Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 2

Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag fimmtudagur 30. 11. 2006 íþróttir mbl.isíþróttir Eggert Magnússon segir að West Ham sé barnið sitt >> 2 FRAM Á́ SIGURBRAUT SAFAMÝRARLIÐIÐ LAGÐI FYLKISMENN AÐ VELLI OG SÆKIR AÐ HK OG VAL VIÐ TOPP ÚRVALSDEILDAR >> 4 Reuters Glæsimark Grétar Rafn Steinsson skoraði dýrmætt mark fyrir hollenska liðið Alkmaar gegn Liberec frá Tékklandi í UEFA-bikarnum í gærkvöld. Leik- urinn endaði 2:2 og Alkmaar komst með því áfram í keppninni. Shota Arveladze og Moussa Dembele fagna Grétari Rafni. » 2 BIKARMEISTARAR Grindavíkur í körfuknattleik karla mæta B-liði Keflavíkur í 16 liða úrslitum bik- arkeppninnar en dregið var í gær. Grindavík sló Snæfell út í 32 liða úrslitunum en B-lið Keflvíkinga, sem gamlar kempur eins og Falur Harðarson og Guðjón Skúlason leika með, hafði betur gegn KFÍ. ÍR, sem sló Íslandsmeistara Njarðvíkur út, mætir 1. deildarliði Stjörnunnar, og þá mætast grann- liðin Hamar/Selfoss og Þór Þor- lákshöfn. Drátturinn varð þessi: Fjölnir – Keflavík Keflavík b – Grindavík Tindastóll – KR ÍR – Stjarnan FSu – Mostri Hamar/Selfoss – Þór Þ. Valur – Skallagrímur Hvíti riddarinn – KR b Leikirnir fara fram 10. desember. Í forkeppni að átta liða úrslitum kvenna drógust saman: Fjölnir – Skallagrímur KR – Snæfell Grannaslagur í bikarnum ÍSLANDSMEISTARAR Hauka í körfuknattleik kvenna leika í kvöld sinn 10. Evrópuleik frá upphafi þegar þeir etja kappi við Gran Canaria og fer leikurinn fram á Kanaríeyjum. Þetta er fjórði leikur Haukaliðsins í Evrópukeppninni í ár og síðasti útileikurinn en liðið er nýkomið úr ferð til Ítalíu og Frakklands þar sem það tapaði fyrir Parma og Montpellier. Haukar töpuðu fyrri leiknum fyrir Gran Canaria á Ásvöllum með 20 stiga mun, 72:92. Haukakonur léku engu að síður vel en liðin átt- ust einnig við í Evrópukeppninni á síðustu leiktíð. Kristrún Sigurjónsdóttir getur ekki leikið með Haukum, þar sem hún komst ekki utan vegna anna í námi, en hún og Helena Sverr- isdóttir eru einu leikmenn Hauka sem hafa spilað alla níu Evrópu- leiki liðsins. Helena skoraði 25 stig í fyrri leiknum á móti Gran Can- aria en hún náði þeim áfanga í tap- leik Hauka gegn Parma á Ítalíu í síðustu viku að skora sitt 3.000. stig fyrir Hauka. Hún hefur alls skorað 3.010 stig í 148 leikjum með liðinu. Tvær stúlkur þreyta frumraun sína í Evrópukeppninni, Klara Guðmundsdóttir og Kristín Fjóla Reynisdóttir, en þær eru báðar að- eins 16 ára gamlar. Tíundi Evrópuleikur Hauka Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is Við útreikningana er stuðst við ár- angur félagsliða á Evrópumótunum fjórum á þremur síðustu leiktíðum, þ.e., 2003/04, 2004/05 og 2005/06. Leikir íslensku félagsliðanna á Evr- ópumótunum í haust verða ekki tekn- ir inn í útreikningana fyrr en að ári. Búast má við að slakur árangur karlaliðanna í haust verði til þess að þau falli meira. Íslensku liðin unnu aðeins tvo leiki af sjö. Út frá þessum útreikningum og styrkleikalista er ákveðið hversu mörg lið frá hverri þjóð fá keppnis- rétt í hverju Evrópumótanna fjög- urra; meistaradeildinni, Evrópu- keppni bikarhafa, EHF-keppninni og Áskorendakeppninni. Sem fyrr segir bæta íslensk kvennalið stöðu sína verulega, enn eitt árið, en þau hófu reglulega þátt- töku á Evrópumótum félagsliða á nýjan leik fyrir fáeinum árum. Ísland fer úr 26. sæti í fyrra upp í það 19. Næst fyrir neðan Ísland koma Portú- gal, Ítalía og Sviss, en þess má geta til fróðleiks að Svíar falla um fjögur sæti, niður í 26. sætið sem Ísland var í og missa þar með af sæti í meist- aradeild Evrópu, en 24 efstu þjóðirn- ar geta sent lið þátttöku í deildinni. Danir eru sem fyrr með bestan ár- angur félagsliða á Evrópumótum kvenna. Ungverjar halda öðru sæti og Noregur hefur sætaskipti við Spán, nær þriðja sætinu af Spánverj- um sem falla um eitt sæti. Rússar eru í fimmta sæti. Íslensku karlaliðin falla um eitt sæti, niður í það 21. Fallið breytir engu um þann fjölda liða sem Íslend- ingar mega senda til leiks í hverri keppni, þ.e. eitt í meistaradeild, eitt í EHF-keppnina, eitt í Evrópukeppni bikarhafa og tvö í Áskorendakeppn- ina. Spánverjar eru sem fyrr efstir á lista og teljast því eiga bestu fé- lagsliðin sé tekið mið af árangri á Evrópumótum félagsliða síðustu þrjú keppnistímabil. Þýsk félagslið eru í öðru sæti, Slóvenar eru í þriðja sæti, Frakkar eru í fjórða sæti og Ungverjar eru í fimmta sæti sem fyrr. Rússar lauma sér upp í sjötta sætið á kostnað Dana sem falla niður í sjöunda sætið. Þetta þýðir að Danir missa annað sæta sinna í Meistara- deild Evrópu á næstu leiktíð í hendur Rússa sem þá mega senda tvö lið til leiks. Ísland í fyrsta sinn með í meistaradeild kvenna ÍSLENSKU kvennaliðin í hand- knattleik hækka á styrkleikalista Handknattleikssambands Evrópu (EHF) sem gefinn var út í gær, fara úr 26. sæti í það nítjánda sem leiðir til að Ísland vinnur sér í fyrsta sinn inn keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu í kvennaflokki. Það þýðir að Íslandsmeistarar kvenna í hand- knattleik 2007 verða í meist- aradeildinni næsta haust. fimmtudagur 30. 11. 2006 viðskipti mbl.is viðskipti Byggingaverktaki ræktar sjálfan sig í faðmi vestfirskra fjalla » 16 ALÞJÓÐABANKA SVARAÐ ALÞJÓÐAFULLTRÚI BSRB GAGNRÝNIR SKÝRSLU ALÞJÓÐABANKANS UM FRELSI TIL ATHAFNA >> 10 HEILDSALA Opinna kerfa er búin að fá dreifingarrétt á Microsoft- vörum og samningum og er þar með eini fullgildi innlendi dreifingaraðili Microsoft á Íslandi. Undirbúningur að samningi Opinna kerfa og Microsoft hefur stað- ið í um ár, en samkvæmt yfirlýsingu frá Microsoft er heildsala Opinna kerfa eina íslenska fyr- irtækið sem er í stakk búið til að gera slíkan samning sem stendur. Sverrir Jónsson, framkvæmda- stjóri heildsölu Opinna kerfa, segir að samningur fyrirtækisins við Microsoft sé mjög mikilvægur fyrir Opin kerfi í því ljósi að hann geri fyr- irtækinu kleift að veita viðskipavin- um sínum betri þjónustu en ella og hafi betri aðgang að upplýsingum um Microsoft vörur. Það sé líka í takt við stefnu Opinna kerfa síðustu ár að skipta beint við framleiðendur frekar en heildsala eða aðra birgja. Mikill tími og peningar „Það er búið að vera heilmikið um- stang að ná þessum samningi, við þurftum að bæta við okkur starfsfólki með ákveðna þekkingu og síðan þurfti það að standast sérstakt próf hjá Micosoft. Þetta hef- ur tekið okkur um ár og vitanlega kostað umtals- vert í tíma og peningum, en það er okkar mat að umstangið sé vel þess virði,“ segir Sverrir. Eins og getið er hefur