Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 12

Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MEIRIHLUTI menntamálanefndar Alþingis samþykkti í gærkvöldi að leggja til þá breyt- ingu á frumvarpinu um Ríkisútvarpið ohf. að því verði óheimilt að selja auglýsingar til birt- ingar á Netinu. Einnig leggur nefndin til ákveðnar takmarkanir á kostun dagskrárefnis á þá leið, að tekjur af samningum við kostunar- aðila megi ekki verða hærra hlutfall af kost- unar- og auglýsingatekjum en það er í dag eða um 10%. Ekki varð annað ráðið af heimildum á vett- vangi ríkisstjórnarmeirihlutans í gærdag en samkomulag væri þá í augsýn um breytingartil- lögu við frumvarpið um Ríkisútvarpið ohf., sem hefði að markmiði að koma í veg fyrir að RÚV verði fyrirferðarmeira á auglýsingamarkaði en verið hefur. Ekki var hljómgrunnur fyrir því að setja bann við auglýsingum eða að dregið yrði úr þeim í útsendri dagskrá hljóðvarps og sjón- varps. Á hinn bóginn voru uppi hugmyndir um skv. heimildum Morgunblaðsins að setja þak á útsendingartíma auglýsinga í mínútum talið. Við það yrði miðað, að auglýsingatími í dagskrá RÚV færi ekki umfram það sem hann var á síð- asta ári eða að meðaltali á síðustu þremur árum. Meirihluti menntamálanefndar komst hins vegar eingöngu að samkomulagi um að leggja til við þingið að settar verði skorður við að RÚV hasli sér völl á nýjum mörkuðum fyrir auglýs- ingar með því að leggja bann við sölu auglýs- inga á vefsíðu RÚV. Til umræðu hefur verið hvort banna ætti kostun sjónvarpsefnis í Rík- issjónvarpinu. Ekki er vilji til þess hjá meiri- hlutanum. Kostun sjónvarpsefnis hjá RÚV hef- ur nær eingöngu átt sér stað við útsendingar frá stórum menningar- og íþróttaviðburðum sem RÚV er ætlað að sinna. Með einhverjum ráðum þurfi að fjármagna útsendingar frá stórvið- burðum og kostunarsala sé heppilegasta fyr- irkomulagið. Niðurstaða meirihluta mennta- málanefndar í gærkvöldi varð sú að tekjur af samningum við kostunaraðila megi ekki verða hærra hlutfall auglýsinga- og kostunartekna en það er í dag eða um 10%. Menntamálanefnd fundaði um breytingarnar á frumvarpinu í gærmorgun og var svo boðað til aukafundar í gærkvöldi þar sem frumvarpið var afgreitt. Stjórnarmeirihlutinn stefnir ákveðið að því að frumvarpið verði afgreitt sem lög fyrir jól. Heyrst hafa efasemdarraddir meðal ein- stakra framsóknarmanna að undanförnu um frumvarpið og sendi Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna frá sér ályktun sl. þriðjudag þar sem þingmenn eru hvattir til þess að sam- þykkja ekki fyrirliggjandi frumvarp um RÚV ohf. „SUF telur að hagsmunum RÚV og al- mennings sé ekki best borgið með breytingu af þessu tagi, og telur vænlegra að skoða kosti þess að gera RÚV að sjálfseignarstofnun,“ seg- ir m.a. í ályktun SUF. Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar, sagði í gær að engar efa- semdir hefðu komið fram meðal framsóknar- manna innan menntamálanefndar. „Ég las á vef Björns Inga Hrafnssonar að hann hefði ein- hverjar efasemdir um þetta, og svo kom álykt- un frá Sambandi ungra framsóknarmanna. Ég hef ekki orðið var við þessi sjónarmið hjá fram- sóknarmönnum í nefndinni og ætla ekki að skipta mér af innanfélagsmálum þeirra. Björn Ingi á ekki sæti á Alþingi og þaðan af síður í nefndinni, þannig að þessi sjónarmið hafa ekki heyrst þar. Samstarf okkar sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í nefndinni hefur fram til þessa verið alveg óaðfinnanlegt í þessu máli. