Morgunblaðið - 21.11.2006, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 43
menning
EINS og við mátti búast reyndist
nýja James Bond-myndin, Casino
Royale, fá mestu aðsóknina í kvik-
myndahúsunum í síðustu viku. Alls
sáu 10.594 myndina í síðustu viku
sem þó var ekki frumsýnd fyrr en
undir lok vikunnar, á föstudegi.
Hún halaði inn rúmum níu millj-
ónum kr. í aðgangseyri. Casino
Royale hefur hlotið afbragðsdóma.
Myndin þykir spennandi og vel
gerð og söguefnið er trúverðugra
en oft áður. Kvikmyndin er gerð
eftir fyrstu skáldsögu Ians Flem-
ing um ofurnjósnarann James
Bond og í Casino Royale fá bíó-
gestir að fylgjast með Bond takast
á við sitt fyrsta verkefni sem
njósnari hennar hátignar.
Daniel Craig fer á kostum sem
hinn nýi Bond og leyfir sér að
gæða njósnara hennar hátignar ör-
lítilli viðkvæmni og rómantík.
Sumir gagnrýnendur hafa gengið
svo langt að segja að Casino Ro-
yale sé best Bond-myndin frá upp-
hafi.
Mýrin, kvikmynd Baltasar Kor-
máks eftir sögu Arnaldar Indr-
iðasonar, þurfti að víkja fyrir
Bond-ævintýrinu. Mýrin sat í öðru
sæti í síðustu viku hvað varðar að-
gangseyri.
Alls sáu 2.711 manns myndina í
síðustu viku en hún hefur verið í
sýningu í fimm vikur. Mýrin hefur
hlotið fádæma góðar viðtökur hér-
lendis og rakaði að sér verðlaunum
á nýafstaðinni Eddu-hátíð, þar
sem hún var valin mynd ársins.
Handrit ársins hlaut hins vegar
hópurinn sem stóð að Börnum.
Börn er nú í 7. sæti listans, sama
sæti og í þar síðustu viku.
Kvikmyndir | 10.600 manns sáu Casino Royale
Bond skýst á toppinn
! "
#$
$
%$
&$
'$
$
($
)$
*$
#$
-=! #
Svalur Daniel Craig fer á kostum sem nýr James Bond.
TEIKNIMYNDIN Happy Feet, sem
fjallar um mörgæsir, skákaði nýju
Bond-myndinni Casino Royale í
norður-amerískum kvikmynda-
húsum um helgina. Tekjur af
mörgæsamyndinni, sem Elijah Wo-
od, Robin Williams, Brittany
Murphy, Hugh Jackman og Nicole
Kidman tala m.a. inn á, námu 42,3
milljónum dala en Casino Royale afl-
aði 40,6 milljóna dala tekna um
helgina. Casino Royale aflaði síðan
42,2 milljón dala tekna utan Banda-
ríkjanna og Kanada, þar af kom
helmingurinn af sýningum í Bret-
landi. Samanlagðar tekjur af mynd-
inni í Bandaríkjunum voru þó öllu
minni en þeir 47,1 milljónir dala sem
náðist inn á fyrstu sýningarhelgi
annarrar Bond-myndar, Die Anot-
her Day, árið 2002.
Happy Feet hefur verið líkt við
óskarsverðlaunamyndina March of
the Penguins.
Það er ástralski kvikmyndagerð-
armaðurinn George Miller sem leik-
stýrir myndinni en hann framleiddi
m.a. kvikmyndirnar um Mad Max og
Babe. Inn á myndina talar einnig
sjónvarpsmaðurinn Steve Irwin, sem
þekktur var fyrir náttúrulífsmyndir
í sjónvarpi.
Gamanmyndin Borat: Cultural Le-
arnings of America for Make Benefit
Glorious Nation of Kazakhstan, sem
verið hefur í efsta sæti undanfarnar
helgar, fór niður í 3. sæti. Þá fór jóla-
sveinamyndin The Santa Clause 3:
The Escape Clause, með Tim Allen í
aðalhlutverki, niður í 5. sæti og
teiknimyndin Flushed Away fór nið-
ur í 5. sæti.
Mörgæsirnar skáka
sjálfum James Bond
1. Happy Feet
2. Casino Royale
3. Borat
4. The Santa Clause 3
5. Flushed Away
6. Stranger Than Fiction
7. Babel
8. Saw III
9. The Departed
10. The Queen
Reuters
Mörgæsir Robin Williams talar inn
á myndina Happy Feet.
