Morgunblaðið - 21.11.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 35
✝ ÞorvaldurMagnússon
fæddist 15. febrúar
1920. Hann lést á
líknardeildinni á
Landakoti hinn 13.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Halldóra Sig-
ríður Jónsdóttir, f.
14. febrúar 1892, d.
15. febrúar 1931, og
Magnús Jónsson, f.
4. janúar 1896, d.
23. apríl 1980. Syst-
ur Þorvalds eru
María M. Magnúsdóttir, f. 10.
október 1916, og Ingibjörg G.
Magnúsdóttir, f. 21. apríl 1924.
Eiginkona Þorvaldar var Jó-
hanna Sigurhildur Ívarsdóttir, f.
2. október 1919, d. 30. júní 1996.
Þau giftust hinn 27. október 1945.
Synir Þorvaldar og Jóhönnu eru:
1) Árni Rúnar, f. 7. ágúst 1946,
kvæntur Valgerði Sumarliðadótt-
ur og eiga þau fjögur börn og sex
barnabörn. 2) Magnús Smári, f. 4.
janúar 1950, kvæntur Þóru Ó.
Þorgeirsdóttur og eiga þau þrjár
dætur og sex barna-
börn. 3) Halldór
Bergmann, f. 24.
janúar 1951, kvænt-
ur Öldu S. Ottós-
dóttur og eiga þau
þrjú börn og sjö
barnabörn. 4)
Magnús Ívar, f. 3.
september 1952,
kvæntur Kolbrúnu
Haraldsdóttur og
eiga þau fjórar dæt-
ur. Fyrir átti Kol-
brún tvo syni. 5)
Guðni Þór, f. 5. jan-
úar 1962, kvæntur Sigurlaugu
Pálsdóttur og eiga þau tvö börn.
Þorvaldur og Jóhanna bjuggu
stærstan hluta af sínum búskap í
Ásgarði. Síðan fluttu þau í Furu-
grund. Síðasta árið bjó Þorvaldur
á sambýli fyrir aldraða í Gull-
smára. Þorvaldur byrjaði að aka
sem leigubílsjóri hjá Steindóri í
stríðslok og síðar hjá Hreyfli til
starfsloka.
Útför Þorvaldar verður gerð
frá Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Afi minn Þorvaldur Magnússon er
látinn. Ótal minningar koma upp í
hugann og þá fyrst bernskuminning-
ar úr Ásgarðinum. Fátt var skemmti-
legra en að fá að gista hjá ömmu og
afa, fá kakó og brauð með osti á
sunnudagsmorgni og svo haldið í bíl-
túr á Hrafnistu að heimsækja lang-
ömmu. Afi var mjög fyndinn maður í
eðli sínu og hefur hans sérstaki húm-
or alla tíð sett skemmtilegan svip yfir
ættartréð. Einkum og sér í lagi hafði
hann einstakan hæfileika í að finna
upp orð og liggja eftir hann heilu
orða- og nafnasöfnin sem við munum
nú leggja okkur fram við að halda til
haga. Sérstakt var að fylgjast með
honum innan um dýr en hann var
mikill dýravinur og talaði við hunda,
ketti og hesta líkt og á sama tungu-
málinu. Afi var árlegur gestur hjá
mömmu og pabba á gamlárskvöld og
verður hans sárt saknað í ár. Ég leyfi
mér að trúa því að hann sé nú á öðru
og æðra tilverusviði og gantist þar við
kisa minn eins og hann var vanur að
gera.
Afi starfaði sem leigubílstjóri hjá
Hreyfli í yfir 40 ár og þekkti því vel til
á götum borgarinnar á sinni tíð. Það
var því ekki komið að tómum kofun-
um þegar undirrituð komst til vits og
ára og vildi fá smjörþefinn af gömlum
tíðaranda; skoða gamlar myndir af
ömmu og afa á balli á Borginni, með
langafa í London um 1960, endalaust
er hægt að telja upp.
Það er von mín að þér líði betur á
nýjum stað með ömmu þér við hlið.
Þú verður ávallt í okkar hugum. Hvíl í
friði.
Þín sonardóttir,
Jóhanna Guðrún Árnadóttir.
Elsku afi, það er sárt að þurfa að
kyngja þeirri staðreynd að þú sért dá-
inn. Hins vegar hugga ég mig við það
að nú þurfir þú ekki að þjást meira.
Ég er þakklát fyrir fallega og góða
stund sem við áttum saman þegar við
mæðgurnar heimsóttum þig í síðasta
skipti áður en þú lést. Þú söngst svo-
lítið fyrir okkur og kvaddir okkur á
þinn einstaka hátt.
Þú varst yndislegur maður og mér
leið alltaf vel í kringum þig. Þú hafðir
mjög gaman af því að gantast í mér og
sama má segja um mig.