Microsoft lýst því yfir að sem stendur sé ekkert annað íslenskt fyrirtæki í stakk búið til að gera álíka samning en Sverrir segir að það sé engin takmörkun á því í sjálfu sér, það geti hvaða fyr- irtæki sem er sótt um og náð samn- ingi ef það standist þær ströngu kröfur sem Microsoft geri. Fjallað er um nýja uppfærslu á Of- fice-hugbúnaðinum í blaðinu. | 8 Opin kerfi dreifa fyrir Microsoft Telst eini fullgildi innlendi dreifing- araðili Microsoft á Íslandi Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Gæðaeftirlit Stefnt er að skráningu fyrirtækisins ChemoMetec í kauphöll- inni í Kaupmannahöfn hinn 18. desember næstkomandi. Einn af þremur stofnendum fyrirtækisins er Börkur Arnviðarson, efnafræðingur. Megnið af dönskum og þýskum bjór er í dag framleitt undir gæðaeftirliti Nuc- leoCounter, sem er vörumerki fyrirtækisins, og það á kannski við um bjór- inn sem hún Babsi í Bæjaralandi í Þýskalandi heldur hér á. »6 Reuters HEILDARVIÐSKPTI í Kauphöll Íslands í gær námu 16,6 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með hlutabréf fyrir 5,1 milljarð. Úrvalsvísitala aðallista Kauphall- arinnar hækkaði lítillega, eða um 0,1%, og er lokagildi hennar 6.132 stig. Mest hækkun varð á gengi hlutabréfa Bakkavarar, eða 1,0%, og Actavis, sem hækkaði um 0,6%. Hlutabréf Icelandic Group lækkuðu hins vegar mest í gær, eða um 1,3%. Þá lækkaði gengi bréfa Hf. Eim- skipafélags Íslands um 1,0% og bréfa 365 hf. um 0,9%. Lítilsháttar hækk- un í Kauphöllinni GLITNIR er í viðræðum við orku- fyrirtæki í Kaliforníu í Bandaríkj- unum um að reisa þar 50 megavatta jarðvarma orkuver. Fjárfestingin getur numið á bilinu 100–300 millj- ónum dollara, eða um 7–21 millj- arði króna. Þetta er haft eftir Árna Magnússyni, forstöðumanni á fjár- festinga- og alþjóðasviði Glitnis, í frétt UPI-fréttastofunnar. Árni greindi frá því á ráðstefnu um þróun og fjármögnun á sviði nýtingar á jarðvarmaorku, sem haldin var í Washington í Banda- ríkjunum fyrir hálfum mánuði, að Glitnir hefði skilgreint endurnýj- anlega orku sem einn af aðalútrás- armöguleikum bankans. Hann sagði þá í samtali við Morgunblaðið að ekkert væri þó enn fast í hendi í þessum efnum. Glitnir í viðræðum um jarðvarma- veitu vestra Yf ir l i t                                  ! " # $ %        &         '() * +,,,                       Í dag Sigmund 8 Forystugrein 26 Veður 8 Viðhorf 28 Staksteinar 8 Umræðan 28/32 Úr verinu 13 Bréf 32 Erlent 14/15 Brids 36 Höfuðborgin 18 Minningar 33/36 Akureyri 18 Myndasögur 44 Austurland 19 Dagbók 45/49 Landið 19 Staðurstund 46/47 Daglegt líf 20/25 Leikhús 42 Neytendur 22 Bíó 46/49 Menning 16, 40/43 Ljósvakamiðlar 50 * * * Innlent  Ráðherrar og embættismenn frá Danmörku, Noregi, Kanada og Bretlandi taka vel í tvíhliða viðræður um varnar- og öryggismál við Ísland á næstu mánuðum. Þetta var nið- urstaðan af fundum utanríkis- ráðherra eftir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ríga í Lettlandi í gær. » Forsíða  Meirihluti menntamálanefndar leggur til að frumvarpi til laga um Ríkisútvarpið ohf. verði breytt þann- ig að bann verði lagt við að RÚV selji auglýsingar til birtingar á Netinu og að þak verði sett á tekjur af kost- unarsamningum. Formaður nefnd- arinnar sagðist hefðu viljað ganga lengra en um það hefði