Morgunblaðið - 30.11.2006, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.11.2006, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 326. TBL. 94. ÁRG. FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is BAKKYNJURNAR TITRANDI ÁTÖK VIÐ FORNAN TEXTA Í JÓLALEIKRITI ÞJÓÐLEIKHÚSSINS >> 40 ILMUR Í LOFTI TORGIN LIFNA VIÐ Í EVRÓPUBORGUM JÓLAMARKAÐIR >> 25 Ótrúleg örlagasaga Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 29. nóv. 2. ÆVISÖGUR Amman, Bagdad. AP, AFP. | George W. Bush Bandaríkjaforseti mun ræða við Nouri al- Maliki, forsætisráðherra Íraks, í Amman í Jórdaníu í dag – ætlunin var að þeir ræddust við í gær en fundinum var skyndilega frestað. Ástæðan gæti verið að lekið var í fjölmiðla leynilegri skýrslu Stephen Hadleys, þjóðar- öryggisráðgjafa Bush, en þar segist Hadley efast um getu al-Malikis til að stöðva átökin. Sádi-arabískur sérfræðingur í öryggismál- um, Nawaf Obaid, sagði í grein í blaðinu The Washington Post í gær að ef Bandaríkin köll- uðu her sinn á brott frá Írak gæti farið svo að Abdullah konungur léti undan áköfum þrýst- ingi heima fyrir og veitti íröskum súnní-aröb- um aukinn stuðning, jafnt peninga sem vopn. Þannig yrði brugðist við auknum áhrifum Ír- ana í Írak en þeir styðja leynt og ljóst trú- bræður sína, sjíta, í átökunum. Efasemdir um al-Maliki Bush Bandaríkjaforseti ræðir við íraska forsætis- ráðherrann í dag Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BRESK yfirvöld skýrðu frá því í gær að fundist hefðu í tengslum við rann- sóknina á dauða Alexanders Lítv- ínenkos, fyrrverandi liðsmanns rúss- nesku leyniþjónustunnar og and- stæðings Vladímírs Pútíns Rúss- landsforseta, „mjög litlar leifar af geislavirku efni“ í tveim farþegaþot- um British Airways. Voru þær tekn- ar úr umferð á Heathrow-velli með- an sérfræðingar lögreglunnar rann- sökuðu þær. Þriðja vélin, sem grunur beindist að og var í Moskvu, var stöðvuð þar. Fólki, sem ferðast hefur með um- ræddum vélum í nóvember milli Heathrow og Moskvu, Barcelona, Düsseldorf, Aþenu, Larnaka, Stokk- hólms og Vínar, var bent á að hafa samband við yfirvöld heilbrigðis- mála í Bretlandi eða þar sem það ætti heima. Er um að ræða nær 30.000 manns. Í yfirlýsingu breska innanríkisráðuneytisins sagði að um- ræddar ráðstafanir væru gerðar til að tryggja öryggi almennings. Talið er víst að Lítvínenko hafi verið myrtur með því að koma geislavirku efni, pólón-210, í líkama hans, sennilega í mat eða drykk sem hann neytti. Leifar af efninu fundust í líki hans en einnig á nokkrum stöð- um þar sem hann hafði verið. Dularfullur sjúkdómur Gajdars Getgátur hafa verið uppi um að út- sendarar rússnesku leyniþjónust- unnar hafi myrt Lítvínenko. Jegor Gajdar, sem var forsætisráðherra Rússlands í tíð Borísar Jeltsíns for- seta, er nú á sjúkrahúsi í Moskvu en hann veiktist nýlega af dularfullum sjúkdómi er hann var á Írlandi. Gajdar veitir forstöðu hugveitu sem gagnrýnir hart stefnu Pútíns. Geislavirk efni í þotum Eftir Ólaf Þ. Stephensen í Ríga olafur@mbl.is SKRIÐUR er kominn á viðræður um varnar- og öryggismál Íslands í kjölfar lokunar Kefla- víkurstöðvarinnar eftir leiðtogafund Atlants- hafsbandalagsins í Ríga í Lettlandi í gær. Nið- urstaðan af fundum Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra með ráðherrum og embætt- ismönnum frá Danmörku, Noregi, Kanada og Bretlandi er sú að öll ríkin taka vel í tvíhliða viðræður við Ísland á næstu mánuðum. Þegar hafði verið ákveðið að viðræður við Norðmenn hæfust fyrir jól. Fyrsti fundur emb- ættismanna ríkjanna verður á Íslandi, þar sem Norðmenn munu m.a. skoða öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli, sem á að standa flugvélum frá öðrum NATO-ríkjum til boða. Þá varð úr að fyrsti fundur íslenzkra og danskra embættis- MacKay, utanríkisráðherra Kanada, vill einnig heimsækja Ísland en ekki hefur verið ákveðið hvenær af því verður. Geir H. Haarde forsætisráðherra tók varn- armál Íslands upp í ræðu sinni á leiðtogafund- inum í gærmorgun. Forsætisráðherra sagði að NATO mætti ekki gleyma varnarhlutverki sínu. Ísland hefði nú þá sérstöðu meðal aðild- arríkja bandalagsins að þar væri ekki eftirlit í lofti eða viðbúnaður á friðartímum. Þar með væri heldur ekki eftirlit á mikilvægum hluta Atlantshafsins. „Loftrými bandalagsins er skilgreint sem ein heild og þess vegna er þetta ekki bara okkar mál,“ sagði Geir í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að Ísland myndi taka málið upp til umræðu í fastaráði NATO á næstu vikum. manna yrði einnig í desember. Geoff Hoon, Evrópumálaráðherra Bretlands, lýsti yfir áhuga sínum á að koma til Íslands til viðræðna í janúar eða febrúar á næsta ári. Peter Gordon Reuters Fundur Nokkrir af leiðtogum ríkja Atlantshafsbandalagsins í Ríga. Geir H. Haarde forsætisráðherra er í efri röð, lengst til hægri, við hlið hans er Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, en fyrir framan hann Lech Kaczynski, forseti Póllands, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Skriður er kominn á varnarviðræðurnar Tvíhliða viðræður við fjögur lönd og innan NATO á næstu mánuðum Í HNOTSKURN » Ísland mun leggja meira af mörkumtil friðargæzlu í Afganistan, með framlagi til endurreisnarstarfs og loft- flutningum fyrir hersveitir í suðurhluta landsins. » Kostnaður við öryggis- og varnar-mál heima fyrir mun aukast, meðal annars vegna rekstrar öryggissvæðis í Keflavík, ratsjárstöðva og öflunar og miðlunar upplýsinga sem tengjast vörn- um landsins.  Leiðtogafundur NATO | 2, 6 og miðopna KJAFTURINN á stærstu hákörlum bliknar í samanburði við brynháfinn Dunkleosteus terreli sem var um 10 metrar að lengd og réð lögum og lofum í höfunum fyrir meira en 360 milljónum ára. Teikningin hér að of- an er byggð á steingerðum leifum fisksins. Skrokkur hans var allur þakinn bein- plötum og gríðarmiklir vöðvarnir og liða- mótin í skoltinum, með hárbeittum tönn- unum, gerðu skepnunni kleift að opna og loka risastórum kjaftinum á einum fimm- tugasta hluta úr sekúndu. Bitkrafturinn var auk þess sá mesti sem vitað er um hjá fiski. Ofjarl sjálfra hákarlanna Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.