Morgunblaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 15
Síðumúla 21. Reykjavík.
Sími 581 1100. reykjavik@beostores.com
www.bang-olufsen.com
�
��
�
��
�
�
��
�
� ��
�
�
�
�
Bang & Olufsen óska þér
gleðilegra jóla!
BeoSound 1:
BeoSound 1 er hin fullkomna jólagjöf fyrir vini, fjölskyldu eða
sjálfa(n) þig. Úr glæsilegri hönnun berst afbragðs hljóm-
burður - hvort sem þú hlustar á uppáhalds geisladiskinn þinn
eða útvarpið. Komdu við hjá Bang & Olufsen og upplifðu.
Gefðu þínum nánustu hina fullkomnu jólagjöf
frá B&O.
BeoCom 6000:
BeoCom 6000 er ekki eingöngu þráðlaus sími. Hann sýnir
þér hver er að reyna að ná í þig - og þú ákveður hvort þú vilt
svara! Einnig getur þú tengt 6 önnur símtæki við og haft þína
eigin símstöð á heimilinu.
BeoSound 3:
Í ferðahljómtækinu frá Bang og Olufsen sameinast nýjasta
tækni og hönnun á heimsmælikvarða. Tækið er ekki einungis
fullkomið FM útvarp heldur er hægt að spila í því tónlist af
stafrænu SD korti í frábærum hljómgæðum. Frábært tæki í
eldhúsið, sumarbústaðinn eða bara hvar sem er.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
22
92
7
Alicante
frá 17.990 kr.*
í beinu morgunflugi
• Beint morgunflug
• Íslensk þjónusta
• Frábær kjör
Sala hafin!
Bókaðu strax!
www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða sólarþyrstum Íslendingum vikulegt morgunflug til
Alicante á Spáni næsta vor og sumar. Við bjóðum frábæra flugtíma,
en flogið er í beinu morgunflugi frá Keflavík með íslenska flugfélaginu
Air Primera. Markmið okkar er fyrsta flokks þjónusta og nú er öll
þjónusta við farþega okkar í farþegarými á íslensku. Nú er tækifæri til
að bregðast skjótt við og næla sér í fyrstu sætin á lægsta verðinu á
www.heimsferdir.is.
* Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með flugvallarsköttum.
Gildir fyrir félagsmenn í Félagi húseigenda á Spáni.
Takmarkað sætaframboð á þessu verði.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
í Colombo á Srí Lanka
david@mbl.is
MIKLIR bardagar hafa staðið yfir
milli stjórnarhersins á Srí Lanka og
skæruliða Tamíla, Tígranna svo-
nefndu, á Jaffna-skaga, nyrst á eyj-
unni þó að svo eigi að heita að vopna-
hlé ríki milli stríðandi fylkinga í
landinu. Stjórnvöld hafa lokað fyrir
nánast allar samgöngur til Jaffna og
því hefur skapast mikil neyð þar
undanfarna daga og vikur, enda ber-
ast litlar sem engar matarbirgðir til
íbúanna.
Thamilselvan, pólitískur leiðtogi
Tamíl-tígranna, hefur látið hafa eftir
sér að stjórnvöld hafi reist nýjan
Berlínarmúr á Jaffna með lokun
þjóðvegarins þangað. Um 600.000
manns búa á Jaffna, næstum allir
Tamílar, en stjórnarherinn ræður
engu að síður svæðinu. Um sextíu
þúsund stjórnarhermenn eru á
Jaffna og kvarta íbúarnir undan því
að þeir gangi hart fram og beiti of-
beldi.
Einangrun Jaffna-skagans er nú
farin að valda því að mikill skortur er
á mat og öðrum nauðsynjavörum.
Verð á þeim vörum sem þó eru enn í
boði hefur farið upp úr öllu valdi, en
Dagný Hjörvarsdóttir, sem verið
hefur í Jaffna sl. þrjá mánuði á veg-
um norrænu eftirlitsnefndarinnar
(SLMM), segir að sem dæmi þurfi
fólk nú að borga allt að 50 rúpíur fyr-
ir egg, um 37 íslenskar krónur, en
skammt er síðan eggið fékkst á 15
rúpíur. Þetta þýði að venjuleg fjöl-
skylda geti aðeins keypt tvö egg á
dag, ofan í börn sín.