ekki náðst samkomulag í nefndinni. » Baksíða  Sektir vegna umferðarlagabrota munu hækka og geta numið allt að 300 þúsund krónum eftir að nýjar reglugerðir samgönguráðherra ganga í gildi um mánaðamótin. Þá lækka vikmörk vegna hraðamælinga úr 10 kílómetrum umfram leyfilegan hámarkshraða í 5 km. » Baksíða  Bílastæðafjöldi í miðborginni mun nær tvöfaldast frá því sem nú er eftir að tónlistar- og ráðstefnuhús rís en fyrirhugað er að reist verði bílastæðahús fyrir 1.600 bíla í Aust- urhöfn Reykjavíkur. » 4 Erlent  Geislavirk efni fundust í gær í tveim farþegaþotum breska flug- félagsins British Airways í London og þriðja þotan var stöðvuð í Moskvu þar sem breskir sérfræðingar munu rannsaka hana. Efnin fundust í tengslum við rannsóknina á dauða Alexanders Lítvínenkos, fyrrver- andi liðsmanns rússnesku leyniþjón- ustunnar, sem lést 23. nóvember í London af völdum geislavirks efnis. Er talið víst að eitrað hafi verið fyrir hann. » Forsíða  Benedikt páfi 16. söng messu skammt frá Efesus í Tyrklandi í gær og hvatti hann til friðar í Mið- Austurlöndum. Heimsókn páfa var afar umdeild í landinu en yfirlýsing hans á þriðjudag um stuðning við að- ild landsins að Evrópusambandinu féll í góðan jarðveg. » 14  Ítalska stjórnin hyggst setja lög sem munu takmarka verulega umsvif fjölmiðlaveldis Silvios Berlusconis, fyrrverandi forsætis- ráðherra. » 14 Kynningar – Morgunblaðinu fylgir auglýsingablað frá Jack & Jones. „ÉG KANNAST ekki við þetta. Jóla- fundur Geðlæknafélagsins er ekki boðaður opinberlega. Hann er einka- mál, innanfélagsfundur Geðlækna- félagsins,“ sagði Kristófer Þorleifs- son, formaður Geðlæknafélags Íslands, þegar blaðamaður Morgun- blaðsins leitaði upplýsinga um það hvort lyfjafyrirtækið Eli Lilly hefði boðað til jólafundar Geðlæknafélags Íslands. Morgunblaðið hefur undir hönd- um fundarboð sem félögum Geð- læknafélagsins var sent vegna „jóla- fundar“ félagsins um næstu helgi, merkt stjórn Geðlæknafélags Ís- lands. Fundarboðið er annars vegar með haus Geðlæknafélagsins og hins vegar lyfjafyrirtækisins Eli Lilly. Var boðið sent félagsmönnum með tölvupósti frá sölustjóra Eli Lilly. Í fundarboðinu segir: „Fundurinn er haldinn í samvinnu við Lilly á Ís- landi og eru allir félagsmenn og makar þeirra hjartanlega velkomn- ir“ en tekið fram að greiða þurfi fyrir maka. Ekki var í fundarboðinu að finna kynningu á faglegri dagskrá fund- arins, aðeins voru þar upplýsingar um matseðil og drykki, auk þess sem tekið var fram að milli rétta væri ferðasaga frá Kína og boðið yrði upp á söngatriði með kaffinu. „Það hafa engin boð um jólafund verið send út af hálfu Geðlækna- félagsins frá neinu lyfjafyrirtæki. Það er ekkert til í þessari ábendingu. Hins vegar koma engum við okkar innanfélagsfundir. Það er okkar mál. Okkar félag kemur engum við nema okkur sjálfum,“ segir Kristófer. Hagsmunaaðilar kosti ekki félagsstarfsemi Í samtali við Sigurbjörn Sveins- son, formann Læknafélags Íslands, sagðist hann ekki hafa heyrt af fyrr- nefndu boðsbréfi. Sagði hann að al- mennt væri það viðhorf læknasam- takanna að lyfjadreifingin eða aðrir hagsmunaaðilar kostuðu ekki fé- lagsstarfsemi lækna. Bendir hann á að nýverið hafi Læknafélag Íslands og Frumtak, sem er samtök fram- leiðenda frumlyfja á Íslandi, gert með sér