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en við séum samstiga,“ sagði hann eftir fund nefndarinnar í gærmorgun. Hefðu í för með sér verðhækkun Talsmenn fyrirtækja á auglýsingamarkaði eru mótfallnir hugmyndum um að takmarka þátttöku RÚV á auglýsingamarkaðinum. Ekki hefur verið óskað umsagnar Sambands ís- lenskra auglýsingastofa við frumvarpið en á fundi í fyrradag ákvað SÍA að óska eftir að koma sjónarmiðum auglýsingastofa á framfæri við þingnefndina. „Alveg skelfileg hugmynd,“ sagði Hallur Baldursson, framkvæmdastjóri auglýsingastof- unnar ENNEMM, í gærdag um þær hugmynd- ir sem fram hafa komið í umræðunni á seinustu dögum um að takmarka þátttöku RÚV á aug- lýsingamarkaði. „Eins og þetta snýr gagnvart okkur á auglýsingamarkaði þá er þetta í fyrsta lagi skemmdarstarfsemi gagnvart miðlinum sem slíkum. Við teljum að fjölmiðlar sem ætla að vera stórir og öflugir í þjóðlífinu þurfi að geta sinnt öllum hópum,“ segir hann. „Í öðru lagi verður þetta til þess að samþjöppun mun verða á auglýsingamarkaðinum, sem er ekki af hinu góða,“ segir Hallur. Hann segir það samdóma álit þeirra sem starfa á auglýsingamarkaði að ekki eigi að þrengja að þátttöku RÚV á auglýs- ingamarkaði. Að mati Halls myndi slíkt leiða til þess að einhver tilflutningur milli miðla ætti sér stað en óvíst væri hvernig hann mundi verða. „Þetta endar allt hjá neytendum og það er því ekki jákvætt að þrengja samkeppnina, sem hlýtur að hafa í för með sér verðhækkun.“ Þak sett á kostunarsamninga RÚV Morgunblaðið/Árni Sæberg Frumvarp Stefnt er að því að Ríkisútvarpið verð sjálfstætt hlutafélag í eigu ríkisins. Meirihluti menntamálanefndar leggur til að sett verði þak á kostunarsamninga hjá RÚV og að bannað verði að selja auglýs- ingar til birtingar á Netinu. Í HNOTSKURN »Framkvæmdastjóri ENNEMM telurað takmarkanir á auglýsingar RÚV myndu þrengja að samkeppni og leiða til verðhækkunar á markaðinum. »Rætt var um að setja þak á útsend-ingartíma auglýsinga í Ríkisútvarp- inu til að koma í veg fyrir að það verði fyrirferðarmeira á markaðinum. »Stefnt er að því að frumvarpið verðiafgreitt sem lög fyrir jól og nýju lög- in taki gildi 1. janúar 2007. Ákvæði um afnotagjald verði í gildi til 1. janúar 2009. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is K erfið er að mörgu leyti vanmáttugt gagnvart venjulegu fólki sem lendir í erfiðleikum. Forðast verður að stimpla alla sem lenda í vandræðum sem vandræðafólk og fara strax í það að kenna foreldrum um veik- inda barna sinna því það má ekki gleymast að það eru líka til geðveik börn. Þetta kom fram í máli Jennýjar Steingrímsdóttur og Ólafs Snorra- sonar á morgunverðarfundi sem fræðslunefnd Stéttarfélags ís- lenskra félagsráðgjafa stóð fyrir í gærmorgun í tengslum við 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Markmið fundarins var að fjalla um hinar ólíku birtingarmyndir ofbeld- is á heimilum, hvort sem það birtist gegn konum af hendi maka, öldr- uðum af hendi aðstandenda og heil- brigðisstarfsfólks eða gegn for- eldrum ýmist af hendi barna þeirra eða kerfisins. Auk Jennýjar og Ólafs fluttu erindi þær Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmda- stýra Samtaka um kvennaathvarf, og Kristjana Sigmundsdóttir, fé- lagsráðgjafi í útskriftar- og öldr- unarteymi LSH. Jenný og Ólafur eru foreldrar fjögurra barna og eru synir þeirra tveir, Matthías sem er 17 ára og Steingrímur sem er 21 árs, báðir geðfatlaðir. Var eldri sonur þeirra Steingrímur með þeim á fundinum og sat í pallborði ásamt öðrum fyr- irlesurum að erindum loknum. Fram kom í máli Jennýjar og Ólafs að rúmur áratugur er síðan eldri sonurinn veiktist. Röktu þau raunir sínar við að fá rétta greiningu fyrir Steingrím, sem sýndi ofbeldisfulla hegðun og átti til að fá köst sem hann mundi síðan ekkert eftir, þar sem hann braut t.d. allt