Morgunblaðið - 30.11.2006, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
VIÐ ERUM HJÁ
DÝRALÆKNINUM!
VIÐ ERUM HJÁ
DÝRALÆKNINUM
NÆSTI ÆI
ÞETTA
ER MITT
TÆKI-
FÆRI TIL
ÞESS AÐ
VERA
HETJA!
ÉG ER
LEIÐUR Á
ÞVÍ AÐ
VERA
AUMINGI!
TÍMI TIL AÐ
VERA HETJA!
Æ,
NEI!
SJÁÐU
RISAEÐLUBEINA-
GRINDINA SEM ÉG
GRÓF UPP OG
SETTI SAMAN
ÉG ÆTLA AÐ HRINGJA Í
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ OG
SELJA ÞEIM HANA Á 100
MILLJARÐA KRÓNA!
ÞETTA
ERU ANSI
MERKILEG
BEIN...
FINNST
ÞÉR AÐ
ÉG ÆTTI
AÐ BIÐJA
UM
MEIRI
PEINING?
ÞAÐ VAR EKKI
ALVEG ÞAÐ SEM ÉG
VAR AÐ MEINA
OG HVAÐ
HEITIR ÞÚ?
ÉG HEITI SIR REGNALD
BOSHWORTH CUNNINGHAM
ÞRIÐJI...
EN GÓÐIR VINIR MÍNIR
KALLA MIG BARA „SIR“
GRÍMUR, ÞÚ VEIST
AÐ ÞAÐ ER RANGT AÐ
HRINDA RUSLATUNNUM!
ÞÚ VERÐUR
AÐ HLUSTA Á
SAMVISKUNA ÞÍNA
ÞEGAR HÚN LÆTUR
HEYRA Í SÉR
SEM BETUR FER
FANN ÉG ÚT HVAR HÚN
ÁTTI HEIMA, ÞANNIG
AÐ ÉG LÆSTI HANA
INNI Í SKÁP
SÆMI, ERT ÞÚ
„ROSTI?“ ÞÚ SENDIR
INN FLEIRI SVÖR Á
BLOGGIÐ MITT EN
NOKKUR ANNAR
ÉG VISS EKII
AÐ ÞÚ ÆTTIR
ÞAÐ
EN ÉG HEFÐI ÁTT Á VITA
ÞAÐ, ÞÚ HEFUR ALLTAF VERIÐ
AÐ TALA ILLA UM BÍTLANA Í
GEGNUM TÍÐINA
ÞAÐ ER SAMT GOTT AÐ VITA
AÐ ÞAÐ ERU FÆRRI HÁLFVITAR
Í HEIMINUM EN ÉG HÉLT
STRÁKAR...
STRÁKAR...
ÞÚ VILT VÆNTANLEGA EKKI VERA
Í MYNDINNI FYRST ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ
REKA MIG ÚR HENNI...
KOMUM OKKUR BARA
HEIM ELSKAN
ELSKAN?
FSS – félag STK stúdentastanda, í samstarfi viðAlnæmissamtökin á Ís-landi standa fyrir blysför á
morgun, 1. desember, alþjóðaalnæm-
isdegi SÞ.
Guðmundur Arnarson er formaður
FSS: „Í dag er fólk um allan heim að
smitast af HIV og látast af völdum al-
næmis, og því miður benda rann-
sóknir til að aukning hafi aftur orðið á
smiti eftir stutt tímabil þar sem þeim
fækkaði,“ segir Guðmundur. „Þessi
dagur, 1. desember, er helgaður því
að minna fólk á þennan skelfilega
sjúkdóm, minna á að baráttunni er
engan veginn lokið, og hvetja fólk til
umhugsunar um að gæta öryggis í
kynlífi. Ekki hvað síst minnumst við
allra þeirra sem látist hafa úr alnæmi,
en allt að 25 milljón manns hafa látist
vegna sjúkdómsins frá því hann
greindist fyrst og í dag eru um 39
milljónir manna, kvenna og barna,
smituð í heiminum öllum.“
Blysförin hefst kl. 20. við gatnamót
Laugavegar og Skólavörðustígs.