samkomulag um að virða sameiginlega yfirlýsingu fastanefnd- ar evrópskra lækna (CPME) fyrir hönd læknastéttarinnar og Samtaka lyfjaiðnaðarins í Evrópu (EFPIA). Yfirlýsingin var birt í 2. tbl. Lækna- blaðsins árið 2006 og má einnig nálg- ast hana á vef Læknafélags Íslands á slóðinni: www.lis.is. Samkvæmt yfirlýsingunni mega lyfjafyrirtæki standa fyrir og styrkja læknafundi, en slíkir fundir verða að hafa skýrt fræðsluinnihald og þarf tilgangur atburðarins að koma skýrt fram í tilkynningu um hann. „Það kemur ekki til greina að hagsmuna- aðilar kosti félagsleg fundarhöld,“ segir Sigurbjörn og tekur fram að slík kostun væri óviðeigandi. Að- spurður segir hann stjórn Lækna- félags Íslands taka allar ábendingar um óréttmæta kostun alvarlega og skoða þær gaumgæfilega. Ekki náðist í forsvarsmenn Eli Lilly í gærkvöldi. Jólafundur geðlækna í boði lyfjafyrirtækis ÁSGEIR Þór Ásgeirsson, varðstjóri í lögreglunni í Reykjavík, var fulltrúi Íslands við hátíðlega athöfn í upp- hafi leiðtogafundar NATO í Ríga í gærmorgun, sem haldin var til heið- urs friðargæzluliðum NATO- ríkjanna í Afganistan, á Balkanskag- anum og annars staðar þar sem bandalagið hefur nú sveitir. Fulltrú- ar allra hinna NATO-ríkjanna 25 voru hermenn, sem eiga það sameig- inlegt með Ásgeiri að hafa verið við friðargæzlustörf í Afganistan. „Mér var mikill heiður að því að vera valinn fulltrúi þeirra íslenzku karla og kvenna, sem hafa starfað að friðargæzluverkefnum og eru nú við störf fyrir NATO,“ sagði Ásgeir í samtali við Morgunblaðið í Ríga. Jaap de Hoop Scheffer, fram- kvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins, sagði í ávarpi við at- höfnina að hermenn NATO-ríkjanna hefðu áratugum saman staðið vörð um frelsi og lýðræði í aðildarríkj- unum. Þetta frelsi væri hins vegar ekki hægt að líta á sem sjálfsagðan hlut og þess vegna þyrftu hermenn bandalagsins áfram að verja öryggi og málstað bandalagsins langt frá heimkynnum sínum. Yfir 50.000 karlar og konur tækju nú þátt í NATO-aðgerðum í sex ríkjum í þremur heimsálfum. Fram- kvæmdastjórinn þakkaði öllu þessu fólki og mæltist til þess að á fund- inum yrði höfð mínútu þögn í minn- ingu þeirra sem hefðu fallið í þjón- ustu bandalagsins. Scheffer orðaði það svo að „fulltrúi herafla hvers hinna 26 bandalagsríkja“ væri viðstaddur at- höfnina. Aðspurður hvort það væri ekkert torkennilegt að vera kallaður hermaður, sagði Ásgeir það komið upp í vana; „þetta er það sem gerist í hvert sinn sem við komum saman,“ segir hann. Ásgeir hefur meðal annars stýrt séraðgerðadeild alþjóðalögregl- unnar í Kósóvó. Ennfremur hefur hann starfað í friðargæzlunni í Afg- anistan undanfarin ár, bæði á Kabúl- flugvelli og í Norðvestur-Afganist- an, þar sem hann stýrði hreyfanlegu eftirlitsteymi. Hann stjórnaði m.a. öryggisgæzlu þegar árásin var gerð á íslenzka friðargæzluliða í Kjúk- lingastræti í Kabúl, en slapp ómeiddur úr þeirri atlögu. Lögreglumaður í hópi hermanna EPA Heiðraður Ásgeir Þór Ásgeirsson ÞAÐ er um að gera að bregða sér í bæjarferð þótt sólin sé lágt á lofti líkt og um þessar mundir. Hjördís Freyja lét fara vel um sig í vagninum sínum í gær og dúkkan hennar fékk líka að kynna sér mannlífið. Morgunblaðið/Golli Í bæjarferð í skammdeginu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.