leirtau, reif fötin sín og barði frá sér. Eftir margra mánaða baráttu fyrir því að fá rétta greiningu og meðhöndlun var Steingrímur loks lagður inn á BUGL, en útskrifaður þaðan eftir átta mánuði þar sem hann þótti of veikur til þess að vera vistaður á spítalanum og var sendur heim. Steingrímur hafði verið greindur með athyglisbrest og ofvirkni og lýsti Ólafur því hvernig reynt var að gefa honum rítalín, en það gerði ekkert nema flýta framþróun sjúk- dómsins. Á vakt allan sólarhringinn Ólafur og Jenný lýstu því hvernig þau hófu að leita sér upplýsinga á Netinu, sem leiddi til þess að þau höfðu uppi á amerískum fræði- manni sem aðstoðaði þau við að greina Steingrím með geð- hvarfasýki með aðstoð staðlaðra prófa. „Þegar hann loks fékk rétta greiningu gat hann loks fengið rétta lyfjagjöf og þá fórum við loks- ins að sjá árangur,“ sögðu Ólafur og Jenný og bættu við að þegar Steingrímur var kominn á lithium hefði hann getað farið að sækja skóla með afar góðum árangri, en Steingrímur er í dag búinn með rennismiðinn, langt kominn með vélvirkjann og stúdentspróf af nátt- úrufræðibraut. Að sögn Ólafs tóku þau Jenný þá ákvörðun að hugsa um drengina heima, enda sannfærð um það væri best fyrir strákana. „Hins vegar var spurning hvernig við ættum á sama tíma að framfleyta sex manna fjölskyldu,“ segir Ólafur og benti á að fyrst hefði honum verið bent á að skrá sig á atvinnuleysisbætur. „Það samrýmdist hins vegar ekki minni sjálfsvirðingu, enda var ég ekki atvinnulaus,“ segir Ólafur og tekur fram að þá hafi Félagsþjón- ustan komið með afbragðslausn fyrir alla sem fólst í því að Ólafur var ráðinn í fullt starf til þess að hugsa um syni sína, en bæði hann og Jenný eru heimavinnandi. Þann- ig má segja að lausnin í þeirra til- felli hafi falist í því að heimilinu var breytt í meðferðarheimili þar sem foreldrarnir voru gerðir að starfs- mönnum. Lögðu Jenný og Ólafur áherslu á að síðan þá hefði þau átt afar gott og árangursríkt samstarf við BUGL og Félagsþjónustuna sem staðið hefði við bakið á þeim eins og klettur. Fram kom í máli þeirra Ólafs og Jennýjar að þar sem þau væru í vinnunni allan sólarhringinn alla daga ársins væri afar mikilvægt að þau fengju reglulega frí til þess að vinda ofan af sér þreytuna sem skapist við þessar aðstæður. „Hér áður fyrr nægði okkur að fá frí á 16 mánaða fresti, en eftir því sem tím- inn líður verður úthald okkar minna. Í dag þurfum við að komast í burtu tvisvar á ári til þess að vinda ofan af okkur og hlaða batteríin,“ sagði Jenný. Í erindinu gerði Jenný ofbeldi kerfisins sérstaklega að umtalsefni. Greindi hún frá því hvernig hún hefði framan af ferlinu á fundum með starfsmönnum heilbrigðiskerf- isins og Félagþjónustunnar ítrekað orðið fyrir árásum og niðurrifi af hendi þeirra sem hefðu frekar átt að styðja við bakið á henni. Tók hún fram að hún hefði aðeins mætt slíku viðhorfi ef hún mætti á fund ein, en ekki ef Ólafur var með henni. „Þótt okkur konur vanti typpi erum við persónur sem umgangast á af virð- ingu og vinsemd. Það á ekki að þurfa að hafa karlinn með til þess að aðgát sé höfð í nærveru sálar.“ Heimilið var gert að meðferðarstað og foreldrarnir ráðnir sem starfsmenn Ofbeldi á heimilum á sér ýmsar birtingar- myndir. Það getur birst gegn konu af hendi maka, gegn öldruðum af hendi aðstandenda eða gegn foreldrum af hendi barna þeirra sem og kerfisins. Morgunblaðið/Ásdís Heimilið meðferðarstaður Heimili í herkví var yfirskrift erindis Jennýjar Steingrímsdóttur og Ólafs Snorrason- ar á fundinum, en þau hjónin eiga tvo geðfatlaða drengi og hugsa um þá á heimili sínu. silja@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.