Kvikmyndir | Happy Feet tekjuhæst
Alþjóðlega hljómsveitakeppn-in Global Battle of theBands fer nú fram hér-
lendis í þriðja skipti. Búið er að
klára tvö undanúrslitakvöld af
fjórum, og fóru þau fram á mið-
vikudaginn og fimmtudaginn. Alls
keppa sextán hljómsveitir um sæti
í úrslitakeppninni, sem fram fer í
Lundúnum 12. desember nk. Þar
munu sigurvegarar frá tuttugu og
fjórum löndum öðrum einnig
keppa, en sigurlaunin eru 100.000
dollarar og tónleikaferðalag um
heiminn. Sigurvegarar fyrstu úr-
slitakeppninnar, sem haldin var
2004, var spænska sveitin Seconds,
en í fyrra var það hin írska Ko-
pek. Seconds er nú á mála hjá
EMI og Kopek var að taka upp
með upptökustjóranum Danny
Saber (hefur m.a. unnið fyrir
Madonnu, Rolling Stones og David
Bowie).
Hér á landi er keppnin haldin íHellinum, tónleikastað Tón-
listarþróunarmiðstöðvarinnar á
Granda. Þær sveitir sem komust
áfram heita Gordon Riots og Ro-
yal Fanclub, sú fyrrnefnda spilar
níðþungt „metal-core“ en sú síð-
arnefnda hressilegt nýbylgjurokk.
Gordon Riots lék á þungarokks-
kvöldi miklu og hafði sitt í gegn
sökum mikils þéttleika auk þess
sem áran í kringum bandið var
smitandi. Það var „gengis“-bragur
á meðlimum, líkt og þegar Mínus
sigraði í Músíktilraunum Tóna-
bæjar um árið. Sama má segja um
Royal Fanclub, nafn sem ein-
hverjir ættu að kannast við, en
sveitin hefur keppt í Músíktil-
raunum auk þess sem a.m.k. tvær
plötur liggja eftir sveitina.
Það mátti finna snert af Jak-
obínurínu og Jeff Who í leik sveit-
arinnar, sem gaf af sér ungæð-
islega og frískandi strauma.
Meginstef þessara tveggja
kvölda var rokk og allir kepp-
endur voru karlkyns. Allnokkur
gæðamunur var á sveitunum eins
og gengur, það komst ekki vatn á
milli í leik Gordon Riots, svo bylm-
ingsþétt var hún á meðan sumar
hljómsveitir hefðu að ósekju mátt
halda sig lengur inni í skúrnum.
Maður ber GBOB (eins ogkeppnin er skammstöfuð)
óhjákvæmilega saman við aðra
hljómsveitakeppni hér á landi,
nefnilega Músíktilraunir. GBOB er
enn að slíta barnsskónum, skipu-
lag er ekki enn í föstum skorðum
og nafnið er ekki á hvers manns
vörum enn sem komið er. GBOB
er eins og hrárri útgáfa af Mús-
íktilraunum, áhorfendur voru af
skornum skammti og á fyrsta
kvöldinu leið mér (ég er einn af
þeim sem skipar þriggja manna
dómnefnd) meira eins og ég væri
á áheyrnarprufu fyrir leikrit, þar
sem leikstjórinn situr úti í tómum
salnum ásamt aðstoðarfólki.
Skipuleggjendur hafa reyndar
staðið sig með miklum sóma, en
þeir tjáðu blaðamanni að þeir
hefðu verið ræstir út með þriggja
vikna fyrirvara. Þessar brotalamir
verða efalaust lagfærðar með
reynslunni, en keppnin býr yfir
mörgum kostum og synd væri ef
þeir verða ekki virkjaðir til fulls.
Reglur GBOB eru rýmri enMúsíktilraunareglurnar og
form þessara keppna er ólíkt. Sig-
urvegarar Músíktilrauna fá hljóð-
verstíma, uppskera mikið umtal og
leggja jafnan í plötugerð. GBOB
snýst um að koma hljómsveitum á
framfæri erlendis, og liðsmenn
hljómsveitanna koma því efalaust
með nokkru öðru hugarfari til
leiks. Söngvari og gítarleikari
Winter Perfect, efnilegrar sveitar
sem lék á síðara kvöldinu, sagði
keppnina vera „spark í rassinn til
að gera eitthvað,“ þeir félagar
hefðu samið nýtt lag þar sem þeir
höfðu eitthvað að stefna að, höfðu
einhvern viðmiðunarpunkt. Söngv-
arinn lýsti þannig á kjarnyrtan
hátt mikilvægasta hlutverki hljóm-
sveitakeppna, en það er fyrst og
fremst að koma hreyfingu á hlut-
ina og hvetja ungt listafólk til
dáða á sköpunarsviðinu, frekar en
að hengja ódýrar medalíur um
hálsinn á því.
„Spark í rassinn til að gera eitthvað …“
» „Hlutverk hljóm-sveitakeppna er fyrst
og fremst að koma
hreyfingu á hlutina og
hvetja ungt listafólk til
dáða á sköpunarsvið-
inu.“
GBOB Írska sveitin Kopek sigraði í The Global Battle of the Bands í Lundúnum í fyrra.
arnart@mbl.is
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen