Morgunblaðið - 21.11.2006, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 21.11.2006, Qupperneq 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 21. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Casino Royale kl. 5, 8 og 11 B.i. 14 ára Borat kl. 10 B.i. 12 ára Mýrin kl. 8 B.i. 12 ára Skógarstríð m.ísl.tali kl. 6 eeee S.V. Mbl. Eruð þið tilbúin fyrir eina fyndnustu mynd allra tíma? KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK Sími - 564 0000Sími - 462 3500 MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG eeeee V.J.V. - Topp5.is T.V. - Kvikmyndir.com eeeee EMPIRE eeeee THE MIRROR 70.000 gestir! 5 Edduverðlaun besta mynd ársins, besti leikar ársins, besti leikstjórinn, besti aukaleikarinn og besta tónlistin (Mugison) Casino Royale kl. 5, 8 og 11 B.i. 14 ára Casino Royale LÚXUS kl. 5, 8 og 11 Borat kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára Mýrin kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Open Season m.ensku.tali kl. 4, 6, 8 og 10 Skógarstríð m.ísl.tali kl. 4 eeee „EIN BESTA MYNDIN FRÁ UPPHAFI... BOND ER KOMINN AFTUR Í FJÓRAR OG FEITAR STJÖRNUR, ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ ÓSKA SÉR BETRI AFÞREYINGAR Í SPENNUMYNDAGEIRANUM.“ SV MBL eeee V.J.V, Topp5.is “Besta Bond myndin í áraraðir” eeee Þ.Þ, FBL “Besta Bond myndin frá upphafi... Bond er kominn aftur með látum, hefur aldrei verið betri...Alvöru Bondarnir eru nú orðnir tveir” MMJ KVIKMYNDIR.COM Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Sýning Helga Þorgils Friðjóns-sonar myndlistarmanns og Ein- ars Fals Ingólfssonar ljósmyndara stendur yfir í galleríinu Anima í Inólfsstræti. Á sýningunni gefur að líta ljósmyndir Einars Fals ásamt málverkum og texta Helga Þorgils. Verkin eru afsprengi þriggja daga ferðarlags þeirra í ágúst fyrir tveimur árum um hið fornfræga höfuðból Skarð á Skarðsströnd í Dalasýslu. Sýningin stendur til 2. desember og er opið þriðjudaga til laugardags kl. 13–17. Fimmtudaginn 23. nóvember kl. 15 verður opnuðsýning á ljósmyndum Elisabeth Smolarz í Skotinu, nýrri sýningaraðstöðu í anddyri Ljósmynda- safns Reykjavíkur. „Appelsínugul eyja“ er myndröð sem Elisabeth Smolarz tók á Íslandi, varpað á 150 x 190 cm vegg og myndar þannig lifandi myndflæði. Einnig eru sýndar nokkrar myndir úr myndröðinni „Fullkominn draumur og líf“ frá borginni Beijing í Kína. Elisabeth Smolarz vinnur í ólíkan efnivið; ljós- myndir, teikningar, myndbönd og teiknimyndir. Hún notar aðferðir rannsókna og fræðilegra kannana til að afla efniviðar í verk sín. Á meðan hún dvaldi á Íslandi árið 2005 tók hún fjölda ljósmynda og myndbanda og skráði það sem henni fannst einkenna landið og borgina Reykjavík, landslagið í borginni og utan hennar einnig. Sérstaka eftirtekt hennar vakti gróðurleysið, nútímalegar byggingarnar, hagnýtisjónarmið byggingarstílsins og ekki síst hin sérstaka birta, sem annaðhvort er í of miklu magni eða of litlu. Hægt og sígandi kom fram í mynd- unum ákveðið leiðarstef og myndröðin „Appelsínugul eyja“ varð til. Þessi sterki og áberandi litur virðist koma einkennilega oft fyrir í íslensku umhverfi og samfélagi. Myndröðin gæti gefið manni þá hugmynd að óskilgreindur en metnaðarfullur yfirhönnuður landsins alls hafi útbúið framtíðarskipulag í anda tísku áttunda áratugarins. Fólkið á myndunum er annaðhvort íklætt appelsínugulum klæðum eða heldur á einhverjum hlut í þessum lit. Þetta sérkennilega, fangandi framtíðaryfirbragð er einnig til staðar í nýjustu myndum Elisabeth Smolarz „Full- kominn draumur og líf“ sem hún tók í borginni Beijing í Kína. Frá Beijing sýnir hún okkur myndir teknar um nótt af auðum byggingarsvæðum í borginni, þær eru teknar á löngum tíma sem magnar upp ljósgjafana í djúpu myrkr- inu. Hún leikur sér að hinni tvíátta tilfinningu sem orsakast af aðdráttarafli ljóssins og óttanum við myrkrið. Í myndum sínum, bæði frá Íslandi og Kína, fer hún yfir menningarleg og huglæg mörk sem við notum til að að- greina okkur frá öðrum menningarsamfélögum. Sýningin er opin kl. 10–19 virka daga og kl. 13–17 um helgar og stendur til 4. febrúar. Tónlist NASA | Súperplötusnúðurinn Desyn Masiello spilar á NASA 1. des. S Ghozt & Brunhein ásamt Leibba hita upp. Forsala miða í 12 tónum. Http://www.flex.is Myndlist Anima gallerí | Helgi Þorgils Friðjónsson og Einar Falur Ingólfsson Portrett af stað. Til 2. des. Opið þri.