„Fullorðna fólkið nærist því ekki
almennilega,“ segir Dagný í samtali
við Morgunblaðið, „sem gerir það að
verkum að mótstaða þess er lítil
gegn sjúkdómum eins og dengue og
chikungunya sem moskító-flugur
bera með sér og hafa nýverið greinst
á eyjunni. Fullorðna fólkið borðar nú
aðeins eina máltíð á dag og fær ein-
faldlega ekki kjöt lengur. Það er að-
eins efnafólk sem hefur efni á því að
kaupa það litla kjöt sem er til.“
Barnamatur uppseldur
Dagný, sem var í stuttri heimsókn
til Colombo, höfuðborgar Srí Lanka,
í vikunni, segir mjólkurduft einnig
búið á Jaffna, en það sé ein meg-
inuppistaða fæðunnar sem börnum
sé gefin. Barnamatur sé sömuleiðis
uppseldur. „Við erum að reyna að sjá
kokkinum okkar [sem er heima-
maður] fyrir barnamat af því að
konan hans gat ekki gefið barninu
þeirra mjólk,“ segir Dagný en auk
hennar starfa þrír Norðmenn á veg-
um SLMM í bækistöðvunum á
Jaffna.
Dagný segir stjórnarherinn reka
stöðvar þar sem deilt sé út hveiti,
sykri og grjónum. Fólk verði að bíða
lengi eftir því að fá sinn skammt,
raðir byrji að myndast við sólarupp-
rás og þeir síðustu séu afgreiddir
jafnvel eftir að útgöngubann tekur
gildi klukkan sex á kvöldin.
„Það þýðir ekkert að fara út í búð.
Þær eru alveg tómar. Stærsta og
besta matvörubúðin var kölluð Food
City, núna er hún kölluð Empty
City. Þegar ég fór um daginn fann ég
aðeins ávaxtasafa, þykkan sem þarf
að blanda saman við vatn, í hillunum.
Það er ekkert til, allir rekkar tómir,“
segir Dagný, en hún hefur fundið
fyrir matarskortinum eins og aðrir á
Jaffna, liðsmenn SLMM hafa á
stundum þurft að skammta ofan í sig
matinn.
Vissulega eru þó aðstæður Dag-
nýjar betri en heimamanna, þar sem
hún getur komist af skaganum endr-
um og eins.
Stjórnarherinn á Srí Lanka á að
flytja eftirlitsmenn SLMM milli Col-
ombo og Jaffna skv. vopnahléssam-
komulaginu sem gert var 2002 og er
formlega séð enn í gildi þrátt fyrir
hálfgert stríðsástand á Jaffna.
Dagný segir að hún reyni eftir
fremsta megni að taka vistir með sér
er hún fljúgi aftur upp eftir, en gall-
inn sé sá að stjórnarherinn hafi sett
þá reglu að starfsfólk SLMM megi
aðeins flytja 15 kg af farangri með
sér. „Það er ekki mikið þegar haft er
í huga að maður er venjulega með
tösku með fötum með sér líka.“
Rætt hefur verið um það í höfuð-
stöðvum SLMM í Colombo að kalla
eftirlitsmennina fjóra frá Jaffna í ör-
yggisskyni. Það verður þó ekki gert
að svo stöddu enda er litið svo á að
það hefði afar slæm áhrif á íbúana,
sem mega þola mikla neyð, ef
SLMM hyrfi á brott. Munu alþjóðleg
hjálparsamtök jafnframt vera mjög
áfram um að SLMM haldi áfram úti
fólki í Jaffna.
Mikill skortur á
matvælum á Jaffna
Íslenskur starfs-
maður SLMM seg-
ir ástandið slæmt
Dýrtíð Dagný Hjörvarsdóttir ræðir við heimamenn á Jaffna-skaga.