Morgunblaðið - 21.11.2006, Síða 29

Morgunblaðið - 21.11.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 29 ÞRÓUNIN í íslenska kvik- mynda- og sjónvarpsgeiranum hefur í heildina tekið verið já- kvæð á árinu sem og á und- anförnum misserum. Ýmislegt bendir til þess að af- rakstur margra ára baráttu fyrir bættu starfsumhverfi sé að byrja að skila sér. Greinin hefur vaxið og eflst á und- anförnum árum og ný kynslóð kvikmynda- gerðarmanna er farin að láta til sín taka með afgerandi hætti. Stjórnvöld hafa kom- ið auga á þetta og það birtist í nýund- irrituðu samkomulagi til fjögurra ára um eflingu kvikmynda- gerðar, sem og hækkun endur- greiðsluhlutfalls úr 12 í 14%, auk fyr- irheita um aukningu fjármagns Sjónvarps- ins til innlendrar dagskrár. Tímamót? Getur verið að þessa tímabils verði minnst sem einhverskonar tímamóta þegar fram líða stund- ir? Það er vissulega áhættusamt að gerast spámaður, því margt gæti gerst sem hægði á þróun og framförum, en skoðum aðeins málið. Góðar bíómyndir Þær þrjár bíómyndir sem til- nefndar voru til Edduverðlauna í ár (Blóðbönd, Börn og Mýrin) eru ekki aðeins mjög frambærilegar og hafa vakið athygli; þeim er það öllum sameiginlegt að eiga brýnt erindi við samtíma sinn og tekst að koma því erindi til skila af sannfæringu. Þær eru allar góð dæmi um myndir sem ég tel að við þurfum að leggja sérstaka áherslu á; samtímasögur um fólk sem kemur manni við og snertir við áhorfandanum, „sögur af grunnplaninu“ eins og Þröstur Helgason ritstjóri Lesbókarinnar orðaði það í pistli fyrir skömmu. Það er afar ánægjulegt að sjá jafn vel heppnaðar myndir til- nefndar á sama árinu. Að auki er ýmislegt sem bendir til þess að fleiri myndir af þessu taginu séu á leiðinni. Latibær Latabæjarævintýrið, með Magnús Scheving í broddi fylk- ingar, hefur dreifst um heims- byggðina og hefur verið tekið til sýninga í tugum landa. Tökum á nýrri þáttaröð er lokið og frekari áfangar eru við sjón- deildarhringinn. Í Garðabænum hefur verið byggt upp geysiöflugt og full- komið alhliða mynd- ver sem nýtast mun frekari framleiðslu fyrirtækisins auk þess sem öðrum mun gefast kostur á að nota aðstöðuna. Alþjóðlegt samstarf Íslenskir kvik- myndagerðarmenn eiga nú í fjöl- breytilegu samstarfi við alþjóðlega aðila á sviði kvikmynda og sjónvarps. Íslensk kvikmyndafyrirtæki taka þátt í samframleiðslu á kvik- myndum bæði hér heima og er- lendis og nokkur innlend fyr- irtæki hafa byggt upp sérhæfða þekkingu í þjónustu við erlend kvikmyndafélög. Íslenskt starfs- fólk er ráðið til þessara verkefna vegna þess að það uppfyllir harð- ar alþjóðlegar kröfur um fag- mennsku. Leikið íslenskt sjónvarpsefni – já takk Síðast en ekki síst virðist sem hilli undir alvöru aðgerðir í fram- leiðslu leikins sjónvarpsefnis. Ljóst er að eftirspurn íslenskra áhorfenda eftir slíku efni er mjög mikil og að til er hér stór og hæfileikaríkur hópur sem kann til verka á þessu sviði og klæjar í lófana að hefjast handa á reglu- legum grunni. Engin spurning er að skort- urinn á leiknu sjónvarpsefni er hvað tilfinnanlegastur þegar horft er yfir sviðið. Það væri því mjög ánægjulegt að sjá yfirlýsingu frá útvarpsstjóra sem innihéldi kjark- mikla, en um leið raunhæfa, sýn á eflingu slíks efnis. Í yfirlýsingunni yrði að finna breiða og almenna stefnumörkun, en hana mætti krydda með ákveðnum dæmum sem gæfu til kynna þau viðmið sem útvarpsstjóri vill setja. Eðli- legast væri að slík yfirlýsing kæmi að undangenginni samræðu við kvikmyndagerðarmenn. Í þessu sambandi má vísa til reynslu Dana. Hingað kom nýlega Sven Clausen, framleiðandi hjá Danska sjónvarpinu (Örninn, Kró- nikan o.fl.) og ræddi um end- urreisn leikins sjónvarpsefnis hjá frændum okkar. Endurmat þeirra hófst um miðjan síðasta áratug og leiddi m.a. til þessara útgangs- punkta:  Leiknar seríur séu flaggskip dagskrárinnar.  