–lau. Kl. 13–17 www.animagalleri.is. Artótek Grófarhúsi | Tryggvagötu 15 1. hæð. Anna Hallin myndlistarmaður hefur opnað sýningu á verkum sínum. Anna lærði myndlist á Íslandi, í Svíþjóð og Bandaríkjunum. Hún hefur haldið sýn- ingar víða um heim og hlotið margvís- legar viðurkenningar. Anna sýnir teikn- ingar og myndband. Til áramóta. Nánar á www.artotek.is. Café Karólína | Hanna Hlíf Bjarnadóttir með sýninguna „Puntustykki“. Verkið sem Hanna Hlíf sýnir er um stöðu og sögu kvenna fyrr og nú. Til 1. des. Gallerí Sævars Karls | Þráinn málar í bernskustíl. Börn, tákn og tilfinningar. Til 22. nóvember. Gallerí Úlfur | Baldursgötu 11. Dagný Sif Einarsdóttir sýnir. Opið virka daga kl. 14– 18. Til 30. nóv. Gallery Turpentine | Georg Guðni sýnir ný málverk og kolateikningar til 21. nóv. Hafnarborg | Baski (Bjarni S. Ketilsson) sýnir í neðri sölum til 27. nóv. Baski sýn- ir olíumálverk og teikningar sem tengj- ast Kili og sögu Reynistaðarmanna sem þar urðu úti 1780. Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30. des. Verkin eru úr væntanlegri bók sem mun bera titilinn „Locations“. Sýn- ingin í Hafnarborg hefur fengið sömu yfirskrift. Þarna er fyrst og fremst um að ræða myndir af stöðum sem bera ummerki mannfólksins. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadótt- ir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Hún og Hún | Skólavörðustíg 17b. Sigrid Österby sýnir grafik-tréristu og mosaik- verk í „Hún og Hún“. Opnun þriðjudaginn 21. nóv. kl. 16. Til 16. des. i8 | Klapparstíg 33–35. Katrín Péturs- dóttir Young vöruhönnuður sýnir snjó- bretti og hjálma. Sýning Katrínar Sigurðardóttur, Stig, stendur yfir. Opið þriðjudaga–föstudaga kl. 11–17 og laugardaga kl. 13–17. Jónas Viðar Gallerí | Kristinn G. Jóhannsson sýnir grafík. Opið föstudaga og laugardaga 13–18. Heimasíða www.jvs.is Kaffi Sólon | Unnur Ýrr Helgadóttir með myndlistasýningu til 24. nóv. Unnur Ýrr er með BA gráðu í grafískri hönnun og hefur einnig stundað myndlistarnám í mörg ár. Í dag starfar hún sem grafískur hönnuður. Karólína Restaurant | Snorri Ásmunds- son sýnir óvenjuleg málverk á veit- ingastaðnum Karólínu. Ásmundur bróðir Snorra sýnir á Café Karólínu. Sýning Snorra stendur til 12. janúar. Nánari upp- lýsingar um verk Snorra eru á www.this.is/snorri. Kling og Bang gallerí | Tvær sýningar; Helga Óskarsdóttir og Kristinn Már Pálmason sýna í Kling og Bang gallerí, Laugavegi 23. Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Kristinn Már Pálmason sýnir málverkainnsetningu byggða á samþættingu ólíkra aðferða og merkingafræðilegra þátta í tungumáli málverksins. Gryfja: Þráðlaus tenging. Kristín Helga Káradóttir sýnir mynd- bands-sviðsetningu. Arinstofa: Óhlut- bundin verk í eigu safnsins. Aðgangur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946– 2000). Dröfn lét mikið að sér kveða í ís- lensku listalífi og haslaði hún sér völl í einum erfiðasta geira grafíklistarinnar, tréristunni. Opið alla virka daga nema mánudaga kl. 12–17. Listasafn Íslands | Sýningin Málverkið eftir 1980 í Listasafni Íslands. Sýningin rekur þróunina í málverkinu frá upphafi níunda áratugs tuttugustu aldar fram til dagsins í dag. Á annað hundrað verk eft- ir 56 listamenn eru á sýningunni. Sjá nánar á www.listasafn.is. Til 26. nóv. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan- adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýningar á nútímalist frumbyggja í Kan- ada. Kaffistofa og safnbúð. Til 10. des- ember. Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar á Lista- safni Reykjanesbæjar. Sýningin nefnist Sog. Viðfangsefni listamannsins er straumvatn og sýnir hann þarna ný mál- verk unnin með olíu á striga og rýmis- verk. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ás- mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti listamaðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af fremstu listamönnum Banda- ríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýningunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu röð innan hins alþjóðlega myndlistarvettvangs. Sýningin hefur far- ið víða um heim, m.a. til New York og Lundúna. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðs- son myndhöggvara. Safnið og kaffistofan opin laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Sjá nánar á www.lso.is. Lóuhreiður | Sýning Árna Björns verður framlengd um óákveðinn tíma. Árni sýnir olíumálverk 70x100. Opið kl. 9–17 alla daga nema laugardaga er opið kl. 12–16. www.arnibjorn.com. Skaftfell | Sýning vegna Listmunaupp- boðs. 42 verk eftir 36 listamenn af öll- um stærðum og gerðum. sjá www.skaft- fell.is. VeggVerk | Verkið Heima er bezt er blanda af málverki og pólitísku innleggi í anda hefðbundins veggjakrots. Sem mál- verk takmarkast verkið af eðli Gallerísins VeggVerk. Þannig endist þetta verk og þau sem á eftir munu koma styttra en hefðbundin málverk því listamennirnir munu allir nota sama rýmið. Til 25. nóv. Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýn- ing á ljósmyndum sem varðveittar eru í myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hefur tekist að bera kennsl á. Sýndar eru myndir af óþekktum stöðum, húsum og fólki og gestir beðnir um að þekkja myndefnið og gefa upplýsingar um það. Söfn Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Tekið á móti hópum eftir samkomulagi. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hefur sett saman með sóknarnefnd og List- vinafélagi Hallgrímskirkju. Minnst er ein- stakra þátta úr byggingarsögunni og fórnfýsi fylgismanna til að gera kirkjuna að veruleika. Til. 30. nóv. Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú búinn húsmunum og áhöldum eins og tíðkaðist í kringum aldamótin 1900. Veit- ingar í gamla prestshúsinu. Opið eftir samkomulagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is. Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld sem fannst við fornleifauppgröft í Reykjavík 2001. Fróðleik um landnáms- tímabilið er miðlað með margmiðlunar- tækni. Opið alla daga kl. 10–17. Landsbókasafn Íslands – háskólabóka- safn | Sú þrá að þekkja og nema … Sýn- ing til heiðurs Jónas Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöfundur, þýðandi og fræði- maður, eins og verk hans Íslenskir þjóð- hættir bera vott um. Sýningin spannar æviferill Jónasar. Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochums- son var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóð- sönginn og Skugga-Svein, en skáldprest- urinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýningin stendur yfir til 31. desember. Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóðdeildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasögum til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar á heimasíðu: www.lands- bokasafn.is Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminja- safns | Í húsnæði Seðlabankans, Kalk- ofnsvegi 1, hefur verið sett upp ný yf- irlitssýning á íslenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu safnsins. Þar er einnig kynningarefni á margmiðlunarformi um hlutverk og starfsemi Seðlabanka Ís- lands. Gengið er inn um aðaldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis. Sýn- ingin er opin mán.–föst. kl. 13.30–15.30. Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leikmyndir sem segja söguna frá land- námi til 1550. www.sagamuseum.is skjaladagur.is | Skjalasýning Þjóðskjala- safns, Borgarskjalasafns og héraðs- skjalasafna um land allt í tilefni af nor- ræna skjaladeginum. Fjallað um samgöngur á Íslandi í víðasta skilningi með ljósmyndum og skjölum. Til dæmis símagabb, frímerki, fyrstu götuljósin í Reykjavík, gufubátar o.fl. Einnig spenn- andi getraun. Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýj- ar lifandi sýningar. Innreið nútímans og upphaf símasambands við útlönd. Símrit- ari sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu ritsímastöð landsins. Vjelasmiðja Jó- hanns Hanssonar – Málmsteyperíið, Kap- alhúsið og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka daga kl.13–16 www.tekmus.is. Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn – íslensk og erlend skotvopn ásamt upp- stoppuðum veiðidýrum og veiðitengdum munum. Sjá nánar á www.hunting.is. Op- ið um helgar í nóvember kl. 11–18. Sími 483 1558 fyrir bókanir utan sýning- artíma. Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bók- um Berlínarforlagsins Mariannenpresse stendur yfir. Hver bók er listaverk unnið í samvinnu rithöfundar og myndlistar- manns. Aðrar sýningar eru Handritin, Ís- lensk tískuhönnun og Fyrirheitna landið. Veitingastofa með hádegisverðar- og kaffimatseðli er í húsinu, einnig safnbúð. Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til sýnis útsaumuð handaverk listfengra kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin byggir á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Myndefni út- staðurstund Myndlist Portrett af stað Ljósmyndasýning „Appelsínugul eyja & Fullkominn draumur og líf“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.