„Þaðan göngum við fylktu liði að Frí-
kirkjunni í Reykjavík þar sem kveikt
verður á kertum sem mynda rauða
borðann, merkið sem við berum til að
sýna HIV-smituðum og alnæmis-
sjúklingum stuðning. Þá verður mín-
útulöng þögn til minningar um þá
sem látist hafa og því næst gengið inn
í kirkjuna þar sem prestur Fríkirkj-
unnar mun flytja hugvekju,“ segir
Guðmundur.
Tónlistarmennirnir Regína Ósk og
Friðrik Ómar munu flytja nokkur lög
fyrir viðstadda. Guðmundur mun
fjalla um nokkrar staðreyndir um út-
breiðslu og sögu alnæmis, og Ingi
Rafn Hauksson, formaður Alnæmis-
samtakanna, flytur hugvekju.
„Sem betur fer er staðan á Íslandi
heldur betri en í flestum öðrum lönd-
um heims, en sjúkdómurinn engu að
síður alvarlegt vandamál hérlendis.
Bara á þessu ári hafa tveir látist úr
alnæmi, en frá því sjúkdómurinn
greindist fyrst hér á landi hefur hann
dregið 38 til dauða,“ segir Guðmund-
ur. „Í dag bera 192 einstaklingar á Ís-
landi HIV-smit. Framan af árinu leit
út fyrir að sá árangur næðist að ekki
greindust nein nýsmit, en sláandi töl-
ur bárust í þessum mánuði um 6 ein-
staklinga sem greinst hafa smitaðir.“
Guðmundur segir athygli vekja að
þeir einstaklingar sem greinst hafi
með HIV-smit á þessu ári hafi allir
verið af erlendu bergi brotnir: „Það
vekur okkur til umhugsunar um að
huga betur að fræðslu og aðstoð við-
útlendinga sem setjast að hér á landi
og hafa hugsanlega ekki nægilega
kunnáttu á Íslensku til að geta skilið
þá fræðslu sem veitt er um sjúkdóm-
inn og smitleiðir hans.“
Fólk af öllum stéttum og stigum,
mismunandi kynhneigð og af báðum
kynjum smitast af HIV: „Fyrst var
sjúkdómurinn einkum bundinn við
samkynhneigða karlmenn en mikil
breyting hefur orðið þar á,“ segir
Guðmundur. „Nýsmit hjá gagnkyn-
hneigðum konum og körlum hafa far-
ið vaxandi, en sem betur fer virðast
fræðsluherferðir hér á landi haft
greinleg áhrif, jafnt frá gagnkyn-
hneigðum sem samkynhneigðum.
Hins vegar hafa dæmin sýnt að Ís-
land fylgir þróuninni erlendis, en í
Evrópu og Bandaríkjunum hafa
menn nú miklar áhyggjur af aukn-
ingu áhættuhegðunar í kynlífi.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.aids.is og www.gaystudent.is.
Heilsa | Blysganga frá Laugavegi 7 kl. 20 á
alþjóðaalnæmisdeginum, 1. desember
25 milljón manns
hafa látist
Guðmundur
Arnarson fædd-
ist á Akureyri
1982. Hann
stundar nám við
framreiðslubraut
MK. Guðmundur
starfaði sem
þjónn á veitinga-
staðnum Fiðlar-
anum á Akureyri og sem nemi við
Humarhúsið. Hann er nú aðstoðar-
verslunarstjóri Dressmann í
Smáralind. Guðmundur var kjörinn
formaður FSS í mars. Foreldrar
Guðmundar eru Jóhanna Guð-
mundsdóttir húsmóðir og Örn Við-
ar Birgisson sölumaður.
HEIMSMEISTARINN í klakaskurði og fyrirliði bandaríska liðsins í listinni,
Steven Berkshire, sést hér móta ísbjörn úr 635 kílóa ís á þriðjudaginn.
Verkið er hluti af sýningu á vegum norska sendiráðsins í Bandaríkjunum
sem ber yfirskriftina „Norsk jól í Union Station“, en eins og nafnið gefur til
kynna fer sýningin fram á Union Station-lestarstöðinni í Washington.
Reuters
Ísbjörn úr ís