Efnisinnihald miðist við þjón- ustuhlutverk sjónvarps í al- mannaþágu; að fjallað sé um samfélagsleg efni sem eiga víða skírskotun og þannig boðið uppá efni sem veki áhuga og skapi umræðu meðal almenn- ings.  Áhersla verði lögð á að ná inn nýjum (yngri) áhorfendum og rannsóknir gerðar á viðhorfum sjónvarpsáhorfenda almennt til nálgunar og framsetningar leikins sjónvarpsefnis. Allt þetta hefur tekist afar vel hjá Dönum og því sjálfsagt að huga að reynslu þeirra. Sjónvarpið verður að taka af skarið og leiða. Setja fram markmið og viðmið. Í því felst tilvistarlegur réttur þess. Engin spurning er um að geirinn er tilbúinn að takast á við þetta verkefni. Og þjóðin bíður – spennt við skjáinn. Framtíðin Nýundirritað samkomulag um eflingu kvikmyndagerðar, aukning á fjármagni Sjónvarpsins til inn- lendrar dagskrárgerðar og hækk- un á endurgreiðslu vegna kvik- myndaframleiðslu eru allt lofsverðar aðgerðir af hálfu stjórn- valda og sýna skilning á sérkenn- um og mikilvægi þessarar greinar. Þær fela jafnframt í sér áskorun til kvikmyndagerðarmanna um að standa undir því trausti sem þeim er sýnt. Framundan eru því bæði kefjandi og spennandi tímar. Tímamót í íslenskri kvikmyndagerð? Ásgrímur Sverrisson fjallar um kvikmyndagerð » Það er afaránægjulegt að sjá jafn vel heppnaðar myndir til- nefndar á sama árinu. Ásgrímur Sverrisson Höfundur er kvikmyndagerðarmaður og ritstjóri Lands & sona (www.logs.is), málgagns íslenskrar kvikmyndagerðar. ÞEIR ánægjulegu atburðir áttu sér stað í prófkjörum stóru flokk- anna í Suðurkjördæmi að fram kom órofa samstaða um tvöföldun Suðurlands- vegar. Um þetta hefur verið deilt síðustu misseri en nú virðast allir sammála. Ágrein- ingur hefur verið uppi um hvort leggja skuli svokallaðan tveir plús einn veg með vír á milli akreina eða fara alla leið og tvöfalda veginn frá Rauðavatni á Selfoss. Ekki náðist sam- staða um málið fyrir réttu ári þegar Mar- grét Frímannsdóttir, 1. þingmaður kjör- dæmisins, hafði for- göngu um það að vinna sameiginlega þings- ályktun um tvöföldun vegarins á næstu ár- um. Tillagan var unnin með það að markmiði að hana flytt- um við öll tíu þingmenn kjördæm- isins. Stjórnarþingmenn sögðu nei og samstaða náðist ekki. Hún var að lokum flutt af okkur fjórum samfylk- ingarmönnum og þingmanni Frjáls- lyndra, Magnúsi Þór Hafsteinssyni. Nú blasir nýtt landslag við. Sjálf- stæðismenn eru klárlega með, Árni Mathiesen, Árni Johnsen, Drífa Hjartardóttir og Kjartan Ólafsson. Öll börðust þau fyrir tvöföldum vegi í prófkjörinu um daginn. Tóku skýrt af skarið með það sem er gott mál enda þverpólitísk samstaða und- irstaða framfara í öllum stórum mál- um. Þá samstöðu hefur okkur skort. Nú er lag að breyta um takt í því. Þvert á þessa samstöðu er síðan flokksbróðir þeirra samgöngu- ráðherrann. Einsog þruma úr heið- skíru lofti væntinganna um tvöfald- an veg kynnir samgönguráðherra nú tillögu að tveir