Það var ávallt gott að koma í heim-
sókn til ykkar ömmu, fyrst í Ásgarð-
inn og seinna á Furugrundina. Maður
fékk alltaf höfðinglegar móttökur og
góðgæti til að maula á. Þótt hnallþór-
urnar hafi orðið færri eftir að amma
dó, kom ristaða brauðið með laxinum
sér allaf vel.
Þið amma voruð mjög samrýnd og
nú trúi ég því að þið hafið hist á ný.
Það er enginn vafi í huga mínum að á
þeirri stundu hafa átt sér stað miklir
fagnaðarfundir.
Það er skrýtið að hugsa til þess að
þú munir ekki koma oftar í sunnu-
dagskaffi til pabba og mömmu og eins
verður jólahátíðin ekki söm án þín.
Þín mun ég alltaf minnast með
gleði í hjarta. Ég bið góðan guð að
geyma þig og varðveita, elsku afi
minn.
Hafðu þökk fyrir allt.
Þín,
Sigríður Þóra.
Afi, síðan ég varð nógu stálpaður til
að stýra bifreið gætti ég þess að kíkja
reglulega til þín í Furugrundina. Þar
skorti ekki móttökurnar. Ristað
brauð með marmelaði, heitt á könn-
unni. Þú með þinn prakkaralega húm-
or og léttu lund. Ég kynntist þér vel í
gegnum þessar vísitasíur. Við skegg-
ræddum málin. Hlustuðum á Gufuna.
Ég læddist í neftóbaksdolluna þína,
þennan gamla brandí-blandaða, ís-
lenska rudda. Við rýndum oft í gaml-
ar myndir af ömmu heitinni. Oftar en
ekki leiddir þú mig í gegnum hvernig
myndirnar urðu til. Það þótti mér
vænt um, því ég kynntist ömmu betur
fyrir vikið. Það er sárt að geta ekki
lengur kíkt til þín í Kópavoginn. Það
er sárt og erfitt að kveðja þig. Á sama
tíma er ég þakklátur fyrir að hafa átt
þig að. Blessjú, nafni.
Þorvaldur Árnason.
Elsku afi minn, loksins ertu kom-
inn til ömmu sem þú ert búinn að
sakna svo sárt síðan hún fór frá okkur
fyrir tíu árum. Sú hefur tekið vel á
móti þér, kysstu hana frá mér, afi
minn.
Guð geymi þig, elsku afi.
Þín
Linda Rós.
Þorvaldur Magnússon
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
LEGSTEINAR
SteinsmiðjanMOSAIK
Hamarshöfða 4 – sími 587 1960
www.mosaik.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN BJÖRGVIN ÞORVALDSSON
málarameistari,
dvalarheimilinu Hornbrekku,
Ólafsfirði,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudag-
inn 22. nóvember kl. 15.00.
Þorvaldur Björnsson, Erna Haraldsdóttir,
Guðmundur Björnsson, Elín Halldórsdóttir,
Elín Björnsdóttir, Árni Sveinbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir vináttu og samúð við andlát
sonar okkar, bróður, mágs, dóttursonar og frænda,
ÓLAFS ÞÓRS ÓLAFSSONAR.
Sérstakar þakkir til íbúa og starfsfólks í Vallholti
12–14, Selfossi.
Sigrún Gyða Sveinbjörnsdóttir, Ólafur Th. Ólafsson,
Elín Vigdís Ólafsdóttir,
Hrund Ólafsdóttir,
Bragi Ólafsson, Sólveig Guðmundsdóttir,
Sigrún Sól Ólafsdóttir, Pálmi J. Sigurhjartarson,
Guðrún Sigurðardóttir
og systkinabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
MAGNEU SIGURÐARDÓTTUR.
Jóhanna Ágústsdóttir, Ólafur Hermannsson,
Linda Ágústsdóttir, Jón Þorkelsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
JÓNS EINARSSONAR
vélstjóra
frá Smyrlabjörgum,
Suðursveit.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Sóltúns fyrir góða og kærleiksríka
umönnun.
Alda Júlíusdóttir og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ÓLA PÁLMA HALLDÓRS ÞORBERGSSONAR,
Dunhaga 13,
Reykjavík.
Hildur Kjartansdóttir,
Kjartan Ólason,
Helga Óladóttir, Konráð Eyjólfsson,
Oddný Þóra Óladóttir, Pétur H. Jónsson
og afabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ERLU GUÐLAUGAR MAGNÚSDÓTTUR,
áður til heimilis á
Ásvegi 21,
Akureyri.
Antonía Lýðsdóttir, Sigurður Hermannsson,
Elín Margrét Lýðsdóttir, Atli Sturluson,
barnabörn og langömmubarn.