersen sjálfur, en það er
ótrúlega vel útfært af Messíönu. Allt
útlit sýningarinnar skapar mergjað
andrúmsloft; það eitt og sér gerir
óperuna þess virði að sjá.
Hið illa er gamalt
Sagan er líka grípandi, og þótt ég
hafi bent á táknfræðina í henni út frá
hugmyndum Jungs, má vissulega
skilja verkið á fleiri vegu. Hið illa er
gamalt eins og arabískt máltæki
segir, og hvort illskan á upptök sín í
mannssálinni eða í einhverjum frum-
spekilegum víddum tilverunnar er
spurning sem ég ætla ekki að reyna
að svara hér. Annarlegt andrúmsloft
er í öllu falli áberandi í verkinu og
það er vel hægt að ímynda sér að
skugginn geti öðlast sjálfstætt líf,
jafnvel orðið andsetinn.
Samt er húmorinn fyrirferðar-
mikill og mörg atriði í óperunni eru
kostuleg. Sumar setningar á borð
við „þegar prinsessan er komin í
skap til að hengja, þá verður hún að
fá að hengja“ eru eftirminnilegar.
Því er töluverð synd hve oft gekk
erfiðlega að skilja það sem söngvar-
arnir sungu. Óneitanlega hefði
textavél gert sýninguna markvissari
og aðgengilegri.
Tónlist Karólínu er í svipuðum stíl
og annað sem hún hefur samið. Hún
er hófstillt, nánast rislítil, sem er
bæði kostur og galli. Hún skyggir
ekki á magnað leikritið, en nær að
sama skapi ekki að styðja við sögu-
þráðinn. Útkoman er nokkuð flat-
neskjulegt á köflum.
Eyjólfur frábær
Söngvararnir eru fjórir eins og áð-
ur hefur komið fram. Þetta eru Eyj-
ólfur Eyjólfsson tenór, en hann er
rithöfundurinn; Sverrir Guðjónsson
kontratenór er í hlutverki skuggans;
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran er
skáldagyðjan og Ásgerður Júníus-
dóttir mezzósópran er prinsessan.
Eyjólfur var frábær á frumsýn-
ingunni; söngurinn var guðdómleg-
ur, textaframburður skýr og leikur-
inn sannfærandi.
Sverrir var líka trúverðugur; per-
sóna hans var gædd ákveðnum tóm-
leika, meira að segja þegar hann var
sigri hrósandi í lok verksins. Ég var
hinsvegar ekki eins ánægður með
sönginn; vel má vera að hann hafi átt
að vera ögn holur, en ef það er rétt,
þá virkaði það ekki sem skyldi.
Röddina skorti litbrigði sem gerði
sönginn einhæfan. Textaframburði
var auk þess ábótavant.
Ingibjörg stóð sig að mörgu leyti
ágætlega; hún söng fallega þótt
nokkuð erfitt hafi verið að skilja
hana. Leikurinn var hinsvegar frem-
ur stirður; vissulega er skáldagyðjan
ójarðnesk, en hún má samt ekki vera
vélræn.
Ásgerður var hinsvegar stór-
skemmtileg sem hin illa prinsessa;
kraftmikill söngurinn var glæsilegur
og persónan sjálf ljóslifandi.
Almennt talað er leikstjórn Messí-
önu og Ástrósar Gunnarsdóttur vel
heppnuð. Það „gerist“ að vísu ekki
mikið á sviðinu, en það undirstrikar
þó hið innhverfa í verkinu. Kyrr-
staðan sýnir að sagan á sér stað í sál
aðalpersónunnar, ekki í hinum ytri
heimi. Engu að síður er kyrrstaðan
stundum fullmikil, sérstaklega í tón-
listinni, eins og áður hefur komið
fram.
Lítil kammersveit undir stjórn
Guðna Franzsonar spilaði yfirleitt
prýðilega þarna um kvöldið og þær
fáeinu misfellur sem voru greinan-
legar verða örugglega horfnar á
næstu sýningu.
Í það heila er Skuggaleikur at-
hyglisverð ópera sem oft nær sterku
andrúmslofti. Þótt tónmálið sé fram-
andi er leikritið einstaklega heillandi
og þeir sem hafa áhuga á skugga-
hliðum tilverunnar ættu ekki að
missa af sýningunni.
Skugginn drottnar
TÓNLIST
Íslenska óperan
Tónlist: Karólína Eiríksdóttir. Leikgerð og
söngtexti: Sjón. Leikstjórn: Messíana
Tómasdóttir og Ástrós Gunnarsdóttir.
Leikmynd, brúður, grímur og búningar:
Messíana Tómasdóttir. Hljómsveitar-
stjóri: Guðni Franzson. Söngvarar: Eyjólf-
ur Eyjólfsson, Sverrir Guðjónsson, Ingi-
björg Guðjónsdóttir og Ásgerður Júníus-
dóttir. Föstudagur 18. nóvember.
Skuggaleikur
Jónas Sen
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skuggaleikur „Þeir sem hafa áhuga á skuggahliðum tilverunnar ættu ekki
að missa af sýningunni,“ segir meðal annars í gagnrýni Jónasar Sen.
Su›urlandsbraut 26
Reykjavík
Sími: 510 0000
Brekkustíg 39
Njar›vík
Sími: 420 0000
Mi݇si 7
Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Grundargötu 61
Grundarfir›i
Sími: 430 0000
www.besta.is
SPEEDBALL blettahreinsir skotvirkar á erfi›a bletti eins og fitu, blek, vaxliti,
varalit, vín, matarleifar og fleira. Efninu er ú›a› beint úr brúsanum á blettinn
og sí›an flurrka›. fiarf ekki a› skola. Skilur ekki eftir leifar.
Prófa›u SPEEDBALL – hann hreinlega virkar!
* Tilbo› gildir til 30. nóvember 2006 e›a á me›an birg›ir endast.
25%
afsláttur*
HREINLEGA
VIRKAR Á BLETTINA