Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 41

Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 41 menning HljómsveitakeppninniGBOB eða Global BattleOf the Bands lauk síðasta föstudag. Það var framsækna (les: progg) rokksveitin Perla sem bar sigur úr býtum á mjög jöfnu kvöldi, þar sem þrjár aðrar sveitir kepptu. Þær voru Royal Fanclub, sem lék hresst nýbylgj- urokk, Who Knew?, sem einnig lék hresst nýbylgjurokk, og Gordon Riots, sem lék „metal- core“. Allar voru sveitirnar prýði- legar á sínu sviði en Perla bjó yf- ir herslumuninum. Gordon Riots voru geysiþéttir, vel spilandi og meðlimir búnir að hristast vel saman. Það var helst í lagasmíð- um sem á vantaði – fullfyr- irsjáanlegar oft. Royal Fanclub lék ærslafullt, hljóðgervlabundið nýrokk að hætti Jakobínurínu, efnilegt allt saman en einhverju var þó ábótavant. Sömu sögu er að segja af Who Knew?, það vant- aði ekki hressleika og stuð, en það var samt eitthvað sem maður saknaði.    Perla var vel að sigrinum kom-in. Bandið afskaplega vel spilandi, en tæknin yfirtók aldrei tilfinninguna. Meðlimir af- skaplega ástríðufullir gagnvart því sem þeir voru að gera og raddanir vel til fundnar. Gaman líka að heyra íslenska texta. Tón- listin er eins og frosin í tíma, progg frá áttunda áratugnum, og svona get ég ímyndað mér að tónleikar með Náttúru eða Til- veru hafi verið. Það var því ekki frumleikanum fyrir að fara í leik Perlu en tónlistin var flutt af það miklum heilindum og einlægni að það var ekki hægt annað en hrí- fast með. Perla fer til Lundúna hinn 12. desember og etur þar kappi við yfir tuttugu aðrar hljómsveitir. Undanúrslitakvöld númer þrjú og fjögur fóru fram á miðvikudeginum og fimmtudeg- inum á undan. Ég rak framgang fyrri kvöldanna í grein sem birt- ist þirðjudaginn 21. nóvember.    Tvö síðari undanúrslitakvöldinvoru afskaplega mettuð af þungarokki og fjölbreytnin lítil. Það verður bara að segjast alveg eins og er að heilt yfir voru und- anúrslitakvöldin fremur slöpp. Afskaplega einsleit (samanstóðu að mestu af miður góðu þunga- rokki), auk þess sem tala kven- manna var núll. Þetta er í þriðja skipti sem þessi keppni er haldin hérlendis og hún hefur alla burði til að blómstra frekar, og myndi veita skemmtilegt mótvægi við Mús- íktilraunir. Slík þróun ætti að koma með aukinni og betri kynn- ingarstarfsemi, og það er auk þess vonandi að flóra hljómsveita fari að verða fjölskrúðugari. Til mikils er að vinna … Perla sigraði í GBOB » Þetta er í þriðjaskipti sem keppnin er haldin hérlendis og hún hefur alla burði til að blómstra frekar. arnart@mbl.is AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen Perla Sveitin var vel að sigrinum komin. Bandið afskaplega vel spilandi. Meðlimir afskaplega ástríðufullir gagnvart því sem þeir voru að gera. Jólablað Morgunblaðsins Jól 2006 Glæsilegt Jólablað Morgunblaðsins kemur út á morgun! Girnilegar 104 síður Halli og Heiðar gleðja börnin Frábær plata fyrir börn á öllum aldri ÞAÐ ER vel við hæfi að kvikmyndin The Nativity Story sé frum- sýnd á fyrsta degi desembermánaðar. Myndin segir sögu Maríu og Jósefs, frá því að Gabríel erkiengill birtist Maríu og tilkynnir henni um þungunina og þar til vitringarnir þrír vitja nýfædds Jesú í fjárhúsinu. Leikstjóri myndarinnar er Catherine Hardwicke en í hlut- verkum Maríu og Jóseps eru þau Keisha Castle-Hughes (Whale Rider) og Oscar Isaac. Heimsfrumsýning The Nativity Story fór fram í Vatíkaninu í lok nóvember og þótti það talsverðum tíðindum sæta að kaþólsk yfirvöld hefðu lagt blessun sína yfir umfjöllun um Maríu og Jesú með þessum hætti. Myndin er frumsýnd í Bandaríkjunum á morgun sem og hér á landi í Háskólabíói, Regnboganum og Sambíóunum á Akureyri. Frumsýning | The Nativity Story Fæðing Jesú Erlendir dómar Hollywood Reporter: 80/100 Variety: 50/100 Skv. Metacritic.com The Nativity Story Segir frá ferðalagi Maríu og Jóseps frá Nazaret til Betlehem.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.