Morgunblaðið - 30.11.2006, Page 11

Morgunblaðið - 30.11.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 11 Kringlunni – sími 581 2300 JÓLAGJÖFIN HANS - Peysur - Jakkapeysur - Skyrtur - Bindi - Treflar - Leðurjakkar FORSETAEMBÆTTIÐ hefur engin viðbrögð sýnt við greiðsluáskorun Sævars Péturssonar vegna óuppgerðra reikninga við endurgerð Packard-forsetabíls Sveins Björnssonar. Rétt er að leiðrétta að forsætisráðuneytið hefur ekki fengið greiðsluáskorun, eins og stóð í frétt blaðsins í gær, heldur forsetaembættið. Byggðist þetta á röngum upplýsingum til blaðsins. Uppgerður forsetabíllinn hefur staðið á verkstæði Sæv- ars um tveggja ára skeið og er gætt af öryggisfyrirtæki, en um er að ræða afar verðmætan safngrip í eigu Þjóð- minjasafnsins sem hefur fengið greiðsluáskorun ásamt forsetaembættinu og Bílgreinasambandinu. Að sögn Sævars er það alrangt að bílnum hafi verið „hnoðað sam- an“ við annan bíl af sömu gerð eins og formaður Bíl- greinasambandsins hefur haldið fram. „Þessir menn hafa aldrei komið að einu eða neinu í þessu og eru að þvæla eintóma vitleysu,“ segir Sævar. „Það var keyptur bíll til að nota varahluti úr en það var ekkert af boddíinu notað úr honum. Bílgreinasambandið átti að fylgjast með viðgerðinni og kosin var sérstök nefnd til þess. Ég vildi sjá þessa nefnd. Ég vissi hverjir voru kosnir í hana en síðan ekki söguna meir. Þetta er nú allt eftirlitið. Sævar segir að við endurgerð forsetabílsins hafi það verið haft að leiðarljósi að hafa allt sem mest upprunalegt. „Ég fékk ný bretti á bílinn að hluta til, allt upprunalega varahluti. Ef það er ekki nóg fyrir þá [Bílgreinasamband- ið], þá veit ég ekki hvernig á að gera hlutina. Áhersla lögð á uppruna bílsins Morgunblaðið/Árni Sæberg ÁRSFUNDUR Strætós bs. og Sam- tök sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu skoruðu í gær á ríkisvaldið að leggja sitt af mörkum til að bæta rekstrarskilyrði almenningssam- gangna og minnka álögur sem lagðar eru á starfsemina. Í ályktun Strætós og sveitarfélag- anna er lögð áhersla á að kaupendur almenningsvagna fái 2⁄3 hluta virðis- aukaskatts vegna kaupa á nýjum vögnum endurgreiddan á sama hátt og kaupendur hópferðabíla fái. Leið- réttingin verði afturvirk til ársins 2001 þegar lög um þetta tóku gildi. Þá verði kostnaðarauki sem varð vegna brottfalls þungaskatts og upp- töku olíugjalds leiðréttur. Ráðist verði í úrbætur á þeim þjóðvegum á höfuðborgarsvæðinu sem strætis- vagnar aka um, með það að mark- miði að efla og auka forgang þeirra í umferðinni. Loks styðji ríkisvaldið almenningssamgöngur og er farið fram á að styrkurinn nemi álögðum virðisaukaskatti á starfsemina. Ríkið bæti rekstrarskilyrði almenningssamgangna Morgunblaðið/ÞÖK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.