plús einn vegi sem leggja skal á næstu árum. Höfðinu er barið í steininn. Síðan er gert ráð fyr- ir að tvöfalda veginn eftir 2030. Þá með því að bæta inn einni akrein til. Ekki skal tvöfaldað nú og ekki á að skilja á milli akreina með eyju eða bili, líkt og gert er á Reykjanesbraut. Þetta er fráleitt af hálfu samgöngu- yfirvalda. Skora ég á nýjan oddvita sjálf- stæðismanna í Suður- kjördæmi, um leið og ég óska honum til ham- ingju með kjörið, að taka af skarið og gera áhlaup gegn þessari af- leitu afstöðu samgöngu- ráðherra. Veginn á að tvöfalda. Hitt er hálf- kák og sóun á tíma, tækifærum og fjármunum. Þetta er eitt af stærstu málum þjóðarinnar í dag. Umferðin um veginn er gífurleg, vegurinn er hættulegur og eina framtíðarlausnin er tvöföldun. Tjón á veginum kosta yfir milljarð á ári. Um tíðni alvar- legra slysa og banaslysa þarf ekki að fjölyrða. Um tvöföldun er mikil samastaða í kjördæminu á meðal almennings, sveitarstjórnarmanna og þing- manna. Einkafyriræki vilja koma að lagningu vegarins samanber áhuga Sjóvar-Almennra. Það líst mér um margt vel á. Eigum að skoða allar færar leiðir. Nú er að standa við stóru orðin, fjármálaráðherra. Taktu af skarið svo ekki fari fyrir þessu verkefni eins og Suðurstrandavegi. Hinni sérstöku samgönguframkvæmd vegna kjördæmabreytinga sem ekki átti að hafa áhrif á aðrar fram- kvæmdir. Sá vegur var loforð rík- isstjórnarinnar til íbúa í Suður- kjördæmi sem forsenda kjördæmabreytinga. Það var svikið því miður fyrir okkur öll. Látum slíkt ekki henda nú þegar rykið sest að vopnaglamri prófkjöra loknu. Standa nú stóru orðin Björgvin G. Sigurðsson skrifar opið bréf til fjármálaráðherra Björgvin G. Sigurðsson » Taktu afskarið svo ekki fari fyrir þessu verkefni eins og Suður- strandavegi. Höfundur er efstur á lista Samfylk- ingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Dóra Hjálmarsdóttir: Áhættu- mati fyrir Kárahnjúkavirkjun er ekki ábótavant. Oddur Benediktsson: Áhættumati fyrir Kárahnjúka- virkjun er ábótavant. www.mbl.is/profkjor „Kjósum Sigurjón Bene- diktsson á Alþingi!“ Friðrik Sigurðsson styður Sigurjón Benediktsson í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Norðurþingi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar Suðurlandsbraut 20 – 108 Reykjavík Sími 588 0200 –www.eirvik.is -hágæðaheimilistæki Miele þvottavélar Íslenskt stjórnborð Ný og betri tromla Verð frá kr. 114.800 -hreinn sparnaður 1. verðlaun í Þýskalandi W2241WPS vi lb or ga @ ce nt ru m .is FASTEIGNASALAN GIMLI FASTEIGNASALAN GIMLI REYKJAVÍK, GRENSÁSVEGI 13 SÍMI 570 4800 Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali. AKRANESI, KIRKJUBRAUT 5, SÍMI 570 4800 TVÍBURATURNARNIR VIÐ HAGAFLÖT 9 OG 11 AKRANESI Hagaflöt 9 og 11 eru falleg 5 hæða lyftuhús, 20 íbúðir í hvoru húsi. Sérinngangur og sérþvottahús innan íbúða. Fallegar innréttingar og tæki frá Bræðrunum Ormsson, hurðir, flísar og hreinlætistæki frá Harðviðarvali. Afhending 15. apríl og 1. ágúst 2007. Öllum íbúðum fylgir inneignarbréf frá Harðviðarvali frá 550.000-750.000 kr. Greiðslufyrirkomulag er nýtt á íslenskum hús- næðismarkaði. 5% staðfestingargjald við undirritun kaupsamnings. 90% við afhendingu íbúðar. 5% við fullnaðarfágang samkvæmt skilalýsingu. Nánari upplýsingar á hagaflot.is og Gimli.is eða Hákon í síma 570 4824 og 898 9396.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.